Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 28.11.2001, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 43 DAGBÓK Árnað heilla LJÓÐABROT ÍSLAND Þú nafnkunna landið, sem lífið oss veittir, landið, sem aldregi skemmdir þín börn, hvert þinnar fjærstöðu hingað til neyttir, hún sé þér ódugnaðs framvegis vörn. Undarlegt sambland af frosti og funa, fjöllum og sléttum og hraunum og sjá, fagurt og ógurlegt ertu, þá brunar eldur að fótum þín jöklunum frá. Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði, fjöll sýni torsóttum gæðum að ná. Bægi sem kerúb með sveipanda sverði silfurblár ægir oss kveifarskap frá. Bjarni Thorarensen ÞAÐ er eitthvað bogið við sagnir NS, því niðurstaðan er afleit – sex tíglar. En það er sérverkefni að ræða um sagnir – fyrst þarf að gera sitt besta í slemmunni: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ Á94 ♥ 62 ♦ K105 ♣Á9853 Suður ♠ KD83 ♥ Á7 ♦ ÁDG97 ♣D6 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 tígull Pass 2 lauf Pass 2 spaðar Pass 3 tíglar Pass 4 grönd Pass 5 lauf * Pass 6 tíglar Pass Pass Pass * Þrír „ásar“ af fimm. Útspil vesturs er hjarta- drottning. Hvernig er best að spila? Fyrir utan þann langsótta möguleika að laufkóngur sé blankur er eina vinnings- vonin sú að henda hjarta niður í fjórða spaðann og trompa hjarta í borði. Til að slíkt gangi upp þarf austur að eiga tromplengd- ina og fjórlit í spaða. Áætlunin er þar með þessi: Drepið á hjartaás, og trompi spilaði tvisvar. Síðan er farið í spaðann. Þá kemur tvennt til greina: (1) Spila austur upp á G10xx og djúp- svína áttunni. (2) Spila vest- ur upp á Gx eða 10x í spaða, en þá er spaðaníu spilað á kóng, spaða aftur á ásinn og spaðaáttu svo svínað ef millispil fellur í vestur. Hvort er líklegra til að heppnast? Norður ♠ Á94 ♥ 62 ♦ K105 ♣Á9853 Vestur Austur ♠ 106 ♠ G752 ♥ DG1053 ♥ K984 ♦ 42 ♦ 863 ♣G1072 ♣K4 Suður ♠ KD83 ♥ Á7 ♦ ÁDG97 ♣D6 Tölfræðin lýgur ekki: Vestur getur átt 15 tvíspil og í 9 tilfellum af þessum 15 á vestur annaðhvort gosann eða tíuna. Því er betra að að spila samkvæmt leið númer 2. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3 Bg7 5. cxd5 Rxd5 6. e4 Rxc3 7. bxc3 c5 8. Hb1 0-0 9. Be2 b6 10. 0-0 Bb7 11. Dd3 Ba6 12. De3 Dd7 13. dxc5 Bxe2 14. Dxe2 bxc5 15. Dc4 Dc6 16. e5 Rd7 17. He1 e6 18. Bg5 Hfb8 19. Hbd1 Rb6 20. De2 Da4 21. Hd6 Rd5 22. c4 Rc3 23. Dd3 Rxa2 24. Hd1 Rb4 25. De4 Rd5 26. Dd3 Rb6 27. h4 Rxc4 28. De4 Db5 29. Hd7 Rb6 30. Hb7 h6 31. Bf6 Da4 32. Dxa4 Rxa4 33. Hc7 Bxf6 34. exf6 Rc3 35. Hdd7 Rd5 Staðan kom upp í Evrópukeppni landsliða sem lauk fyrir skömmu í Leon á Spáni. Jan Markos (2.435) hafði hvítt gegn Alon Greenfeld (2.581). 36. Hxf7! Rxc7 37. Hg7+ Kf8 38. Re5 og svartur gafst upp enda fær hann ekkert ráðið við hótanir hvíts á sjöundu reitaröðinni. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Ljósmynd/Mynd, Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 18. ágúst sl. í Grafarvogs- kirkju af sr. Sigurði Arnarsyni Jóhanna Valdimarsdóttir og Grétar Örn Marteinsson. Heimili þeirra er í Gautavík 27. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 23. júní sl. í Seljakirkju af sr. Valgeiri Ástráðssyni Sigríður H. Jörundsdóttir og Sig- urður Freyr Jónatansson. Heimili þeirra er í Reykjavík. Ljósmynd/Mynd, Hafnarfirði STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbarn dagsins: Þú ert fjölhæfur og átt í basli með að gera upp hug þinn til þess hvað þú vilt leggja fyrir þig. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Eitthvað reynir verulega á og mundu að þú hefur þrek til að standast það. Þú getur verið sáttur við sjálfan þig ef þú fylgir réttlætiskennd þinni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Gerðu allt sem þú getur til þess að valda þínum nánustu ekki vonbrigðum. Þar skiptir mestu að lofa ekki upp í erm- ina á sér til að kaupa frið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft ekkert að óttast það, þótt þú standir einn og óstuddur við starf þitt. Þú hefur til þess næga burði og átt bara að halda þínu striki. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Haltu ró þinni þótt mikill hamagangur sé í kringum þig og aðrir veltist hver um ann- an þveran í persónulegum átökum. Þinn tími mun koma. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það skiptir öllu máli að þér takist að halda þér í jafnvægi hvað sem á dynur. Farðu þér hægt í erfiðum málum því flas er ekki til fagnaðar. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Afköst þín vekja undrun og aðdáun samstarfsmanna þinna. Njóttu ávaxta erfiðis þíns en deildu leyndarmálinu með öðrum. Svo er að sjá hvað þeir geta. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er gaman að geta sinnt fróðleiksþrá sinni svo þú skalt hvergi hika á þeirri braut. Öll menntun er góð og kemur sér vel þótt síðar verði. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu að horfa framhjá vandamálum annarra því þótt þig langi mjög til að leysa þau þá eiga þeir að gera það sjálfir í flestum tilvikum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt þig langi alltaf til þess að setja gott fordæmi með fram- komu þinni ert þú ekki full- kominn frekar en aðrir. Sættu þig við þau takmörk sem þér eru sett. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft umfram allt að beina sköpunarþrá þinni á jákvæð- ar brautir. Láttu ekki aðra stjórna ferðinni heldur fylgdu eigin sannfæringu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er vandræðalegt að hlæja á vitlausum stöðum en verði þér það á að móðga ein- hvern skaltu hið skjótasta biðjast forláts og halda svo áfram. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert hvorki betri né verri en þú vilt vera og átt því að horfast í augu við sjálfan þig. Annars nærðu ekki árangri og verður ekki hamingjusam- ur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BERÐU ÞAÐ BESTA H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Öðruvísi aðventukransar Sjón er sögu ríkari Jól 2001 Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090 Landstvímenningurinn 2001 Alls spiluðu 98 pör á sjö stöðum víðs vegar um landið í þessu skemmtilega móti. Efstu pör: Gísli Ólafsson – Sveinn Ragnars. Bf. Grundarf. 63,82% Gylfi Baldursson – Hermann Friðriksson BSÍ 61.23% Frank Guðmundsson – Magnús Magnússon Bf. Gosi 60,67% Birkir Jón Jónsson – Halldór Sigfússon BSÍ 60,29% Skafti Ottesen – Haraldur Jónsson Bf. Hornaf. 60,17% Jóhann Ævarsson – Arnar Geir Hinrikss. Bf. Gosi 59,21% Allar upplýsingar um mótið á www.bridge.is eða www.ecats- bridge.com Dræm þátttaka í Íslandsmóti eldri og yngri spilara Íslandsmót eldri og yngri spilara í tvímenningi voru spiluð um helgina. Sex pör spiluðu í yngri flokknum, en aðeins 11 í eldri flokknum. Lokastaðan – yngri spilarar: Sigurbjörn Haraldss.-Páll Þórss. 66 Sigurður Björgvinss.-Sveinn Ragnarss. 60 Birkir Jónss.-Pétur Péturss. 58 Frímann Stefánss.-Heiðar Sigurjónss. 57 Lokastaðan – (h)eldri spilarar: Ásmundur Pálss.-Sigtryggur Sigurðss. 111 Gylfi Baldurss.-Sigurður B. Þórsteinss. 76 Eggert Bergss.-Þórður Sigfúss. 50 Björn Theódórss.-Páll Bergss. 44 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sigurvegararnir í flokki eldri spilara á Íslandsmótinu. Talið frá vinstri: Sigurður B. Þorsteinsson, Gylfi Baldursson, Ásmundur Páls- son, Sigtryggur Sigurðsson, Þórður Sigurðsson og Eggert Bergsson. Þeir urðu í efstu sætunum á Íslandsmóti yngri spilara. Talið frá vinstri: Sigurður Björgvinsson, Sveinn Ragnarsson, Sigurbjörn Har- aldsson, Páll Þórsson, Pétur Pétursson og Birkir Jónsson. Gullsmárabrids Fimmtudagur 22. nóvember. Tvímenningur á 11 borðum. Miðl- ungur 220. Efst vóru: NS Karl Gunnarss. – Kristinn Guðmundss.289 Sigurj. H. Sigurj. – Gunnar Hjálmarss.266 Dóra Friðleifsdóttir – Guðjón Ottósson245 AV Guðni Ólafsson – Kjartan Elísson 252 Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnl. 246 Kristján Guðm. – Sigurður Jóhannss. 242 Spiladagar: Mánudagar og fimmtudagar. Mæting kl. 12.45. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.