Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í SLAND er eitt Norður- landanna um það að tengja bætur til barnafjölskyldna í gegnum skattakerfið tekjum foreldra. Á öllum hinum Norðurlöndunum greiðast bætur til barnafjölskyldna óháð tekjum, enda voru barnabætur að meðaltali með hverju barni víðast hvar á Norðurlöndunum um það bil tvöfalt hærri en hér á landi reiknað í jafnvirðisgildum, ef marka má sam- norrænar tölur þar að lútandi um ástandið eins og það var á árinu 1999, en nýrri samanburður en það er ekki fyrirliggjandi í þessum efnum. Þessar upplýsingar má finna í skýrslu um félagslegt öryggi á Norð- urlöndunum á árinu 1999, en skýrsl- an kemur út árlega á vegum sam- norrænnar nefndar um tölfræði í félagslegum efnum (NOSOSKO). Ekki er langt síðan skýrslan kom út, en talsverður tími líður ávallt áður en tölfræðileg gögn sem mynda grundvöll samanburðarins eru tilbú- in. Þannig er vinna nú að fara í gang við skýrslu vegna ársins 2000. Í þessu sambandi er þó nauðsyn- legt að taka fram að stigið var skref í þá átt að draga úr tekjutengingu bóta til barnafjölskyldna hér á landi í ár. Þá var ákveðið að greiða ótekju- tengdar bætur til barna að upphæð 33.470 kr., en það nær eingöngu til barna sem eru yngri en 7 ára á tekju- árinu. Stærsti hluti barnabótanna er eftir sem áður tekjutengdur. Í skýrslunni kemur meðal annars fram samanburður á upphæð barna- bóta að meðaltali með hverju barni á ári á milli landanna reiknað í jafn- virðisgildum (ppp). Samkvæmt því eru meðalbarnabætur á Íslandi lægstar hér af öllum Norðurlöndun- um eða 55.398 kr. Næstlægstar eru þær í Svíþjóð 85.722 kr. og því næst í Finnlandi 107.881 kr. Í Danmörku eru barnabætur síðan tvöfalt hærri en á Íslandi eða tæpar 112 þúsund krónur að meðaltali með barni á ári og hæstar eru bæturnar í Noregi þar sem þær eru 128 þúsund kr. að með- altali. Eins og fyrr sagði tekur sam- anburðurinn til ársins 1999. Í skýrsl- unni er samanburðurinn settur fram í evrum og fer umreikningurinn fram miðað við gengið á evrunni um síðustu mánaðamót. Í þessu sambandi er einnig rétt að benda á að hér er einungis um sam- anburð að ræða á sérstökum stuðn- ingi ríkisvaldsins í þessum löndum við barnafjölskyldur. Samanburður- inn tekur þannig ekki til skattlagn- ingar í löndunum að öðru leyti, sem eðli málsins samkvæmt getur verið mjög mismunandi. Ekki sérstakar bætur til einstæðra foreldra í Svíþjóð Í öllum löndunum er það ríkissjóð- ur landanna sem stendur undir út- gjöldum vegna barnabótanna. Í Dan- mörku eru bæturnar greiddar með börnum til 18 ára aldurs og 17 ára aldurs í Finnlandi, en til 16 ára ald- urs í hinum löndunum þremur. Þó eru greiddar barnabætur til tvítugs á Íslandi og í Svíþjóð ef barnið er í námi. Eins og fyrr sagði var það aðeins á Íslandi sem barnabæturnar voru tekjutengdar. Þá eru í Danmörku Noregi og á Íslandi hærri barnabæt- ur til yngri barna, en í Finnlandi og Svíþjóð er sama framlag til allra barna burtséð frá aldri þeirra. Í Danmörku og á Íslandi er framlagið hærra vegna barna á aldrinum 0–6 ára en til barna eldri en það. Í Dan- mörku eru auk þess hærri bætur til 0–2 ára barna heldur en barna 3–6 ára. Í Noregi hins vegar er sérstakt framlag vegna 1–3 ára barna. Loks er í öllum löndunum nema í Svíþjóð Ísland eitt Norðurlandanna tekjutengir barnabætur Tveimur milljörð- um lægri á núvirði en fyrir 10 árum Á hinum Norðurlöndunum tíðkast ekki að tekjutengja sérstakan stuðning við barnafjölskyldur í gegnum skattakerfið, enda eru barnabætur með hverju barni að meðaltali verulega hærri þar en hér á landi, að því er fram kemur í samantekt Hjálmars Jónssonar.           !! ""! #  !" ## $%&' ()(                                *)   *)  *) *) *) *) *) *)  *) *)  *)  *) *)  *) *) *)  + () ( , %%-&  )() .