Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 38
HUGVEKJA
38 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMSBYGGÐIN öll minnist
þess senn, að fátæk mær ól son í
Betlehem í Gyðingalandi eitt sinn
í fyrndinni, vafði hann reifum og
lagði svo í kalda jötu í fjárhúsi, af
því að ekkert rúm hafði verið
laust í gistihúsi bæjarins. Í kulda
og myrkri heimskautalandanna
eru jólaljós tendruð, börnin skipa
sér umverfis þau glöð í lund,
fagnandi hita og birtu, og syngja:
„Í Betlehem er barn oss fætt“,
jafnglöð og börn Indlands og ým-
issa annarra heitra landa, sem
kannski aldrei hafa litið augum
snævi þakta jörð. Og þótt margt
sé ólíkt: litarháttur, tungumál,
veðrátta, efnahagur, þá eru bros-
in, þakklætið, já, fögnuðurinn,
hinn sami í brjóstum allra, sem
játa þessa trú. Alheimsmál
jólanna er lofsöngur, gleðitár á
hvörmum, bros á vörum.
Að vera staddur í ókunnu landi
um jól, óravegu frá ættingjum og
vinum, getur verið einmanalegt.
Það vita allir sem reynt hafa. Á
Íslandi bjuggu um síðustu áramót
ríflega 283 þúsund manns. Af
þeim voru u.þ.b. 8.800 erlendir
ríkisborgarar. Íbúar frá Norð-
urlöndunum voru 1.676 talsins og
íbúar annarra Evrópulanda 4.472.
Kanadamenn og Bandaríkjamenn
voru 681 og íbúar 25 annarra Am-
eríkulanda alls 232. Frá 26 As-
íulöndum voru hér 1.431, og frá
30 Afríkuríkjum 265. Frá Eyja-
álfu, þ.e.a.s. Ástralíu og Nýja-
Sjálandi, voru 59. Ríkisfangs-
lausir voru 6. Hinn 31. desember
2000 voru m.ö.o. fulltrúar 124 er-
lendra ríkja með heimili í þessu
landi. Stærstur hluti fólksins er
kristinnar trúar, heyrandi til ein-
hverjum af hinum fjölmörgu
greinum þessa tuttugu alda
gamla risavaxna meiðs: eru róm-
versk-kaþólskir, grísk-kaþólskir,
anglíkanar, evangelísk-lúterskir,
meþódistar, baptistar, hvíta-
sunnumenn o.s.frv., en einnig eru
hér margir sem játa trú á aðra
guði.
Og við þetta bætist svo fólk,
sem komið hefur nýlega utan úr
heimi og sest að til frambúðar,
hlotið íslenskan ríkisborgararétt.
Ég vil nota þetta tækifæri og
óska landsmönnum gleðilegrar
hátíðar, sem og öllum þeim er-
lendu ríkisborgurum, sem hér
kunna að vera um þessi jól. Fæð-
ingarnótt Jesúbarnsins er að
koma í mannheim á ný, eins og
verið hefur síðastliðnar tuttugu
aldir. Og hún á erindi við alla þá,
sem búa við ysta haf, í kulda og
snjó, þúsundum kílómetra frá
Gyðingalandi, rétt eins og hún
átti erindi til þeirra, sem komu
saman í torfkirkjunum á Íslandi
fyrr á öldum og ávallt síðan. Því
hún minnir okkur á, að yfir okkur
er vakað á æðri stöðum, að Guð
lætur sig hlutskipti jarðarbúa
einhverju varða, hverrar þjóðar
eða litar eða tungu sem þeir
kunna að vera.
Eftirfarandi kveðja miðast við
opinber tungumál landanna 124,
sem ég gat um hér að framan. Í
sumum tilvikum er um hljóðritun
að ræða, enda ógerlegt að bregða
upp öllum hinum fjölmörgu
skriftletrum landanna.
Gleðileg jól!
Ba-ré din kee ba-dhaa-ee!
Barka dà kirsìmatì! Bellas festas
da nadal! Boas festas! Bon nadal!
Bon nadau! Buon natale! Buone
feste natalizie! Buriid juovllaid!
Cestitamo bozic! Chestita koleda!
Christmas id mubarak! Chúc
mùng giáng sinh! Cristmas-e-
shoma mobarak bashad! Cuzco
quechua! E ku odun! Egu berri
zerientsuak! Ekelere m gi maka
keresimesi na ubochi izizi afo ozo!
Felices pascuas! Feliz natal! Feliz
navidad! Frohe Weihnachten! Ge-
sëende kersfees! Gëzuar krishl-
indjet! Gilotsavt krist’es shobas!
Glædelig jul! God jul! Goede
krystdagen! Góð jól! Häid jõule!
Hristos se rodi! Hyvää joulua!
Idah saidan wa sanah jadidah! Ll-
milied it-tajjeb! Jõvi talshpivdi!
Joyeux noël! Juullimi pilluaritsi!
Kala christouyenna! Kellemes ka-
rácsonyi ünnepeket! Khag molad
same’akh! Khristos razhdaetsya!
Khula sikuku enjuri! Kia tau iho
ki runga ia koutou i tenei wa nga
manaakitanga! Krist Yesu ko
shuva janma utsav ko upalaxhma
hardik! Kung his hsin nien bing
chu shen tan! Kurisumasu ome-
deto! Kuwa na Krismasi njema!
Linksmu kalédu! Maligayang
pasko! Merry christmas! Milad
majid oua aa’m sa’id! Nadolig lla-
wen! Nathar puthu varuda valt-
hukkal! Naya saal mubarak ho!
Noeliniz ve yeni yiliniz kutlu ols-
un! Nollaig chridheil! Nollaig
shona dhuit! Nootan varashnimit
hardik shubhechha! Pozdravlyau
s prazdnikom rozhdestva! Pret-
tige kerstdagen! Prieci’gus
ziemsve’tkus! Pudhu varusha va-
azhthukkal! Puthuvalsara aas-
hamsakal! Ráfalasj javlav! Re-
hus-beal-ledeats! S rozhdestvom
khristovym! Sal-e no mubarak!
Sãrbãtori fericite! Sawadee pee
mai! Selamat hari natal! Seva pi-
roz sahibe u sersala te piroz be!
Shenoraavor nor dari yev pari
gaghand! Shine zhiliin mend
khurg’e! Shuvo boro din! Shuvo
naba barsha! Sooksun wan christ-
mas! Srechan bozhich! Subha
nath thalak vewa! Sukhamaya
christmass! Sung tan chuk ha!
Vaajtelibie jåvle! Vesele boz-
hichne praznike! Vesele vianoce!
Veseloho vam rizdva! Vrolijk
kerstfeest! Wesolych swiat!
Zorionak eta urte berri on!
Gleðileg jól!
Jesús fæddist ekki í heimabæ foreldra
sinna, Nasaret, heldur á afskekktum stað
í framandi bæ. Sigurður Ægisson lætur
hugann reika til þeirra sem eru fjarri
ættingjum og vinum um þessi jól.
saeson@islandia.is
!
" # $
" !