Morgunblaðið - 28.11.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHeiðar tryggði Watford sigur
á móti Charlton / C3
Þróttur og Utrect hafa
náð samkomulagi / C1
4 SÍÐUR8 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir sérblað
um bækur sem
koma mun út
vikulega til jóla.
ENN á ný er óvíst hvort Har-
aldur Örn Ólafsson kemst á
hæsta tind Eyjaálfu, Car-
stenzs Pyramid, vegna
ótryggs stjórnmálaástands í
Nýju-Gíneu. Innfæddir hafa
barist vopnaðri baráttu fyrir
sjálfstæði landsins og eru mál
því snúin fyrir fjallgöngu-
menn á svæðinu.
Haraldur er nú staddur á
hóteli í bænum Timika á suð-
urströnd Irian Jaya-héraðsins
í Indónesíu, rúmlega 100 km
sunnan við fjallið. Í samtali
við bakvarðarsveitina í gær-
morgun sagðist Haraldur enn
ala þá von í brjósti að komast
á fjallið þótt sú von dofnaði
með hverri mínútu sem liði.
Hugmynd hans er sú að fara í
gegnum miklar koparnámur
við rætur fjallsins, en yfir-
stjórn landsins er mjög treg
að leyfa það. Til vara er enn
verið að reyna að útvega
þyrlu til fararinnar. Ef það
gengur ekki mun Haraldur
fara til Ástralíu og klífa
Kosciusko-tindinn sem er
u.þ.b. 2.200 metra hár og
einnig viðurkenndur sem einn
hátindanna sjö.
Aftur
óvissa
með upp-
göngu á
Carstenzs
GUNNAR Karl Guðmundsson, að-
stoðarforstjóri Skeljungs, segist
vonast eftir að verð á bensíni lækki
um næstu mánaðamót. Miklar hrær-
ingar séu hins vegar á heimsmarkaði
með bensín og gengi krónunnar hafi
einnig tekið verulegum breytingum í
mánuðinum.
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði
mikið um miðjan nóvember. Olíufat-
ið fór um tíma niður í 17 dollara, en
það var nálægt 22 dollurum um síð-
ustu mánaðamót. Verðið hefur hins
vegar verið að þokast upp aftur síð-
ustu daga og er núna tæplega 19
dollarar fatið.
Gunnar Karl sagði að gengi krón-
unnar hefði lækkað mikið í mánuðin-
um. Eftir sem áður sagðist hann von-
ast eftir að grundvöllur yrði fyrir
lækkun á bensíni.
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins, sagðist meta stöðuna með
svipuðum hætti. Lækkun á heims-
markaði væri það mikil að grundvöll-
ur ætti að vera fyrir bensínlækkun
þrátt fyrir mikla hækkun á gengi
krónunnar.
Stefnt að
verðlækkun
á bensíni
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að
fundur sinn í gærkvöldi í Ráðherrabústaðnum með Jan
Petersen, nýskipuðum utanríkisráðherra Noregs, hafi
verið bæði gagnlegur og vinsamlegur.
Þetta var fyrsta heimsókn Petersens til annars lands
síðan hann varð utanríkisráðherra og segir Halldór Ás-
grímsson að hann hafi lagt mikla áherslu á að koma
fyrst til Íslands, sem sé ánægjulegt.
Evrópska efnahagssvæðið var aðalmálefni fundarins
og með hvaða hætti mætti styrkja stöðu þjóðanna á
grundvelli þess, að sögn Halldórs Ásgrímssonar. Hann
segir að fljótlega þurfi að ganga frá því á hvern hátt
verði gengið til frekari viðræðna við Evrópusambandið
og hafi verið farið yfir það á fundinum. Einnig hafi ver-
ið rætt um samstarf Íslands og Noregs á vettvangi Eft-
irlitsstofnunar EFTA (ESA) og EFTA-dómstólsins en
ganga þurfi frá því hvernig verkaskipting verði þar.
Málið sé ekki útrætt en reynt verði að ljúka því sem
fyrst.
Ráðherrarnir hittast í næstu viku í tengslum við fund
Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Búkarest og í
framhaldi af því á utanríkisráðherrafundi NATO í
Brussel og segir Halldór Ásgrímsson að þar muni þeir
halda áfram að ræða um þessi mál.
Morgunblaðið/Golli
Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á fundi sínum í gærkvöldi.
Gagnlegur og vinsamlegur fundur
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að
hefja undirbúning að því að opna á ný
fyrir umferð um Hafnarstræti til
austurs að tillögu sjálfstæðismanna.
Skipulags- og byggingarnefnd leitaði
umsagnar borgarverkfræðings, sem
var jákvæð, og Strætó bs., sem var
neikvæð.
Í umsögn borgarverkfræðings um
tillöguna er rifjað upp að ástæður fyr-
ir lokun Hafnarstrætis hafi m.a. verið
þær að minni umferð yrði um Hverf-
isgötu sem væri of mikil á álagstímum
og mengunar gætti í Hafnarstræti
þegar bílaröð væri mikil. Lokunin
myndi einnig auðvelda strætisvögn-
um að halda áætlun og auka öryggi
gangandi vegfarenda. Síðan segir í
umsögn borgarverkfræðings:
„Þessi rök eru áfram fyrir hendi.
Sé áhugi fyrir að opna götuna í til-
raunaskyni og koma til móts við
kaupmenn um jólin og aðra þá sem
hagsmuni hafa af opnuninni verði það
gert með eftirfarandi hætti sem mið-
ar að því að draga sem mest úr nei-
kvæðum áhrifum opnunarinnar.
1. Með skiltum verði aðeins leyfð
hægribeygja suður Lækjargötu.
