Morgunblaðið - 28.11.2001, Side 40

Morgunblaðið - 28.11.2001, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. GUÐJÓN Sverrisson, eigandi skemmtistaðarins Bóhem, svarar tveimur greinum þingmannanna Ástu Möller og Stein- unnar Valdísar Óskarsdóttur um nektarstaði í bréfi til Morgunblaðs- ins sem birtist 22. nóvember síðast- liðinn. Guðjón gat ekki hjá því komist að prísa sig sælan fyrir að búa í frjálsu og opnu þjóðfélagi. Ég tek undir þetta með honum. Það er ómet- anlegt að búa í slíku þjóðfélagi. Ekki vildi ég búa við þær aðstæður sem dansmeyjar hans þurfa að þola í heimalöndum sínum. Aðstæður sem myndu neyða mig vegna sultar og at- vinnuleysis til að selja áhorf að líkama mínum. Skálkaskjól Guðjóni verður tíðrætt um mis- sagnir og órökstuddar fullyrðingar í fyrrnefndum greinum en vill jafn- framt fá upplýsingar um það í hvaða skjóli vændi og eiturlyfjasala hafi þrifist áður en hann hóf starfsemi sína. Hann ræðir síðan um hvað þess- ir staðir hafi hlotið góðar viðtökur hér enda partur af næturlífi allra helstu borga um víða veröld. Það er auðvitað nauðsynlegt og eðlilegt að við sjálf- stæðir Íslendingar höfum sýnishorn af lágmenningu og mannfyrirlitningu í okkar höfuðborg. Hvern er verið að vernda, spyr hann, og fyrir hverjum. Fyrst hann veit ekki betur og þarf að spyrja ætla ég með „frjósemi og andagift“ sem hann auglýsti eftir í grein sinni að upplýsa hann aðeins um þessi mál. Það eru ekki viðskiptavinir hans sem verið er að vernda, heldur þær stúlkur sem neyðast vegna fíknar, fá- tæktar eða annarra ömurlegra að- stæðna til að vinna á slíkum stöðum. Það er aftur á móti raunalegt að í þjóðfélagi okkar þrífist ennþá mann- gerð sem þarf á slíkum viðskiptum að halda og lætur sig engu varða þá mannlegu niðurlægingu og andlega skipbrot sem fylgir því að lifa af sölu á eigin líkama. Það er umhugsunarvert að Guðjón telur það afsakanlegt að nota erlend- ar stúlkur til þessarar iðju. Þar með þarf ekki að eyðileggja hina heilsu- samlegu og hreinu ímynd stúlkunnar í næsta húsi. Hver vill fara á skemmti- stað og horfa á stelpuna sem fermdist í næsta húsi í hitteðfyrra hringa sig allsbera utan um súlu eða troða að- skotahlutum á ónefnda staði? Einnig fullyrðir hann að þær stundi þessi störf af fúsum og frjálsum vilja og lík- ir þeim við iðnsveina forðum. Frjálsar ferðast þær milli borga og stunda þessi rómantísku störf. Reyndar rek- ur mig minni til að iðnsveinar forðum hafi verið bundnir meistara sínum og alveg upp á hann komnir með fæði, húsnæði og fatnað en fengu einhverja óverulega vasapeninga að auki. Þetta fyrirkomulag hélst fram yfir miðja síðustu öld en var afnumið m.a. vegna þess hve það þótti mikil niðurlæging fyrir sveininn að ráða sér ekki sjálfur. Meistararnir héldu eins lengi í þetta fyrirkomulag og þeim var unnt af fjárhagsástæðum og kannski ekkert skrítið að Guðjón líki sér við þá. Starfsfólkinu á Keflavíkurflugvelli, sem hefur horft upp á nokkrar af þessum stúlkum fela sig þar nætur- langt, skjálfandi af ótta á flótta úr landi frá „meisturum“ sínum, finnst líklega þessi samlíking lítið rómantísk eða sannferðug. Leifturárás inn í reynsluheim karla Fákunnugar þingkonur sem aldrei hafa stigið fæti inn á nektarstað (full- yrðing Guðjóns) eru auðvitað ekki í stakk búnar til að tjá sig um virðu- legan reynsluheim neyslukarla á nektarstöðum. Sjónvarpsþáttur, sem sýndur var í ríkissjónvarpinu í ágúst sl., sýndi þann raunveruleika vel. Hann er ekki til fyrirmyndar. Það er betra að tengja þann raunveruleika sem minnst við íslenska ímynd hinnar heilbrigðu stúlku í næsta húsi, hver vill vita af því að hún vinni fyrir fíkn sinni á slíkum stað. Rússneskir kven- farand„sveinar“ með rómantísku ívafi er miklu betra. Þeir karlar sem mæla slíku gróðasjónarmiði bót eru aumk- unarverðir. Hvern eru þeir að vernda? GUÐRÚN JÓNÍNA MAGNÚSDÓTTIR, Arnarsandi 3, Hellu. Nektarstaðir í Reykjavík Frá Guðrúnu J. Magnúsdóttur: Guðrún Jónína Magnúsdóttir Í KASTLJÓSÞÆTTI nýlega fullyrti undirritaður að það væri óvenjulegt að aðeins fjórar bíómyndir kepptu á Eddunni því Íslendingar framleiddu nú 6–7 myndir á ári. Á bíósíðu Morg- unblaðsins segir blaðamaður að þessi fullyrðing sé „fjarri öllu sanni“. Því til sönnunar reiknar hann út að fyrstu 20 árin af starfstíma Kvik- myndasjóðs höfum við framleitt rúmlega þrjár myndir á ári. Gallinn við þessa röksemdafærslu er auðvit- að sá að þessi 20 ár segja okkur ekk- ert um hve margar bíómyndir við framleiðum nú. Í fyrra frumsýndum við sex myndir, fjórar í ár og tíu verða frumsýndar á næsta ári, eins og fram kom á Edduhátíðinni. Með- altal þessara þriggja ára er því tæp- ar 7 myndir. Ástæðurnar fyrir þessari fjölgun bíómynda eru einkum tvær. Sú fyrri er að framlög til Kvikmyndasjóðs hafa verið að aukast og hann getur því stutt fleiri myndir. Hin síðari er ný tækni sem gerir mönnum kleift að framleiða ódýrar bíómyndir, jafnvel án stuðnings Kvikmyndasjóðs. BJÖRN BR. BJÖRNSSON, formaður Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Um fjölda bíómynda Frá Birni Br. Björnssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.