Morgunblaðið - 23.12.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TALAÐ er um brandajól þegar jól
falla þannig á vikudaga að margir
helgi- og frídagar lenda í röð. Ná-
kvæm skilgreining á stóru og litlu
brandajólum hefur lengi verið á
reiki og var það þegar á 18. öld.
Elsta heimild sem til er um
brandajól er rituð af Árna Magn-
ússyni um 1700:
„Brandajól kalla gamlir menn á
Íslandi þá jóladag ber á mánadag,
áttadag á mánadag og þrettánda á
laugardag. Segja þeir þá, eftir jóla-
skrá, hætt við húsbruna, aðrir
halda það so kallað af miklum
ljósabrennslum. Aðrir segja
brandajól heita ei nema þegar jóla-
dagurinn var fyrra árið á laug-
ardegi og stökkur vegna hlaupárs
á mánadag.“
Samkvæmt öðrum heimildum
var einnig stundum talað um
brandajól þegar sunnudagur lenti á
eftir jólahelginni, það er á þriðja í
jólum. Jón frá Grunnavík (AM 433
fol.) kallar það brandajól hin minni
en kallar það brandajól hin meiri
þegar jóladagur lendir á mánudegi.
Séra Jónas Jónasson frá Hrafna-
gili ritaði snemma á síðustu öld að
eftir að jólahelgin var stytt, árið
1770, hafi menn kallað það branda-
jól þegar þríheilagt varð, það er
þegar jóladag bar upp á mánudag
eða föstudag, en hina fornu fjór-
helgi hafi menn kallað brandajól
hin stóru. En Jónas segir líka, að
menn hafi stundum kallað það
stóru brandajól þegar jóladag bar
upp á þriðjudag en samkvæmt
þeirri skilgreiningu eru jólin í ár
stóru brandajól.
Af framansögðu má sjá að menn
hafa lagt mismunandi skilning í
brandajól í gegnum aldirnar. Eftir
að hætt var að halda þrettándann
heilagan, 1771, hafa menn horft
meira til þess hvaða dagamynstur
gefur lengsta jólahelgi eða flesta
frídaga. Merking forliðarins
„branda“ í orðinu brandajól hefur
líka valdið mönnum heilabrotum en
ýmsir hafa túlkað hann svo að þar
sé átt við eldibranda. Þetta er þó
engan veginn talið víst og gæti allt
eins verið alþýðuskýring. Árni
Magnússon hefur það eftir gömlum
mönnum að nafnið sé af því dregið
að þá sé hætt við húsbruna, en
„adrer hallda þad so kallad af mikl-
um liosa brenslum,“ eins og Árni
ritar á minnisblað líklega í byrjun
18. aldar. Nafngiftin hefur því
valdið mönnum heilabrotum í að
minnsta kosti þrjúhundruð ár og
verður eflaust svo enn um hríð.
Brandajól eður ei?
Heimildir:Almanak Háskóla Íslands, Árni
Björnsson (1993), Saga daganna, Reykjavík:
Mál og menning.
VERSLUNARMIÐSTÖÐIN, sem
Ágúst og Flosi hafa verið að byggja
í miðbæ Ísafjarðar, er risin af
grunni. Flaggað var á vetrarsól-
stöðum, en þá voru sperrur efstu
hæðar komnar á sinn stað.
Upphaflega ætluðu byggjendur
að skila húsinu til notkunar fyrir
jól, en tveggja mánaða seinkun á af-
greiðslu stálbitanna í húsið frá
framleiðendum í Bretlandi er helsta
ástæða tafanna. Í verslunarmiðstöð-
inni verða átta verslanir á jarðhæð
og verða Samkaup þar með stærst-
an hluta. Á annarri hæð verður
Héraðsdómur Vestfjarða með að-
stöðu ásamt fleirum, en þriðju hæð-
inni sem er 300 fermetrar er enn
óráðstafað.
Að sögn Ágústar Gíslasonar
framkvæmdastjóra hefur tíðarfarið
í vetur létt mjög undir, því snjór
hefur enn ekki orðið til trafala og
veðurfar verið betra en elstu menn
muna. Nú er stefnt að því að taka
neðstu hæðina í notkun fyrir páska
og aðra hæðina næsta sumar.
Húsið er að mestu byggt á fyll-
ingu sunnan Hafnarstrætis, en þar
voru áður verslanir, vörugeymslur,
rakarastofa og íbúðir, en við vest-
urhornið óku Grumman-flugbátar
upp í fjöru um miðja síðustu öld.
Morgunblaðið/Úlfar
Flaggað við vetrarsólhvörf
Ísafirði. Morgunblaðið.
Skötuát Íslendinga á Þorláksmessu
Verkun og eld-
un skötu er
mjög auðveld
SKÖTUÁT lands-manna fer vaxandiá Þorláksmessu og
heita má að skötuský liggi
yfir heilu hverfunum þar
sem veitingastaðir taka á
móti endalausri röð við-
skiptavina frá morgni til
kvölds, að ógleymdum öll-
um þeim sem bjóða sam-
býlisfólki birginn með því
að elda skötuna í heima-
húsum. Víða má sjá fólk í
görðum og á svölum með
prímusa, fólk sem hefur
hrökklast út með krásirn-
ar vegna fnyksins sem allt
leggur undir sig og þykir
ekki beinlínis góður. Skat-
an er auk þess verulega
sérkennilegur og dulúð-
legur fiskur og víst að al-
menningur veit lítið um
þennan skrítna fisk sem virðist
svífa um undirdjúpin fremur en
að synda. Með fróðari mönnum
um skötuna og sögu hennar á
borðum Íslendinga er matreiðslu-
meistarinn landskunni Úlfar Ey-
steinsson. Morgunblaðið ræddi
við hann í vikunni.