2. Sett verði upp umferðarljós á móts
við austurenda Zimsenhúss sem
verði í sama fasa og ljós við Lækj-
argötu.“
Í umsögn Strætó segir að slysa-
hætta muni skapast og að vagnar
verði fyrir töfum. Einnig er talið að
bílstjórar muni ekki almennt fara eft-
ir boðmerkjum um að beygja aðeins
til hægri heldur halda austur Hverf-
isgötu .
Skipulags- og byggingarnefnd
samþykkti tillögur borgarverkfræð-
ings og þær voru aftur samþykktar á
fundi borgarráðs í gær.
Samþykkt
að opna
Hafnar-
stræti á ný
FISKISTOFA tilkynnti í gær Tálkna ehf., útgerð
Bjarma BA, að skipið yrði svipt veiðileyfi í átta
vikur frá og með 1. desember nk. sökum þess að
áhöfnin á Bjarma hefði gerst sek um að kasta afla
fyrir borð í veiðiferð sem sýnt var frá í sjónvarps-
fréttum fyrir skömmu.
Hægt er að kæra ákvörðunina til sjávarútvegs-
ráðuneytisins en slíkt frestar þó ekki svipting-
unni. „Þeir skjóta sem sagt fyrst og spyrja svo,“
sagði Níels Ársælsson, skipstjóri á Bjarma, í
samtali við Morgunblaðið í gær. Hann bjóst við
að kæra yrði lögð fram í dag en var ekki bjart-
sýnn á skjóta afgreiðslu.
Setur atvinnu fjölda manns í uppnám
Níels segir ljóst að svipting veiðileyfis setji at-
vinnu níu manna áhafnar Bjarma í uppnám auk
þess sem skipið hafi landað um helmingi þess afla
sem unninn er á Flateyri þessa mánuði þar sem
um 50 manns vinna við fiskvinnslu. Þá sé ljóst að
ákvörðunin hafi alvarlegar afleiðingar fyrir
Tálkna.
Í bréfi Fiskistofu til Tálkna er m.a. vísað í við-
tal við Níels sem birtist í DV mánudaginn 12.
nóvember sl. Þar viðurkennir hann að myndir
sem sýndu brottkast afla og sýndar voru í sjón-
varpi og dagblöðum hafi verið teknar um borð í
skipi hans, Bjarma. Í viðtalinu er m.a. haft eftir
Níelsi: „Þarna er náttúrlega um alveg svakalegt
lögbrot að ræða af okkar hálfu eða minni hálfu.
Ég er skipstjórinn og ræð því sem er gert.“ Í
bréfi sem lögmaður Tálkna sendi Fiskistofu kem-
ur fram að Níels fullyrði að rangt hafi verið haft
eftir honum í fjölmiðlum um svakalegt lögbrot af
hans hálfu á fiskveiðilöggjöfinni. Hins vegar hafi
hann rætt almennt við blaðamann um brottkast á
fiski á Íslandsmiðum sem stundað væri í umtals-
verðum mæli og væri svakalegt lögbrot sem skip-
stjórar bæru ábyrgð á. Aðspurður segir Níels að
annaðhvort hafi verið rangt eftir honum haft eða
hann hafi misskilið spurningu blaðamanns.
Sýktur og selbitinn fiskur
Í bréfi lögmannsins kemur ennfremur fram að
umræddar myndir sem sýndar voru í sjónvarps-
fréttum hafi verið teknar á fyrirfram ákveðnu
veiðisvæði, við svonefnt Kópanesrif sem er sand-
fláki vestur af Kópanesi. Þessi veiðislóð sé
skammt undan alþekktu sellátri. Fiskur þar sé
oft mjög sýktur af hringormi og ekki leyni sér að
fiskurinn sé algjörlega óhæfur til vinnslu. Sést
það augljóslega með berum augum þar sem kvið-
ur fisksins er alsettur bláum hnúðum. Þorski sem
sýktur er með þessum hætti sé umsvifalaust
varpað fyrir borð í veiðiferðum. Einnig sé tals-
vert um að selbitinn þorskur berist í veiðarfæri
og er honum einnig varpað fyrir borð. Með vísan
til þessa er því mótmælt að hent hafi verið fyrir
borð, í umræddri veiðiferð, öðrum afla en sem
fellur undir ákvæði laga um umgengni um nytja-
stofna sjávar um að leyfilegt sé að henda afla fyr-
ir borð sem sé sýktur, selbitinn eða skemmdur á
annan hátt. Níels og útgerðarfélagið mótmæla
því að brottkast hafi verið stundað um borð í
Bjarma nema í framangreindum undantekning-
artilfellum.
Brotið framið af ásetningi
Fiskistofa telur hins vegar að með hliðsjón af
ofangreindum framburði liggi fyrir viðurkenning
Níelsar á að hluta afla Bjarma hafi verið hent fyr-
ir borð, eins og sýnt var í sjónvarpsfréttum. Að
mati Fiskistofu sé útilokað að fiskurinn hafi verið
sýktur af hringormi með þeim hætti sem haldið
hafi verið fram.
Fiskistofa bendir einnig á að hún telji að aðferð
sú, sem viðhöfð var við brottkastið og sýnd var í
fyrrgreindri sjónvarpsfrétt, gaf ekki möguleika á
því að áhöfnin á Bjarma gæti gengið úr skugga
um að umræddur fiskur hefði verið sýktur áður
en honum var kastað fyrir borð. Með þessari
háttsemi hafi verið brotið gegn lögum um um-
gengni um nytjastofna sjávar. Brotið hafi verið
framið af ásetningi og í þágu útgerðar Bjarma.
Bjarmi BA sviptur
veiðileyfi í átta vikur
♦ ♦ ♦