((  (% )(    (  %() ( (   (            #  / "   !  # # $%& $%-&  $%-& ()(  ((& (# /!         ,  ( #  /# #""  ! / #"## ! //! #"!/ !!/ /"/ #" " / ! #!/ ## /"  # ! ! /   "" //#/ HEILBRIGÐIS- og trygginganefnd Alþingis skilaði frá sér nefndaráliti um frumvarp heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um almannatryggingar áður en Alþingi fór í jólaleyfi. Nokkur umræða og gagnrýni hafði komið fram á efni frumvarpsins, m.a. vegna þess að með því er kveðið á um skyldu heilbrigðisstarfsmanna til að veita Tryggingastofnun rík- isins nauðsynlegar upplýsingar, þ.m.t. upplýsingar úr sjúkraskrám. Í frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu og hins vegar lögum um almannatryggingar. Meginmarkmið frumvarpsins er „að færa á eina hendi samnings- umboð ríkisins gagnvart sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum um greiðsluþátttöku almanna- trygginga vegna heilbrigðisþjón- ustu og við fyrirtæki og stofnanir vegna sambærilegrar þjónustu sem þar er veitt. Tilgangurinn er að gera heilbrigðisráðherra betur kleift að marka stefnu um for- gangsröðun verkefna í heilbrigð- isþjónustu og framfylgja henni. Þá er lagt til í frumvarpinu að heil- brigðisstarfsmönnum verði skylt að veita Tryggingastofnun ríkisins all- ar nauðsynlegar upplýsingar, þ.m.t. upplýsingar úr sjúkraskrám, vegna ákvörðunar um greiðslu bóta, endurgreiðslur reikninga og vegna eftirlitshlutverks stofnunar- innar. Upplýsingar úr sjúkraskrám er þó aðeins heimilt að veita lækn- um Tryggingastofnunar eða tann- læknum þegar það á við. Læknar stofnunarinnar og eftir atvikum tannlæknar hafa einnig heimild til að skoða sjúkraskrár sem reikn- ingsgerð á hendur stofnuninni er byggð á“, kemur fram í at- hugasemdum með frumvarpinu. Heilbrigðis- og trygginganefnd getur þess í áliti sínu að samráð hafi verið haft við fjölda aðila í um- fjöllun nefndarinnar um frum- varpið og ítarlega hafi verið fjallað um ákvæði 8. gr. frumvarpsins en þar er kveðið á um skyldu heil- brigðisstarfsmanna til að veita Tryggingastofnun ríkisins nauð- synlegar upplýsingar, þ.m.t. upp- lýsingar úr sjúkraskrám. „Í áratugi hefur verið litið á það sem eina af meginforsendum Tryggingastofnunar fyrir samn- ingum við heilbrigðisstéttir um greiðsluþátttöku ríkisins að henni væri unnt að sinna eftirliti með því að sú þjónusta sem samið væri um væri innt af hendi. Hornsteinn þess eftirlits er og hefur verið að trygg- ingayfirlæknir geti staðreynt með skoðun á sjúkraskrá að reiknings- færð verk og þjónusta hafi farið fram. Um þennan aðgang trygg- ingayfirlæknis og læknislærðra fulltrúa hans að sjúkraskrám hefur verið kveðið á í samningum við sér- fræðilækna og tannlækna og aðrar heilbrigðisstéttir og hefur fram- kvæmd þessara samningsákvæða gengið vel og hnökralaust allt þar til í lok árs 1999.“ Fram kemur í álitinu að 4. febr- úar 2000 gaf tölvunefnd (nú Per- sónuvernd), samkvæmt ósk Tann- læknafélags Íslands, álit sitt á því hvort tannlæknum væri heimilt eða skylt að veita tryggingayfirlækni Tryggingastofnunar ríkisins afrit af sjúkraskrám sjúklinga sinna eins og samningur tannlækna við Tryggingastofnun gerði ráð fyrir. Niðurstaða tölvunefndar var sú að tannlæknum væri hvorki skylt né heimilt að veita tryggingayfirlækni slíkan aðgang. „Með hliðsjón af þessari nið- urstöðu tölvunefndar ákvað Trygg- ingastofnun að fresta öllum fyr- irhuguðum eftirlitsaðgerðum og hefur virkt eftirlit af hálfu Trygg- ingastofnunar legið niðri frá þeim tíma.