Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 17

Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 17 FÉLAGAR úr ferðahópi rannsókn- ardeildar Lögreglunnar í Reykjavík (FERLIR) hafa fundið stein með ár- talinu 1674 ofan við Kálfatjarnarvör á Vatnsleysuströnd. Er þetta einn af elstu ártalssteinum sem vitað er um á Reykjanesi og ekki er týndur, að sögn Ómars Smára Ármannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Félagarnir ganga mikið sér til heilsubótar á Reykjanesi og hafa sérstakan áhuga á að skoða og leita að ýmsum menningarminjum. Ár- tals- og áletrunarsteinar eru víða til á Reykjanesi. Ómar Smári nefnir eftirtalda staði: Gömlu steinbrúna vestan við Kálfatjarnarkirkju, við Knarrarnes, í Stúlknavörðunni, Í Hrafnagjá, við Stóru-Vatnsleysu, í Flekkuvík, við Kerlingabúðir, í Kistugerði, í Garði, Fuglavík, ofan við Þórshöfn, í Stóra-Hólmi, við Prestsvörðuna, á Hvaleyrartanga og við Hlið á Álftanesi. Lög- reglumennirnir hafa verið duglegir við að finna ártalssteina eftir ýms- um heimildum. Steinninn ofan við Kálfatjarn- arvör er með þeim eldri sem þeir hafa augum litið í rannsóknaferðum sínum. „Við höfum þó sett stefnuna á að finna, auk annarra minja, enn eldri ártalssteina sem eiga að vera víðs vegar um Reykjanesið. Fugla- víkursteinninn á til dæmis að hafa ártalið 1538 og talið er að elsta greinanlega ártalsáletrunin á einum Hvaleyrarsteinanna sé 1657,“ segir Ómar Smári. Sesselja Guðmundsdóttir, sem er úr Vogum á Vatnsleysuströnd og ritað hefur bókina Örnefni og gönguleiðir á Vatnsleysuströnd, vís- aði þeim á heimildir um steininn við Kálfatjarnarvör. Þar er um að ræða skrif Sveinbjörns Egilssonar í tölu- blaði Ægis frá 1936. Þar er skýrt frá grjótbyrgi sem stóð við Kálfatjarn- arvör en gafl hafi fallið úr því í brimi. Í gaflinum hafi verið steinn og í hann hoggið ártalið 1677. Einn- ig kemur fram að Erlendur Magn- ússon, bóndi á Kálfatjörn, lét leita steinsins í grjóthrúgunni og hann var múraður í vegg byrgisins. Sjórinn hefur haldið áfram að brjóta land ofan við vörina. Að sögn Ómars Smára er byrgið nú horfið að mestu, aðeins má greina hluta úr vegg. Jarðýtu var ekið um of- anverða fjöruna fyrir skömmu. Í öðru beltisfarinu fundu félagarnir úr FERLIR ferkantaðan stein með áletruninni A 1674, en ekki 1677 eins og fram kom í hinni skrifuðu heimild. Telur Ómar Smári senni- legt að um sama steininn sé að ræða. Líklegra sé að ártalið sé rangt skráð í Ægi en að annar steinn hafi verið á sama stað. Sesselja telur öruggt að um sama steininn sé að ræða og að ártalið hafi einfaldlega misritast í skrifunum sem birtust í Ægi. Ómar Smári segir að jarðýtan hafi ekki skemmt áletrun steinsins, þótt hún hafi snúið upp. Tilefni eða leikur Að sögn Sesselju er ekki alltaf vit- að um tilefni áletrunar á þessa steina. Stundum er ákveðið tilefni, eins og til dæmis bygging húss, en svo getur líka verið um leikaraskap að ræða. Hún segir að svo virðist sem mikið hafi verið um slíka steina á Suðurnesjum og lögreglumenn- irnir hafi verið duglegir að finna þá. Morgunblaðið/Jim Smart Lögreglumennirnir úr Reykjavík fundu ártalssteininn neðan við fjörukambinn við Kálfastrandarvör. Stuðst var við heimildir frá árinu 1936. Jarðýta hafði nýlega ekið yfir steininn, án þess að hann skemmdist. A 1674 er letrað á steininn sem fannst við Kálfatjarnarvör. Fundu stein með ártalinu 1674 við Kálfatjörn Vatnsleysuströnd ÞRJÚ stéttarfélög á Suðurnesjum og Lífeyrissjóður Suðurnesja stefna að byggingu sérhannaðs skrifstofu- og þjónustuhúss eða kaupum á húsi sem þau gætu sameinast um. Hafa þau meðal annars spurst fyrir um lóð á miðbæjarsvæðinu við Samkaup. