Morgunblaðið - 28.11.2001, Side 36

Morgunblaðið - 28.11.2001, Side 36
KIRKJUSTARF 36 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13. Handavinna, spil, föndur og gamanmál. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 562 2755. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12. Samverustund aldraðra kl. 14. Bibl- íulestur, bænastund, kaffiveitingar og samræður. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára börn kl. 17.30. Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir eldri borgara. Yngri deild barnakórs- ins æfir kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk. Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30 undir stjórn Birnu Björns- dóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Heilsuhópurinn hittist kl. 11–12 í Litla sal. Kaffispjall, heilsu- pistill, létt hreyfing og slökun. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12–12.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests og djákna í síma 520 1300. Kærleiks- máltíð kl. 12.30. Matarmikil súpa, brauð og álegg kr. 500. Samvera eldri borgara kl. 13–16. Kaffi og smákökur, söng- stund með Jóni Stefánssyni, tekið í spil, málað á dúka og keramik í stóra sal. Upplestur sr. Tómasar Guðmundssonar (kl. 13.30–15.15) á Bör Börsson í Guð- brandsstofu í anddyri kirkjunnar. Boðið er upp á akstur heiman og heim fyrir þá sem komast ekki að öðrum kosti til kirkju. Verið öll hjartanlega velkomin. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14.10– 15.30 ætlaður börnum í 1.–4. bekk. Fermingartími kl. 19.15. Unglingakvöld Laugarneskirkju og Þróttheima kl. 20. Gospelkvöld kl. 20 að Hátúni 10. Guðrún K. Þórsdóttir, djákni, stýrir samverunni. Þorvaldur Halldórsson syngur ásamt Margréti Scheving, sálgæsluþjóni, en heimafólk kemur fram með margvíslegt efni í gríni og alvöru. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Berg- lind Björnsdóttir frá Hannyrðabúðinni kemur í heimsókn. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. 7 ára starf kl. 14. Öll börn í 2. bekk velkomin. Skráning í síma 511 1560. Opið hús kl. 16. Spjallað yfir kaffi og meðlæti. Lesið verður úr ævi- sögu sr. Jóns Steingrímssonar. Umsjón sr. Örn Bárður Jónsson. Bænamessa kl. 18. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Árbæjarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org- elspil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöld- máltíð. Súpa og brauð í safnaðarheim- ilinu á eftir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldraða frá kl. 13–16. Kirkjuprakk- arar kl. 17–18. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Foreldrar eru velkomnir að koma og taka þátt í samveru fram undir hádegi með börnum sínum. Helgistund kl. 11. Unglingadeild Digraneskirkju og KFUM&K, 13–16 ára kl. 20. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir vel- komnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára kl. 17.30–18.30. Kirkjukrakkar í Rimaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag Engjaskóla fyrir börn 8.–9. bekk kl. 20–22. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Litlir lærisveinar í Lindaskóla kl. 17. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börnum TTT á sama stað kl. 17.45– 18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samveru- stundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Erlendur sjá um akstur á undan og eftir. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr- irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Helgistund, spil og kaffiveitingar Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lágafellsskóla á miðvikudögum frá kl. 13.15–14.30. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshópar. Umsjón Ástríður Helga Sigurðardóttir. Æfing Kórs Kefla- víkurkirkju frá kl. 19.30–22.30. Stjórn- andi Hákon Leifsson. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Biblíulestrar fimmtudag kl. 20 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur guðfræðings. Farið verður í Jóhannesarguðspjall. Fyrirbænasam- vera fimmtud. kl. 19. Fyrirbænaefnum er hægt að koma áleiðis að morgni fimmtu- dagsins milli kl. 10–12 í síma 421 5013. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 18 Litlir lærisveinar, æfing barnakórs Landa- kirkju. Kl. 20 Opið hús í KFUM&K-húsinu við Vestmannabraut, fyrir unglinga. Útskálakirkja. Taize-helgistund kl. 20.20. Boðið upp á kaffi að stund lokinni. SÍK. Samkoma hjá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga, Háaleitisbraut 58 kl. 20.30. Fjáröflunarnefnd sér um efni samkomunnar. Blandaður kór syngur. Sr. Frank M. Halldórsson flytur hugleiðingu. