Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 26
ERLENT 26 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þjónusta í 40 ár! Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814 Stærsta töskuverslun landsins Hlýleg gjöf Hanskar í miklu úrvali Dömuhanskar Verð kr: 3.500.- Herrahanskar Verð kr: 2.000.- Dömuhanskar Verð kr: 2.600.- Dömuhanskar Verð kr: 2.600.- Herrahanskar Verð kr: 3.700.- Herrahanskar Verð kr: 2.700.- Dömuhanskar Verð kr: 1.500.- Dömuhanskar Verð kr: 5.500.- Herrahanskar Verð kr: 4.400.- BANDARÍSKA orkufyrirtækið En- ron rambar á barmi gjaldþrots eftir að minna fyrirtæki, sem var sam- keppnisaðili, hætti við að kaupa það. „Enron er búið að vera, það er engin spurning,“ sagði Gordon Howald, greinir hjá Credit Lyonnais verð- bréfafyrirtækinu í New York. „Ég veit ekki um neinn annan sem gæti hlaupið undir bagga.“ Enron var stofnað 1985 og var eitt stærsta fyrirtæki í heiminum er verslaði með jarðgas og umsvifa- mesti raforkusali í Bandaríkjunum. Starfsmenn eru – eða voru – um 20 þúsund. Fyrirtækið verslaði enn- fremur með kol, trjákvoðu, pappír, plast, málma og ljósleiðara. Fyrir nokkrum mánuðum var En- ron sjöunda tekjuhæsta fyrirtæki í Bandaríkjunum. Gjaldþrot þess gæti orðið eitt það stærsta í sögunni, og kann að hafa mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir banka og önnur fyrirtæki, og gæti leitt til hækkunar verðs á raforku og gasi. Vafasamir samningar Enron fór mikinn fyrir ári, þegar hlutabréf í því seldust fyrir um 85 dollara stykkið (rúmar níu þúsund krónur). Fyrirtækið var komið held- ur harkalega niður á jörðina sl. mið- vikudag, þegar þessi sömu hlutabréf fóru á innan við dollar (um það bil eitt hundrað krónur). „Maður sér ekki fyrirtæki, sem eru í þetta miklu áliti, hrapa svona hratt,“ sagði Robert Christmas, gjaldþrotslögmaður hjá Nixon Pea- body í New York, um frjálst fall En- rons á undanförnum vikum. „Ég man ekki eftir neinu tilviki þar sem þetta hefur gerst svona hratt.“ Fyrirtækið hrundi eftir að það greindi frá vafasömum samstarfs- samningum og viðurkenndi að hafa í fjögur ár ýkt hagnaðartölur. Á mið- vikudaginn lækkuðu tvö matsfyrir- tæki lánshæfiseinkunn fyrirtækisins niður í núll, og neyðist það því til að greiða margra milljarða dollara skuldir sem það hefur að líkindum ekki efni á. Fyrirtækið Dynegy Inc. hætti snarlega við 8,4 milljarða doll- ara yfirtökuáætlun, eftir að fundir höfðu staðið í nokkra daga um leiðir til að endurskipuleggja áætlunina. Upphaflega var skrifað undir sam- runasamning Enron og Dynegy 9. nóvember sl. Samkvæmt þeim samn- ingi voru hlutabréfin í Enron metin á tíu dollara hvert (um ellefu hundruð krónur). Fjárfestar losuðu sig við 339 millj- ónir hluta á hlutabréfamarkaðnum í New York á miðvikudag – sem er met á einum degi – og verð bréfanna hrundi um 85% og var 61 sent við lokun (rúmar 67 krónur). Fyrir tæpu ári var Enron metið á um 80 millj- arða dollara (um 8.800 milljarða króna) og 1999 gerði fyrirtækið samning um að greiða 100 milljónir dollara á 30 árum fyrir að fá að setja nafn sitt á íþróttaleikvanginn í Houston, Enron Field. Á miðviku- dagskvöldið var verðmæti Enron um 500 milljónir dollara (um 55 milljarð- ar króna) og hvert hlutabréf í fyr- irtækinu kostaði sem svarar einum sjötta af heitri pylsu á Enron Field. Enron hafði líka pólitísk áhrif. Fyrirtækið og starfsfólk þess voru stærstu framlagsveitendurnir í kosningasjóð George W. Bush for- seta í fyrra. En jafnvel pólitísk sam- bönd gátu ekki stöðvað fallið, og fjár- málaskýrendur segja að engir aðrir riddarar á hvítum hestum séu reiðu- búnir að koma Enron til hjálpar. „Ég held að þeir eigi varla annars úrkosti [en gjaldþrot], nema bankar séu til í að ausa meiri peningum í svartholið,“ sagði Carol Coale, grein- ir hjá Prudential verðbréfafyrirtæk- inu. „Fjárfestar munu ekki kaupa.