Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 37
Hátíðarfatnaður
íslenskra karlmanna
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið var að
framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að
íslenskir karlmenn óski að
klæðast búningnum á
tyllidögum, svo sem við
útskriftir, giftingar, á 17. júní,
við opinberar athafnir
hérlendis og erlendis og við
öll önnur hátíðleg tækifæri.
Hátíðarföt
með vesti
úr 100% ull
kr. 22.900
Stærðir 46— 64
98—110
25— 28
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
P
ó
st
se
n
d
u
m
Munið Visa tilboð
5.000 kr. afsláttur sé greitt
með Visa kreditkorti.
Pantanir óskast sóttar
Allir stærðir til
HARRY Potter (Daniel Radcliffe),
hefur komist uppá lagið með að um-
bera Vernon (Richard Griffiths),
ráðríkan frænda sinn, líkt og Pet-
uniu (Fiona Shaw), hina harðbrjósta
frænku sína. Þessi tíu ára polli hef-
ur jafnvel vanist kompunni sinni
undir stiganum. Á sama hátt hafa
ættingjar Harrys sætt sig við til-
veru hans, sem minnir Petuniu sí og
æ á hina „vegvilltu“ systur sína,
hennar undarlegu tilveru, furðuleg-
an mág og dularfullan, ótímabæran
dauðdaga þeirra beggja.
Ellefti afmælisdagurinn nálgast,
þó er Harry ekkert spenntur, enda
á hann ekki von á tilbreytingu,
leikjum, gjöfum, né nokkru þess
háttar.
Í ár á þetta allt eftir að breytast.
Þessi smái en knái munaðarleysingi
kemst að því á afmælisdaginn, að
foreldrar hans voru miklir og víð-
frægir galdramenn og hann hefur
sjálfur stórkostlega hæfileika á
þessu sviði. Hæfileika sem þarf að
rækta og temja.
Harry fær boð frá Hogwarts,
besta galdrakarlaskóla í víðri ver-
öld. Innritast, og jafnskjótt upp-
hefst bæði mesta ævintýri hans á
lífsleiðinni jafnframt því sem Harry
finnur þá ást, umhyggju, heimili og
fjölskyldu, sem hann hefur alla tíð
þráð að eignast.
Það mannsbarn finnst varla,
a.m.k. ekki á Vesturlöndum, sem
kannast ekki við hinar geysivinsælu
ævintýra- og metsölubækur skáld-
konunnar J.K. Rawling, um Harry
Potter, drenginn með töframanns-
hæfileikana. Þær hafa allar selst í
milljónum eintaka, komist efst á
vinsældalistann, hér sem annars
staðar.
Kvikmyndagaldrakarlinn sjálfur,
Steven Spielberg, keypti kvik-
myndaréttinn, en fól leikstjóranum
Chris Columbus að stjórna mynd-
inni. Columbus á m.a. að baki
Aleinn heima-myndirnar. Óhemju
leit hófst að ungleikurunum, og nú
er myndin tilbúin. Ekkert hefur
verið til sparað svo ævintýrið fái
notið sín sem best á tjaldinu. Auk
hinna lítt þekktu, ungu leikara,
koma nokkrir valinkunnar og sjóað-
ir gamanleikarar við sögu.
Leikarar: Daniel Radcliffe (David Copp-
erfield, The Tailor of Panama), Rupert
Grant (frumraun), Emma Watson
(frumraun). Robbie Coltrane (Nuns on
the Run, Goldeneye, The World is Not
Enough). John Cleese (Monty Python-
myndirnar, A Fish Called Wanda, Time
Bandits); Richard Harris (This Sport-
ing Life, Unforgiven, Gladiator). Leik-
stjóri: Chris Columbus (Home Alone I
og II, Only the Lonely, Mrs. Doubtfire).
Hókus, pókus,
Harry Potter!
Sambíóin í Reykjavík, Keflavík og á Ak-
ureyri ásamt Háskólabíói frumsýna
Harry Potter and the Philosopher’s
Stone – Harry Potter og lausnarsteinn-
inn, með Daniel Radcliffe, Rupert Grint,
Emmu Watson, Robbie Coltrane, John
Cleese.