“ Tryggingastofnun hefur ríka eftirlitsskyldu Heilbrigðis- og trygginganefnd segir að það leiði af eðli máls að TR beri ríka eftirlitsskyldu með því að verk sem hún greiði fyrir séu unn- in. Til að sinna þessu eftirliti sé stofnuninni nauðsynlegt að hafa að- gang að þeim upplýsingum sem reikningsgerð á hendur stofnuninni er byggð á. Til að tryggja löglegan og fullnægjandi aðgang stofnunar- innar að nauðsynlegum upplýs- ingum telur nefndin, með hliðsjón af áliti tölvunefndar, nauðsynlegt að skjóta lagastoð undir umrædda heimild. Í umsögn Persónuverndar sem barst nefndinni vegna þessa ákvæð- is frumvarpsins kemur fram það grundvallarsjónarmið að ekki skuli hér fremur en endranær ganga lengra en nauðsynlegt er til að full- nægja þeirri þörf sem er fyrir hendi. Í þessu sambandi benti Per- sónuvernd á þrjár leiðir sem Tryggingastofnun ríkisins væru færar til að staðreyna reikninga. Í fyrsta lagi skyldu læknis, sbr. 12. gr. læknalaga, til að láta hinu op- inbera í té vottorð um sjúklinga er hann annast þegar slíkra vottorða er krafist vegna viðskipta við hið opinbera. Í öðru lagi að leita til sjúklings sjálfs og bera málið undir hann og í þriðja lagi bendir hún á þann möguleika að leita til Rík- isendurskoðunar ef vafi þykir leika á um réttmæti reikninga. Þessi úr- ræði telur Persónuvernd nægj- anleg til að Tryggingastofnun rík- isins geti sinnt eftirlitsskyldu sinni. Nefndin telur úrræði Persónu- verndar ekki fullnægjandi „Nefndin getur ekki fallist á að þær leiðir sem Persónuvernd bend- ir á séu fullnægjandi. Í fyrsta lagi telur nefndin nauðsynlegt að Tryggingastofnun hafi aðgang að frumgögnum. Vottorð um lækn- isverk sem fengið er frá sama lækni og reikningsgerð stafar frá er aug- ljóslega ekki fullnægjandi til að staðfesta reikning. Í öðru lagi telur nefndin það ófullnægjandi að byggja almennt eftirlit með reikn- ingsgerð lækna á hendur Trygg- ingastofnun á upplýsingum frá sjúklingum sjálfum. Það fyr- irkomulag getur grafið undan trún- aði milli læknis og sjúklings og má jafnframt spyrja hver staða Trygg- ingastofnunar yrði ef sjúklingur neitar henni um aðgang að sjúkra- skrá sinni. Að óbreyttum lögum hefði Tryggingastofnun þá aðeins eitt úrræði, þ.e. að leita til Rík- isendurskoðunar. Samkvæmt lög- um um Ríkisendurskoðun getur hún krafist reikningsskila af að- ilum sem fá fé frá ríkinu og er henni jafnframt heimilt að fram- kvæma stjórnsýsluendurskoðun á starfsemi eða þjónustu sem ríkinu ber að greiða fyrir en einkaaðilar annast samkvæmt sérstökum samn- ingi við ríkið, sbr. 7. og 9. gr. laga um Ríkisendurskoðun. Hér er um að ræða úrræði sem kemur til álita ef rökstuddur grunur vaknar við reglulegt eftirlit um að ekki sé allt með felldu. Þessu úrræði verður ekki, eðli málsins samkvæmt, beitt nema sérstök ástæða sé til og í ein- stökum tilfellum.“ Þannig koma þessi úrræði Rík- isendurskoðunar, að mati nefnd- arinnar, ekki í staðinn fyrir hið al- menna og reglulega eftirlit sem fram fer hjá ýmsum stofnunum rík- isins, þ.m.t. Tryggingastofnun. Nefndin telur nauðsynlegt, vegna þeirra „gífurlegu fjármuna sem Tryggingastofnun ríkisins er falið að ráðstafa úr sameiginlegum sjóð- um landsmanna“, að stofnuninni sé gert kleift halda uppi virku reglu- legu eftirliti með því að greiðslur bóta séu í samræmi við reglur al- mannatrygginga og að reiknings- gerð á hendur stofnuninni sé rétt. Það er mat nefndarinnar að umrætt eftirlit verði ekki framkvæmt nema Tryggingastofnun hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum og gögnum, þ.m.t. að þeim hluta sjúkraskrár sem reikningsgerð byggist á. Skilyrði sett í breytingatillögum Á þessum grundvelli telur nefnd- in rétt og nauðsynlegt að veita læknum Tryggingastofnunar að- Álit heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis á lagafrumvarpi um heilbrigðisþjónustu og almannatryggingar Tryggingastofnun geti haldið uppi virku eftirliti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.