Morgunblaðið - 28.11.2001, Side 1

Morgunblaðið - 28.11.2001, Side 1
273. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 28. NÓVEMBER 2001 vopnaeftirlitsmönnum að koma aftur til landsins, „til að ganga úr skugga um að [Írakar] séu ekki að framleiða gereyðingarvopn.“ Meðlimur sendi- nefndar Rússa hjá Sameinuðu þjóð- unum sagði í gær að Rússar væru sammála hinum fjórum ríkjunum, er eiga fastafulltrúa í öryggisráðinu, um þá grundvallarreglu að herða skyldi eftirlit með vopnabúri Íraka. Talsmaður Íraksstjórnar sagði í gær, að vopnaeftirlitsmönnum yrði ekki hleypt inn í landið fyrr en við- skiptabanninu, sem Írakar hafa verið í síðan þeir réðust inn í Kúveit fyrir ellefu árum, yrði aflétt. BANDARÍSKAR hersveitir í Afgan- istan, sem leita að meðlimum í al- Qaeda-samtökum Osama bin Ladens og forystumönnum talibana, einbeita sér að borgunum Jalalabad í norð- austurhluta landsins og Kandahar í suðurhlutanum, að því er Tommy Franks, yfirmaður herafla Bandaríkj- anna í Afganistan, greindi frá á frétta- mannafundi í gær. Í ljósi allra upplýsinga sem banda- ríski herinn hefur aflað hefur hring- urinn verið þrengdur um þessa tvo staði. „Þetta eru þeir staðir sem okk- ur sýnist mestu skipta núna,“ sagði Franks, og tiltók, að leitin að talib- önum beindist að Kandahar, og leitin að al-Qaeda-liðum að svæðinu í grennd við Jalalabad. Sá staður, sem líklegast er talið að bin Laden haldi sig nú á, er fjallavirki í um 50 km fjar- lægð frá Jalalabad. Grunur um gereyðingarvopn Þá kom einnig fram í máli Franks, að Bandaríkjamenn hefðu afmarkað rúmlega 40 staði þar sem grunur léki á að fylgismenn bin Ladens hefðu unnið að þróun gereyðingarvopna, „eða einhverju álíka“. Liðsmenn Norðurbandalagsins hefðu nú þegar marga þessara staða á valdi sínu. „Við erum að kanna þessa staði kerfisbundið,“ sagði Franks. Á ýms- um rannsóknarstofum á þessum stöð- um hefðu fundist ýmis efni, sem óljóst væri til hvers hefði átt að nota. Sum kynnu að hafa verið ætluð til friðsam- legra nota, t.d. til að búa til áburð. Efnin verða flutt til Bandaríkjanna til rannsóknar. „Við höfum ekki fundið neitt sem við teljum vera eitthvað ákveðið,“ sagði Franks. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði á fréttamannafundinum, að ef gereyðingarvopn væri að finna í Afg- anistan hefðu Bandaríkjamenn allan hug á að koma höndum yfir þau og tryggja að þau yrðu flutt frá landinu. Írakar hvergi bangnir Talsmaður Íraka sagði í gær, að þeir væru óhræddir við hótanir Bandaríkjamanna, og myndu verjast öllum árásum er þeir kynnu að verða fyrir. George W. Bush Bandaríkjafor- seti varaði Íraka við því sl. mánudag, að þeir myndu gjalda þess að fram- leiða gereyðingarvopn. Sumir ráðgjafar Bandaríkjaforseta hafa hvatt hann til að beina spjótum sínum næst að Írökum í stríðinu gegn hryðjuverkastarfsemi. Bandaríski herinn greindi frá því í gær að banda- rískar og breskar herflugvélar hefðu varpað sprengjum á hernaðarmann- virki í suðurhluta Íraks, vegna hótana gegn flugvél bandamanna er var á eftirlitsferð um flugbannssvæðið yfir suðurhluta landsins. Bush hvatti á mánudaginn Saddam Hússein Íraksforseta til að leyfa Bandaríkin þrengja hringinn um talibana og al-Qaeda Leitað við Jalala- bad og Kandahar Tampa á Flórída, Bagdad, Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP.  