Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 1
275. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 30. NÓVEMBER 2001
UM 60.000 Afganar eru nú í flóttamannabúðum nálægt Spin Boldak,
mikilvægum landamærabæ í Afganistan, og bíða eftir því að komast til
Pakistans. Spin Boldak er enn á valdi talibana og óttast er að átök
blossi upp í bænum neiti þeir að fara þaðan. Flóttamannahjálp Samein-
uðu þjóðanna, UNHCR, hefur því hvatt stjórnvöld í Pakistan til að
hleypa flóttafólkinu yfir landamærin. Leiðtogar Pastúna, stærsta þjóð-
flokks Afganistans, hafa reynt að semja við hermenn talibana í bænum
síðustu daga og hótað að ráðast á þá fari þeir ekki á brott. Nái and-
stæðingar talibana Spin Boldak á sitt vald geta þeir lokað helstu flótta-
leiðinni frá Kandahar, síðustu borginni sem er enn á valdi talibana.
Reuters
Flóttafólk í afgönskum landamærabæ í hættu
AFGÖNSKU sendinefndirnar, sem
hafa hafið viðræður í Bonn í Þýska-
landi, sögðust í gær hafa nálgast
samkomulag um myndun bráða-
birgðastjórnar í Afganistan til að af-
stýra nýju borgarastríði í landinu.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðu þó að mikilli vinnu væri
enn ólokið.
„Við höfum náð samkomulagi um
að koma upp stjórnkerfi með þátt-
töku allra hópanna,“ sagði Mehrab-
uddin Mastan, einn af fulltrúum
Norðurbandalagsins, öflugustu fylk-
ingarinnar af fjórum sem taka þátt í
viðræðunum í Bonn. „Við vonum að á
næstu tveimur dögum náist sam-
komulag sem leiði til friðar í landi
okkar,“ sagði Yunus Qanooni, for-
maður sendinefndar Norðurbanda-
lagsins.
Ahmed Fawsi, talsmaður Samein-
uðu þjóðanna, var varfærnari og
sagði að meðal annars hefði ekki enn
verið samið um skiptingu embætta í
fyrirhugaðri bráðabirgðastjórn.
Einnig væri óljóst hvort fylkingarn-
ar næðu samkomulagi í deilunni um
hvort Sameinuðu þjóðirnar ættu að
senda friðargæslusveitir til Afgan-
istans. Norðurbandalagið hefur ver-
ið tregt til að fallast á friðarsveit-
irnar en Qanooni sagði í gær að ef
samkomulag næðist um bráða-
birgðastjórn myndi bandalagið ekki
leggjast gegn friðargæslusveitum ef
þær reyndust nauðsynlegar til að af-
stýra nýrri borgarastyrjöld. Hann
lagði hins vegar áherslu á að ekki
væri þörf á slíkum sveitum sem
stendur.
Sendinefndirnar hafa fallist á til-
lögu Sameinuðu þjóðanna um að
stofnað verði svokallað „æðstaráð“,
120–200 manna ráð sem lýst hefur
verið sem þingi. Ennfremur á að
mynda 15–20 manna ráð, sem á að
fara með framkvæmdavaldið. Að
lokum verður stofnað svokallað
„Loya Jirga“, eða ráð öldunga hinna
ýmsu ættbálka Afganistans. Öld-
ungaráðið á að koma saman í mars
eða apríl á næsta ári til að semja nýja
stjórnarskrá.
Í viðræðunum hefur verið deilt um
hlutverk fyrrverandi konungs Afg-
anistans, Mohammeds Zahirs Shah,
í bráðabirgðastjórninni. Sendinefnd
stuðningsmanna konungsins fyrr-
verandi krafðist þess í gær að hann
yrði ekki aðeins leiðtogi æðstaráðins
heldur einnig gerður að þjóðhöfð-
ingja. Sendinefnd Norðurbandalags-
ins viðurkenndi að konungurinn
fyrrverandi, sem er Pastúni, ætti að
gegna mikilvægu hlutverki í því að
sætta þjóðina en lagði áherslu á að
öldungaráðið ætti að ákveða pólitískt
hlutverk hans.
Segjast sækja að
Kandahar
Aðstoðarvarnarmálaráðherra
Norðurbandalagsins sagði í gær að
hersveitir þess hefðu hafið sókn í átt
að Kandahar, síðustu borginni í Afg-
anistan sem er enn á valdi talibana.
