Morgunblaðið - 28.11.2001, Síða 31

Morgunblaðið - 28.11.2001, Síða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 31 ÞESSA dagana fer fram átak í hávaðavörnum og heyrnarvernd á vinnustöðum um allt land. Eftir- litsmenn Vinnueftirlitsins heim- sækja fyrirtæki og stofnanir, ræða við starfsmenn og stjórnendur, mæla hávaða og gera kröfur um aðgerðir þar sem úrbóta er þörf. Að þessu sinni beinist átakið að fjórum starfsgreinum, þ.e. fisk- vinnslufyrirtækjum, trésmiðjum, vélsmiðjum og leikskólum. Markmið átaksins Markmið átaksins er að vekja athygli á hávaða í vinnuumhverf- inu, sjá til þess að gripið verði til aðgerða þar sem úrbóta er þörf. Það er þýðingarmikið að þeir sem starfa á hávaðasömum vinnustöð- um geri sér grein fyrir því að heyrnarskaði er ólæknandi og að starfsmenn verjist hávaða með til- tækum ráðum. Það er dapurleg staðreynd að fjöldi Íslendinga hef- ur skerta heyrn af völdum hávaða á vinnustað og heyrnartap er lang- algengasti skráði atvinnusjúkdóm- urinn á landinu. Í dag er grunn- krafan sú að hávaði á vinnustöðum fari ekki yfir 85 dB(A) jafngild- ishávaða (meðaltalshávaði) á 8 stunda vinnudegi og að hávaða- toppar fari ekki yfir í 110 dB(A). Þó að 85 dB hávaði sé flestum hættulaus ætti að reyna að draga enn frekar úr hávaða á vinnustöð- um og setja markið mun lægra en 85dB(A). Áhrif hávaða á starfsmenn Hávaði er nefnilega ekki bara skaðlegur heyrn. Mikil truflun og óþægindi fylgja hávaða. Ekki er hægt að tala saman með góðu móti, starfsmenn einangrast og geta ekki átt eðlileg samskipti. Slysahætta eykst því hávaði dreg- ur úr athygli og aðvaranir heyrast illa eða ekki. Hávaði getur valdið streitu, hækkuðum blóðþrýstingi, höfuðverk og svo mætti lengi telja. Upptök hávaða og ráð gegn hávaðamyndun Upptök hávaða á vinnustöðum eru oftast frá hávaðasömum vélum. Fyrirkomulag véla og tækja, ásamt skipulagi og gerð húsnæðis, hafa einnig mikil áhrif á hávaða- myndun og dreifingu hávaða. Í reglum um vélar og tæknilegan búnað, grunnkröfum um heilsu- vernd og öryggi, er krafa um að hávaðamyndun verði eins lítil og framast er unnt. Nýjar vélar eru að jafnaði hljóðlátari en sambæri- legar eldri vélar þannig að heldur þokast í áttina í þeirri viðleitni að minnka hávaða á vinnustöðum. Við skipulag vinnustaða er hægt að draga úr hávaða t.d. með skil- rúmum eða milli- veggjum, hljóð- skermum og hljóðísogsefnum. Hægt er að hljóðein- angra hávaðasamar vélar sérstaklega svo hávaði frá þeim ber- ist ekki um allt vinnurýmið. Veggi og loft er hægt að klæða með hljóðísog- andi efnum eða hengja upp slíkar plötur niður úr lofti. Hávaði á leikskólum Á leikskólum er hávaðavaldurinn aðallega athafnasöm börn. Því gilda önnur ráð til að minnka há- vaðamyndun á leikskólum en öðr- um vinnustöðum. Þau geta t.d. fal- ist í að takmarka fjölda barna í hverju rými, takmarka inniveru með því að gera útiveru og útiað- stöðu eftirsóknarverða og varast hávaðasamar vinnuaðferðir. Að öðru leyti gilda svipaðar aðferðir til að draga úr hávaða með vali byggingar- efna, dreifingu hávaða um vinnurými og notk- un hjóðísogandi efna. Eftirlit á vinnustöð- um, persónuhlífar Við eftirlit á vinnu- stöðum er hávaði eitt af þeim atriðum sem skoðuð eru og metin. Ef hávaði mælist yfir 85 dB eru gerðar kröf- ur um úrbætur sem hafi það að markmiði að hljóðstig verði undir 85dB(A). Ef það mark- mið næst ekki, t.d. vegna tækni- legra örðugleika, skal nota heyrn- arhlífar sem hæfa aðstæðum. Notkun heyrnarhlífa er þó ætíð neyðarráðstöfun og er eingöngu ráð sem nota skal meðan leitað er leiða til að minnka hávaða eða ef ekki er tæknilega mögulegt að lækka hljóðstig. Þar sem hljóðstig er yfir mörkum er atvinnurekanda skylt að leggja starfsmönnum til heyrnarhlífar og starfsmönnum er skylt að nota þær. Þeir starfsmenn sem vinna í um- hverfi þar sem hávaði er yfir 85dB (A) eða augnablikshávaði fer yfir 110dB(A) skulu árlega fara í heyrnarmælingu. Tilgangur þess eftirlits er að varðveita heyrn og greina heyrnartap sem rekja má til hávaða. Atvinnurekandinn skal sjá um að heyrnarmælingin fari fram og er starfsmönnum skylt að gang- ast undir hana. Heyrnin skiptir miklu í lífi okk- ar. Hún tengir okkur við annað fólk, opnar leið til samskipta, til að njóta náttúrunnar, tónlistar og allra þeirra mörgu hljóða sem ber- ast dag hvern. Heyrnartjón verður ekki bætt. Þeir sem misst hafa heyrn fara ekki aðeins á mis við þau lífsgæði sem eru tengd heyrn- inni heldur geta einnig átt erfitt með vinnu eða orðið algjörlega óvinnufærir. Það er því hagur allra, einstaklinga sem fyrirtækja, já samfélagsins alls, að vernda heyrn og koma í veg fyrir heyrn- artap. Hávaði og heyrnartap Steinar Harðarson Höfundur er umdæmisstjóri Vinnu- eftirlitsins á höfuðborgarsvæðinu. Heyrn Markmið átaksins er að vekja athygli á hávaða í vinnuumhverfinu, segir Steinar Harðarson, og sjá til þess að gripið verði til aðgerða þar sem úrbóta er þörf. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík RIFJÁRN PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 Rifjárn fyrir parmesan, hnetur, súkkulaði o.fl. Verð 1.495

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.