Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKIR landgönguliðar
og afganskir bandamenn þeirra
munu reyna að hrekja leiðtoga tal-
ibana – og Osama bin Laden ef
hann er með þeim – í áttina að
eyðimörk suður af Kandahar, til
þess að koma í veg fyrir að þeir
komist til fjalla þar sem nóg er um
felustaði. Var þetta haft eftir ætt-
bálkaleiðtogum í Afganistan í gær.
Talibanar hafa heitið því að verja
borgina, sem er fæðingarstaður
hreyfingar þeirra, þrátt fyrir að
landgönguliðarnir hafi sett upp
árásarvarðstöð skammt frá. En
haldi talibanar uppteknum hætti er
líklegt að þeir yfirgefi Kandahar,
líkt og þeir yfirgáfu Kabúl og aðrar
borgir, og leiti skjóls til fjalla.
Landgönguliðarnir njóta stuðn-
ings pastúnaættbálka í leitinni að
bin Laden, og einnig fá þeir aðstoð
fyrrverandi yfirmanna frá því í
stríðinu gegn Sovétmönnum.
Úr mörgu að velja
Bin Laden hefur úr mörgum
felustöðum að velja – allt frá þétt-
um skógum vestur af Kandahar til
óvinnandi virkis sem byggt var
með aðstoð Bandaríkjamanna á
tímum stríðsins við Sovétríkin. Ef
Bandaríkjamenn vita hvar bin Lad-
en heldur sig þá fara þeir ekki hátt
með það. Og í Afganistan ganga
margar sögur um hvar hann sé nið-
ur kominn.
Foringjar vopnaðra sveita Afg-
ana í austurhluta landsins hafa
grun um að bin Laden sé í felum í
fjallavígi sem nefnist Tora Bora, og
fyrrverandi hermenn í afganska
hernum segja vera óvinnandi. Tora
Bora var byggt með aðstoð Banda-
ríkjamanna á tímum stríðsins gegn
Sovétmönnum og er efst í 3.900 m
háu fjalli, 55 km suður af Jalala-
bad. Þangað er þriggja klukku-
stunda gangur frá næsta vegi.
Fjöldi herbergja og ganga er
grafinn 345 metra inn í fjallið, og
herma fregnir að þar geti um eitt
þúsund manns dvalið. „Ég er viss
um að hann er þarna, 70 prósent
viss,“ sagði Hazrat Ali, herforingi
sem er yfirmaður öryggisgæslu
umhverfis Jalalabad. Kveðst hann
telja að bin Laden vilji vera nærri
pakistönsku landamærunum til að
geta flúið Afganistan fyrirvarlaust.
Ef til vill nær Kandahar
Aftur á móti er Tora Bora um
480 km norðaustur af Kandahar-
svæðinu, þar sem bandarísku land-
gönguliðarnir lentu, og bendir það
til þess að Bandaríkjamnenn telji
aðra felustaði líklega, er séu nær
Kandahar, höfuðvígi talibana. Mo-
hammed Khaqzar, fyrrverandi yf-
irmaður leyniþjónustu talibana,
telur að bin Laden og meðreiðar-
sveinar hans úr forystusveit
talibana kunni að vera á leið til
fjallanna er gnæfa norðvestur af
Kandahar.
Khaqzar segir þó ólíklegt að bin
Laden muni halda sig þar, því það
svæði hafi orðið fyrir mörgum
sprengjum síðan loftárásir hófust
7. október. Líklegra þykir honum
að bin Laden mui fara lengra inn í
Islam Dara, svæði umlukt fjöllum,
u.þ.b. 50 km norðvestur af Kand-
ahar.
Í Islam Dara var bækistöð
Gulbuddins Hekmtayar, leiðtoga
skæruliðanna er börðust gegn her-
liði Sovétmanna. Bandarískar flug-
vélar hafa varpað fjöldanum öllum
af sprengjum á svæðið, en Khaqzar
segir ólíklegt að sprengjurnar hafi
valdið miklum skemmdum á hell-
unum á svæðinu.
Annar hugsanlegur ákvörðunar-
staður bin Ladens er Kajaki, norð-
vestur af Kandahar, þar sem fjöll
gnæfa í um 3.000 metra hæð. „Bin
Laden gæti farið til Kajaki og þar
gæti hann látið sig hverfa upp í
fjöllin,“ sagði Khaqzar. „Það yrði
mjög erfitt að ná honum.“ Vestur
af Kandahar er önnur fyrrverandi
bækistöð frá því í stríðinu við Sov-
étmenn. Það svæði er vaxið þéttum
garðagróðri og trjám.
Úr einum helli í annan
En í Jalalabad eru menn þess
fullvissir að bin Laden sé í Tora
Bora. Ali herforingi kvaðst hafa
heyrt fregnir um að á nóttunni færi
bin Laden á hestbaki úr einum
helli í annan í Hvítufjöllum, fjall-
garðinum suður af Jalalabad, og að
sést hefði til hans í Tora Bora í síð-
ustu viku. Þegar hermenn talibana
og al-Qaeda-samtakanna yfirgáfu
búðir sínar við Jalalabad í byrjun
október héldu um sex þúsund
þeirra, undir forystu bin Ladens,
suður á bóginn í átt að Hvítufjöll-
um, sagði Abdul Qadir, nýi héraðs-
stjórinn í Jalalabad. En hann
kvaðst ekki geta staðfest að bin
Laden, sem heimsótti Tora Bora á
níunda áratugnum, væri í fjalla-
virkinu.
