Morgunblaðið - 18.11.2001, Síða 58

Morgunblaðið - 18.11.2001, Síða 58
ÞEIR Mick Jagger og Paul McCartney eru búnir að vera lengur í rokkinu en margir kæra sig um að rifja upp. Jagger hefur sungið með Rolling Stones í fjörutíu ár en fjörutíu og eitt ár er síðan Mc- Cartney tók að syngja og spila með Bítlunum. Þeir eiga fátt annað sameiginlegt en að vera breskir tónlistarmenn, Jagger fyrst og fremst söngvari og sviðsmaður, en McCartney með helstu lagasmiðum poppsögunnar og þátttakandi í því að breyta gangi rokksins oftar en einu sinni. McCartney hefur ver- ið einn síns liðs síðan Bítlarnir lögðu upp laupana fyrir rúmum þrjátíu árum, en Jagger hóf ekki sinn sólóferil fyrr en um miðjan níunda áratuginn. McCartney naut mikilla vinsælda með hljómsveit sinni Wings og hefur gengið bráðvel með sólóskíf- urnar, þó ekki hafi hann náð með tærnar þar sem Bítlarnir hafa hælana, en Jagger aftur á móti gengið frekar stirðlega að koma sér á framfæri; fyrstu sólóskífur hans þóttu ekki sérstakar og seldust illa og þó sú þriðja þyki yfirleitt sæmileg gekk hún heldur ekki ýkja vel. Enginn lagasmiður Þó Jagger sé enginn lagasmiður kann hann aft- ur á móti að velja sér aðstoðarmenn, eins og sann- aðist svo vel á síðustu sólóskífu hans, Wandering Spirit, sem kom út fyrir átta árum, en á henni hélt Rick Rubin um taumana. Á „Goddess in the Door- way“ koma við sögu Bono, Wyclef Jean, Lenny Kravitz og Rob Thomas sem reyndist Carlos Sant- ana svo vel, en allir leggja til lög í samvinnu við Jagger. Meðal gesta eru einnig gítarhetjurnar Pete Townshend og Joe Perry, en obbann af lög- unum semur Jagger með Matt Clifford, sem hefur leikið með Rolling Stones á tónleikum, og Marti Frederiksen, sem er helst frægur fyrir samstarf sitt við Aerosmith. Menn höggva eftir því að textarnir eru venju fremur persónulegir og opinskáir, fjalla um ástina og andann, eins og Jagger lýsir því sjálfur. Átta ár eru liðin frá því Jagger sendi síðast frá sér sóló- skífu, en hann segist hafa verið að semja meira og minna allan þann tíma en þó mest síðustu ár þegar hann var kominn með ákveðna hugmynd að plötu sem lét hann ekki í friði. „Lögin á skífunni eru þess eðlis að þau falla vel að einföldum flutningi með kassagítar, þess vegna heima í eldhúsi, en við færðum þau í skrautlegri búning eftir því sem okkur sýndist fara best,“ sagði hann í viðtali fyrir skemmstu. Harkalegir rafgítarar Innihald Driving Rain, plötu Pauls McCartn- eys, er aftur á móti veigameira og beinskeyttara en Jagg- ers, því McCartney er ekki síst að syngja um fráfall Lindu eiginkonu sinnar og dauðastríð hennar sem tók mörg ár. Þeir sem hlýða á plötu hans taka þegar eftir því að meira er um harkalega rafgítara en á fyrri skífum McCartneys. Ekki má þó skilja það svo að á skífunni sé graðhestarokk, hún er venju fremur fjölbreytt og innan um rokkarana eru popplög að hætti hússins. Jagger vann sína skífu að mestu með bandarísk- um tónlistarmönnum og McCartney leitar sér einnig aðstoðarmanna vestan hafs, því allir sem að skífunni koma að honum og syni hans frátöldum eru Bandaríkjamenn. Upptökustjórinn er David Kahne sem gert hefur garðinn frægan með Sugar Ray, Sublime, Bangles og Tony Bennett, en aðrir eru Rusty Anderson, Abe Laboriel yngri og Gabe Dixon. James McCartney leikur á rafgítar í einu lagi og semur tvö með föður sínum. Annars sá Kahne um gítar- og hljómborðsleik og sinnti allri forritun. Eins