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladeflía. Fjölskyldu- samvera kl. 18 sem hefst með léttri mál- tíð á vægu verði. Kl. 19 er kennsla og þá er skipt niður í deildir. Það er krakka- klúbbur fyrir krakka 2–12 ára, unglinga- fræðsla fyrir 13–15 ára unglinga, fræðsla fyrir ungt fólk á aldrinum 16–20 ára. Þá er grunnfræðsla en þar eru kennd undirstöðuatriði kristinnar trúar. Síðan er kennsla á ensku. Einnig eru til skiptis biblíulestrar, bænastundir og vitn- isburðarstundir. Það eru allir hjartanlega velkomnir að koma og vera með okkur. Safnaðarstarf Á MORGUN, fimmtudaginn 29. nóv., verða Grensássöfnuður og Reykjavíkurprófastsdæmi vestra með helgistund í Kringlunni kl. 18. Helgistundin er mjög óformleg og byggist að verulegu leyti á tónlist í umsjá Þorvalds Halldórssonar söngvara. Sr. María Ágústsdóttir leiðir stundina að öðru leyti en sr. Ólafur Jóhannsson sóknarprestur í Grensáskirkju aðstoðar. Gott er að rækja samfélagið við Guð í húsi Drottins en hitt má ekki gleymast að hann vill vera með okkur í önn og erli daglega lífsins, líka jólainnkaupunum. Í innkaupaferðinni er kjörið að staldra við stundarkorn og heyra uppbyggilegt orð Guðs í tónum og tali. Kirkjan í Kringlunni AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R Mótás hf. Kranamaður óskast Mótás hf. óskar eftir kranamanni til starfa á byggingakrana. Einungis vanur maður kemur til greina. Upplýsingar í síma 696 4646. Sýslumaðurinn í Reykjavík Skógarhlíð 6 — sími 569 2400 — www.syslumadur.is Sýslumaðurinn í Reykjavík óskar að ráða starfsmann í móttöku og símavörslu. Laun skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Hjá embætti sýslumannsins í Reykjavík starfa nálægt 60 manns í þremur fagdeild- um, fullnustudeild, sifja- og skiptadeild og þinglýsinga- og skráningadeild, auk skrifstofu, sem auglýst starf heyrir undir. Umsóknir berist til skrifstofustjóra fyrir 12. desember nk. Heilbrigðisstofnunin Siglufirði Hjúkrunarfræðingar Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa á sjúkrasviði strax eða eftir nánara samkomulagi. Heilbrigðisstofnunin á Siglufirði er 40 rúma sjúkrahús sem skiptist í 24 rúma sjúkradeild, 13 rúma öldrunardeild, 3ja rúma fæðingadeild auk heilsugæslu fyrir íbúa Siglufjarðar og Fljótahrepps. Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem geta unnið sjálfstætt og geta tekið á fjölþættum verkefnum. Ef svo er, hafið þá samband og/eða komið í heimsókn og kynnið ykkur aðstæður. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði. Sími 467 2100. Netfang gudny@hssiglo.is . Heimasíða: www.hssiglo.is . ⓦ í Reykjavík á Hjallaveg og Skeggjagötu Kennarar •Vegna forfalla vantar umsjónar- kennara í 6. bekk í Varmárskóla í 75% til 100% starf nú þegar. Launakjör eru samkvæmt kjara- samningum Kennarasambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaga fyrir grunnskóla. Upplýsingar gefur skólastjóri, Viktor A.Guðlaugsson í símum 895 0701 og 566 6186 og Þórhildur Elfarsdóttir aðstoðarskólastjóri í símum 552 0709 og 863 3297. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember og skulu umsóknir berast skólastjóra. Skólastjórnendur Varmárskóla fiverholti 2 270 Mosfellsbær Kt. 470269-5969 Sími 525 6700 Fax 525 6729 www.mos.is Varmárskóli Skalat ma›r rúnar rísta, nema rá›a vel kunni, flat ver›r mörgummanni, es of myrkvan staf villisk; sák á telg›u talkni tíu launstafi ristna, flat hefr lauka lindi langs ofrtrega fengit. -úr Egils sögu Deildarstjóri hjúkrunar Vegna sameiningar sérgreina og deilda krabbameina á Hringbraut í byrjun árs 2002 er staða hjúkrunardeildarstjóra á deild 11E laus til umsóknar. Deildin verður legudeild fyrir sjúklinga með krabbamein. Deildarstjóri ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun hjúkrunar, starfsmannahaldi, rekstrarþáttum og áætlana- gerð. Hann skal stuðla að þekkingarþróun, m.a. með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknaniðurstöður. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. 5 ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í starfsmannastjórnun. Ennfremur er menntun og reynsla í hjúkrun sjúklinga með krabbamein mikilvæg. Mat á umsóknum byggist m.a. á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Hér er um að ræða 100% starf. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í síðasta lagi 1. janúar 2002. Umsóknir skal leggja inn á skrifstofu hjúkrunar Hringbraut fyrir 12. desember 2001. Upplýsingar veitir Kristín A. Sophusdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar í síma 560 1000, netfang kristsop@landspitali.is ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.