Morgunblaðið - 28.11.2001, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
GÍSLI Jónsson, fyrr-
um menntaskóla-
kennari, lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri að kvöldi
mánudags. Hann var
76 ára að aldri.
Gísli var umsjónar-
maður þáttarins Ís-
lenskt mál í Morgun-
blaðinu frá árinu
1979 til dauðadags.
Þegar Gísli féll frá
hafði hann gengið frá
þætti nr. 1.138 til
prentunar og mun
hann birtast hér í
blaðinu næstkomandi
laugardag eins og
verið hefur í meira en tvo áratugi.
Gísli Jónsson var fæddur að
Hofi í Svarfaðardal 14. september
1925. Foreldrar hans voru Jón
Gíslason, bóndi að Hofi, og Arn-
fríður Anna Sigurhjartardóttir
húsfreyja. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1946 og kandídatsprófi í
norrænum fræðum frá Háskóla Ís-
lands árið 1953 jafnframt prófi í
uppeldis- og kennslufræðum. Gísli
starfaði sem þingskrifari á náms-
árum sínum og frá 1951 sem kenn-
ari við MA, fyrst lausráðinn en
skipaður árið 1953 og starfaði þar
alla tíð. Í nokkur ár sá hann einnig
um að búa bækur Kvöldvökuútgáf-
unnar á Akureyri til prentunar.
Hann sá um útvarpsþáttinn Dag-
legt mál veturinn 1977–78.
Gísli var á námsárum sínum for-
maður Stúdentaráðs og Stúdenta-
félags Háskóla Íslands. Hann var
bæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn
nær samfellt árin 1958
til 1983 og sat í bæj-
arráði 1970–80. Þá sat
hann um árabil í
stjórn Amtsbókasafns-
ins og var formaður
um tíma, í niður-
jöfnunarnefnd og jafn-
réttisnefnd Akureyrar
og var formaður
stjórnar Húsafrið-
unarsjóðs bæjarins.
Gísli var varaþingmað-
ur 1959–71 og sat á
þingi öðru hverju og
gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn.
Fjölmörg rit liggja eftir Gísla,
m.a. saga KEA, Saga Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjavík, Saga
MA, Fullveldi Íslands og fleiri,
einnig þýðingar og ritgerðir og
hann bjó fjölmargar bækur til
prentunar. Þá er nýverið komin út
Nýja limrubókin sem hefur að
geyma ritgerð um limrur og fjöl-
margar limrur sem birst hafa í ís-
lenskuþáttum Gísla hér í blaðinu.
Gísli var þríkvæntur. Hann
kvæntist Hervöru Ásgrímsdóttur
árið 1951 en hún lést árið 1971.
Þau eignuðust sjö börn. Árið 1973
kvæntist hann Bryndísi Jakobs-
dóttur. Þau slitu samvistir.
Eftirlifandi kona Gísla er Anna
Björg Björnsdóttir.
Að leiðarlokum þakkar Morgun-
blaðið Gísla farsælt samstarf um
áratuga skeið og sendir ástvinum
hans innilegar samúðarkveðjur.
Gísli Jónsson
er látinn
Gísli
Jónsson
SKÓLAHALD féll víða niður á
Norðvesturlandi og færð spilltist
víða um land, einkum á norð-
anverðu landinu og á Vest-
fjörðum í norðvestan hvassviðri
sem gekk yfir í gær. Engar
fregnir bárust af skemmdum af
völdum veðurs.
Heldur lægði síðdegis á Vest-
fjörðum en að sama skapi bætti í
vind á Norðausturlandi. Að sögn
Hrafns Guðmundssonar, veður-
fræðings á Veðurstofu Íslands,
mjakaðist vindstrengurinn austur
á bóginn eftir því sem leið á dag-
inn. Hrafn segir að í mestu hvið-
unum hafi vindur mælst allt að 30
m/sek.
Jón Sigurðsson, fréttaritari á
Blönduósi, sagði að víða hefði
kyngt niður snjó í Austur-
Húnavatnssýslu í gær og hann
hafði haft af því spurnir að í
Vatnsdal og nágrenni hefði snjó-
að kynstrin öll. Á Blönduósi væri
nú talsverður snjór og líklega
meiri en hefur verið í bænum síð-
an 1995. „Í raun og veru hefur
ekki verið neitt ferðaveður og
menn hafa haldið sig heimavið,“
sagði Jón.
Á Sauðárkróki var hávaðarok
og bullandi skafrenningur að
sögn Björns Björnssonar frétta-
ritara. „Ég hef bara verið hér
innandyra og það hefur ekki ver-
ið hundi út sigandi,“ sagði Björn.
Sem betur fer virðist sem fólk
hafi tekið mark á veðurspánni og
verið lítið á ferðinni. Í fyrrinótt
hvessti mjög og í morgunsárið
skall á krapahríð. Hiti féll niður
fyrir frostmark um níuleytið og
fylgdi því hríð og skafrenningur.
Alsælir
fjallabílaeigendur
„Það er búinn að vera mikill
bylur frá því um hádegi,“ sagði
Helga Mattína Björnsdóttir,
fréttaritari Morgunblaðsins í
Grímsey, í gærkvöldi. Vindur
stóð þá af norðvestan og mældist
vindhraðinn um 21 m/sek. Mynd-
arlegir skaflar höfðu myndast á
götum og í húsagörðum og
skyggni var lítið. Slíkt veður telst
tæpast ferðaveður en ekki létu
allir eyjarskeggjar það stoppa
sig. „Það er orðið svo mikið af
fjallabílum hér og þeir tromma
hérna um alsælir eigendurnir,“
sagði Helga.