Harry Potter (Daniel Radcliffe) og snjóuglan og sendiboðinn Hedwig.
STÓRVIRKI breska skáldjöfurs-
ins Williams Shakespeare eru ein-
hver jafnvinsælustu viðfangsefni
kvikmyndagerðarmanna, bæði í
upprunalegri útgáfu og nútíma-
búningi. Ekki alls fyrir löngu
sáum við Hamlet sem erfingja
risavaxins tölvu- og fjölmiðlaveldis
á Manhattan nútímans.
Í bandarísku myndinni O er við-
fangsefnið Óþelló – eða Márinn frá
Feneyjum, eitt frægasta verk
snillingsins. Á þennan hátt er
reynt að ná til ungs fólks í dag og
kynna það fyrir heillandi sagna-
heimi og persónum Shakespeares.
Sögusviðið er hátt skrifaður einka-
skóli í Suðurríkjunum miðjum.
Odhin James (Mekhi Phifer) er
eini þeldökki nemandinn, afburða
körfuboltaleikari sem á sér þann
draum heitastan að komast í lið í
NBA-deildinni.
Odhin er vænsti piltur og gíf-
urlega vinsæll meðal skólafélag-
anna, ekki síst vegna körfubolta-
hæfileikanna. Hann hefur unnið
hjarta Desi (Julia Stiles), hinnar
glæsilegu dóttur skólameistarans
(John Heard). Þau hafa fundið það
sem flesta skortir: sanna ást.
Besti vinur Odhins og bekkj-
arbróðir er Hugo (Josh Hartnett).
Hann er sjálfur körfuboltaleik-
maður og sonur þjálfarans (Martin
Sheen). Hugo öfundar Odhin innst
inni af hæfileikunum, vinsældun-
um og velgengninni. Annar bekkj-
arbróðir og herbergisfélagi Odhins
er hinn auðugi Roger Rodriguez,
sem verður ein af aðalpersónunum
í niðurrifi Odhins, ásamt Casio,
sem Hugo segir að sé í ástarsam-
bandi við Desi. Harmleikur er í
uppsiglingu.
Hugmyndin að flytja Óþelló yfir
á körfuboltavöll í menntaskóla í
samtímanum er komin frá rithöf-
undinum Brad Kaaya. Odhin er
eini þeldökki nemandinn í alhvít-
um nemandahópi og minnir að
mörgu leyti á Márann, hina trag-
ísku persónu Shakespeares. Odhin
er bardagamaður inni á vellinum,
og sá besti. Í skólabænum og skól-
anum, þar sem körfubolti er dýrk-
aður ofar öllu öðru, er Odhin kon-
ungur. Fjölda annarra vísana er að
finna í leikritið. Myndin þykir að
auki hafa breidd til að viðra nú-
tímaleg, félasgsleg vandamál í
samskiptum kynþáttanna.
Leikarar: Odhin James (The Imposter,
Girl 6, Soul Food); Josh Hartnett
(Armageddon, Pearl Harbor); Julia
Stiles (State & Main, Hamlet). Leik-
stjóri: Tim Blake Nelson (frumraun).
Óþelló
í nútím-
anum
Regnboginn frumsýnir O, með Mekhi
Phifer, Martin Sheen, Josh Hartnett og
Juliu Stiles.
Josh Hartnett, Julia Stiles og
Andrew Keegan í myndinni O.
RYAN Turner (Charlie Sheen) er
huggulegur og ósvífinn verðbréfasali
á Wall Street. Á ómælda peninga,
býr í glæsilegri lúxusíbúð og vefur
fegurðardísum um fingur sér. Á
meðal þeirra er Veronique (Lisa
Rinna), hin unga og íðilfagra eigin-
kona fjölmiðlakóngsins Donalds
Simpson (Barry Newman). Turner
er um það bil að ganga frá risasamn-
ingum við Simpson á sama tíma.
