Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 39 HJÁLPARSTARF kirkjunnar og Reykjavíkurdeild Rauða krossins munu veita þeim sem á þurfa að halda mataraðstoð í desember. Tekið verður á móti umsóknum að Vatnsstíg 3, alla mánudaga og þriðjudaga á aðventunni kl. 10-12 og 13-16 og einnig hjá sóknarprestum um allt land. Úthlutað verður á grundvelli um- sókna og eftir fjölskyldustærð alla fimmtudaga og föstudaga kl. 13-16. Aðstoðin felst í hversdagsmat og verður verðmæti hennar svipað og matargjafa í desember undanfarin ár, þótt samsetning verði önnur. Út- hlutun fer fram að Vatnsstíg og get- ur hver einstaklingur sótt um einu sinni á tímabilinu. Hver fjölskylda fær einnig aðeins eina afgreiðslu enda úthlutað eftir stærð hennar, segir í fréttatilkynningu. Matarúthlutun í desember HÁRGEIÐSLUSÝNING verður á Hverfisbarnum fimmtudaginn 29. nóvember kl. 22. Sýnd verður hár- greiðsla, förðun og sérstakir amer- ískir kjólar sem síðan verða boðnir upp. Að sýningunni standa Lena og Ragnheiður frá hárgreiðslustofunni Fólki og fiðrildum, Olga frá Hár- smiðjunni og Sigurlaug, fram- kvæmdastjóri Lanza á Íslandi. Manzo Nunez mun farða módelin, segir í fréttatilkynningu. Hárgreiðslusýning á Hverfisbarnum ÁRLEG jólasala kvenfélagsins Heimaeyjar verður í Mjóddinni fimmtudaginn 29. og föstudaginn 30. nóvember frá kl. 11–18 báða dagana. Til sölu verða heimabakaðar kökur, kerti o.fl. Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála. Jólasala Heimaeyjar SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í upp- sveitum Árnessýslu halda opinn fund um samgöngumál með for- manni samgöngunefndar, Guðmundi Hallvarðssyni alþingismanni. Fund- urinn verður haldinn á Hestakránni á Skeiðunum, fimmtudaginn 29. nóv- ember kl. 21. Á fundinum verður hægt að spyrja Guðmund um hvaðeina sem viðkem- ur samgöngumálum og þingstörfum, segir í fréttatilkynningu. Fundurinn er öllum opinn. Fundur um samgöngumál Í ÁLYKTUN frá stjórn Verkalýðs- félagsins Hlífar, þar sem fjallað er um skatt- og kjaramál, segir að þrátt fyr- ir fullyrðingar stjórnvalda um al- menna velmegun í landinu vanti veru- lega á að svo sé. Orðrétt segir m.a.: „Skattar á al- mennu launafólki eru langt umfram það sem ætti að vera, enda hafa stjórnvöld árum saman svikist um um að efna gömul loforð sín um hækkun skattleysismarka. Ef ríkisvaldið hefði staðið við þau loforð væru skattleys- ismörk komin hátt í 90.000 krónur.“ Síðar segir: „Sú aðgerð núverandi stjórnvalda að hækka umtalsvert skattleysismörk hátekjuskatts kemur hinum almenna launþega ekki að neinu gagni og er einungis gróf móðg- un við meginþorra launafólks. Eitt af því sem gæti bjargað fjárhag margra alþýðuheimila er að hækka almenn skattleysismörk í kr. 90.000 og láta þau síðan fylgja launaþróun í land- inu.“ Í lok ályktunarinnar segir að það verði fyrst og fremst á ábyrgð Davíðs Oddssonar og ríkisstjórnarinnar ef verkalýðsfélögin neyðast til að segja upp kaupliðum kjarasamninganna. Skattleysis- mörk hækki í 90 þús. krónur Á HAUSTFUNDi Fróndeildar NSMH 25. október sl. afhenti Hjörleifur Þór- arinsson, framkvæmdstjóri Glaxo- SmithKline á Íslandi, Norrænu lækna- skopssamtökunum allar myndirnar úr farandsýningunni „Hláturgas 2000“ til eignar. Samvinnuverkefni Glaxo Wellcome (síðar GlaxoSmithKline ehf.) á Íslandi, Íslensku menningarsamsteypunnar Art.is og Fróndeildar Nordisk Selskap for Medisinsk Humor (NSMH, Nor- rænu læknaskopssamtökin) leit dags- ins ljós í janúar 2000. Annars vegar var um að ræða bókina „Hláturgas – læknaskop frá vöggu til grafar“, sem send var öllum læknum landsins og hins vegar farandsýningin „Hláturgas 2000“. GlaxoWellcome var fjárhags- legur bakhjarl verkefnisins, Íslenska menningarsamsteypan sá um fram- kvæmdina og Fróndeildin veitti fag- lega ráðgjöf við efnisval. Á sýningunni voru rúmlega 60 skopmyndir úr áð- urnefndri bók stækkaðar og hengdar upp á tíu sjúkrastofnunum landsins hverri á eftir annarri. „Hláturgas“ vakti einnig athygli út fyrir landsteinana. Norðmenn fetuðu í fótspor Íslendinga fyrr á þessu ári með útgáfu skopmyndabókarinnar „Latter- gas“ og farandsýning með myndum úr bókinni fer nú milli sjúkrastofnana í Noregi, segir í fréttatilkynningu. Norrænu læknaskops- samtökin fá gjöf Bjarni Jónasson, læknir og forstöðumaður Fróndeildar NSMH, veitir gjöfinni viðtöku úr hendi Hjörleifs Þórarinssonar, fram- kvæmdastjóra GlaxoSmithKline á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.