Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ var mikill handagangur í öskj-
unni á degi íslenskrar tungu þegar
nemendur Örlygshafnarskóla í
Vesturbyggð settu á svið nokkra at-
burði úr norrænni goðafræði. Byrj-
að var á að skapa heiminn úr „lík-
amsleifum“ jötunsins Ýmis. Þá
gengu þar um garða þeir félagar
Óðinn, Þór og Loki, ásamt fleiri ás-
um.
Unnu þeir m.a. þau afrek að
henda hinum ófrýnilega Miðgarðs-
ormi í „hafið“ og að hneppa
ófreskjuna Fenrisúlf í fjötra. Fenr-
isúlfur leysti sig þó bæði úr Læð-
ingi og drap sig úr Dróma en fjöt-
urinn Gleipni tókst honum ekki að
slíta enda hann gerður af ýmsum
undarlegum fyrirbærum eins og
skeggi konunnar og dyn kattarins.
Örlaganornirnar Urður, Verð-
andi og Skuld spáðu í framtíðina og
Freyja tók æðiskast er þess var far-
ið á leit að hún gengi að eiga Þrym
jötun, svo að Þór fengi hamarinn
Mjölni á ný.
Átta nemendur í skólanum
Sýningunni lauk með því að Þór
endurheimti Mjölni. Rann á hann
berserksgangur og lágu flokkar
hrímþursa og jötna óvígir eftir að
hafa fengið að kenna á hamrinum
góða.
Að sýningu lokinni var svo boðið
upp á glæsilegt kaffihlaðborð og
voru því gerð góð skil.
Þess má geta að aðeins átta nem-
endur eru í skólanum svo hver og
einn þurfti að leika mörg hlutverk.
Fórst þeim það prýðilega úr hendi
og var gerður góður rómur að leik
barnanna.
Fenrisúlfurinn fjötraður
í Örlygshafnarskóla
Patreksfjörður
Nemendurnir settu á svið atburði úr norrænni goðafræði.
Morgunblaðið/Birna Mjöll
formaður lýsti sögu hússins, en það
var byggt kringum 1970 fyrir
Ræktunarsamband Vestur- Barða-
strandarsýslu, sem rak jarð-
ýtuverkstæði í húsinu um árabil. Þá
rakti Lilja Magnúsdóttir ritari sögu
björgunarsveitarinnar og forvera
hennar, Slysavarnadeildarinnar
Framtíðarvonar. Jón Gunnarsson,
formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, flutti sveitinni góðar
kveðjur, árnaðaróskir og gjöf í til-
efni þessara tímamóta, GPS-
staðsetningartæki fyrir vélsleða.
Ólafur Magnús Birgisson sveit-
arstjóri flutti kveðjur og árnaðar-
óskir og þakkaði björgunarsveit-
inni fyrir gott og ánægjulegt
samstarf. Gat hann þess að það
hefði verið ómetanlegt að geta leit-
að til sveitarinnar þegar suðvestan-
óveðrið gekk yfir á dögunum, en
Björgunarsveitin Tálkni átti stóran
FYRIR skömmu vígði Björg-
unarsveitin Tálkni nýtt húsnæði sitt
í Strandgötu 42b, ásamt því að
halda upp á mörg afmæli sveit-
arinnar. Það eru 25 ár síðan Björg-
unarsveitin Tálkni var stofnuð, 60
ár síðan forveri hennar, Slysa-
varnadeildin Framtíðarvon var
stofnuð og 5 ár síðan stofnuð var
sérstök unglingadeild innan
Tálkna.
Fjölmenni var við athöfnina og
húsið fullt út úr dyrum. Formaður
sveitarinnar, Aðalsteinn Magn-
ússon, byrjaði á því að bjóða gesti
velkomna og lýsti lauslega aðdrag-
anda þess að sveitin eignaðist hús-
ið. Séra Sveinn Valgeirsson sókn-
arprestur flutti blessunarorð og
óskaði björgunarsveitinni alls hins
besta. Ólafur Gunnbjörnsson vara-
þátt í því að bjarga flotbryggjunum
í smábátahöfninni frá frekari
skemmdum og þar með bátaflota
Tálknfirðinga.
Hið nýja húsnæði er þeim björg-
unarsveitarmönnum til mikils sóma
og öllu haganlega fyrir komið. Það
kom frá hjá Aðalsteini formanni, að
yfirhönnuður, skipuleggjandi, arki-
tekt, og yfirsmiður við þetta verk
var Ólafur Gunnbjörnsson varafor-
maður. Hann naut svo dyggs stuðn-
ings frá öðrum meðlimum sveit-
arinnar við verkið, sem eins og
áður sagði, er þeim öllum til mikils
sóma.
Að sögn Aðalsteins er stefnt að
því að endurnýja björgunarbíl
sveitarinnar á næsta ári ef næst að
safna nægjanlegu fjármagni. Þá er
áhugi á því að sveitin eignist dælur,
rafstöð o.fl. sem nýst gæti við
björgunarstörf.
Björgunarsveit í eigið húsnæði
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
Fjölmargir gestir voru viðstaddir vígsluhátíðina í húsnæði Tálkna.
Tálknafjörður
KANÍNUKJÖT er ekki algengur
matur á borðum landsmanna, það er
þó heldur að ryðja sér til rúms eftir
því sem matarvenjur verða fjöl-
breyttari.
Heyrst hefur af fréttum um villtar
kanínur á nokkrum stöðum á landinu
og veiða menn þær sér jafnvel til
matar. Hitt er samt algengara að
menn ali búrakanínur til slátrunar.