Hann fullyrti að hersveitirnar væru
„komnar inn í Kandahar“ en sagði
síðar um daginn að „hörð átök“
hefðu blossað upp við útjaðar borg-
arinnar.
Talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins kvaðst ekki geta
staðfest þetta. Hann sagði líklegra
að hersveitirnar væru komnar í
Kandahar-hérað, sem nær yfir stór-
an hluta Suður-Afganistans.
Fregnir hermdu í gær að tveir eða
fleiri erlendir liðsmenn talibana
væru enn á lífi í virki Norðurbanda-
lagsins nálægt Mazar-e-Sharif þar
sem hundruð fanga gerðu uppreisn
sem lyktaði með blóðbaði. Taliban-
arnir eru sagðir hafa sært tvo menn
sem voru að fjarlægja lík fanga úr
virkinu.
Nálgast samkomu-
lag um nýja stjórn
Bonn. AFP, AP.
Nokkrir forystumanna/28
Afgönsku fylkingarnar segjast vera bjartsýnar á frið
NÆR átján milljónir barna
lifa í fátækt í Mið- og Austur-
Evrópu og fyrrverandi sovét-
lýðveldum tíu árum eftir hrun
kommúnismans, að sögn
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, UNICEF, í gær.
Mikill meirihluti þessara
barna, eða 16 milljónir, býr í
fyrrverandi sovétlýðveldum,
að því er fram kemur í skýrslu
Barnahjálparinnar, „Áratugur
umskipta“. Í Moldavíu og
Tadsjikistan lifa tveir þriðju
barnanna á minna en andvirði
230 króna á dag, eða innan fá-
tæktarmarka samkvæmt skil-
greiningu Alþjóðabankans.
UNICEF segir að fátæktin
hafi aukist frá hruni komm-
únismans árið 1989 en ná-
kvæmur samanburður er ekki
mögulegur þar sem ekki eru
til tölfræðilegar upplýsingar
um fátæktina fyrir þennan
tíma.
Í skýrslunni kemur fram að
þriðja hvert barn í Albaníu,
Úsbekistan og Tadsjikistan er
vannært. 1,5 milljónir barna
voru í umsjá opinberra stofn-
ana í lok síðasta áratugar í
þeim 27 löndum sem rann-
sóknin náði til, 150.000 fleiri en
í byrjun áratugarins.
Kommúnistaríkin
fyrrverandi
Átján millj-
ónir barna
lifa í fátækt
Genf. AP.
ÞRÍR Ísraelar létu lífið og sex
særðust í sprengjutilræði í
áætlunarbíl milli Nasaret og
Tel Aviv í gær. Tilræðismaður-
inn beið einnig bana.
Áætlunarbíllinn rifnaði
næstum í tvennt í sprenging-
unni sem varð þegar hann fór
framhjá ísraelskri herstöð við
bæinn Pardes Khana, um 30
km norðan við Tel Aviv.
Lögreglumenn fundu belti,
sem hannað var til að bera
sprengiefni, á líki tilræðis-
mannsins.
Kona á meðal farþeganna
sagðist hafa séð tilræðismann-
inn fara í rútuna í Umm El-
Fahm, arabískum bæ í Ísrael.
„Ég sá manninn sem gerði
árásina. Hann var ungur og
virtist vingjarnlegur.“
Hún bætti við að tilræðis-
maðurinn hefði ekki verið með
farangur. Talsmaður Ariels
Sharons, forsætisráðherra Ísr-
aels, sagði að Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, bæri
ábyrgð á tilræðinu. Daginn
áður hafði Arafat rætt við
sendimann Bandaríkjastjórn-
ar, Anthony Zinni, og lofað að
herða eftirlitið með palestínsk-
um öfgahreyfingum.
Fyrr í gær voru þrír menn,
tveir ísraelskir hermenn og
Palestínumaður, skotnir til
bana á Vesturbakkanum.
Meira en þúsund manns hafa
fallið í uppreisn Palestínu-
manna sem hófst fyrir fjórtán
mánuðum.
Þrír Ísrael-
ar láta lífið
í sprengju-
tilræði
Pardes Khana. AFP, AP.
Ítrekar skilyrði/31