Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT húsnæði Marels hf. í Molduhrauni í Garðabæ er óðfluga að taka á sig mynd en stefnt er að því að starf- semi fyrirtækisins verði flutt þangað í júlí á næsta ári. Að sögn Kristjáns Þor- steinssonar, fjármálastjóra Marels, er stutt í að húsið verði fokhelt, en alls er það um 14.200 fermetrar. Hús- ið skiptist í tvo hluta. Ann- ars vegar er verksmiðju- bygging, sem er um 10.000 fermetrar, og hins vegar skrifstofuhús, sem er tengt við verksmiðjuna. Er skrif- stofuaðstaðan alls um 4.000 fermetrar. Hafist var handa við verkið í apríl síðastliðnum og áætlað er að því ljúki í júlí 2002. Teiknistofa Ingi- mundar Sveinssonar sá um hönnun byggingarinnar en verktakafyrirtækið Frið- jón og Viðar er aðalverk- taki. Kristján segir kostn- aðaráætlun vera um 1,1 milljarð íslenskra króna á verðlagi í febrúar síðast- liðnum. Að hans sögn leigir Mar- el núverandi húsnæði fyr- irtækisins. „Þetta gjör- breytir allri starfsaðstöðu hjá okkur. Húsnæðið hérna á Höfðabakkanum er orðið of lítið og við erum nú með starfsemi á tveimur stöðum í Reykjavík sem verður sameinuð á einn stað í Garðabænum. Þetta mun breyta mjög miklu fyrir starfsemi Marels á Íslandi, samanber reynslu Carni- tech, dótturfélags Marels í Danmörku, en það tók í notkun nýtt húsnæði í fyrra sem hefur reynst því fyr- irtæki mjög vel.“ Morgunblaðið/Golli Nýbygging Marels er langt komin og er búist við að hún verði orðin fokheld í næsta mánuði. Um 14.200 fermetra hús Marels rís Garðabær BÆTA þarf aðbúnað, göngu- stígakerfi og auka upplýs- ingar til ferðamanna í Viðey svo gestir geti notið þeirra verðmæta sem eyjan hefur upp á að bjóða. Þetta er með- al þeirra hugmynda sem stýrihópur um stefnumörkun Viðeyjar og annarra eyja á sundum kynnti í niðurstöðum sínum á fundi Umhverfis- og heilbrigðisnefndar í síðustu viku. Stýrihópurinn hafði að leið- arljósi að Viðey og eyjarnar á Sundum verði áhugavert úti- vistarsvæði og vettvangur fræðslu í sögu- og nátt- úrufræðum sem og að eyj- arnar verði mikilvægur þátt- ur í menningartengdri ferðaþjónustu í borginni og aðgengilegar allan ársins hring. Nefndin telur menningar- landslag, minjar um búsetu og búskaparhætti fyrri tíma, sem varðveist hefur í eyj- unum vera einstakt fyrir þá sök að eyjarnar hafi að mestu sloppið við framkvæmdagleði 20. aldarinnar. Lagst er gegn gróðursetningu þar sem hóp- urinn telur aðfluttan gróður munu raska fyrrgreindum minjum sem beri að varðveita fyrir komandi kynslóðir. Lega þeirra á Sundunum í faðmi höfuðborgarinnar er einnig talin einstök þar sem fáar borgir státi af slíkum náttúruperlum. „Í vaxandi borgarsamfélagi þar sem stöðugt er gengið á rými ein- staklingsins verða svæði eins og eyjarnar sífellt verðmæt- ari fyrir borgarana til hvíldar og endurnæringar,“ segir meðal annars í skýrslu stýri- hópsins. Sundastrætó – Viðeyjarleið? Til að tryggja rekstrar- grundvöll þeirrar starfsemi sem lagt er til að verði í eyj- unum er talið nauðsynlegt að bæta samgöngur verulega frá því sem nú er. Tryggja þarf stöðugar og tíðar ferðir til Viðeyjar allan ársins hring og ferðir í aðrar eyjar árs- tíðabundið þannig að svæðin geti þjónað ferðamönnum. Stýrihópurinn segir það skil- yrði að hafnaraðstaða sé góð í Viðey en hana þurfi að bæta bæði á núverandi stað og við Sundabakka. Þá ættu að vera lendingarskilyrði í öllum eyj- unum. Þá leggur nefndin til að kostir og gallar göngu- brúar eða jarðganga úr Gufu- nesi verði kannaðar og hafn- ar verði reglubundnar siglingar úr miðborginni í að minnsta kosti fjóra mánuði á ári þar sem siglt verði í og kringum eyjarnar. Jafnframt er lagt til að kostir og gallar svokallaðs Sundastrætós verði kannaðir sem tengja myndi eyjarnar við almenn- ingssamgöngukerfi borg- arinnar. Gert er ráð fyrir að skóla- húsið í Viðey verði nýtt sem fræðslusetur þar sem öllu efni, sem til er um eyjarnar, verði safnað saman og haft aðgengilegt fyrir gesti. Nauð- synlegt er talið að útbúa kennsluefni fyrir öll skólastig um náttúru og sögu eyjanna þar sem efnið verði bæði nýtt í skólastofum og í vettvangs- ferðum skólanna en í ferð- unum er æskilegt að fjöl- breytt leiðsögn og fræðsla verði í boði. Árið 1988 stóð Reykjavík- urborg fyrir hugmynda- samkeppni um nýtingu Við- eyjar og hefur nokkuð verið unnið í samræmi við hug- myndir sem þar komu fram. Aðrar eyjar, það er Engey, Þerney og Akurey, hafa verið leigðar