Morgunblaðið - 23.12.2001, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
&
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út föstudaginn 28. desem-
ber. Um jólin verður frétta-
þjónusta á Fréttavef Morgun-
blaðsins, mbl.is. Hægt er að
senda ábendingar um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is eða
hringja í síma 8617970.
Fréttavakt
á mbl.is
yfir jólin
UM átján hundruð og fimmtíu Ís-
lendingar eru á ferðalögum fjarri
heimahögum yfir hátíðirnar.
Átta hundruð Íslendingar verða á
Kanaríeyjum á vegum Heimsferða
yfir jól og áramót, segir Andri Már
Ingólfsson, eigandi fyrirtækisins.
Ferðalangarnir dvelja allt frá einni
viku upp í fjórar, segir hann enn-
fremur, flestir 2–3 vikur, auk þess
sem margir skjótast yfir áramót í
vikuferð. „Mér sýnist að við séum
með heilli vél meira yfir háannatím-
ann en í fyrra, eða 36% aukningu.
Jólaferðirnar seldust hratt upp,
enda hafa þær aldrei verið á jafn-
hagstæðu verði. Einnig virðast fleiri
vilja vera úti yfir hátíðirnar en áður,“
segir hann.
Anna Kristín Hrólfsdóttir, sölu-
fulltrúi hjá Plúsferðum, segir tvær
ferðir á vegum fyrirtækisins til Kan-
aríeyja yfir jólin með 90–100 manns,
sem sé „svolítil aukning frá því í
fyrra“.
Páll Þór Ármann, markaðsstjóri
Úrvals-Útsýnar, segir fjölda fólks á
vegum skrifstofunnar erlendis yfir
jólin. „Hluti þess er í skipulögðum
ferðum en aðrir í fríi hjá ættingjum.
Um 400 manns eru á okkar vegum á
Kanaríeyjum og um 200 manns í
skíðaferðum á Ítalíu og í Noregi.
Um 150 manns eru á skíðum um
jól og áramót með Flugleiðum, að
sögn Guðjóns Arngrímssonar upp-
lýsingafulltrúa. Einnig verða 200
manns í Flórída yfir jólin, en þar er
ekki um hópferðir að ræða, heldur
fólk sem tekur sig saman sjálft, segir
hann.
Um 1.850
manns á
skíðum
og í sól
um jólin
Íslendingar/B26
TÖKUM á Fálkum, kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar, er
að ljúka í Hamborg. Í aðalhlut-
verkum eru bandaríski kvik-
myndaleikarinn Keith Carradine,
sem rifbeinsbrotnaði í slagsmála-
atriði við tökurnar, og Margrét
Vilhjálmsdóttir, sem sést hér með
titilpersónuna, sjálfan fálkann, á
öxlinni.
Fálkinn er sestur
Carradine/B96
UM 100 íslenskir flugvirkjar sem ný-
lokið hafa námi sínu hafa ekki fengið
starf í faginu hérlendis. Þá eru tugir
flugvirkja atvinnulausir í kjölfar
uppsagna á árinu, meðal annars hjá
Flugleiðum, Flugfélagi Íslands, Ís-
landsflugi og Atlanta. Guðjón Valdi-
marsson, formaður Flugvirkjafélags
Íslands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að atvinnuástand hjá flug-
virkjum væri mjög ótryggt vegna
samdráttar hjá flugfélögunum allt
árið, ekki bara frá 11. september.
Guðjón segir að nýlega hafi samist
við Flugleiðir um að haldið verði
áfram svonefndum A-skoðunum á
flugflota fyrirtækisins í viðhalds-
stöðinni í Keflavík. Þær fara fram á
250 flugstunda fresti og taka um 120
vinnustundir. Sagði hann að annars
hefði um 30 flugvirkjum verið sagt
upp við viðbótar við þá 38 sem fengu
uppsagnarbréf í ársbyrjun. Guðjón
segir framundan að ræða við Flug-
leiðir um C-skoðanir sem fara fram
einu sinni á ári og eru mun viðameiri.
Geta þær tekið allt frá 11 dögum og
upp í 21 dag eftir því hversu margir
starfa við þær.
Formaðurinn sagði níu íslenska
flugvirkja hafa verið ráðna til
Braathens í Noregi sl. haust. Sagði
hann fyrirtækið hafa auglýst eftir
flugvirkjum síðasta vor. Komu
fulltrúar þess hingað til að kynna at-
vinnumöguleika þar. Var 20 flug-
virkjum boðið í heimsókn út og úr
varð að 9 voru ráðnir. Hefur þeim
ekki verið sagt upp þrátt fyrir breyt-
ingar hjá fyrirtækinu nýverið.
Guðjón segir þann galla hjá ís-
lenskum flugvirkjum við að sækja
um störf í Evrópulöndum að þeir
teljast ekki fullgildir til að skrifa út
flugvélar sem kallað er, að árita þær
eftir skoðun. Verði þeir því að vinna
undir ábyrgð annarra. Segir hann að
krafist sé svonefndra JAR-66 skír-
teina til að geta starfað erlendis.
Eldri skírteini Alþjóða flugmála-
stofnunarinnar geri Íslendinga ekki
gjaldgenga í Evrópu þar sem flug-
virkjar með JAR-skírteini gangi fyr-
ir.
Flugmálastjórn sé ekki ennþá í
stakk búin til að gefa út slík skírteini.
Kveðst hann vona að málið fái lausn
fljótlega og segir stéttarfélagið hafa
róið í flugmálastjóra, samgönguráð-
herra og menntamálaráðherra.
Yfir 100 flugvirkjar fá
ekki störf í greininni
SENN koma jólin og flestir krakkar
farnir að iða í skinninu af til-
hlökkun. Bjarki Fannar Snorrason,
þriggja ára, var glæsilega til fara í
gamla jólasveinabúningnum hans
pabba síns þegar hann fór með
ömmu sinni og afa í Garðheima í
Mjódd til að hjálpa þeim að velja
jólatré og sagðist jólasnáðinn
hlakka mikið til að opna alla pakk-
ana á aðfangadag.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Jólin
koma
JÓLAFAGNAÐUR Hjálpræð-
ishersins og Verndar verður
haldinn á morgun, aðfangadag,
í Herkastalanum, Kirkjustræti
2 í Reykjavík og hefst með
borðhaldi klukkan 18.
Allir þeir sem ekki hafa tök á
að dveljast hjá vinum og vanda-
mönnum á aðfangadagskvöld
eru hjartanlega velkomnir á
jólafagnaðinn.
Jólafagn-
aður Vernd-
ar og Hjálp-
ræðishersins
AÐ minnsta kosti þrjú íslensk skip
verða væntanlega að veiðum um jól
og áramót. Gert er ráð fyrir að Jón
Vídalín ÁR, Breki VE og Hjalteyrin
EA landi í Þýskalandi í ársbyrjun.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands, segir að
lítið hafi verið um að skip væru úti á
sjó um jól og áramót undanfarin ár,
en öll önnur skip en þau sem séu að
fiska fyrir erlendan markað eigi að
vera í landi. Samkvæmt samningum
skal skipverjum skipa á heimamið-
um tryggt hafnarfrí frá kl. 12. á há-
degi á Þorláksmessu til kl. 24 annan í
jólum og frá kl. 16 á gamlársdag til
kl. 24 á nýársdag.
Samúel Hreinsson, framkvæmda-
stjóri fiskmarkaðarins í Bremerhav-
en í Þýskalandi, á von á Jóni Vídalín
2. janúar, Breka 7. og að Hjalteyrin
landi í Cuxhaven 2. janúar.
Fá skip úti um
jól og áramót