Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 4
SIGRÚN Grendal Jóhann- esdóttir, formaður Félags tónlistarskólakennara, segist vera þokkalega sátt við þann kjarasamning sem félagið gerði við launanefnd sveitarfélaga í gær, en samningurinn batt enda á fimm vikna verkfall félagsins og Félags ís- lenskra hljómlistarmanna. Hún sagði að með samn- ingnum væri verið að gera sambærilegar kerfisbreyt- ingar og gerðar voru með samningi sveitarfélaganna við grunnskólakennara. „Þegar tekið er tillit til allra þátta málsins er ég þokkalega sátt við nið- urstöðuna,“ sagði Sigrún, en hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um samninginn efnislega fyrr en búið væri að kynna hann fyrir fé- lagsmönnum. Byrjunardagvinnulaun tónlistarskólakennara voru fyrir gerð samnings- ins 105 þúsund krónur á mánuði. Byrjunarlaun grunnskólakennara eru hins vegar eftir gerð síðasta samn- ings 166 þúsund krónur á mánuði. Áður en lokasamningalotan hófst höfðu sveitarfélögin boðist til að hækka byrjunarlaun tónlistar- skólakennara upp í 147 þúsund krónur á mánuði. Sveitarfélögin hækkuðu þetta tilboð sitt, en Sig- rún vildi ekki tjá sig um hvar þessi tala endaði. Sigrún sagðist vonast til að skólastarf yrði fljótlega kom- ið í eðlilegt horf, en skólastjórar tónlistarskólanna tækju ákvörðun um hvernig skólastarfi yrði hagað í þessari viku. Flestir tónlistar- skólar hefja kennslu að nýju í dag. Við undirritun samningsins var verkfallinu frestað til 14. desem- ber en þá er stefnt að því að at- kvæðagreiðslu um samninginn verði lokið. Kjarasamningurinn gildir til 30. september 2004, en það er heldur lengri samningstími en samningur grunnskólakennara og framhaldsskólakenn- ara. Samningar þeirra gilda til vors 2004. Birgir Björn Sigur- jónsson, formaður samn- inganefndar launanefndar sveitarfélaganna, kvaðst ánægður með að samn- ingar hefðu tekist. „Við erum með þessum samningi að stíga inn á braut ákveðinna kerf- isbreytinga á skólastarf- inu. Þessar breytingar munu taka gildi í áföngum á samningstímanum. Af okkar hálfu er þetta hugs- að til eflingar á þessu skólastarfi sem er á vegum sveitarfélaganna, en þau hafa mikinn áhuga á að sinna því vel.“ Birgir Björn sagði að kerfisbreytingarnar mið- uðu að því að gera innra starf tónlistarskólanna öfl- ugra en nú væri. Verið væri að setja fastari reglur um vissa hluti, en jafn- framt væri verið að gefa vissan sveigjanleika um til- tekna hluti. Birgir Björn sagði ljóst að kostnaður sveitarfélaganna af þessum samningi yrði umtals- verður, en því mætti heldur ekki gleyma að sveitarfélögin fengju heilmikið á móti. Í samningnum fælist hagræðing, aukin vinna og aukin þjónusta við nemendur. Fimm vikna verkfalli tónlistarskólakennara lauk í gærmorgun Sambærilegar kerfisbreyting- ar og í grunnskólum Kjarasamningurinn var undirritaður á tíunda tímanum í gærmorgun eftir stíf fundahöld frá því daginn áður. Að lokinni undirritun tókust Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formað- ur Félags tónlistarskólakennara, og Birgir Björn Sigurjónsson (t.h.), fyrir hönd launa- nefndar sveitarfélaganna, í hendur. Milli þeirra er Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. Morgunblaðið/Júlíus FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÉRAÐSDÓMUR Reykja- víkur hefur dæmt karlmann í 8 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot gegn dóttur sinni og til að greiða henni 400 þúsund krónur í miskabætur. Brotin áttu sér stað á ár- unum 1998 og 1999, þegar stúlkan var 15 og 16 ára og var um að ræða kynferðislega áreitni með káfi og þukli. Maðurinn sætti ákæru ríkis- saksóknara fyrir háttsemi sína, en hann hefur áður hlot- ið dóm fyrir kynferðisbrot gegn annarri dóttur sinni. Fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot TÆPLEGA þrítugur maður var dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær fyrir innbrot og þjófnað í íbúð við Laugaveg í Reykjavík, en þar stal hann úri, tveimur armböndum, átta hringum og 10 hálsmenum, samtals að verðmæti um 35 þúsund krónur. Maðurinn braust inn í íbúð- ina með því að sparka upp úti- dyrahurð. Ákærði hlaut dóm í desem- ber 1999, fangelsi í 15 mánuði fyrir þjófnað og fjársvik auk dóms í febrúar 2000 þar sem honum var ekki gerð sérstök refsing. Hann hlaut reynslu- lausn í september í fyrra í eitt ár á eftirstöðvum refsingar, 170 dögum. Með brotinu sem hann var dæmdur fyrir í gær rauf hann skilyrði reynslu- lausnar á eftirstöðvum refsing- arinnar. Nær samfelldur brota- ferill frá árinu 1990 Við ákvörðun refsingar nú var litið til þess að brotaferill mannsins hefur verið nær sam- felldur frá árinu 