Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 15
Mexíkósk
ilmkerti
sími 462 2900
FLUGLEIÐIR hafa keypt eignir
Flugfélags Íslands á Akureyrarflug-
velli og Reykjavíkurflugvelli.
Jón Karl Ólafsson framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands sagði að á
báðum þessum stöðum hefði félagið
selt skrifstofuhúsnæði sitt sem og
flugskýli.
Eina eignin á Reykjavíkurflugvelli
sem Flugfélag Íslands heldur eftir
er flugstöðin.
Þá hafa Flugleiðir einnig keypt
þrjár litlar flugvélar, m.a. tvær Twin
Otter-vélar á Akureyri, sem og
Metró-vél, en þær höfðu verið af-
skrifaðar í bókhaldi félagsins.
Eignirnar voru seldar á tæplega
300 milljónir króna.
Flugfélag Íslands hefur gert lang-
tímaleigusamning við Flugleiðir um
afnot af þessum eignum
„Með þessum ráðstöfunum erum
við að tryggja eiginfjárstöðu fyrir-
tækisins,“ sagði Jón Karl.
Morgunblaðið/Kristján
Húseignir Flugfélags Íslands á Akureyrarflugvelli sem Flugleiðir hafa keypt.
Akureyrarflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur
Flugleiðir kaupa eignir
af Flugfélagi Íslands
NORÐURLANDSDEILD SÁÁ hefur sent Ólafi
Erni Haraldssyni, formanni fjárlaganefndar Al-
þingis, erindi, þar sem þess er farið á leit við
nefndina að framlag til reksturs göngudeildar á
Akureyri verði fest í sessi í fjárlögum. Er þess
óskað að framlagið nemi 10 milljónum króna og
verði það nýtt til að standa straum af núverandi
kostnaði við deildina, auk þess að efla hana enn
frekar.
Eins og fram hefur komið hefur formaður
SÁÁ tilkynnt niðurskurð á starfsemi samtak-
anna vegna fjárskorts. Áformað er að leggja
göngudeild SÁÁ á Akureyri niður en um er að
ræða einu föstu þjónustu SÁÁ á landsbyggð-
inni. Forstöðumaður og eini starfsmaður deild-
arinnar á Akureyri er Stefán Ingólfsson en
hann hefur starfað við meðferðarþjónustu og
ráðgjöf á sviði áfengis- og vímuefnavarna í rúm-
lega 11 ár.
Ennfremur kemur fram í bréfinu til fjár-
laganefndar að rekstur göngudeildarinnar á Ak-
ureyri hefur kostað 7–8 milljónir króna á ári og
hefur deildin þjónað bæði Norður- og Austur-
landi. Á þeim árum sem deildin hefur starfað á
Akureyri hefur hún sannað gildi sitt. Árlega eru
yfir 300 viðtalstímar við einstaklinga séstaklega
skráðir hjá deildinni en að auki er um að ræða
fjölda óskráðra heimsókna og mjög mikla síma-
þjónustu. Starfsmaðurinn þjónustar einnig
Fjóluna, áfangaheimili á Akureyri, fyrir ein-
staklinga í eftirmeðferð. Þá er viðamikill hluti
starfsins fólginn í eftirfylgni við meðferðir sem
íbúar á svæðinu hafa lokið á vegum SÁÁ.
Þá kemur fram að göngudeild SÁÁ á Ak-
ureyri fór sérmerkt inn á fjárlög ríkisins í fyrra
en af ókunnum ástæðum gerði hún það ekki í ár.
Norðurlandsdeild SÁÁ leitar eftir stuðningi fjárlaganefndar
Framlag til göngudeildar verði
fest í sessi á fjárlögum
HLJÓMSVETIN Mannakorn mun
halda upp á 25 ára afmæli sitt með
tónleikum og dansleik í Oddvitanum
á Akureyri næstkomandi laug-
ardagskvöld, 1. desember. Skemmt-
unin hefst á miðnætti og stendur
fram til klukkan þrjú.
Skemmst er frá því að segja að
uppselt varð á skömmum tíma á
ferna tónleika sem haldnir voru í
Salnum í Kópavogi í síðasta mánuði
og þóttust takast sérlega glæsilega.
Félagarnir Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson flytja á tónleik-
unum allar ástsælustu perlur Magn-
úsar með dyggri aðstoð tveggja
ungra og bráðefnilegra úrvals-
hljóðfæraleikara, þeirra Davíðs
Þórs Jónssonar píanó- og hljóm-
borðsleikara frá Akranesi og Bene-
dikts Brynleifssonar trommuleikara
frá Akureyri.
Ný plata með þessum frábæru
upptökum frá Salnum er væntanleg
innan skamms og mun það vera
fyrsta hljómleikaplata hinna ástsælu
Mannakorna. Edda miðlun og útgáfa
mun sjá um dreifingu á disknum.
