Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 45
DAGBÓK
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð félagslynd og fram-
sækin og því vel til forystu
fallin. Munið að þolinmæði
þrautir vinnur allar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þið munuð njóta góðs af ein-
hverju og ættuð þá ekki
gleyma þeim sem minna
mega sín. Látið gott af ykkur
leiða, þannig öðæast líf ykkar
fyllingu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ykkur býðst einstakt tæki-
færi sem freistar ykkar svo
þið skuluð leggja ykkur alla
fram um að grípa það. Leitið
liðsinnis félaganna, ef með
þarf.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hlustið á góðra vina ráð og
munið að frelsið er ekki alltaf
dýru verði keypt, þótt hvorki
sé það ódýrt né sjálfsagt.
Leyfið ykkur að njóta þess.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hafið hemil á tilfinningunum,
þegar viðkvæm mál ber á
góma og munið að fæst orð
bera minnsta ábyrgð. Lítið
ekki til annarra um forystu
mála.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú kemur að því að þið fáið
viðurkenningu fyrir viðleitni
ykkar og hæfileika. Baðið
ykkur í sviðsljósinu meðan
það skín því þið eigið það skil-
ið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt þið séuð tilbúin að vera
ein er ekki þar með sagt að
þið hafið til þess þann stuðn-
ing sem þið þurfið. Reynið að
vinna ykkur skilning annarra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er alltaf gaman að geta
komið öðrum á óvart, látið það
eftir ykkur. Verið líka viðbúin
því að aðrir láti það eftir sér
að koma ykkur á óvart.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Látið fólk sem talar í hálf-
kveðnum vísum bara sigla
sinn sjó því þið hafið annað og
meira á ykkar könnu en að
ráða heimskulegar gátur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ykkur verður ekkert úr verki
ef þið ætlið að gera allt í einu.
Haldið ró og reynið að vinna
skipulega því þannig nýtist
tíminn ykkur best.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Lærið að treysta öðrum og
fela þeim ábyrgð því annars
getið þið ekki um frjálst höfuð
strokið. Þið þurfið hvíld, hvað
sem tautar og raular.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þið eruð með of mörg járn í
eldinum og þurfið að koma
lagi á hlutina og raða þeim
eftir mikilvægi þeirra. Látið
ekki ykkur sjálf sitja á hak-
anum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hafið ekki áhyggjur þótt ekki
hafi allir sömu skoðanir á
áhugamálum ykkar. Það víkk-
ar sjóndeildarhringinn að
heyra aðrar hliðar mála.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Jólaósk 1907
Hin glaða hátíð blóm sín bindi
í besta kransinn handa þjer,
og æska, fegurð, fjör og yndi
þig fái í jólaleik með sjer;
og ef þú stjörnur átt að telja,
þá óska jeg þú mætir tveim,
sem hugur þinn og hjarta velja,
og haldir jól í ljóma þeim.
Þorsteinn Erlingsson.
ÞVINGUN er til í ótal
myndum, en yfirleitt
koma að minnsta kosti
tveir litir við sögu. Þó er
hugsanlegt að þvinga spil-
ara í einum lit. Bridshöf-
undurinn Tim Burke
greinir frá eftirfarandi
spili í daglegu mótsblaði
haustleikanna í Las Vegas
og sér fyrir sér einlita
þvingun á vestur:
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ KD6
♥ ÁG4
♦ ÁD108
♣Á87
Vestur Austur
♠ 104 ♠ 9752
♥ 10853 ♥ 962
♦ 5 ♦ G9763
♣KG10642 ♣9
Suður
♠ ÁG83
♥ KD7
♦ K42
♣D53
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
3 lauf 6 grönd Allir pass
Sagnhafi á ellefu slagi
og helsta vonin til að byrja
með liggur í tígultíunni.
Fljótlega slokknar þó sá
vonarneisti. Fyrsti slagur-
inn er tekinn heima, síðan
tveir efstu í tígli og vestur
hendir laufi. Þá eru fjórir
slagir teknir á spaða, tíg-
uldrottningin og einn í
viðbót á hjarta. Endastað-
an verður þannig:
Norður
♠ –
♥ Á
♦ –
♣Á87
Vestur Austur
♠ – ♠ –
♥ – ♥ 9
♦ – ♦ G7
♣KG106 ♣9
Suður
♠
♥ 7
♦ –
♣D53
Hjarta er spilað á ásinn.
Ef vestur hendir laufsex-
unni spilar sagnhafi næst
litlu laufi frá báðum hönd-
um, sem vestur verður að
taka og spila frá lauf-
kóngi. Svo kannski að
vestur láti sér detta í hug
að henda millispili í laufi,
tíu eða gosa. En það dugir
ekki. Sagnhafi spilar þá
smáu laufi úr borði og
leggur á níu austurs.
Vestur tekur slaginn, en
nú hefur myndast gaffall í
borði – Á8 yfir G6.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
75 ÁRA afmæli. 26. des-ember nk. verður 75
ára Jóhannes Haraldur
Proppé, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, Hæðargarði
33, Reykjavík. Jóhannes og
eiginkona hans, Unnur G.
Proppé, eru stödd erlendis.
65 ÁRA afmæli. Ámorgun, 24. desem-
ber, aðfangadag, er 65 ára
Auðunn H. Jónsson, mat-
sveinn, Seilugranda 8,
Reykjavík.
GULLBRÚÐKAUP.
Á annan í jólum, 26.
desember, eiga 50
ára hjúskaparafmæli
hjónin Bergþóra
Eide Eyjólfsdóttir
og Pétur Kristjáns-
son, Mávabraut 2,
Keflavík.
GULLBRÚÐKAUP.
Nk. fimmtudag, 27.
desember, eiga 50
ára hjúskaparafmæli
hjónin Helga Jónas-
dóttir og Jóhann
Indriðason, Ljós-
heimum 5, Reykja-
vík. Í tilefni þessa og
þess að þau áttu
bæði 75 ára afmæli á
árinu halda þau upp
á daginn með fjöl-
skyldu og vinum.
GULLBRÚÐKAUP.
Í dag, Þorláksmessu,
23. desember, eiga
50 ára hjúskaparaf-
mæli hjónin Hjördís
Alda Ólafsdóttir og
Guðmundur Skúla-
son, húsasmíða-
meistari, Seljalands-
vegi 8, Ísafirði. Þau
verða að heiman.
80 ÁRA afmæli. Á jóla-dag, 25. desember,
verður áttræð Guðrún Jón-
asdóttir, Furugerði 1,
Reykjavík. Guðrún tekur á
móti ættingjum og vinum
föstudaginn 28. desembeftir
kl. 16 í húsi KFUM&K við
Holtaveg.
50 ÁRA afmæli. Mið-vikudaginn 26. des.
er fimmtugur Lárus Val-
berg, Heimalind 2, Kópa-
vogi. Hann og eiginkona
hans, Guðný Rut Jónsdóttir,
taka á móti ættingjum og
vinum á veitingastaðnum La
Primavera, Austurstræti 9,
á afmælisdaginn milli klukk-
an 17 og 19.
Opið í dag frá kl. 10-22,
aðfangadag frá kl. 10-12
Gleðilega jólahátið!
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Óskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík
Gleðileg jól
Óskum viðskiptavinum okkar og
landmönnum öllum gleðilegra jóla
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Eddufelli 2,
sími 5571730
Bæjarlind 6,
sími 5547030