Ali hershöfðingi, sem notaði
virkið sem bækistöð við árásir á
sovéska herinn á níunda áratugn-
um, sagði að það væri nánast
ógerningur að taka Tora Bora með
valdi. Sovétmenn hefðu hvað eftir
annað varpað á það sprengjum og
gert á það árásir í heilan áratug, en
orðið lítið ágengt.
Afganskir skæruliðar notuðu
bandaríska peningaaðstoð til að
láta grafa virkið eins og mauraþúfu
inn í fjallið Ghree Khil, sem er um
dagleið frá pakistönsku landamær-
unum. Nafnið Tora Bora þýðir
„svart ryk“. Inni í virkinu er fjöldi
vistarvera og ganga, að sögn Afg-
ana sem kom þangað fyrir hálfu ári
ásamt arabískum hermönnum.
„Eins og á hóteli“
Munni ganganna inn í virkið er
falinn á bak við stór furutré. Göng-
in eru nógu breið til að um þau
komist bíll. Um 15 metrar eru inn
að stórri eikarhurð sem opnast inn
í mikið völundarhús. „Á bak við
hurðina kvíslast göngin, eins og á
hóteli, það eru dyr á báðar hend-
ur,“ sagði Afganinn, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, af ótta við
hefndir.
Í hellunum er loftræstikerfi. Tal-
ibanar hafa komið þar fyrir raflögn
og nota vatnstúrbínu sem knúin er
af fjallalækjum. Veggirnir eru
múrhúðaðir en loftið er svart berg-
ið. Afganinn sagði að herbergin
væru mismunandi að stærð, sum
væru svefnherbergi, önnur skrif-
stofur og samkomusalir.
Talibanarnir og al-Qaeda-liðarnir
í Tora Bora kaupa vistir af fólki í
nærliggjandi þorpum, sagði Sorhab
Qadri, einn af leyniþjónustumönn-
um Alis. Væri þorpsbúum greitt
vel fyrir vinnu við stækkun virk-
isins. Einungis tilteknu fólki er
hleypt nærri vel vörðum dalnum,
þar sem virkið er. Uppi á klettum
sitja vopnaðir varðmenn. „Osama
varaði þorpsbúana við því að ef
þeir kæmu nálægt hellinum,“ sagði
Qadri, „þá yrðu þeir drepnir.“
Leynist Osama bin Lad-
en í „Svarta rykinu“?
!
! "
#
$#%" !& ' ( )#$#
! * +,
&
* '# -.
+
( )
"#$%
! "
Kabúl, Jalalabad. AP.
Bandarískir landgönguliðar hafa nú bæst í
hóp þeirra sem leita að Osama bin Laden.
Þeir sem til þekkja í Afganistan telja líkleg-
ast að hann hafi farið ásamt forsprökkum
talibana upp í Hvítufjöll, suður af Jalalabad,
og leitað skjóls í fjallavirkinu Tora Bora,
sem sagt er óvinnandi vígi.
SÆNSKUR mynda-
tökumaður, sem starf-
aði fyrir sænsku sjón-
varpsstöðina TV4, lét
lífið í skotárás ungra
innbrotsþjófa í borginni
Taloqan í norðurhluta
Afganistans í fyrrinótt.
Myndatökumaðurinn,
Ulf Strömberg, sem var
42 ára, var skotinn í
bringuna þegar brotist
var inn í hús sem hann
dvaldi í. Var hann skot-
inn í brjóstið og lést af
sárum sínum skömmu
síðar.
Að sögn sænskra
fjölmiðla er talið að
árásarmennirnir hafi verið á aldr-
inum 14-15 ára.
Nokkrir aðrir fjölmiðlamenn,
þeirra á meðal blaðamaður og ljós-
myndari sænska dagblaðsins Aft-
enbladet, dvöldu einnig í húsinu en
enginn þeirra mun hafa særst.
Átta fjölmiðlamenn hafa látið lífið
í Afganistan frá því að hernaðar-
aðgerðir Bandaríkjamanna og Breta
hófust 7. október.
Strömberg var kvæntur, þriggja
barna faðir, með
mikla reynslu að baki,
meðal annars af átök-
unum á Balkanskaga.
Hafði hann unnið hjá
TV4 frá 1998.
Bo Liden, blaða-
maður Aftenpostens,
sagði, að hópur
manna, vopnaður Kal-
ashnikov-rifflum og
hnífum, hefði ruðst
inn í húsið aðfaranótt
þriðjudagsins.
„Ehsan, túlkurinn
okkar, talaði til þeirra
mjög rólega og þá
heyrði ég á svörum
þeirra, að þetta voru
bara börn með hættuleg vopn,“
sagði Liden. Sagði hann, að hóp-
urinn hefði rænt frá þeim hátt í
400.000 ísl. kr., gervihnattasíma,
tölvum og myndavélum. Síðan fóru
þeir að herberginu þar sem Ström-
berg og annar maður sváfu. Þeir
börðu á hurðina og þegar ekki var
svarað strax, skutu þeir á hana og
forðuðu sér síðan út. Þegar inn í
herbergið var komið lá Strömberg
þar í blóði sínu.
Sænskur sjón-
varpsmaður
skotinn til bana
Stokkhólmi. AFP.
Ulf Strömberg