Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 20

Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík Sjá nánar á www.iav.is Skemmtilega hönnuð og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í glæsilegu viðhaldslitlu lyftuhúsi auk sér stæðis í bílageymslu. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús og stofu. Að auki er sér geymsla í kjallara. Mjög vandaður frágangur úti og inni. Birt stærð íbúðarinnar er 126,9 fm. Íbúðin er til afhendingar í desember nk. Hafðu samband við söludeild ÍAV í síma 530 4200 SAMÞYKKT var á hluthafafundi í Ís- lenska járnblendifélaginu hf. á Grundartanga í gær að lækka hlutafé félgsins úr tæpum 1.763 milljónum króna í 441 milljón. Þetta hefur í för með sér að einn hlutur í félaginu kem- ur í stað fjögurra áður. Tveir stærstu hluthafarnir í félaginu, norska fyrir- tækið Elkem, sem á 55,9% og íslenska ríkið, sem á 12,0%, höfðu komist að samkomulagi um þetta fyrir hluthafa- fundinn. Í framhaldi af fundinum samþykkti stjórn félagsins að auka hlutaféð um 650 milljónir króna og bjóða hluthöf- um í félaginu það til kaups á genginu 1,0. Eftir hlutafjárhækkunina verður heildarhlutafé félagsins tæplega 1.091 milljón krónur. Elkem mun sölutryggja útboðið. Af hálfu ríkisins var samþykkt að grípa til þessara aðgerða í þeim til- gangi að styrkja fjárhag Íslenska járnblendifélagsins fyrir árslok, þrátt fyrir ágreining aðila um verðmæti hluta í félaginu, og treysta þar með áframhaldandi starfsemi þess. Framlag ríkissjóðs 4 milljarðar Ríkissjóður hefur sjö sinnum veitt fé til Íslenska járnblendifélagsins í formi hlutafjár á tímabilinu frá 1977 til 2000. Á núverandi verðlagi er þetta fjármagn samtals um 5,1 milljarður króna. Ríkið hefur einu sinni selt hlutabréf í félaginu, er 26,5% hlutur var seldur á árinu 1998, sem á núver- andi verðlagi er um 1,1 milljaður. Rík- ið hefur því samtals lagt fram um 4 milljarða króna til verksmiðjunnar með beinum hætti. Núverandi eignarhlutur ríkisins er 12% af 441 milljónar króna hlutafé, eða um 53 milljónir króna, að nafn- verði. Útboðsgengi í væntanlegu hlutafjárútboð er 1,0 og miðað við það er verðgildi eignahlutar ríkisins það sama og nafnverðið. Skilyrði VÞÍ verði uppfyllt Marius Grønningsæter, fulltrúi Elkem í stjórn Íslenska járnblendi- félagsins, sagði á hluthafafundinum að megintilgangurinn með lækkun á hlutafé félagsins og síðan með útgáfu nýs hlutafjár, væri að styrkja fjárhag- inn til að félagið ætti ekki á hættu að lánasamningum þess yrði sagt upp og lán gjaldfelld. Kveðið væri á um lág- marks eigið fé félagsins og rekstur þess í lánasamningum. Staðan í þeim málum nú væri slík að hætta væri á að þau skilyrði væru ekki uppfyllt. Ef til gjaldfellingar lána kæmi væru ekki miklar líkur á að félaginu stæði til boða jafn hagstæð lán og það væri með nú, sem þá myndi enn frekar auka erfiðleika fyrirtækisins. Í samkomulagi Elkem og ríkis- stjórnarinnar er kveðið á um að aðilar samþykki báðir að grípa til aðgerða í framhaldi af framangreindum breyt- ingum á hlutafé félagsins, sem eiga að stuðla að því að það uppfylli skilyrði Verðbréfaþings til að vera skráð á að- allista þingsins. Í samkomulaginu kemur einnig fram að Elkem muni, að því marki sem félagið kann að auka við hlutafjáreign sína í útboðinu á kostnað íslenskra fjárfesta, bjóða það íslenskum hluthöfum í félaginu til sölu síðustu tvær vikur janúarmán- aðar 2002 á útboðsgenginu, þ.e. sama