Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn var
stofnað í upphafi tuttugustu ald-
arinnar. Í upphafi aldarinnar
studdu Hringskonur ötullega ýmsa
þá er minna máttu sín í þjóðfélag-
inu, aðstoðuðu fátækar sængur-
konur og börn á margan hátt.
Hringurinn reisti og rak Kópa-
vogshælið af miklum myndarskap
en gaf síðan íslenska ríkinu þá
stofnun. Þannig hefur saga Kven-
félagsins Hringsins verið samofin
líknarmálum og góðgerðarmálum á
Íslandi.
Á undanförnum áratugum hefur
Kvenfélagið Hringurinn stutt
Barnaspítala Hringsins af óbilandi
dugnaði. Þannig hafa Hringskonur
unnið ómetanlegt starf að bættum
aðbúnaði veikra barna á Íslandi.
Þær eiga því tvímælalaust hlut-
deild í þeim árangri sem á spít-
alanum næst. Í viðurkenningar-
skyni við þetta starf ber spítalinn
nafnið Barnaspítali Hringsins.
Barnaspítali Hringsins
Barnaspítali Hringsins tók til
starfa fyrir rúmum 40 árum. Það
var ekki síst framtakssemi Hrings-
kvenna að þakka að deildin var
stofnuð. Er Barnaspítali Hringsins
flutti í núverandi húsnæði árið
1965 var það einnig með drjúgum
stuðningi Hringskvenna. Rúm og
innanstokksmunir voru gefin af
Kvenfélaginu Hringnum ásamt
margvíslegum stuðningi. Enn er
það svo að umtalsverður hluti
þeirra tækja sem notuð eru á
Barnaspítala Hringsins er gjöf frá
Kvenfélaginu Hringnum.
Nú hillir undir þá stund að nýr
Barnaspítali Hringsins verði tek-
inn í notkun. Öflugur stuðningur
Hringskvenna skiptir einnig sköp-
um við framkvæmd þessa verks.
Það er starfsfólki Barnaspítala
Hringsins stöðug hvatning og
ómetanlegur stuðningur að eiga
Kvenfélagið Hringinn að bakhjarli.
Hringskonur hafa með fórnfúsu
starfi, mikilli framsýni og óbilandi
bjartsýni stuðlað að bættum hag
barna á Íslandi.
Hringskaffi
Á morgun, fyrsta sunnudag í
desember, verður hið árlega
Hringskaffi á Broadway og hefst
það klukkan 13.30. Hringskonur
bera þá fram mikið lostæti, selja
jólakort og halda happdrætti með
veglegum vinningum.
Það er von mín að sem flestir
sjái sér fært að sýna Kvenfélaginu
Hringnum stuðning í verki í
Hringskaffinu á morgun og njóta
um leið frábærra veitinga.
ÁSGEIR HARALDSSON,
prófessor í barnalækningum
og forstöðulæknir
Barnaspítala Hringsins.
Jólakaffi
Hringsins
Frá Ásgeiri Haraldssyni:
Líkan af Barnaspítala Hringsins.
Teiknistofan Tröð
EF RÉTT er vitað mun vera nokkur
fótur fyrir sögunni um prestinn sem
ávallt að lokinni vetrarvertíð lét
syngja þann sálm
í sálmabókinni
sem bar sama
númer og ein-
kennisnúmer
þess báts sem
mest hafði aflað á
vertíðinni. Í þessu
sambandi berast
böndin að presti í
Vestmannaeyjum
í hálfan annan
áratug um og upp
úr miðri síðustu öld. Varla þarf að
taka fram að gárungar fullyrða að eitt
sinn hafi númerið verið 82 og fyrir
vikið hafi verið sungið „Heims um
ból...“ það vorið í Landakirkju. Rétt
er að taka fram að Gullborg, aflaskip
Binna í Gröf, var númer 38 og kann
það að skýra aflasæld hans í áraraðir.
„Á hendur fel þú honum, sem himna
stýrir (Gull-)borg...“ Hér skal hins-
vegar greint frá atvikum sem eru
dagsönn enda sögð frá fyrstu hendi.
Fyrr á árum var eftirsótt af sumum
að vera með „gott“ númer á bílum sín-
um. Þannig þótti mjög bitastætt að
vera með lágt númer, því betra sem
það var nær núllinu, en aðrir létu sér
nægja að vera með símanúmer sitt á
bílnum. Svo vildi til að einn góðan veð-
urdag á námsárum mínum á áttunda
áratugnum var ég skráður fyrir
þriggja tölustafa Reykjavíkurnúmeri,
R 968. Nokkru síðar var fjárhagurinn
óvenju þröngur og þegar vélin eyði-
lagðist sá ég fram á að ég yrði bíllaus í
nokkrar vikur. En það var þetta með
númerið. Ég hafði tekið eftir því að
fólk skiptist mjög í tvo hópa með álit
sitt á þeim. Sumir voru mjög áhuga-
samir um gott númer en öðrum var
nákvæmlega sama. Ég bar þetta und-
ir kunningja minn, prest frá þjóð-
kirkjunni, og kallaði hann þetta að
bragði hégóma. En samt, – þetta voru
jú bara þrír tölustafir.
Um þetta leyti hafði ég þurft að
hringja á Biskupsstofuna út af smáer-
indi. Gott var að muna símanúmerið
en það var þá 15015. Stuttu seinna var
ég á gangi í miðbænum og sá hvar
Sigurbjörn biskup kom akandi á bíl
sínum og blasti þá lausnin við mér
þegar ég sá bílnúmerið, R-15015, með
aðstoð úr 22. passíusálmi Hallgríms
Péturssonar 10. versi: „Hvað höfð-
ingjarnir hafast að, hinir meina sér
leyfist það...“
HALLDÓR HALLDÓRSSON,
útvegsfræðingur.
Minning úr miðbænum
Frá Halldóri Halldórssyni:
Halldór Hall-
dórsson út-
vegsfræðingur.