Morgunblaðið - 28.11.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÁTT fyrir samdrátt í sauðfjár-
rækt þá heldur kynbótastarfið öfl-
ugt áfram. Sauðfjárbændur og
áhugafólk um sauðfjárrækt í Árnes-
sýslu hélt haustfund sinn á Þing-
borg í Hraungerðishreppi 21. nóv-
ember sl. Ráðunautar Búnaðar-
sambands Suðurlands kynntu
uppgjör haustvinnunnar. Lýst var
hrútakosti sauðfjársæðingastöðv-
arinnar og kynntar niðurstöður úr
skýrsluhaldi bænda.
Spenna var í salnum meðal tæp-
lega 70 gesta þegar í lokin var talið
niður og veittar viðurkenningar eig-
endum 10 best gerðu, veturgömlu
hrútanna í Árnessýslu. Hæstu heild-
arstig hlaut hrúturinn Abel frá Jökli
Helgasyni bónda á Ósabakka. Veitt
eru heildarstig og hlaut Abel sem er
undan Amor alls 87. Þar af voru 37
stig fyrir bak, malir og læri.
Val fer þannig fram að þeir vet-
urgömlu hrútar sem standa efstir
eftir hefðbundnar sýningar og skoð-
anir haustsins í hverjum hreppi eru
skoðaðir aftur og dómar endur-
metnir á svokallaðri yfirlitssýningu.
Að sögn Fanneyjar Ólafar Lárus-
dóttur sauðfjárræktarráðunautar
standa oft enn margir jafnir eftir
það mat. Sé svo þá ræður vöðva-
þykkt á baki hvaða hrútur skipar
endanlega efsta sætið.
Annar í röðinni varð Snær frá fé-
lagsbúinu Hlemmiskeiði með 86 stig
og í þriðja sæti Dreitill frá Magnúsi
Guðmundssyni á Oddgeirshólum
með 85,5
Einnig var haldinn fundur í Rang-
árvallasýslu og þriðji fundurinn í
Vestur-Skaftafellssýslu. Í Rangár-
þingi stóð efstur Austri frá Skarði
með 86 stig og í Vestur-Skaftafells-
sýslu Steri frá Úthlíð með 85,5
heildarstig. Fanney sagði hrúta nú í
haust vænni en undanfarin ár og
alls höfðu þau skoðað 169 hrúta aft-
ur, en alls komu 635 til dóms.
Hún sagði þetta form fundanna
sem tekið var upp árið 1999 og einn-
ig meiri áherslu á að meta frekar
veturgamla hrúta og lömb hafa gef-
ist mjög vel.
Abel stóð efstur
í Árnessýslu
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
Þröstur Aðalbjarnarson ráðunautur og Jökull Helgason, bóndi á Ósa-
bakka, með viðurkenningar sínar fyrir verðlaunahrútinn Abel. Aftar er
Fanney Ólöf Lárusdóttir, ráðunautur í sauðfjárrækt.
Gaulverjabær
Öflugt kynbótastarf kynnt á hrútafundi á Þingborg
NÝLEGA var staðfestur samning-
ur á milli Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri, Loftmynda ehf. og Ís-
grafs ehf. fimmtudaginn um
ókeypis aðgang háskólans að hug-
búnaði og landfræðilegum gögnum
á tölvutæku formi. Hér mun um að
ræða fyrsta samning sinnar teg-
undar hér á landi.
Athöfnin fór fram í hátíðarsal
Landbúnaðarháskólans. Magnús
B. Jónsson rektor gerði grein fyrir
samningnum og taldi hann mjög
mikilvægan fyrir skólann og nem-
endur hans, bæði vegna rannsókna
og kennslu.Fyrir hönd LBH hefur
Auður Sveinsdóttir verið tilnefnd
sem umsjónarmaður gagna og
hugbúnaðar og mun sjá um sam-
skipti á milli styrktaraðila og skól-
ans.
Örn Arnar Ingólfsson frá Ísgrafi
ehf. ávarpaði viðstadda fyrir hönd
styrktaraðila. Að því loknu var
samningurinn staðfestur með und-
irritun Magnúsar B. Jónssonar
rektors, Sigurðar Arnalds, fyrir
hönd Loftmynda ehf., og Arnar
Arnars Ingólfssonar fyrir hönd Ís-
grafs, að viðstaddri Auði Sveins-
dóttur, landslagsarkitekt og kenn-
ara á Hvanneyri.
Samið um aðgang að
landfræðigögnum
Morgunblaðið/Davíð
Samningurinn staðfestur á Hvanneyri, f.v. Auður Sveinsdóttir, Magnús
B. Jónsson, Sigurður Arnalds og Örn Arnar Ingólfsson.
Skorradalur
JÓN Eiríksson byggingaverktaki á
Blönduósi og samverkamenn hans
vinna af fullum krafti að reisa við-
byggingu við Heimilisiðnaðarsafnið
á Blönduósi. Hin 348 fermetra við-
bygging er komin upp úr jörðu og
nokkrir veggir hafa litið dagsins
ljós.
Að sögn Jón Eiríkssonar er ætl-
un að loka byggingunni nú í febrúar
en verkinu á að skila í febrúar 2003.
Jón segir að frá því að framkvæmd-
ir hófust um miðjan október hafi
verkið gengið mjög vel og þakkar
hann það meðal annars afar hag-
stæðu tíðarfari.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Vinna við viðbyggingu Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi gengur mjög vel.