Leynist Osama/22 LÍK hermanna talibana á víð og dreif innan veggja virkis í norður- hluta Afganistans í gær eftir að her Norðurbandalagsins braut á bak aft- ur uppreisn talibananna og liðs- manna al-Qaeda-samtakanna. Þeir höfðu gert uppreisn í virkinu, þar sem þeim var haldið í fangelsi, sl. sunnudag, og náð hluta þess á sitt vald, ásamt vopnabirgðum. Taliban- arnir og al-Qaeda-liðarnir voru um 600 og eru allir sagðir hafa fallið. AP Blóðbað í fangelsis- virkinu  Uppreisn stríðsfanga/23 ÍSRAELSK kona lést í gær af skot- sárum er hún hlaut er palestínskir byssumenn hófu skothríð á strætis- vagn á Gaza-svæðinu, nokkrum klukkustundum eftir að fjórir aðrir féllu í skotbardaga í Ísrael. Önnur kona særðist alvarlega í árásinni á strætisvagninn, og barn særðist lít- illega. Ísraelskir hermenn svöruðu skotárásinni og felldu Palestínu- mann sem sagður var hafa staðið að árásinni á strætisvagninn. Ísraelar sökuðu í gær Yasser Ara- fat, forseta heimastjórnar Palestínu- manna, um að hafa persónulega gef- ið fyrirmæli um „hryðjuverkaárásir“ á ísraelska borgara. Heimastjórn Palestínumanna vísaði þessari full- yrðingu til föðurhúsanna og sagði hana „lygi“. Tveir myrt- ir á Gaza  Skutu tvo/21 Jerúsalem. AFP. leggja áherslu á réttindi kvenna í landinu. En ekkert varð af göng- unni þar eð háttsettur embættis- maður í Norðurbandalaginu aflýsti henni, og konurnar urðu frá að hverfa. RAHIMA horfir út um gluggann hjá sér í Kabúl í gær, þar sem um 200 konur komu saman á heimili Suraya Parlika, stofnanda Kven- réttindasamtaka Afganistans, og ætluðu að fara í kröfugöngu til að AP Rahima gægist út mörku er nú þrjú ár en fyrir utan að lengja hana í sjö ár, segir stjórnin í stefnuyfirlýsingu sinni um innflytj- endamálin, að framvegis verði aðeins þeim veitt hæli, sem uppfylla alþjóð- legar skilgreiningar á flóttafólki. Öðrum, jafnvel tugþúsundum manna, verði vísað frá. Af öðrum atriðum má nefna, að landvistarleyfi flóttafólks, sem fer í frí til síns fyrra heimalands, verður tekið til athugunar á ný með hugs- anlega brottvísun fyrir augum. Með ferðinni hafi það sýnt, að landvist- arleyfið var fengið á fölskum for- INNFLYTJENDUR í Danmörku verða að bíða í sjö ár eftir formlegu landvistarleyfi og aðgangi að danska velferðarkerfinu. Er þetta eitt af meginatriðunum í stefnu hinnar nýju stjórnar borgaraflokkanna, Venstre og Íhaldsflokksins, í innflytjenda- málum, en hún hyggst ekki veita öðr- um hæli en þeim, sem uppfylla al- þjóðlegar skilgreiningar á flótta- mönnum. Samtök innflytjenda í Danmörku hafa tekið tillögunum illa og saka stjórnina um „aðskilnaðar- stefnu“. Biðin eftir landvistarleyfi í Dan- sendum og fólkið hafi ekki haft neitt að óttast í heimalandi sínu. Þá verða ákvæði um sameiningu fjölskyldna þrengd verulega og þeim sem brotið hafa af sér verður vísað burt. Einnig má vísa þeim burt, sem fengið hafa landvistarleyfi, gerist þeir sekir um alvarlegt afbrot. Í stefnuyfirlýsing- unni segir, að neiti eitthvert ríki að taka við eigin þegnum, sem vísað hefur verið frá Danmörku, verði það svipt allri aðstoð sé um hana að ræða. Mohamed Gelle, formaður stærstu samtaka innflytjenda í Dan- mörku, sagði í gær í grein í Politiken, að það sem væri að gerast í Dan- mörku væri verra en það, sem Jörg Haider hefði boðað í Austurríki, og annar leiðtogi innflytjenda sagði, að „mikill uggur og óvissa“ væri nú meðal þeirra. Víst er þó talið, að þessi herta stefna muni mælast vel fyrir hjá flestum dönskum kjósend- um, sem hafa áhyggjur af mikilli fjölgun útlendinga, einkum fólks frá þriðjaheims-ríkjum. Sumir telja þó, að heldur muni anda köldu í garð Dana innan Evrópusambandsins á næstunni. Danskir innflytjendur ósáttir við tillögur stjórnarinnar um landvistarleyfi Biðtíminn lengdur í sjö ár Kaupmannahöfn. AP, AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.