1990. Þá var það metið honum til refsiþyng- ingar að hann braust í auðg- unarskyni inn í híbýli manna. Valtýr Sigurðsson héraðs- dómari kvað upp dóminn. Dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir þjófnaði SAMRÆMD gjaldskrá hafna verð- ur aflögð og ákvæði samkeppnis- laga gilda um gjaldtöku þeirra, eða reglur um gjaldtöku opinberra aðila eftir því sem við á, auk þess sem fleiri rekstrarform hafna verða heimiluð en áður, meðal annars hlutafélög að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, ef frumvarp samgöngu- ráðherra til hafnalaga, sem kynnt var í ríkistjórn í gær, nær fram að ganga. Frumvarpið tekur til allra hafna sem reknar eru í atvinnuskyni. Ein af forsendum þess er að rekstur hafna verði virðisaukaskattskyldur, en það málefni heyrir undir verk- svið fjármálaráðuneytisins. Gert er, samkvæmt frumvarpinu, ráð fyrir minni styrkjum til hafna- framkvæmda og að ríkisafskipti al- mennt verði minnkuð. Áfram er þó gert ráð fyrir að endurbyggingar og viðhald á skjólgörðum sé greitt að hluta til úr ríkissjóði og heim- ildir eru til stofndýpkana þegar fram í sækir. Þá breytist hlutverk hafnabótasjóðs og sérstakt vöru- gjald er fellt niður frá árslokum 2002. Frumvarp til nýrra hafnalaga kynnt Samræmd gjald- skrá verður aflögð LÖGREGLAN í Reykjavík er með til skoðunar mál sem varðar eigna- spjöll og átök milli unglinga í Haga- skóla og tveggja fullorðinna manna við Háskólabíó í fyrradag, en menn- irnir eru meðlimir Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. Að sögn Guðmundar Gígju lögreglufulltrúa stendur gagnaöflun yfir en ekki er fyllilega ljóst hvaða stefnu málið tekur. Framhaldið veltur m.a. á því hvaða upplýsingar koma fram í frum- skýrslu lögreglumanna á vettvangi og hvaða kærur og kröfur kunna að koma fram af hálfu málsaðila. Móðir eins piltsins, sem hlut átti að máli, hefur lagt fram kæru á hendur öðrum manninum fyrir að nefbrjóta son sinn í atgangi sem varð í kjölfar orðaskipta og snjóboltaárás- ar á mennina og fullyrðir að sonur sinn hafi ekki unnið til höggsins með því að slá til mannsins. Að sögn drengsins ýtti hann hins vegar við manninum þegar hann tók félaga drengsins kverkataki. Pilturinn sem er nefbrotinn er á fimmtánda ári. Þegar atgangurinn stóð sem hæst unnu unglingarnir skemmdarverk á bifreið mannsins, s.s. með því að brjóta rúðu og rífa af henni bretti en nefbrotni drengurinn mun ekki hafa tekið þátt í því, samkvæmt frásögn móður hans, enda slasaður eftir hnefahöggið. Fari svo að kæra verði lögð fram vegna skemmdarverka á bifreiðinni þarf að taka mið af aldri meintra ger- enda og meðferð málsins vísað alfar- ið til barnaverndaryfirvalda ef hinir kærðu reynast yngri en 15 ára og þar með ósakhæfir. Að öðrum kosti verður kærumálið rannsakað hjá lögreglu sem refsimál. Skólastjóri ræðir við nemendur Að sögn Einars Magnússonar, skólastjóra Hagaskóla, harma skóla- yfirvöld að þessir atburðir skyldu eiga sér stað. Hann sagði að málið væri í höndum lögreglunnar og hefðu skólastjórnendur ekki gert aðrar ráðstafanir en þær að ræða við nemendur skólans um atburðina með það fyrir augum að róa þá og fyrirbyggja múgæsingu á nýjan leik. Fullorðnum og unglingum lýstur saman við Háskólabíó Móðir pilts hefur lagt fram kæru til lögreglu TÓNLISTARSKÓLAKENNARAR sem voru í verkfalli í fimm vikur fengu 80 þúsund krónur í verkfalls- bætur á meðan á verkfallinu stóð. Þá er miðað við kennara í fullu starfi, en þeir sem eru í hlutastarfi fá greiðslur í samræmi við starfshlutfall. Skattur er greiddur af bótunum. Um 620 tón- listarkennarar tóku þátt í verkfallinu. Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formaður Félags tónlistarkennara, sagði að Kennarasamband Íslands, sem Félag tónlistarkennara er aðili að, ætti öflugan verkfallssjóð sem hefði stutt kennara í verkfallinu með sambærilegum hætti og gert hefði verið þegar aðrir félagsmenn í KÍ stóðu í verkfalli. Björg Óskarsdóttir, þjónustu- fulltrúi hjá Félagi íslenskra hljómlist- armanna, sagði að verkfallssjóður hefði ekki verið starfræktur hjá félag- inu en verið væri að stofna hann. Hún sagði að til að koma á móts við fé- lagsmenn hefði FÍH tekið lán til greiðslu verkfallsbóta og það lán yrði greitt þegar verkfalli lyki. Hún sagði að bæturnar næmu 80 þúsund krón- um á mánuði fyrir 100% starf. Ekki væru greiddir skattar af þessum bót- um en hins vegar þyrftu félagsmenn FÍH að greiða vexti af láninu. FÍH hafa borist gjafir í verkfalls- sjóð og m.a. gaf Vinnudeilusjóður Kennarasambandsins 3 milljónir til greiðslu verkfallsbóta. Fá 80 þúsund krónur í verkfalli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.