Hávaðarok og skafrenn-
ingur en engin óhöpp
HARRY Potter og viskusteinninn,
fyrsta kvikmyndin um Harry
Potter og félaga úr Hogwarts-
skóla galdra og seiða, verður
frumsýnd hér á landi á föstudag-
inn. Forsala hófst um miðjan
mánuðinn og
hafa þegar um
4.000 miðar
verið seldir á
sýningar
fyrstu þrjá
sýningardag-
ana. Myndin
verður sýnd í
öllum Sambíó-
unum í Reykja-
vík, í Keflavík og á Akureyri, í
Háskólabíói og á Ísafirði. Alls eru
37.229 sæti í boði þessa fyrstu
sýningarhelgi sem er, að sögn Al-
freðs Árnasonar hjá Sambíó-
unum, stærsta frumsýning hingað
til hér á landi. Þegar er orðið
uppselt á sýningu kl. 18 á föstu-
deginum í Sambíóinu í Álfabakka.
Alfreð segir að þar sem kvik-
myndin um Harry Potter hafi
slegið í gegn víða um heim sé
þess einnig að vænta hér á landi
enda hafi bækurnar um hann not-
ið fádæma vinsælda. Stjörnu-
stríðsmyndin Ógnvaldurinn á nú
frumsýningarmetið hér á landi en
rúmlega 16.500 manns sáu hana
fyrstu sýningarhelgina, en þá
voru 33.060 sæti í boði.
Harry Potter
37 þúsund
sæti í boði
um helgina
STJÓRN ferðaskrifstofunnar
Samvinnuferða-Landsýnar ákvað á
fundi sínum í gær að óska eftir
gjaldþrotaskiptum. Alls eru 52 far-
þegar staddir erlendis á vegum
ferðaskrifstofunnar, allir á Kan-
aríeyjum. Að sögn Sturlu Böðv-
arssonar samgönguráðherra verð-
ur öllum farþegum, sem keypt
hafa ferðir og dvelja erlendis á
vegum ferðaskrifstofunnar, tryggð
flugferð heim til Íslands. Þá stóð
til að um 470 manns færu í borg-
arferð á vegum Samvinnuferða-
Landsýnar til Dublin á Írlandi á
morgun, fimmtudag, en nú er ljóst
að ferðin verður ekki farin.
Að sögn Sturlu verður með
sama hætti tryggt að þeim sem
greitt hafi fyrir ófarnar ferðir geti
framvísað kröfum sem síðan verði
unnið úr. Samkvæmt lögum um
skipan ferðamála sé tryggt að
neytendur, sem hafi keypt svo-
nefndar alferðir, verði ekki fyrir
skakkaföllum.
Röð atburða unnið
gegn fyrirtækinu
Að sögn Guðjóns Auðunssonar,
framkvæmdastjóra Samvinnu-
ferða-Landsýnar, hefur röð at-
burða unnið gegn fyrirtækinu og
ráðið miklu til um það að stjórn
fyrirtækisins ákvað að hætta
rekstri þess í gær og óska eftir
gjaldþrotaskiptum. Þar ráði mestu
gengisfelling íslensku krónunnar
og hryðjuverkin í Bandaríkjunum
hinn 11. september. Hann segir að
skuldir félagsins séu nú um 875
milljónir króna en umfangsmiklar
hagræðingaraðgerðir undanfar-
inna mánaða hafi ekki verið farnar
að skila sér í rekstrinum nema að
litlu leyti. Því sé þessi niðurstaða
sorgleg, enda hefðu aðgerðirnar
þýtt 250 til 300 milljóna króna
sparnað í rekstrarkostnaði skrif-
stofunnar á næsta ári. Guðjón seg-
ir ómögulegt að segja til um
hversu stórt gjaldþrot SL í raun
er.
Starfsemi Ferðaskrifstofu stúd-
enta, sem er alfarið í eigu Sam-
vinnuferða-Landsýnar, mun einnig
leggjast af í kjölfar gjaldþrotsins.
Sömu sögu er að segja af Bók-
unarmiðstöð Íslands, sem haldið
hefur úti upplýsinga- og bókunar-
vef, en hún er einnig í eigu félags-
ins. Samtals störfuðu rúmlega 70
manns hjá Samvinnuferðum-Land-
sýn og dótturfélögum félagsins.
Skuldir Samvinnuferða-Landsýnar nær 900 milljónir
Farþegum erlend-
is tryggð heimferð
Ekki lengur/12
Starfsleyfi
Burnham
afturkallað
STARFSLEYFI verðbréfafyr-
irtækisins Burnham Internati-
onal á Íslandi hf. hefur verið
afturkallað að tillögu Fjármála-
eftirlitsins og hefur skrifstofum
fyrirtækisins verið lokað.
Ástæða afturköllunar starfs-
leyfisins er að eiginfjárhlutfall
fyrirtækisins var undir lág-
markskröfum laga um verð-
bréfaviðskipti. Erfiðleikar í
rekstri hafa m.a. verið vegna
verðfalls á verðbréfaeign fé-
lagsins. Guðmundur Franklín
Jónsson, stjórnarformaður
Burnham, segir að viðskipta-
vinir muni ekki skaðast af slit-
um á félaginu og ekki tapa
verðbréfasafni sínu sem er í
fjárvörslu hjá félaginu.
Viðskiptavinir/19
Morgunblaðið/Kristján
Leiðindaveður var á Akureyri fyrri partinn í gær en þessir ungu drengir létu það ekki á sig fá.