Hvaðan er þessi siður eiginlega
kominn, að borða kæsta illa lykt-
andi skötu?
„Skötuát í þessari mynd, þ.e. að
borða hana kæsta, kemur frá
Vestfjörðum. Þar þekktist það að
höfðingjar og fyrirmenni fyrr á
öldum gáfu vinnufólki skötuna
dagana fyrir jól, þannig að allur
matur var góður á jólum.“
Hvernig er verkunin og elda-
mennskan?
„Verkun skötu er mjög einföld.
Á þriðja degi fer hún að kæsast
og er geymd í fiskikari í um það
bil 3–4 vikur eftir hitastigi. Á ár-
um áður var skatan síðan söltuð
og geymd þannig. Það má segja
að þurrkun hafi verið algengari
fyrir vestan. Nú í dag er skatan
fryst eftir kæsingu. Eldun á skötu
er mjög auðveld, suðan er látin
koma upp og hún soðin mjög
vægt í um það bil 10 til 15 mínútur
eftir þykkt stykkjana. Afgang af
skötu má hræra með hnoðmör og
búa þannig til skötustöppu.“
Hvernig getur eitthvað sem
lyktar jafnilla smakkast svona
vel?
„Skatan er með sömu verkun
og hákarl, sumum finnst hann
góður og öðrum finnst hann vond-
ur. Það er eiginlega enginn milli-
vegur. En hefðin er orðin sterk og
sumir láta sig bara hafa það.“
Hvaða fiskur er þetta og hvar
og hvenær veiðist hann?
„Skötutegundir við landið eru
5–6 og má nota þær allar. Skata
veiðist víða við landið og á öllum
árstímum en aðallega þó á haust-
in. Sjómenn á togurum og kaup-
skipum borða saltfisk og skötu
alla laugardaga, en það er seinni
ára siður hjá almenningi að festa
þetta við Þorláks-
messu.“
Hvað er þetta mikið
magn sem fer ofan í
landsmenn á þessum
eina degi?
„Þetta er á bilinu 50 til 80
tonn.“
Er þetta einvörðungu siður
miðaldra og eldra fólks?
„Nei, aldur á gestum á mínum
veitingastað er frá 17 til 90 ára.
Þó er nú hlutfallið hærra í eldri
flokknum.“
Er mikið um að heilu fjölskyld-
urnar geri sér glaðan dag við
skötuát?
„Ég veit nokkur dæmi um að
haldin eru allt að 50 manna skötu-
partí í heimahúsum og þá hittist
stórfjölskyldan öll og borðar
skötu. Það kemur líka töluvert af
fjölskyldum í veitingahúsin. En
samt sem áður er allt of mikið um
að fjölskyldur séu klofnar í af-
stöðunni til skötunnar. Það er
mjög mikið um að nokkrir karlar
komi saman, nú eða öfugt og þá er
fólk að fara á veitingahús til að
borða skötuna af því að það er
togstreita á heimilinu sem snýr að
ólyktinni sem fylgir skötunni og
menn nenna ekki að standa í því
að vera úti í garði eða úti á svölum
með prímus að sjóða skötuna
sína. Það væri gaman ef það ríkti
meiri eining um skötuátið.“
Lyktin er umtöluð, er ekkert
ráð til gegn henni?
„Já, þetta er mögnuð lykt, ekki
verður annað sagt. Það er lyktin
sem veldur því hvernig menn
skiptast í tvo flokka gagnvart
skötunni. Helsta ráðið er að setja
sítrónu- eða edikvættan klút yfir
pottinn. Það drepur talsvert niður
lyktina.“
Geturðu nefnt mér dæmi um
hvað skötuát hefur færst í
aukana?
„Ég get nefnt, að upp úr 1980
fóru veitingahús að bjóða skötuna
á Þorlák. Þá mættu 20 til 30
manns í skötuna en í
dag borða 100 til 500
manns skötuna á
hverju veitingahúsi og
alls staðar er mikil
stemmning. Í mínu
veitingahúsi eru aðeins 44 sæti,
en frá klukkan 11 um morguninn
og til miðnættis er ég með hátt í
fimm hundruð manns bókaða.
Það má eiginlega segja að skýið
liggi yfir hverfinu og lyktina legg-
ur um langan veg. Það er hægt að
renna á lyktina, en fólk er orðið
vant þessu og ég held að ég sé bú-
inn að koma öllu hverfinu upp á
að borða skötu á Þorlák.“
Úlfar Eysteinsson
Úlfar Eysteinsson er fæddur í
Hafnarfirði 23. ágúst 1947. Hann
útskrifaðist sem matreiðslu-
meistari árið 1967. Úlfar hefur
staðið yfir pottunum og pönn-
unum hjá Leikhúskjallaranum,
Hótel Holti, Hótel Loftleiðum,
flugeldhúsi Flugleiða, Laugaási,
Pottinum og pönnunni og Úlfari
og ljóni. Síðustu árin hefur hann
rekið veitingastaðinn Þrjá
frakka hjá Úlfari. Maki Úlfars er
Þuríður Jörgensen og eiga þau
tvö börn, Stefán og Guðnýju
Hrönn.
...eldun á
skötu er mjög
auðveld