og til að undirstrika bandarískan blæ skífunnar tók McCartney hana upp í Los Ang- eles, 22 lög alls, en 15 rötuðu á plötuna. Engar æfingar Upptökustjórinn hefur sagt svo frá að þegar McCartn- ey kom til Los Angeles með lögin í farteskinu hafði hann ekki hitt hljómsveitarmeðlimi og ekkert hafði verið æft fyrir upptökurnar. Hann kenndi mönnum einfaldlega lögin með því að spila þau á kassagítar og síðan var bara spilað eftir eyr- anu. Að sögn vildi McCartney með þessu ná álíka stemmningu og þegar Bítlarnir voru að taka upp, enda höfðu þeir Harrison og Ringo yfirleitt ekki heyrt lögin þegar komið var í hljóðver að taka upp. McCartney hefur það fram yfir Jagger að hann er lagasmiður af guðs náð, en hinn í besta falli orð- heppinn. Þrátt fyrir það á McCartney það til að detta niður í ótrúlegustu hluti, eins og þegar hann tróð „Maxwell’s Silver Hammer“ upp á félaga sína á sínum tíma og margir telja hafa verið banabita Bítlanna. Slíka sykurmola með hunangi er einnig að finna á Driving Rain, sjá til að mynda lagið „Magic“, en inn á milli eru lög sem McCartney syngur af næsta óvenjulegum tilfinningahita þegar hann er annars vegar og gerir eftirminnileg fyrir vikið. Hann er einnig að spreyta sig á tilrauna- kenndri tónlist fyrir hann, eins og í laginu „Rinse the Raindrops“, þar sem hann syngur sama erindi aftur og aftur í tíu mínútur, en aldrei á sama hátt. Þess má geta að eftir árásina á World Trade Cent- er-turnana í New York og á Pentagon bætti hann á bandaríska útgáfu plötunnar laginu „Freedom“, sem tekið er upp á styrktartónleikum í New York. Engin áhætta Jagger er aftur á móti að fara troðnar slóðir, tekur enga áhættu og gerir engar tilraunir. Aðstoðarmennirnir tryggja að allt er slétt og fellt, hljóðfæraleikur og útsetningar til fyr- irmyndar og það fer Jagger svosem prýði- lega, en ekki er örgrannt um að sú spurning vakni af hverju hann sé að bjástra við þetta; er ekki margsannað að Keith Rich- ards á að vera við stýrið? Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Tveir gamlir rokkhundar gefa út sólóskífur um þessar mundir og það mjög ólíkar. Árni Matthíasson hlustaði á nýjar plötur Pauls McCartneys og Micks Jaggers. Paul McCartney Mick Jagger Ja gg er /M cC ar tn ey FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isSÍ I 564 0000 - .s ara io.is5 hágæða bíósalir Sýnd kl. 2 og 4. Með íslensku tali. Mánudagur kl. 4. Miðasala opnar kl. 13  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 3.30, 5.45 og 8. B. i. 16. Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Mánudagur kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni. Úr smiðju snillingsins Luc Besson (Leon, Taxi 1&2, Fifth Element) kemur ein svalasta mynd ársins. Zicmu, Tango, Rocket, Spider, Weasel, Baseball & Sitting Bull eru YAMAKAZI. Þeir klifra upp blokkir og hoppa milli húsþaka eins og ekkert sé...lögreglunni til mikils ama. Ótrúleg áhættuatriði og flott tónlist í bland við háspennu-atburðarrás!  Empire SV Mbl Rás 2 MOULIN ROUGE! Hausverkur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  DV  Kvikmyndir.com Frumsýning Reese Witherspoon fer á kostum sem ljóska sem sannar hvað í ljóskum býr  1/2 Ungfrú Skandinavía Íris Björk Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Mánudagur kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Ljóskur landsins sameinist!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.