Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 80
80 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. Vit 271
Sýnd kl. 2 og 4.
Ísl. tal. Vit nr. 292
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30.
B.i. 16. Vit nr. 296
Það eina sem er hættulegra en að fara yfir strikið er
lögreglan sem mun gera það HVER ER
CORKY
ROMANO?
Sýnd kl. 2. Vit 245
Kvikmyndir.is
DV
Strik.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
B.i. 16 ára. Vit nr.310Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 11. Vit 307
Uppselt kl. 6.
Fyrsta ævintýrið um töfradrenginn Harry Potter er nú loks komið til
Íslands eftir að hafa slegið öll met sem hægt er að slá allstaðar þar
sem hún hefur verið sýnd. Harry Potter er leyfð öllum aldurshópum.
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 297
Geðveik
grínmyn
d!
1/2
Kvikmyndir.com
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
Málverkasýning á verkum Sveins Björnssonar fyrir bíógesti í innri forsal
Sýnd kl. 10.15. B.i.14.
SV Mbl
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.15 og 10. B. i. 16. Sýnd kl. 8.
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12. B. i. 16.Sýnd kl. 3, 6, 9 og 12 á miðnætti.
ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2
HL Mbl
SG DV
Sýnd kl. 4, 8 og 10. Sýnd kl. 3, 5.45 og 8.
Edduverðlaun6
Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson
HJ Mbl
ÓHT RÚV
Fyrsta ævintýrið um töfradrenginn Harry Potter er nú loks komið til
Íslands eftir að hafa slegið öll met sem hægt er að slá allstaðar þar
sem hún hefur verið sýnd. Harry Potter er leyfð öllum aldurshópum.
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
ÍSLENSKU tónlistarverðlaunin
2001 verða haldin með pompi og
pragt í febrúar á næsta ári. Þeir
sem eiga kost á tilnefningum verða
að uppfylla það eina skilyrði að hafa
gefið út tónverk á árinu, nema í til-
felli þeirra sem ástunda sígilda tón-
list og nútímatónlist, þar nægir að
tónverk þeirra hafi verið frumflutt
opinberlega á árinu.
Plötutíðindum, málgagni Sam-
taka flytjenda og hljómplötufram-
leiðenda var dreift í öll hús um síð-
ustu helgi og ættu að gefa góða
hugmynd um hvað hefur verið á
seyði í útgáfu hér innanlands í ár.
Þess skal þó getið að tíðindin eru
engan veginn tæmandi, t.a.m. hefur
sjálfstæð útgáfa færst mikið í vöxt á
síðustu árum og erfitt að henda
reiður á allri gróskunni. Því skal á
það minnt að öllum útgefendum er
frjálst að leggja inn tillögur um til-
nefningar.
Um 120 plötur er að finna í Plötu-
tíðindum, og eru þær af hinu og
þessu tagi. Allmikið af „stórum“
listamönnum er með plötur þetta
árið og talsvert er líka um safn-
plötur. Má nefna að tvær rapp-
plötur og tvær slökunarplötur eru í
útgáfunni ásamt fjölda popp-, rokk-,
djass- og að sjálfsögðu jólaplatna.
Verðlaunahátíðin
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Einar Bárðarson, talsmaður hljóm-
plötuframleiðenda, að í ár stæði til
að hafa nokkuð breytt fyrir-
komulag. Einar tók við stöðu tals-
manns hljómplötuframleiðenda fyr-
ir stuttu og kom að framkvæmd
verðlaunanna fyrir þremur dögum
og gat því ekki tjáð sig um það
hvers vegna verðlaunin hefðu fallið
niður fyrir árið 2000.
Breytingarnar fela í sér, að sögn
Einars, að meira verður horft til er-
lendra fyrirmynda eins og Grammy
og bresku tónlistarverðlaunanna.
Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum
sem eru popp/rokk, djass, sígild og
nútímatónlist og „annað“.
Markmið hátíðarinnar er að hún
sé „uppskeruhátíð íslenskrar tón-
listar og eru verðlaunin hugsuð sem
vegsauki fyrir íslenska tónlist; flytj-
endum, höfundum, og útgefendum
til uppörvunar“ eins og segir í yf-
irlýsingu.
Allar nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri Íslensku tónlist-
arverðlaunanna á skrifstofunni á
Laugavegi 176, 5. hæð, eða í síma
511-3135 (GSM: 861-0160). Netfang:
einarbardar@simnet.is.
Tilnefningum ber að skila eigi
síðar en fyrir kl. 18 mánudaginn 3.
desember.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Sigur Rós var sigursæl á síðustu Tónlistarverðlaunahátíð.
Íslensku tónlist-
arverðlaunin
haldin í febrúar
Einar Bárðarson