Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 1
31. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 7. FEBRÚAR 2002
ÓTTAST er að tugir þúsunda manna
deyi úr hungri og sjúkdómum í af-
skekktum þorpum í V-Afganistan í
vetur þrátt fyrir mikla matvælaflutn-
inga alþjóðlegra hjálparstofnana.
Ekki hefur verið hægt að flytja þang-
að nægar vistir vegna snjóþyngsla.
Ástandið er verst í fjallahéraðinu
Badghis. Helmingur húsanna í Siah
Sangh, afskekktu þorpi í héraðinu,
er tómur. Nokkrir þorpsbúanna hafa
leitað athvarfs í flóttamannabúðum í
grennd við borgina Herat en aðrir
hafa dáið úr sulti eða sjúkdómum
sem tengjast næringarskorti, að
sögn breska útvarpsins BBC.
Þorpsbúarnir hafa selt öll dýrin
sín og dæmi eru um að fjölskyldur
hafi gripið til þess ráðs að selja
barnungar dætur sínar til að eiga
fyrir mat. Kvonarmundur hefur
alltaf tíðkast í Afganistan en
þorpsbúar segja að þetta sé í fyrsta
sinn sem sjö ára stúlkur séu seldar
fyrir nokkra poka af hveiti.
Um það bil sjö milljónir Afgana
eru háðar aðstoð hjálparstofnana.
Afganskar konur troðast hér í bið-
röð við byggingu hjálparstofnunar í
Kabúl.
Reuters
Hungur í Afganistan
Er þetta mesta
tap banka vegna
eins starfsmanns
frá því að Nick
Leeson, verðbréfamiðlari í Singa-
pore, gerði Barings-banka gjald-
þrota árið 1995 með umfangsmikilli
spákaupmennsku.
Bankinn sagður halda velli
Gengi hlutabréfa í AIB lækkaði
um 16%. Michael Buckley, aðal-
bankastjóri AIB, og Bertie Ahern,
forsætisráðherra Írlands, fullviss-
uðu viðskiptavini og hluthafa bank-
ans um að engin hætta væri á gjald-
þroti. Nokkrir yfirmenn Allfirst voru
leystir frá störfum þar til rannsakað
hefur verið hvers vegna ekki komst
upp um svikin fyrr.
Starfsmaðurinn, John Rusnak,
starfaði í höfuðstöðvum Allfirst í
Baltimore. Talið er að hann hafi tap-
að miklu fé á umfangsmiklum gjald-
eyrisviðskiptum sem hann hafði
stundað án heimildar. Honum tókst
að leyna tapinu með því að þykjast
hafa gert kaupréttarsamninga sem
áttu að draga úr áhættunni. Þegar í
ljós kom að samningarnir voru ekki
til kom tapið í ljós.
Ekki var vitað hvort Rusnak
hagnaðist á viðskiptunum. Hann er
liðlega fertugur, tveggja barna faðir
og hafði starfað hjá Allfirst í sjö ár.
Honum var lýst sem fjölskyldu-
manni sem „sótti kirkju reglulega og
naut virðingar meðal samborgar-
anna“.
Bankamaður grunaður um svik
Bankinn tapaði 75
milljörðum króna
STÆRSTI banki Írlands, Allied Irish Banks (AIB), skýrði
frá því í gær að starfsmaður dótturfyrirtækis hans í
Bandaríkjunum, Allfirst Financial, væri grunaður um fals-
anir og svik sem kostuðu bankann 750 milljónir dala, and-
virði 75 milljarða króna. Maðurinn hvarf um helgina eftir
að upp komst um svikin og bankinn bað bandarísku alrík-
islögregluna, FBI, um að leita hans.
Dublin. AFP, AP.
John Rusnak
PALESTÍNUMAÐUR vopnaður
byssu réðst í gær inn í byggð gyðinga
á Vesturbakkanum og varð þremur
Ísraelum að bana.
Fréttamaður AFP sagði í gær-
kvöldi að ísraelskar herþotur hefðu
varpað þremur sprengjum á höfuð-
stöðvar héraðsstjóra í borginni
Nablus á Vesturbakkanum eftir skot-
árásina en ekki væri vitað hvort
mannfall hefði orðið. Ísraelsher neit-
aði því að hann hefði gert loftárásir á
borgina.
Ísraelskur hermaður, kona og ungt
barn hennar létu lífið í skotárásinni.