Karlinn grunar eitthvað misjafnt og
hann hættir við kaupin. Turner miss-
ir vinnuna og trúnaðartraustið fer
sömu leið og vinkonurnar og íbúðin.
Cindy (Denise Richards), kærastan
hans, hleypur meira að segja frá
honum, og það með brasílískum fola.
Þegar fokið er í flest skjól hringir
síminn með þeim afleiðingum að
Turner ákveður að hlaupa í skarðið
sem dálkahöfundur á dagblaði, þar
sem skríbentinn sjálfur, Cindy, situr
sem fastast í fangbrögðum við
Brassann í Ríó. Ryan hugnast nýja
starfið vel – að gefa konum hinar
margvíslegustu ráðleggingar – á
meðan Cindy nýtur sín syðra.
Charlie hafði gaman af að fara
með hlutverkið. „Ég vissi að það
mundi ögra mér, hvetja mig til átaka
við eitthvað nýtt, um leið og ég nyti
þess að fást við rómantíkina og gera
eitthvað gott og gamaldags.“ Denise
er á sama máli: „Handritið lokkaði.
Um leið og ég fór að lesa það yfir
stóð ég mig að því að hlæja og hlæja
upphátt, fram á síðustu blaðsíðu.“
Leikstjóri Good Advice er Steve
Rash, sem byrjaði ferilinn með The
Buddy Holly Story (’79), leikna
heimildarmynd um söngvarann vin-
sæla og svipleg örlög hans.
Leikarar: Charlie Sheen (Wall Street,
Platoon), Denise Richards (The World is
Not Enough), Jon Lovitz (City Slickers
II). Leikstjóri: Steve Rash (The Buddy
Holly Story, Queen’s Logic).
Að ráðleggja
kvenfólkinu
Laugarásbíó frumsýnir Good Advice
með Charlie Sheen, Rósönnu Arquette,
Jon Lovitz, Barry Newman og Denise
Richards.
Charlie Sheen og Denise Richards í Good Advice.
SÁLFRÆÐI einka-
lífsins er eftir sál-
fræðingana Álf-
heiði Stein-
þórsdóttur og
Guðfinnu Eydal.
Í bókinni er
fjallað um hvað
mótar persónu-
leika okkar og
hvernig við getum tekist á við þann
vanda og þau tækifæri sem mæta
okkur í einkalífi og starfi. Hér er að
finna svör við fjölmörgum spurningum
sem skjóta upp kollinum á lífsleið-
inni: Hvað er mikilvægt í lífinu? Hvern-
ig persóna er ég? Hvernig er heilbrigð
fjölskylda? Hvað einkennir gott sam-
band? Hvernig myndast ágreiningur í
samböndum? Er til „góður“ skiln-
aður? Hverjir halda framhjá? Hverjir
eru kostir þess að búa einn?
Í bókinni er vísað í rannsóknir fjölda
fræðimanna hérlendis og erlendis.
Höfundar bókarinnar, Álfheiður Stein-
þórsdóttir og Guðfinna Eydal, hafa
áratuga reynslu sem sálfræðingar.
Útgefandi er Almenna bókafélagið.
Bókin er 300 bls., prentuð í Odda hf.
Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu.
Verð: 4.490 kr.
Sálfræði
LJÓSIÐ að handan
– Saga Valgarðs
Einarssonar miðils.
Birgitta H. Hall-
dórsdóttir skráði.
Í kynningu segir:
„Valgarður segir
hispurslaust frá
þroskagöngu sinni,
þar sem lífið var ekki alltaf dans á rós-
um, hann segir frá öfund og óheið-
arleika sem hafa truflað hann í starfi
og einkalífi, hann segir frá því hvernig
hann vinnur stöðugt að eigin þroska
með hjálp bænar og ljóss. Hann segir
frá lífinu handan landamæra lífs og
dauða, leiðbeinir fólki í erfiðleikum og
krefst aukinnar aðstoðar frá stjórn-
völdum til þeirra sem hafa orðið undir
í lífsbaráttunni.“
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
188 bls., prentuð í Lettlandi. Verð:
3.980 kr.
Ævisaga