Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 41
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
11. flokkur, 27. nóvember 2001
Einfaldur kr. 2.980.000.- Tromp kr. 14.900.000.-
19388B kr. 14.900.000,-
19388E kr. 2.980.000,-
19388F kr. 2.980.000,-
19388G kr. 2.980.000,-
19388H kr. 2.980.000,-
Ingólfsstræti 3 sími 552 5450 www.afs.is
Viltu alþjóðlega menntun?
Meiri víðsýni? Viltu auka náms-
og starfsmöguleika þína í framtíðinni?
Ertu á aldrinum 15-18 ára?
Erum að taka á móti umsóknum um
skiptinemadvöl í fjölmörgum löndum
í Asíu, Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku.
Brottfarir júní-september 2002.
Ársdvöl, hálfsársdvöl og sumardvöl.
Alþjóðleg fræðsla
og samskipti
Ertu með
bein í nefinu?
Viltu kanna heiminn? Viltu læra eitthvað nýtt?BENEDIKT Jónsson sendiherra af-
henti nýlega Vladimir N. Voronin,
forseta Moldóvu, trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra Íslands í Moldóvu
með aðsetur í Moskvu, segir í frétt
frá utanríkisráðuneytinu.
Afhenti
trúnaðarbréf
FÉLAG þjóðfræðinga á Íslandi held-
ur sagnakvöld í húsi Sögufélagsins,
Fischersundi 3, fimmtudaginn 29.
nóvember kl. 20.30. Rakel Pálsdóttir
þjóðfræðingur kynnir bók sína Kött-
urinn í örbylgjuofninum en auk þess
segja félagar í Þjóðfræðingafélaginu
og aðrir viðstaddir ýmsar sögur.
Gestir verða sagnamennirnir Ingi
Hans Jónsson frá Grundarfirði og
Sigurður Atlason af Ströndum. Allir
velkomnir.
Sagnakvöld
KVÖLDVAKA verður á vegum
Ferðafélags Íslands í FÍ-salnum, í
dag, miðvikudaginn 28. nóvember,
kl. 20.30.
Grétar Eiríksson og Tómas Ein-
arsson rekja í máli og myndum
ferðasöguna Þrettán dagar á öræf-
um. Einnig verður myndagetraun í
umsjón Hauks Jóhannessonar.
Aðgangseyrir er 500 kr. Kaffiveit-
ingar.
Kvöldvaka
í FÍ-salnum
VERSLUNIN Debenhams í
Smáralind efnir til svokallaðs
sprengidags í dag, þar sem veittur
verður 25% afsláttur af öllum
vörum verslunarinnar og 15% af-
sláttur af snyrtivörum, samkvæmt
tilkynningu frá Debenhams.
„Fyrirmynd sprengidagsins er
bresk og byggð á svokölluðum
„mega days“ sem eru afar vinsælir í
breskum verslunum. Debenhams í
Bretlandi er með tvo slíka daga á
ári og er þá nánast fullt út úr dyr-
um frá morgni til kvölds,“ segir
ennfremur.
Sprengidagurinn hefst klukkan 8
og lýkur klukkan 22 í kvöld.
Boðið verður upp á skemmtiat-
riði í versluninni.
25% afsláttur hjá
Debenhams
KRABBAMEINSFÉLAGI Íslands
var nýlega afhentur ágóði af sölu á
hönskum í tengslum við átak í
október gegn brjóstakrabbameini,
alls 746 þúsund krónur. Í mörgum
löndum hefur októbermánuður ár
hvert verið helgaður árvekni um
brjóstakrabbamein, að frumkvæði
Estée Lauder-snyrtivörufyrirtæk-
isins. Íslendingar tóku nú í annað
sinn þátt í þessu átaki á þann hátt
að þrjátíu snyrtivöruverslanir og
lyfjabúðir seldu vandaða leður-
hanska merkta tákni átaksins,
bleikri slaufu.
Salan gekk mjög vel og hlutfalls-
lega mun betur en í nálægum lönd-
um. Öllum ágóða af sölunni verður
varið til brýnna verkefna sem valin
verða í samráði við Krabbameins-
félagið og Samhjálp kvenna, sem
eru samtök til stuðnings konum
sem greinst hafa með brjósta-
krabbamein.
