Morgunblaðið - 28.11.2001, Síða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 45
Vegna 40 ára afmælis Háskólabíós
verða engar sýningar kl. 8
e a 4 ára af lis ás la í s
ver a e ar sý i ar l. 8
GEIRFUGLARNIR eru þekktir
gleðigoggar og þeir ófáir sem hafa
stigið dansinn við undirleik þeirra.
Þeir eiga að baki
plöturnar Drit og
Byrjaðu í dag að
elska og gáfu einnig
út disk með lögum
úr leikritinu Trúð-
leik í fyrra. Tíma-
fiskurinn er því fjórði diskurinn sem
þeir senda frá sér og hefur að geyma
fjölbreytta lagablöndu, eins og við er
að búast frá þessum spilaglöðu
drengjum. Þeir gefa sig þó meira að
angurværari og rólegri hlið en áður
og þær fjaðrir fara þeim vel.
Platan hefst á fjörugu en einföldu
poppi, „Vertu mér hjá“, sem geldur
fyrir nokkuð þreytandi rím. Heldur
veigameira er „Bíð þín baby“, sakn-
aðarlag Ljósheimabúans eftir einka-
dansmærinni af Maxims, með
skemmtilega gamaldags bakröddum í
viðlaginu. Textar Geirfuglanna eru á
léttari nótunum án þess að beinlínis
sé verið að eltast við grínið. Það er
líka tilbreyting að heyra venjulegt tal-
mál og íslenskan hversdagsleika
felldan inn í heim dægurflugunnar og
það gefur sveitinni viðkunnanlegt yf-
irbragð.
Aðall Geirfuglanna er hvernig þeir
sækja sér efni héðan og þaðan úr ís-
lenskri poppsögu og unga því út með
sínum hætti. Hér má t.d. finna hinn
þjóðlega „Edduvals“ og lagið „Fátt
um svör“ gæti verið vögguvísa úr ís-
lensku barnaleikriti ef ekki væri fyrir
fremur þunglyndislegan textann. Eitt
skemmtilegasta lagið á plötunni er
hið ofureinfalda „Góð spá“ með ein-
staklega hversdagslegum vangavelt-
um við munnhörpuspil um hvort nýta
eigi ferðaveðrið eða sitja heima. Engu
síðra er „Svanasöngur“ þar sem
gestasöngvarinn Pétur Örn Guð-
mundsson nær Spilverkslegum hæð-
um í söngli sínu um litlu bústnu lömb-
in. Skipt er um gír í hinu töffaralega
„Sjókötturinn“ sem er grípandi rokk-
vísa þar sem finna má línuna „Töffari
gerður úr járni – Guðmundsson Árni“
og í laginu „Upp á Skaga“ er að finna
taktfast bítl og rafmagnsorgel í stuði.
Stundum stýrir þó ferðinni bræðing-
ur af austur-evrópskri þjóðlaga-
stemmningu og suðrænum tónum í
lögum eins og „Konan“, „Margarita“
og „Gullkálfurinn“. Mér finnst þessi
hlið einna síst. Kunnuglegir taktarnir,
sombrero-trompetblásturinn,
spænski gítarinn og fiðluleikurinn
nást einfaldlega ekki upp úr klisju-
farveginum og litlu er bætt við. Ég
held líka að þrotlaust starf Milljóna-
mæringanna og skyldra síðustu ár
hafi skapað alvarlegt óþol hjá mér
fyrir þessu „hljóðumhverfi“. Bita-
stæðara er þó „Geirfuglinn dansar“,
sérstaklega fyrir blæbrigðaríkan og
spriklandi klarinettuleik Guðna
Franzsonar sem er snilldin ein. Loka-
lagið er hið angurværa „Tímafiskur-
inn“ sem sýnir að Fuglarnir geta líka
lagt á djúpið, sveimandi furðuhljóð í
bakgrunni og textinn jafn dulráður og
myndin framan á umslaginu af fiski
bundnum í reipi. Hönnun umslagsins
er reyndar sérlega stílhrein og flott.
Þegar á heildina er litið er þetta hin
prýðilegasta plata, ferð í gegnum ís-
lenska poppsögu með viðkomu á suð-
rænni slóðum og ætti bæði að fá fólk
til að taka sporðaköst á dansgólfinu
og hreiðra um sig á sunnudagsmorgn-
um.
Tónlist
Bæði fugl
og fiskur
GEIRFUGLARNIR
Tímafiskurinn
FD – FLJÚGANDI DISKAR & DRIT EHF.
Geirfuglana skipa Freyr Eyjólfsson á
mandólín, gítar, munnhörpu, söng o.fl.,
Halldór Gylfason sem syngur, Þorkell
Heiðarsson á harmónikku, píanó, orgel
o.fl., Andri Geir Árnason á trommur og
slagverk og Stefán Már Magnússon á gít-
ar, bassa, píanó, munnhörpu o.fl. Þeim til
aðstoðar eru m.a. Birkir Freyr Matth-
íasson á trompet, Guðni Franzson á klar-
inett, Skúli Ragnar Ragnarsson á fiðlu,
Samúel J. Samúelsson á básúnu og um
bakraddir sjá Elín Hrund Heiðarsdóttir og
Pétur Örn Guðmundsson auk Geir-
fuglanna sjálfra. Upptökustjórn var í
höndum Þorkels Heiðarssonar sem sá
einnig um hljóðblöndun ásamt Arnari
Helga Aðalsteinssyni.
Steinunn Haraldsdóttir
Steinunn Haraldsdóttir segir Geirfuglana lunkna í að sækja sér efni héðan og þaðan úr íslenskri poppsögu.