gengi og bréfin voru keypt á. Hlutur Elkem aukist ekki Mæting á hluthafafund Íslenska járnblendifélagsins í gær var fyrir 69,33% hlutafjár. Þar af voru mættir fulltrúar ríkisins og Elkem, sem eiga samtals 67,9% hlutafjár. Fulltrúar japanska fyrirtækisins Sumitomo, sem á 8,4% í félaginu, mættu ekki á fundinn. Fyrirspurnir komu fram á fundin- um frá einstökum hluthöfum um fyr- irætlanir Elkem og hvaða tryggingu smærri hluthafar hefðu fyrir því að Elkem myndi ekki eignast yfir þrjá fjórðu af hlutafé félagsins og þar með geta afskráð það af Verðbréfaþingi Íslands. Haukur Ingibergsson, fulltrúi iðn- aðar- og viðskiptaráðherra í stjórn Ís- lenska járnblendifélagsins, sagði að samkomulag ríkisins og Elkem gengi út á það að tryggja að hlutafjáraukn- ingin yrði með þeim hætti að hlutur Elkem ykist ekki frá því sem nú væri, í tengslum við þessa tilteknu aðgerð. Marius Grønningsæter bætti því við að Elkem hefði engar áætlanir uppi um að draga félagið út af verð- bréfamarkaði. Ef Elkem mundi eign- ast hlut í félaginu umfram þau 55,9% sem eignarhlutur þess væri nú, yrði sá mismunur boðinn til sölu í janúar til íslenskra fjárfesta, samkvæmt samkomulaginu við ríkið. Spurt var á fundinum hvort nauð- synlegt hefði verið að færa hlutafé fé- lagsins eins mikið niður og raun bæri vitni. Fram kom að það væri mat framkvæmdastjórnar fyrirtækisins og stjórnar að svo væri, en margir óvissuþættir væru þessu samfara og því erfitt að segja til um hvað væri endilega rétt í þeim efnum. Frá því hefur verið greint að ríkið er ekki sammála verðmati Elkem á félaginu. Þá kom fram að af hálfu ríkisins og Elkem hefði ekki verið haft samband við Sumitomo vegna þessara aðgerða. Ekki væri því vitað hvort fyrirtækið myndi taka þátt í hlutafjáraukning- unni. Frank Björklund, framkvæmda- stjóri Íslenska járnblendifélagsins, sagði horfur ekki góðar varðandi verð á kísiljárni á næsta ári. Í byrjun árs hefði verið offramboð á kísiljárni á heimsmarkaði. Margar járnblendi- verksmiðjur hefðu þá dregið úr fram- leiðslu. Vegna þess hefði verðið hækkað um mitt ár en það væri aftur orðið lágt og allt útlit væri fyrir að svo yrði áfram fram á næsta ár. Tillaga stjórnar Íslenska járn- blendifélagsins um lækkun á hlutafé félagsins úr 1.763 milljónum króna í 441 milljón var samþykkt á hluthafa- fundinum með 98,2% greiddra at- kvæða, en 1,8% voru á móti. Niðurfærsla og aukning á hlutafé Lækkun á hlutafé Íslenska járn- blendifélagsins, sem samþykkt var í gær, er ekki sú fyrsta í sögu félagsins. Hlutafé fyrirtækisins hefur tvisvar verið fært niður áður. Í fyrra skiptið á árinu 1984, en þá var það fært niður úr 997 milljónum króna í 660 millj- ónir, eða um 337 milljónir. Félagið gaf út jöfnunarhlutabréf að fjárhæð 660 milljónir króna á árinu 1988. Við það var hlutafé félagsins aukið úr 660 milljónum í 1.320 milljónir. Ári síðar voru aftur gefin út jöfnunarhlutabréf að fjárhæð 680 milljónir og við það varð hlutafé félagsins 2.000 milljónir. Á árinu 1992 var hlutafé Íslenska járnblendifélagsins svo fært niður í annað skiptið, úr 2.000 milljónum króna í 600 milljónir. Jafnframt var þá ákveðið að heimila hlutafjáraukn- ingu félagsins. Á árinu 1993 var hlutaféð aukið um 389 milljónir, sem greiddar voru á nafnverði. Það var aftur aukið á árinu 1997, og þá um 424 milljónir að nafn- verði, sem greitt var á genginu 2,2. Á árinu 2000 var það enn aukið og þá um 350 milljónir að nafnverði, sem