Árveknisátak Krabbameins-
félagsins fólst einnig í því að vekja
athygli á þessum sjúdkómi, sem tí-
unda hver kona á Íslandi greinist
með einhvern tíma á lífsleiðinni,
fræða um hann og hvetja konur til
að nýta sér boð leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins um röntgen-
myndatöku.
Í frétt frá Krabbameinsfélaginu
segir að félagið meti mikils þennan
stuðning við baráttuna gegn
brjóstakrabbameini og vilji þakka
öllum sem lögðu átakinu lið. Stefnt
er að því að efna til hliðstæðs átaks
í október á næsta ári.
Guðrún Sigurjónsdóttir, formaður Samhjálpar kvenna, og Guðrún Agn-
arsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, taka við ágóða af sölu á
hönskunum með bleiku slaufunni frá Evu Kristmanns og Þóru Hrönn
Njálsdóttur hjá Artica, sem er umboðsaðili Estée Lauder. Athöfnin fór
fram í Hallgrímskirkju en turn hennar var lýstur upp í bleikum lit
fyrstu helgina í október, í boði Orkuveitu Reykjavíkur. Með hliðstæðum
hætti voru lýst upp tvö hundruð mannvirki í fjörutíu löndum.
Stuðningur við baráttuna
gegn brjóstakrabbameini
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra mun í vikunni sitja alþjóðlegan
ráðherrafund um varnir gegn meng-
un hafsins. Ráherrafundurinn er
hluti af alþjóðlegri ráðstefnu sem
hófst í Montreal í Kanada í gær.
Þetta er fyrsti ráðherrafundurinn
um framkvæmd Washington-áætl-
unarinnar um aðgerðir gegn meng-
un hafsins frá landi, frá samþykkt
hennar árið 1995. Ráðstefnuna
sækja fulltrúar yfir 120 ríkja auk
fulltrúa alþjóðastofnana, atvinnulífs,
umhverfisverndarsamtaka og al-
þjóðasamtaka sveitarfélaga.
Washington-samþykktin markaði
tímamót í baráttunni gegn mengun
hafsins. Hér er um að ræða fyrstu
hnattrænu aðgerðirnar um varnir
gegn mengun sjávar frá landi. Um
80% mengunarefna í hafinu eiga
uppruna sinn í starfsemi í landi en
eingöngu 20% koma frá skipum og
öðrum uppsprettum á hafi úti. Ís-
lendingar voru meðal þeirra ríkja
sem börðust hvað harðast fyrir gerð
Washington-áætlunarinnar og var
síðasti undirbúningsfundurinn fyrir
hana haldinn í Reykjavík. Ísland hef-
ur og staðið framarlega í framvindu
framkvæmdaáætlunarinnar.
Þess má geta að alþjóðlegur samn-
ingur um þrávirk lífræn efni sem
samþykktur var í Stokkhólmi í maí
sl., er árangur af samþykkt Wash-
ington-áætlunarinnar.
Meginmarkmið ráðherrafundar-
ins er þríþætt. Í fyrsta lagi umræður
um aðgerðir til þess að draga úr nei-
kvæðum áhrifum skolps í hafinu en
með skolpi streyma til sjávar fjöl-
mörg mengunarefni. Í öðru lagi
verða ræddar aðgerðir til þess að
draga úr eyðileggingu búsvæða í
hafinu. Í þriðja lagi aðgerðir til þess
að styrkja, hraða og efla framkvæmd
áætlunarinnar. Niðurstöður ráð-
stefnunnar verða lagðar fyrir leið-
togafund um sjálfbæra þróun sem
haldinn verður í Jóhannesarborg í
september 2002.
Við upphaf ráðstefnunnar var
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri umhverfisráðuneytisins, kos-
inn annar af tveimur formönnum
ráðstefnunnar.
Ásamt Siv Friðleifsdóttur um-
hverfisráðherra og Magnúsi Jóhann-
essyni ráðuneytisstjóra sitja ráð-
stefnuna fyrir Íslands hönd Sigur-
björg Sæmundsdóttir, deildarstjóri í
umhverfisráðuneytinu, og dr. Krist-
ján Geirsson, sérfræðingur hjá Holl-
ustuvernd ríkisins, segir í frétt frá
utanríkisráðuneytinu.
Varnir gegn mengun hafsins
ræddar á ráðherrafundi