Kanínukjöt þykir herramannsmat-
ur, minnir á kjúklingakjöt, er samt
heldur dekkra og er eldað á svipaðan
hátt og kjúklingur. Kanínukjötið er
misjafnt eins og kjöt af öðrum hús-
dýrum en holdafar þeirra er misjafnt
en það er fitulítið alla jafna. Skrokk-
ur af holdakanínu er til dæmis kjöt-
meiri en skrokkur af villtri kanínu.
Nokkrir stofnar eru til í landinu sem
eru misjafnir að holdafari. Síðan búa
kanínurnar í landinu við misjafnt at-
læti sem hefur áhrif á holdafarið.
Kanínan
flegin
Morgunblaðið/Sig. Aðalsteinsson
Hér vinnur Vigfús Hjörtur Jóns-
son að kanínufláningu.
Norður-Hérað
ÞRÁTT fyrir aftakaveður
á fimmtudagskvöldið 22.
nóvember var nokkuð góð
mæting á almennan borg-
arafund um Staðardag-
skrá 21 á vegum Borgar-
byggðar. Fundurinn var
haldinn til að kynna átak
Borgarbyggðar um að
hlúa að sjálfbærri þróun
með vistfræðileg, efna-
hagsleg og félagsleg atriði
að leiðarljósi.
Guðbrandur Brynjúlfs-
son sveitarstjórnarmaður
setti fundinn og bauð
fundarmenn velkomna.
Hann fór nokkrum orðum
um umhverfisstefnu Borgarbyggðar
sem var mótuð í apríl 2000. Stefnt er
að því að sveitarfélagið verði eftir-
sótt til búsetu sem fjölskylduvænt
svæði með heilnæmu og aðlaðandi
umhverfi. Því næst fræddi Stefán
Gíslason umhverfisverkfræðingur
fundarmenn um hvað fælist í Stað-
ardagskrá 21. Fram kom hjá Stefáni
að þetta snýst ekki um orð eða hug-
tök heldur um lífsgæði og velferð
gagnvart okkur sjálfum, börnunum
okkar og börnunum þeirra. Þetta
snýst um að vita hvað maður vill og
hvert maður ætlar að fara. Stefán
starfar fyrir Samband ísl. sveitarfé-
laga á þessu sviði. Hólmfríður
Sveinsdóttir stjórnmálafræðingur
var ráðin af hálfu sveitarfélaganna
við Borgarfjörð til að koma þessum
málum áleiðis heima í héraði. Hún
fór yfir málaflokkana sem ná frá hol-
ræsa- og frárennslismálum til um-
hverfisfræðslu í skólum og allt þar á
milli. Auk þess fór hún yfir aðferða-
fræðina almennt við fyrirætlaðan
framgang verkefnisins. Sóttar verða
hugmyndir og viðhorf til almennings
með myndun tengslahóps sem verð-
ur stýrihópi og verkefnastjóra til að-
stoðar. Fundinum lauk með fyrir-
spurnum, auk almennrar umræðu
um umhverfismál, og allmargir
skráðu sig til að vinna í tengslahópi.
Borgarafundur um
Staðardagskrá 21
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Stefán Gíslason umhverfisverkfræðingur.
Borgarnes
ÁLFASTEINN ehf. á Borgarfirði
eystra hefur tekið í notkun nýjan vef
á slóðinni www.alfasteinn.is. Vefur-
inn er upplýsingavefur um Álfastein,
sögu fyrirtækisins, starfsemi, fram-
leiðslu og verslun. Á vefnum eru auk
þess birtar fréttir og upplýsingar frá
Borgarfirði eystra og upplýsingar
um sífellt vaxandi ferðaþjónustu.
Álfasteinn sérhæfir sig í fram-
leiðslu og sölu á margskonar vörum
úr steini og vefurinn inniheldur
myndir af einstökum vörutegundum
og -flokkum ásamt verðskrá. Merk-
ingar og skiltagerð er vaxandi þáttur
í starfsemi Álfasteins og á vefnum er
að finna allar nauðsynlegar upplýs-
ingar um þá starfsemi, sýnishorn og
verð. Álfasteinn hefur einnig í aukn-
um mæli tekið þátt í skipulagningu
ferðaþjónustu á Borgarfirði eystra,
ekki síst vegna tilkomu merktra
gönguleiða í Borgarfirði og ná-
grenni.
Www.alfasteinn.is er þjónustu- og
upplýsingavefur fyrir viðskiptavini
Álfasteins sem geta pantað fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins hvaðan
sem er í heiminum í gegnum tölvu-
póst: alfasteinn@alfasteinn.is.
Á forsíðu www.alfasteinn.is verða
birtar fréttir og aðrar upplýsingar
frá Borgarfirði eystra og einnig er
tenging á upplýsingavef um göngu-
leiðir um Víknaslóðir og ýmsar upp-
lýsingar um þjónustu á Borgarfirði.
Álfsteinn fagnaði 20 ára afmæli
síðastliðið vor, en fyrirtækið var
stofnað á sumardaginn fyrsta árið
1981. Þrír fastir starfsmenn eru hjá
fyrirtækinu allt árið en starfsmanna-
fjöldinn tvöfaldast að jafnaði yfir
sumartímann.
Álfasteinn
ehf. opnar
nýjan vef
Borgarfjörður eystri
HANDVERKSMARKAÐUR
verður opinn í Félagsheimilinu
Stað á Eyrarbakka sunnudaginn
2. des. kl 14–18. Þar verður
margt góðra muna. Englar úr
leir, gleri og gifsi, renndir tré-
munir, baby born-föt og hand-
málaðar pólskar jólakúlur með
myndum af íslenskum kirkjum.
Dúkar og dót.
Rauða húsið verður með kaffi
og vöfflur. Húsið og Sjóminja-
safnið verða opin, segir í frétta-
tilkynningu.
Handverk á boðstólum
Eyrarbakki