Hljómsveitin Mannakorn
skemmtir Akureyringum nk.
laugardagskvöld.
Miðnætur-
tónleikar á
Oddvitanum
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, verður heiðursgestur á
árshátíð Menntaskólans á Akureyri
sem haldin verður í Íþróttahöllinni
í kvöld, 30. nóvember.
Á áttunda hundrað manna, nem-
endur og gestir þeirra, kennarar og
starfsfólk skólans, sitja hátíðina.
Undirbúningur árshátíðar hefur
staðið í nokkrar vikur og eru marg-
ar nefndir að störfum, enda er
árshátíðin haldin í veglega
skreyttri Íþróttahöllinni og allur
umbúnaður er hinn glæsilegasti.
Þar sitja gestir í hátíðarkvöldverði
og hópur nemenda þjónar til borðs.
Á hátíðinni er vegleg dagskrá,
margvísleg tónlist verður flutt á
meðan setið er að borðum, Kór MA
syngur nokkur lög, Leikfélag MA
flytur dagskrána Ek em maðr ís-
lenskr, sem Stefán Þór Sæmunds-
son kennari samdi og annar kenn-
ari, Hrafnhildur Hafberg, leik-
stýrir. Þá verða flutt minni kvenna
og karla og fleiri ávörp verða á
dagskrá.
Að loknu borðhaldi og skemmti-
atriðum verður stiginn dans. Í aðal-
sal Íþróttahallarinnar leikur hljóm-
sveitin Sóldögg en á efri hæð verða
að vanda gömlu dansarnir við leik
Þuríðar formanns og hásetanna.
Nemendur hafa undanfarið sótt
dansnámskeið til að búa sig undir
þennan lið.
Árshátíð MA er og hefur um ára-
bil verið stærsta vímulausa hátíð
ungs fólks á Íslandi. Það er helsta
ástæða þess að forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, hefur
þegið boð skólafélagsins Hugins
um að vera gestur á árshátíðinni og
heiðra skólann og nemendur hans
með nærveru sinni.
Árshátíð Mennta-
skólans á Akureyri
Forseti Ís-
lands heið-
ursgestur
ZONTAKLÚBBURINN Þórunn
hyrna stendur fyrir sölu á formum
fyrir ísljósker á Glerártorgi í dag,
föstudaginn 30. nóvember og á
morgun, laugardaginn 1. desember.
Ísljóskeraformin verða seld undir
slagorðinu „Kveikjum ljós fyrir kon-
ur í Afríku“. Þar er vísað til eins af
langtímaverkefnum Zonta, en það er
að leggja baráttunni gegn umskurði
ungra stúlkna í Afríkuríkinu Burk-
ina Faso lið fjárhagslega í samstarfi
við UNICEF, barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna. Verkefnið er brýnt því
að í Burkina Faso eru 66% 6–7 ára
stúlkubarna umskorin þrátt fyrir að
lög sem sett voru þar í landi árið
1996 banni umskurð.
Allur ágóði Zontaklúbbsins Þór-
unnar hyrnu rennur óskiptur til
verkefnisins.
Kveikjum
ljós fyrir kon-
ur í Afríku
VINKONURNAR Karen
og Birgitta Björk voru
í óða önn að moka
göng í gegnum snjó-
skafl við Síðuskóla er
ljósmyndari Morg-
unblaðsins var þar á
ferð í gær.
Aðstæður til verksins
voru nokkuð erfiðar,
enda snjóskaflinn grjót-
harður eftir frostakafla
að undanförnu.
Þær létu það ekkert
á sig fá enda ætluðu
þær svo að hittast á
miðri leið í „göng-
unum“. „Við erum að
æfa okkur í að vinna
áður en við förum að
vinna í bakaríi þegar
við verðum stórar,“
sagði Birgitta. Heldur
hafði dregið úr frostinu
í gær en þó var um 5
gráðu frost um miðjan
daginn.
Snjó-
mokstur
við erf-
iðar að-
stæður
Morgunblaðið/Kristján
SAMLAGIÐ list-
hús opnar jóla-
sýningu sína,
sunnudaginn 2.
des., kl. 14 í Sam-
laginu listhúsi.
Alls eru 11 lista-
menn búsettir á
Norðurlandi þátt-
takendur í Sam-
laginu. Þar er til sýnis og sölu fjöl-
breytt úrval listmuna, s.s. leirmunir,
vefnaður, mósaík, kóngakerti, mál-
verk, grafík, vatnslitamyndir og
fleira. Samsýning Samlagsfélaga
stendur nú yfir í háskólabókasafninu
á Akureyri en henni lýkur um mán-
aðamótin.
Samlagið verður opið fyrir jól alla
daga nema mánudaga frá kl. 14–18
og laugardaga kl. 11–16.
Jólasýning
í Samlaginu
♦ ♦ ♦