Þrír aðrir særðust, þeirra á meðal
dóttir konunnar. Herinn sendi sér-
sveitarmenn á staðinn og þeir skutu
árásarmanninn til bana þegar hann
reyndi að brjótast inn í hús.
Palestínska hreyfingin Hamas lýsti
árásinni á hendur sér en stjórn Ísr-
aels sagði að Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, bæri ábyrgð á blóðs-
úthellingunum. „Þessi árás er enn ein
sönnun þess að Yasser Arafat berst
ekki gegn hryðjuverkum og árásum á
saklausa borgara,“ sagði talsmaður
ísraelska utanríkisráðuneytisins.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hvatti Arafat til að
velja „í eitt skipti fyrir öll“ á milli frið-
ar og hryðjuverka en sagði að Ísrael-
ar þyrftu að draga úr aðgerðum sín-
um á svæðum Palestínumanna.
Jerúsalem. AFP.
Vesturbakkinn
Fjórir
bíða bana
í skotárás
NORSKUM sjómönnum hefur
verið sagt að þeir eigi á hættu að
vera meinað að fara á sjó ef þeir
eru of feitir, að sögn embættis-
manns siglingastofnunar Noregs.
Embættismaðurinn sagði að
samkvæmt nýjum fyrirmælum
stofnunarinnar ættu norskir sjó-
menn að fara til læknis og láta
mæla líkamsþyngdarstuðul sinn,
en hann er notaður til að meta
holdafar og fæst með því að deila í
líkamsþyngdina með hæðinni í
öðru veldi.
„Þeir sem eru með stuðulinn 30
eru of feitir og fylgjast þarf með
þeim þótt margir þeirra séu við
góða heilsu. Fari stuðullinn yfir
35 verða þeir að halda sig í landi,“
sagði embættismaðurinn, Bjørn
Lødøen.
Hann bætti við að því fylgdi
„áhætta í læknisfræðilegu tilliti“
að leyfa sjómönnum með stuðul-
inn 35 eða meira að fara á sjó.
„Þeir stofna sjálfum sér í hættu.“
Margir norskir sjómenn eru
óánægðir með fyrirmælin. „Þetta
þýðir að maður sem er 180 sentí-
metrar á hæð má ekki vera
þyngri en 112 kíló,“ sagði einn
þeirra, Nils Myklebust, sem er
sjálfur yfir þessum mörkum.
Of feitir
sjómenn
haldi sig
í landi
Ósló. AFP.
HUBERT Vedrine, utanríkisráð-
herra Frakklands, gagnrýndi utan-
ríkisstefnu Bandaríkjastjórnar
harkalega í gær, sagði að hún ein-
kenndist af „einfeldni“, ekki væri
haft nægilegt samráð við önnur ríki.
„Okkur stendur núna ógn af ein-
feldni, sem er fólgin í því að öll
vandamál heimsins eru aðeins sett í
samband við baráttuna gegn hryðju-
verkastarfsemi, og stefnan er ekki
nógu ígrunduð,“ sagði Vedrine.
Ummælin endurspegla vaxandi
ágreining milli Bandaríkjastjórnar
og leiðtoga Evrópuríkja sem hafa
áhyggjur af áformum hennar um að
grípa til aðgerða gegn öðr-
um ríkjum en Afganistan nú
þegar stjórn talibana er fall-
in. Leiðtogar Evrópuríkja
studdu eindregið hernaðar-
aðgerðir Bandaríkjamanna í
Afganistan eftir hryðju-
verkin 11. september en nú
er farið að gæta mikillar
óánægju með stefnu stjórn-
ar George W. Bush forseta.
Vedrine kvartaði yfir því að stjórn
Bush tæki ákvarðanir „án samráðs
við aðra“ og hefði aðeins hagsmuni
Bandaríkjanna að leiðarljósi. Hann
gagnrýndi yfirlýsingar Bush um „öx-
ul hins illa“, Íran, Írak og
Norður-Kóreu, stuðning
Bandaríkjastjórnar við Ar-
iel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, og þrýsting
hennar á Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna.
Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna,
reyndi að gera lítið úr
gremju Evrópuríkjanna.
„Tilgátur sem heyrast oft meðal
menntafólks um að Bandaríkin grípi
til einhliða aðgerða og hafi ekki sam-
ráð við önnur ríki getur ekki verið
fjær sannleikanum,“ sagði Powell.
Frakkar gagnrýna utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar
Sökuð um einfeldni
og skort á samráði
Hubert Vedrine
París. AFP.