Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALMENNT er nú raunhæfur möguleiki á því fyrir launamenn og sjálfstætt starfandi einstak- linga að byggja lífeyrissparnað sinn upp með samþættingu sam- tryggingar og séreignar, þrátt fyr- ir að það hafi gerst með nokkrum öðrum hætti en að var stefnt með setningu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyr- issjóða árið 1997, en lögin tóku gildi um mitt ár 1998. Það er því mat fjármálaráðherra að ekki sé ástæða til að gera sérstakar breyt- ingar á lífeyrislögunum. Þetta er meginniðurstaða skýrslu fjármálaráðherra um þró- un lífeyrismála frá 1998–2001, en samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögunum var mælt fyrir um að fjármálaráðherra skyldi á árinu 2001 láta gera skýrslu um þró- unina á þessu sviði í framhaldi af samþykkt laganna. Átti í skýrsl- unni sérstaklega að fjalla um það hvernig lífeyrissjóðir hefðu boðið sjóðfélögum sínum upp á fleiri val- möguleika í samsetningu lífeyris- réttinda, en samkvæmt ákvæðum í lögunum var skilgreind sú lág- markstryggingavernd sem lífeyr- issjóðum bar að tryggja, auk þess sem þeim var heimilað að ákveða lágmarkstryggingavernd þannig að iðgjaldi væri að hluta til varið til öflunar lífeyrisréttinda í sér- eign. Fram kemur í skýrslunni að líf- eyrissjóðirnir hafi almennt ekki farið þá leið að bjóða sjóðfélögum upp á samsetningu lágmarkstrygg- ingaverndar í sameign og séreign. Þessu markmiði laganna hafi því ekki verið náð með þeim hætti sem að hafi verið stefnt. Hins vegar sýni tölur að séreignalífeyris- sparnaður vaxi hraðar en annars konar lífeyrisréttindi og af því leiði að sífellt hærra hlutfall lífeyris- réttinda sjóðfélaga sé í séreign án þess að það hafi áhrif á framlag til öflunar lífeyrisréttinda í sam- tryggingarsjóðum. Meginniður- staðan sé því sú að almenn þátt- taka í lífeyrissparnaði, mótframlag ríkisins og vinnuveitenda samhliða fjölbreyttu framboði af samning- um um lífeyrissparnað hafi skapað raunhæfa möguleika á samþætt- ingu sameignar og séreignar í uppbyggingu lífeyrisréttinda. Auk þess er bent á að stutt reynsla sé komin á lögin og því viðbúið að líf- eyrissjóðirnir hafi ekki lagað starf- semi sína að fullu að breyttu laga- umhverfi. 45% fjölgun milli ára Þá kemur fram að samanlagt sextíu aðilar buðu upp á samninga um séreignalífeyrissparnað í árs- lok 2000, 26 lífeyrissjóðir, 3 bank- ar, 24 sparisjóðir, 5 verðbréfafyr- irtæki og 2 líftryggingarfélög. Samanlögð innstæða í árslok 2000 var tæpir 3,9 milljarðar króna og hafði vaxið úr 1,6 milljörðum kr. árið áður eða um 144%. Þeim ein- staklingum sem töldu fram lífeyr- issparnað fjölgaði um 45% milli ára úr 32.500 árið 1999 í 46.800 ár- ið 2000, en á því ári nam þessi teg- und lífeyrissparnaðar 2,5 milljörð- um kr. Ekki er talin ástæða til að gera breytingar á lífeyrislög- unum, samkvæmt nýrri skýrslu fjármálaráðherra Raunhæft að samþætta samtryggingu og séreignEKKI liggur endanlega fyrirhversu miklar skemmdir urðu áannarri vélinni í Vatnsfellsvirkjun fyrir síðustu helgi. Bilun varð í stýrikerfi hennar þegar hún var reynslukeyrð fyrir síðustu helgi þannig að bremsur voru á þegar hún var keyrð af stað. Því er óljóst hve mikið tjónið er. Þorsteinn Hilmarsson hjá Landsvirkjun segir að menn hafi slegið á að það muni taka tvær til fjórar vikur að koma vélinni í gang aftur. Nauðsynlegt sé að fá vissu fyrir því að það hafi ekki orðið víðtækar skemmdir og þá sérstaklega á rafbúnaði. Von sé á aðila frá framleiðanda nú síðar í vikunni sem muni ganga úr skugga um þetta. Aðspurður segir Þorsteinn að rafalarnir í Vatnsfellsvirkjun séu framleiddir í Brasilíu en Generel Electric sé aðalverktakinn og hafi sett búnaðinn saman. Hann segir að það sé alveg ljóst að vélin hafi verið í höndunum á framleiðand- anum en auk þess sé vélin í ábyrgð fyrsta árið. Þetta óhapp hafi átt sér stað við hluta af þeim prófunum sem gerðar eru við að koma vélinni í gang. Tveggja til fjögurra vikna seinkun Bilun í aflvél Vatnsfellsvirkjunar FEÐGARNIR Henrik og Charles frá Noregi fundu um síðustu helgi flöskuskeyti þar sem þeir spókuðu sig við strendur Andenes á Andey í Norður-Noregi. Skeytið reyndist vera frá þeim stöllum Unu Gunnarsdóttur og Guðnýju Björgu Guðlaugsdóttur í Nes- kaupstað. Skeytið hafði einungis verið um fimm mánuði á leiðinni. Hinn fjögurra ára gamli Hen- rik, sem fann skeytið, útskýrði fyrir blaðamanni í Noregi að flöskuskeytið hefði borist til lands í Andey með stóru öldunum og gat hann vel hugsað sér að senda svar til Unu og Guðnýjar Bjargar með flöskuskeyti. En fað- ir hans, Charles, taldi vænlegra að senda stelpunum bréf með hefðbundnari leiðum. Vinkonurnar Una og Guðný Björg sem eru tíu ára voru mjög hissa þegar þær fréttu að skeytið væri fundið. Fréttaritari hitti þær á blakæfingu, en þær æfa báðar blak hjá Þrótti í Neskaupstað. „Við bjuggumst aldrei við að það fyndist svona fljótt. Vinkona okkar sendi svona flöskuskeyti sem fannst ekki fyrr en eftir þrjú ár í Noregi. Einn dag höfðum við ekkert að gera og fórum niður í fjöru og sáum sjóinn og þá datt okkur í allt í einu í hug að senda flöskuskeyti. Við skrifuðum bréf- ið bæði á íslensku og ensku og þurftum bara pínu hjálp til að skrifa á ensku.