einstaklingum sem flestir nýta þær fyrir æð- arbúskap. Lundey er í eigu ríkisins og er hún einnig leigð einstaklingum. Allar eyjarnar eru á náttúruminjaskrá. Nokkrar breytingar urðu á rekstri Viðeyjar á þessu ári þar sem staðarhaldari lét af störfum en í kjölfar þess ákvað borgarráð að tillögu menningarmálanefndar að rekstur eyjarinnar skyldi fal- inn Árbæjarsafni en skrif- stofu menningarmála var fal- in umsjón með mörkun stefnu um framtíðarnýtingu allra eyjanna. Morgunblaðið/Þorkell Framtíðarsýn um Viðey Eyjar á Sundum BÆJARSTJÓRN Mosfells- bæjar hefur samþykkt að sækja um styrk til Fram- kvæmdasjóðs aldraðra til byggingar hjúkrunarheimil- is í bænum. Þetta er í fjórða sinn sem bærinn sækir um til sjóðsins en bæjarstjórinn segir sveitarfélagið eitt ör- fárra á landinu sem ekki hafa tryggan aðgang að hjúkrunarrýmum fyrir aldr- aða íbúa sína. Jóhann Sigurjónsson bæj- arstjóri segir að fyrirhugað sé að hjúkrunarheimilið rísi við hlið Dvalarheimilis aldr- aðra sem stendur við Hlað- hamra. „Þar eru í dag bæði eignar- og leiguíbúðir og það er ákveðin hagkvæmni í því að heimilið rísi í tengslum við það. Fyrir er öll þvottaaðstaða, mötuneyt- isaðstaða og stjórnunarrými og því má byggja þarna hagkvæma einingu, 20–24 rúma hjúkrunarheimili sem við sjáum fyrir okkur að verði orðið fullnýtt innan mjög fárra ára.“ Hann segir þetta í fjórða sinn sem sótt er um til framkvæmdasjóðsins vegna heimilisins en fyrst var sótt um á árunum 1997–98. „Við höfum ítrekað reynt að ná athygli fjárveitingavaldsins gagnvart þessu því eins og staðan er í dag erum við nánast eina sveitarfélagið á landinu sem hefur ekki tryggan aðgang að hjúkrun- arrýmum fyrir eldri borgara sína og við teljum það ótækt ástand.“ Meðalaldur íbúa á dvalarheimilinu kominn yfir 80 ár Að sögn Jóhanns hefur eldri íbúum farið ört fjölg- andi í bænum. „Við erum ungt sveitarfélag þannig að hlutfall eldri borgara hefur verið tiltölulega lágt hér og menn hafa bent á að við höf- um fáa einstaklinga á vist- unarskrá. Á móti höfum við bent á að fólk er ekkert að bíða eftir að hjúkrunarheim- ili rísi hérna heldur reynir að koma ættmennum sínum fyr- ir annars staðar. Þeim fer stöðugt fjölgandi, íbúunum sem þurfa á hjúkrunarrými að halda, og einnig höfum við bent á að í dag er meðalaldur þeirra íbúa sem eru á dval- arheimilinu kominn yfir 80 ár. Þar erum við með sólar- hringsvakt og veitum raun- verulega miklu meiri þjón- ustu en svona dvalarheimili gera ráð fyrir.“ Áætlaður kostnaður við byggingu hjúkrunarheimil- isins er að sögn Jóhanns um 140 milljónir króna. Áætlað er að bæjarfélagið greiði um 60 prósent kostn- aðarins en afgangurinn kæmi úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Sveitarfélagið myndi síðan reka heimilið en gert er ráð fyrir að það fengi daggjöld þannig að áætluð útgjöld bæjarins vegna rekstursins yrðu 12– 15 milljónir árlega. Hjúkrunarheimili rísi við Hlaðhamra Sótt um í Framkvæmda- sjóð aldraðra í fjórða sinn Mosfellsbær NAUÐSYNLEGUM breytingum vegna einsetn- ingar Álftamýrarskóla er nú lokið og voru viðbygg- ingar við skólahúsnæðið teknar í notkun um helgina. Það var Sigrún Magnús- dóttir, formaður fræðslu- ráðs Reykjavíkur, sem af- henti byggingarnar form- lega en að athöfn lokinni gátu gestir kynnt sér og skoðað nýja húsnæðið. Um er að ræða 504 fermetra viðbyggingu á einni hæð við austurenda eldri bygg- ingar og 174 fermetra byggingu í inngarði skól- ans sem tekin var í notkun á síðasta ári. Bjarni Snæ- björnsson hannaði húsnæð- ið. Meðal þess sem er að finna í nýju byggingunum er hátíðar- og matsalur, tónmenntastofa, mynd- menntastofa og hópher- bergi. Í tengslum við salinn hefur verið innréttað eld- hús með aðstöðu fyrir mötuneyti skólans. Í frétta- tilkynningu segir að frá 1. október hafi nemendum 1.–4. bekkjar boðist að kaupa sér heita máltíð í há- deginu en stefnt sé að því að allir nemendur skólans geti fengið heita máltíð í framtíðinni. Skólinn tók upphaflega til starfa 1964 og var fjöl- mennastur upp úr 1970 en þá voru nemendur tæplega 1.200 en nú eru rúmlega 360 nemendur í skólanum. Starfandi skólastjóri er Sveinn Kjartansson í árs- leyfi Steinunnar Ármanns- dóttur. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Fjöldi gesta lagði leið sína í Álftamýrarskóla á laugardag til að kynna sér nýju viðbyggingarnar. Viðbygging- ar í notkun Háaleitishverfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.