greitt var á genginu 1,5. Hlutur ríkisins úr 55% í 12% Bygging kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga í Hvalfirði var í upp- hafi ákveðin í tengslum við virkjunar- framkvæmdir við Sigöldu. Verkið hófst í samvinnu við bandaríska fyr- irtækið Union Carbide árið 1974. Ári síðar dró Union Carbide sig út úr samstarfinu og lögðust framkvæmdir þá niður. Árið 1976 var gerður samningur við Elkem, og var hafist handa við framkvæmdir á nýjan leik árið eftir, en verksmiðjan var þá hönnuð að nýju. Rekstur Járnblendiverksmiðjunn- ar hófst árið 1979 og komst í fullan gang ári síðar. Upphaflega átti rík- issjóður 55% í fyrirtækinu og Elkem afganginn. Árið 1984 keypti svo jap- anska fyrirtækið Sumitomo 15% af heildarhlutafé félagsins af Norð- mönnum. Ríkið seldi stærstan hluta af hlutafé sínu í Íslenska járnblendi- félaginu í útboði á árinu 1998, eða 26,5% af heildarhlutafénu, sem nam þá 1.413 milljónum króna í framhaldi af hlutafjáraukningunni 1993 og 1997. Gengið í útboðinu var 2,5. Hlutur rík- isins fyrir útboðið var kominn niður í 38,5% af heildarhlutafénu því ríkið tók ekki þátt í hlutafjáraukningu fé- lagsins á árinu 1997. Hlutur ríkisins eftir söluna á 26,5% hlutnum var því 12% og hefur haldist í því hlutfalli, því ríkið tók þátt í hluta- fjáraukningu félagsins á árinu 2000, sem miðaðist að því að halda hlutnum óbreyttum. Á sama tíma og hlutur ríkisins í félaginu fór lækkandi jókst hlutur Elkem, sem er nú eins og áður segir 55,9%. Hlutur Sumitomo hefur hins vegar minnkað úr upphaflegum 15% í 8,4%. Undirstöðuhráefni stáliðnaðarins Í dag eru þrír svonefndir ljósboga- ofnar í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Fyrsti ofn verksmiðj- unnar var gangsettur í apríl 1979, annar í september 1980 og sá þriðji, sem er nokkuð stærri en hinir tveir, var gangsettur í október 1999. Meginafurð Íslenska járnblendi- félagsins er kísiljárn, sem er eitt af undirstöðuhráefnum stáliðnaðarins, ýmist notað til hreinsunar á stáli eða sem blendiefni til þess að fá fram ákveðna eiginleika. Kísiljárn er auk þess notað í litlum mæli í efnaiðnaði. Árleg framleiðsla kísiljárns hjá Járnblendifélaginu er um 114 þúsund tonn. Ódýr raforka er forsenda fram- leiðslu kísiljárns á Íslandi, því vegna langra flutningsleiða verður allur hrá- efniskostnaður mjög hár. Rekstur Íslenska járnblendifélags- ins hefur verið erfiður á þessu ári sem og næstu tvö árin þar á undan. Tap varð af rekstrinum á síðasta ári eins og árið þar áður. Næstu 6 ár þar á undan, á tímabilinu frá 1993 til og með 1998, skilaði reksturinn hins veg- ar hagnaði þegar verndartolla á markaði naut við. Þar áður hafði félagið einungis skil- að hagnaði tvö ár af fjórtán árum frá upphafi starfseminnar. Hagnaður var árin 1988 og 1989. Ákveðið hefur verið að færa hlutafé Íslenska járnblendifélagsins niður um 1,3 milljarða króna Samkomulag en ágreiningur er um verðmæti Morgunblaðið/RAX Hluthafar í Íslenska járnblendifélaginu tóku virkan þátt í hluthafafundi fé- lagsins og spurðu m.a. um fyrirætlanir Elkem varðandi fyrirtækið. Tveir stærstu hluthaf- arnir í Íslenska járn- blendifélaginu, ríkið og Elkem, hafa náð sam- komulagi um aðgerðir til að styrkja félagið. Fyrir aðgerðirnar hefur ríkið lagt fram um 4 milljarða króna til verk- smiðjunnar á núverandi verðlagi. Eftir lækkun á hlutafé félagsins er eignarhlutur ríkisins um 50 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.