“ Það var faðir Unu, Gunnar Ólafsson, háseti á Berki NK, sem tók flöskuskeytið með sér út á sjó og henti því fyrir borð á milli Ís- lands og Færeyja í um 100 mílna fjarlægð frá Íslandi og í um 440 mílna fjarlægð frá nálægasta punkti í Noregi. Þetta er fyrsta flöskuskeytið sem þær stöllur senda og þær ætla „örugglega að gera þetta aftur“. Flösku- skeyti var fimm mánuði á leiðinni Morgunblaðið/Kristín Stöllurnar Una Gunnarsdóttir og Guðný Björg Guðlaugsdóttir voru ánægðar en hissa yfir því að skeytið hefði verið svona fljótt á leiðinni. Neskaupstað. Morgunblaðið. MEÐAL hugmynda um frekari nið- urskurð ríkisútgjalda vegna fjárlaga næsta árs, sem rætt er um innan stjórnarliðsins, er hugsanleg frestun gildistöku ákvæða um fæðingarorlof. Lög um fæðingarorlof tóku gildi um síðustu áramót en þau eiga að tryggja jafnan rétt karla og kvenna til fæðing- arorlofs í allt að þrjá mánuði. Á sjálf- stæður réttur feðra til fæðingarorlofs að taka gildi í áföngum. Skv. upplýs- ingum Morgunblaðsins hefur m.a. verið rætt um að fresta gildistöku ákvæða um aukinn sjálfstæðan rétt feðra en niðurstaða mun þó ekki liggja fyrir. Réttur feðra til eins mán- aðar í fæðingarorlofi tók gildi á þessu ári, á næsta ári kemur annar mán- uður til viðbótar rétti feðra og þriðji mánuðurinn á árinu 2003, en þá á réttur feðra til greiðslna úr Fæðing- arorlofssjóði að vera að fullu kominn fram skv. ákvæðum laganna. Samkvæmt upplýsingum sem fengust í fjármálaráðuneytinu er gert ráð fyrir að einn mánuður í sjálfstæð- um rétti föður til fæðingarorlofs kosti 700–800 milljónir kr. á ári. Með því að fresta gildistökunni í eitt ár sparaðist sú upphæð. Fæðingarorlofssjóður annast greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi sem eru á vinnumarkaði en sjóðurinn tók til starfa á þessu ári. Er hann fjár- magnaður með 0,85% af gjaldstofni tryggingagjalds. Skv. fjárlagafrum- varpinu eins og það var lagt fram 1. október eru áætlaðar greiðslur í sjóð- inn á næsta ári 4.155 milljónir kr. vegna fæðingarorlofs fólks á vinnu- markaði og 456 millj. kr. vegna for- eldra utan vinnumarkaðar og náms- manna. Framlögin hækka um rúma 2,2 milljarða kr. frá fjárlögum yfir- standandi árs þar sem útgjöld sjóðs- ins koma í fyrsta skipti að fullu fram á næsta ári auk þess sem lögin kveða á um að einn mánuður bætist við í rétti feðra til töku fæðingarorlofs. Hugmyndir um frestun gildistöku ákvæða um fæðingarorlof Einn mánuður í rétti feðra kost- ar 7–800 millj. UNGUR maður sem lögreglan í Reykjavík handtók í gærmorgun hefur játað að hafa framið tvö rán um miðjan dag í Reykjavík. Fyrra ránið framdi hann í söluturninum Vídeóspólunni við Holtsgötu þann 16. okóber sl. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns, var ungi maðurinn hettuklæddur þegar hann rudd- ist þar inn og hótaði afgreiðslu- stúlku með kylfu. Þegar hann hafði náð af henni peningum hljóp hann á brott. Fimmtudag- inn 22. nóvember sl. rændi hann peningum úr Pétursbúð við Ránargötu. Hann hafði sama háttinn á, réðst vopnaður kylfu inn í búðina og hótaði af- greiðslustúlku og hljóp síðan í burtu með ránsfenginn. Engin meiðsl urðu á fólki í þessum ránum. Málin teljast upplýst en þau voru framin til að fjármagna fíkniefnaneyslu, að sögn Ómars Smára. Viðurkenndi tvö rán í Reykjavík SJÓÐSTJÓRI Kaupþings, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 20. nóvember, var í gær úr- skurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. desember að kröfu efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Sjóðstjórinn var handtekinn vegna gruns um að hann hefði brotið gegn lögum um verð- bréfaviðskipti og hefði hagnast á ólögmætan hátt. Jafnframt voru starfsmaður Íslandsbanka og framkvæmdastjóri lífeyris- sjóðsins Hlífar handteknir en þeimsleppt eftir yfirheyrslur. Gæsluvarðhald sjóðstjóra framlengt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.