Blönduós
Heimilisiðnaðarsafnið
æðir upp úr jörðu
UPPÚR 1970 var á deiliskipulagi
Sauðárkrókskaupstaðar gert ráð fyr-
ir að byggðar yrðu íbúðir fyrir aldr-
aða í tengslum við Sjúkrahús Skag-
firðinga, og voru þá þegar byggðar
fjórar íbúðir, sem síðan þá hafa verið
nýttar af eldri borgurum úr bæ og
héraði.
Fyrir nokkrum árum og með stofn-
un Félags eldri borgara á Sauðár-
króki komu aftur upp þær hugmyndir
að þörf væri á því að reisa sérstakar
íbúðir þar sem aldraðir gætu keypt
sér tryggan búseturétt á meðan þeir
gætu, með eða án aðstoðar, annast
um sig sjálfir og verið á eigin vegum.
Tvær meginhugmyndir komu fram
varðandi þessi mál og vildi hluti fé-
lagsmanna byggja fjölbýlishús með
þjónustuaðstöðu án sérstakra tengsla
við heilsugæslustöðina, en hinn hlut-
inn vildi halda áfram uppbyggingunni
á svæðinu sem tengt var sjúkrahúsi
og heilsugæslustöð.
Byggingarfélag stofnað
Ekki náðist um þessi mál samstaða,
og stofnaði þá síðarnefndi hópurinn
byggingarfélagið Búhöld og fékk
samþykkt sveitarstjórnar fyrir því að
þær lóðir sem upphaflega voru ætl-
aðar til þessa yrðu gerðar bygging-
arhæfar.
Voru í framhaldi af þessu skipu-
lagðar tvær götur, sem fengu nöfnin
Forsæti og Hásæti, sú síðarnefnda
lögð og allar lóðir austan götu gerðar
byggingarhæfar.
Búhöldar hófu þegar framkvæmdir
við byggingu parhúsa, og nú þessa
dagana er hafin bygging fimmta par-
hússins, flutt hefur verið inn í sjö
íbúðir og allar tíu þegar seldar.
Hefur félagið í ljósi mikillar eftir-
spurnar eftir íbúðunum óskað eftir
því við sveitarstjórn að austari gatan
Forsæti verði lögð þegar í vor, þar
sem sú góða reynsla sem fengist hef-
ur af þeim íbúðum sem reistar hafa
verið hefur gert það að verkum að
kaupendur virðast vera að öllum þeim
íbúðum sem þar yrðu reistar.
Á síðastliðnu ári var á vegum sveit-
arfélagsins Skagafjarðar og Félags
eldri borgara settur á fót undirbún-
ingshópur, sem hafði það að mark-
miði að stofna húsnæðissamvinnu-
félag og leysa þannig úr húsnæðisþörf
þess fólks sem komið er á efri ár, og
um það bil eða þegar farið út af vinnu-
markaði, vill losna úr of stórum eða
óhentugum íbúðum en tryggja búsetu
sína sem best.
Nefndin hélt nú í vetrarbyrjun
kynningarfund og gerði þá tillögu um
að reist yrði fjölbýlishús og hafði
fengið vilyrði sveitarfélagsins um lóð
sunnan Ábæjar í Sauðármýrum. Var
félaginu einnig kynnt búsetu- og eign-
arhaldsfyrirkomulag á umræddum
íbúðum sem reistar yrðu og einnig
hver kostnaður yrði.
Sagði Jón Karlsson, sem unnið hef-
ur að undirbúningi þessa máls með
sveitarstjórnarmönnum og félögum
eldri borgara, að næsta skref yrði
væntanlega að efna til stofnfundar
hins nýja húsnæðissamvinnufélag en
síðan yrðu framkvæmdir allar í hönd-
um þeirrar stjórnar sem félagið mundi
kjósa sér. Sagðist Jón vænta þess að
með vorinu yrði hafist handa varðandi
bygginguna, en ljóst er að eldri borg-
arar á Sauðárkróki sitja ekki með
hendur í skauti án þátttöku í daglegu
amstri hversdagsins heldur berjast
ótrauðir fyrir sínum málum og koma
þeim í höfn.
Öflug byggingar-
starfsemi á veg-
um eldri borgara
Sauðárkrókur
NÝLEGA var opnuð áfengisútsala í
Grundarfirði. Útsalan er í sama
húsnæði og blóma- og gjafavöru-
búðin María. Eigendur verslunar-
innar Maríu munu sjá um afgreiðsl-
una.
Hingað til hafa Grundfirðingar
þurft að leita til barnafataversl-
unarinnar í Ólafsvík eftir dropa, en
sú verslun hýsir áfengisútsöluna
þar. Verslunin verður opin eina
klukkustund alla virka daga nema
á föstudögum. Þá er hún opin í tvær
klukkustundir.
Áfengis-
útsala
opnuð
Ljósmynd/Hallgrímur Magnússon
Forstjóri ÁTVR, Höskuldur Jónsson, ásamt Maríu Gunnarsdóttur og
Árna Halldórssyni, eigendum verslunarinnar Maríu.
Grundarfjörður
Horn.is –
heimasíða
Hornfirðinga
NÝJUM vef, www.horn.is, hef-
ur verið hleypt af stokkunum.
Vefurinn er staðbundinn frétta-
og upplýsingavefur fyrir Horna-
fjörð og nágrenni. Á vefnum
munu birtast fréttir úr sveitar-
félaginu og af Hornfirðingum
nær og fjær. Á horn.is verður
einnig að finna viðburðadagatal,
pistla, netfangaskrá og ókeypis
smáauglýsingar.
Auk þess verða á vefnum
tenglar á aðrar nayðsynlegar
síður þannig að allir Hornfirð-
ingar ættu að geta gert horn.is
að sinni „heimasíðu“, segir í
fréttatilkynningu.
Hornafjörður