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur (VSFK), Verslunar- mannafélag Suðurnesja, Iðnsveina- félag Suðurnesja og Lífeyrissjóður Suðurnesja hafa hafið undirbúning að því að færa starfsemi samtakanna á einn stað. Kristján Gunnarsson, formaður VSFK, segir að tilgangur- inn sé að ná fram samlegðaráhrifum í rekstri og spara með því fé. Fulltrúar félaganna séu farnir að líta í kringum sig eftir húsnæði eða byggingarlóð. Ekki sé mikið um lóðir við Hafnargötuna. Því hafi þeir spurst fyrir um það hjá bænum hvort unnt væri að fá lóð á Sam- kaupssvæðinu en það svæði sé enn óskipulagt. Hann segir að ef hentug lóð fáist verði byggt á því sérhannað hús yfir starfsemi félaganna. Kristján segir að einnig komi til greina að kaupa hús og breyta því þannig að það hentaði starfseminni. Félögin eiga fasteignir sem þau myndu þá selja eða nýta á annan hátt. Stéttar- félögin vilja byggja saman Reykjanesbær NÁTTÚRUSTOFNUN Reykjaness heldur fræðslu- og umræðufund um jarðfræði og jarðhita, grunnvatn og efnistöku á Reykjanesskaga, á morgun, fimmtudag, frá kl. 13.30 til 16.30 í Eldborg við Orkuver Hita- veitu Suðurnesja í Svartsengi. Kristján Sæmundsson jarðfræð- ingur fjallar um jarðfræði og jarð- hita á Reykjanesskaga, Freysteinn Sigurðsson jarðfræðingur ræðir um grunnvatn á Reykjanesskaga, Gunn- ar Bjarnason jarðfræðingur fjallar um námuskráningu og leiðbeiningar um námuvinnslu og Björn Stefáns- son, sérfræðingur hjá Náttúruvernd ríkisins, fjallar um námufrágang og leiðbeiningar um námufrágang. Ingimar Sigurðsson í umhverfis- ráðuneytinu tekur þátt í umræðum um lögfræðilegar hliðar þessara mála, segir í frétt frá Náttúrustofu Reykjaness. Ráðstefna um jarðfræði Reykjanes- skaga Svartsengi HAFNAR eru framkvæmdir við dýpkun í Sandgerðishöfn. Síðar í vetur verður svo Norðurgarður lengdur um 25 metra. Verktakafyrirtækið Hagtak hf. átti lægsta tilboðið í verkið og hefur nú hafið framkvæmdir. Verið er að bora og sprengja til að dýpka höfn- ina við Norðurgarð niður í 6 til 8,5 metra dýpi. Eftir áramótin stendur síðan til að reka niður stálþil til að lengja garðinn. Björn Arason hafn- arstjóri segir að þetta sé gert í þeim tilgangi að bæta aðstöðu fyrir stærri loðnu- og síldarskip en hafnarstjórn hefur markað þá stefnu að vaxtar- broddur hafnarinnar liggi í uppsjáv- arfiski. Þegar verkið var boðið út var við það miðað að því yrði lokið fyrir 1. febrúar. Ekki hefur viðrað vel til dýpkunarframkvæmda að undan- förnu og margir dagar fallið úr vinnu, að sögn Björns. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Starfsmaður Hagtaks á borpramma við dýpkun í Sandgerðishöfn. Ekki viðrar vel til dýpkunar- framkvæmda Sandgerði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.