“ Lækkun matsfyrirtækjanna Standard & Poor og Moody’s Invest- ors á lánshæfiseinkunn Enron gerði að verkum að 3,9 milljarða dollara (um 430 milljarða króna) skuldir fyr- irtækisins gjaldféllu. Allt að 16 millj- arða dollara aðrar skuldir, með gjalddaga á næsta ári, þarf ef til vill að greiða fyrr. Hroki og laumuspil Fjármálaskýrendur segja að hrun fyrirtækisins megi rekja til samspils hroka og tilhneigingar til laumuspils. „Þeir útskýrðu hlutina ekki,“ sagði Jim McAuliffe, greinir hjá Morgan Stanley Dean Witter. „Þeir eru mjög borubrattir og góðir með sig.“ Enron greindi frá því í síðasta mánuði að samstarfsfyrirtæki, sem framkvæmdastjórar Enron ráku, hefðu gert fyrirtækinu kleift að halda um 500 milljóna dollara skuld- um utan við bókhaldið og fram- kvæmdastjórarnir hefðu hagnast á fyrirkomulaginu. Verðbréfa- og við- skiptaráðið rannsakar málið. Sér- fræðingar áætla að skuldir fyrirtæk- isins séu alls um fimm milljörðum dollara meiri en verðmæti eigna þess. Enron reyndi að vinna aftur tiltrú fjárfesta með því að lofa að selja þau dótturfyrirtæki sem rekin voru með tapi, en fjárfestar héldu áfram að losa sig við sífellt fleiri hlutabréf. McAuliffe sagði að þegar bréfin í fyr- irtækinu fóru að lækka í verði hefðu framkvæmdastjórar þess átt að út- skýra nákvæmlega hvað væri á seyði og reyna að fá fjárfesta í lið með sér. Þess í stað hélt hrunið áfram, og varð til þess að Dynegy vísaði til uppsagnarákvæðis í samrunaáætl- uninni til að tryggja hagsmuni sína. „Stundum eru bestu samningar fyrirtækis einmitt þeir sem það gerði ekki,“ sagði Chuck Watson, forstjóri og aðalframkvæmdastjóri Dynegy. Dynegy hætti viðskiptum við Enron, en lagði áherslu á að þótt ekkert hefði orðið úr samrunanum væri það ekki til marks um veikleika í orku- viðskiptageiranum. Enron hefur frestað greiðslu sumra skulda og lokaði á netviðskipti sín á miðvikudagin. Framkvæmda- stjórarnir eru að „meta og kanna aðra möguleika á að tryggja mikil- vægustu orkufyrirtækin okkar,“ sagði Kenneth L. Lay, forstjóri og aðalframkvæmdastjóri fyrirtækis- ins. Þá er Enron að athuga nánar þá ákvörðun Dynegy að vísa til upp- sagnarákvæðisins og segjast fjár- málaskýrendur búast við að deilt verði um eigur Enron fyrir dómstól- um. Starfsfólk Enron var hálfringlað fyrir utan höfuðstöðvar fyrirtækis- ins í miðborg Houston á miðvikudag- inn, andspænis 40 hæða háhýsi sem fyrirtækið er nýbúið að reisa fyrir 200 milljónir dollara (um 22 milljarða króna). „Ég býst ekki við því að lend- ingin verði mjúk,“ sagði David Pic- one, starfsmaður Enron. „Þetta er hörð lending fyrir alla, háa sem lága.“ Fréttaskýrandi BBC segir, að galdurinn á bak við velgengni Enron hafi fyrst og fremst verið sú upp- götvun, að orka, vatn, og jafnvel óljós fyrirbæri á borð við fjarskipta- tíðni, væru í rauninni verslunarvörur sem hægt væri að kaupa og selja og verja fyrir áhættu, rétt eins og hluta- bréf og skuldabréf. Umfang viðskiptanna gerði Enron um tíma að einu stærsta orkufyrir- tæki í heimi, þegar salan í fyrra fór rúma hundrað milljarða dollara (11 þúsund milljarða króna), og skipaði því á bekk með vel þekktum orkuris- um á borð við Exxon og Shell. Stefnir í eitt stærsta gjaldþrot sögunnar Houston. AP, Los Angeles Times.                        !"# $ #%&%%%  '(&%%%  ) %$  *'&%%%   '+,(  !" #!$%&'%()* +,         - ,  -  +. /          +. ,  +, /       0 .        *%%% *%%'                            -  ./ 0   121 ! "#$%#&## '# ( #)##*!++( ,#% )# +%"%% # ( # %"3' #&# !'"'*     '++! '++, '+++ *%%% *%%' **"( *+" ##" 3("( !"#   ('& "  *!  #% $& #% $& , #% $& ,, - -  *(  *%%' % 43', 5  "  ('& " #*!  AP Ónafngreind kona kemur með kassa út úr höfuðstöðvum Enron í miðborg Houston á miðvikudaginn. Hlutabréf í bandaríska orkurisanum Enron eru orðin verðlaus. Fjár- málaskýrendur telja að ekkert geti bjargað fyr- irtækinu frá gjaldþroti. Fyrirhugaður samruni við minni keppinaut varð að engu eftir að lánshæfismat Enron var lækkað niður í núll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.