Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isStoke tók Cambridge
í bakaríið/C1
Af litlum neista …/C2–3
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Á FIMMTUDÖGUM
Morgunblaðinu
í dag fylgir
auglýsingablaðið
ÞITT MÁL frá VR.
Blaðinu verður
dreift um
allt land.
FJÓRIR af hverjum tíu félagsmönn-
um í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur og Verslunarmannafélagi
Akraness segjast í nýrri launakönn-
un VR hafa farið í launaviðtal við yf-
irmann sinn um breytingu á launa-
kjörum. Mikill meirihluti segist hafa
fengið breytingu á kjörum sínum í
kjölfar viðtalsins. 67% fengu launa-
hækkun og 6,5% fengu launahækkun
ásamt fríðindum, s.s. í auknu fríi,
sveigjanlegri vinnutíma o.fl. Þetta
kemur fram í niðurstöðum launa-
könnunar sem Félagsvísindastofnun
vann fyrir VR á launum félagsmanna
í september á seinasta ári.
Karlar fá að meðaltali 16%
hærri laun en konur
Skv. könnuninni hækkuðu heildar-
laun félagsmanna í VR og VA um 8%
frá september 2000 til sama mánað-
ar 2001, eða úr 221 þús. kr. á mánuði
í 239 þús. kr. Dagvinnulaun hækk-
uðu um 10% að meðaltali á sama
tíma eða úr 192 þús. kr. í 211 þús. kr.
Lægstu launin hækkuðu hlutfalls-
lega mest á síðasta ári og hækkuðu
laun afgreiðslufólks á kassa um 18%
og námu að meðaltali 161 þús. kr. í
september sl. Þessi starfshópur er
þó enn með lægstu launin samanbor-
ið við aðra starfshópa í félögunum og
nema dagvinnulaun afgreiðslufólks á
kassa 117 þús. kr. Launamunur milli
kynja hefur minnkað nokkuð frá
árinu 2000 og mælist nú 16%. Karlar
eru með hærri laun en konur á öllum
menntunarstigum, skv. könnuninni.
Meðal einstakra starfsstétta eru
meðallaun hæst hjá hærri stjórnend-
um eða 341 þús. kr. heildarlaun á
mánuði en laun þessa hóps hafa hins
vegar staðið að mestu í stað milli ára.
Að jafnaði eru greidd hærri laun í
stærri fyrirtækjum en þeim minni og
á það bæði við um dagvinnulaun og
heildarlaun. Hæstu launin eru
greidd í fyrirtækjum sem sérhæfa
sig í tölvuþjónustu og fjarskiptum en
þar voru heildarlaun að meðaltali
282 þús. kr. í september sl. ,,Þessi
launakönnun sýnir að verulegur ár-
angur hefur unnist í þeim málum
sem VR hefur lagt sérstaka áherslu
á á síðustu misserum, t.d. að lægstu
launin hafa hækkað mest á milli ár-
anna. Launaviðtöl skila sýnilegum
árangri í launaþróuninni, vinnuvikan
hefur styst og launamunur kynjanna
hefur minnkað,“ sagði Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, um niður-
stöður könnunarinnar í gær.
Lægstu laun hækkuðu hlutfallslega mest 2000–2001 skv. launakönnun VR
67% fengu launahækkun
eftir viðtöl við yfirmann
Lægstu/32–33
ALLT tiltækt lið Brunavarna Rang-
árvallasýslu hefur á fjórum dögum
verið kallað til slökkvistarfa á
tveimur bæjum í Djúpárhreppi, þar
sem í báðum tilfellum varð stórtjón
hjá kartöflubændum í hreppnum.
Í fyrrakvöld um kl. hálfellefu
barst útkall að bænum Borg í
Þykkvabæ, en þar hafði Guðni Guð-
laugsson bóndi orðið var við eld í
skemmu sem hýsir véla- og pökk-
unarstöð býlisins. Strax varð ljóst að
eldurinn hafði náð að krauma lengi
og var orðinn illviðráðanlegur þeg-
ar slökkviliðið kom að og gífurlegur
hiti og eiturgufur gerðu slökkvi-
starfið verulega erfitt. Skemman,
sem er um 350 fermetrar að flat-
armáli, er stórskemmd ef ekki ónýt.
Í húsinu var flokkunarsamstæða, 2
pökkunarvélar, 2 lyftarar og alls
konar verkfæri og má því segja að
Guðni standi með tvær hendur tóm-
ar hvað búnað varðar. „Það brann
allt sem var hér inni, vélar, áhöld og
öll mín verkfæri, auk 8 tonna af
kartöflum sem áttu að fara í vinnslu
í Kartöfluverksmiðjunni næsta dag
og við höfðum verið að vinna við
fyrr um daginn. En sem betur fer er
megnið af kartöflulager mínum
geymt í annarri skemmu.“
Aðfaranótt sl. laugardags urðu
húsráðendur á bænum Háfi í Djúp-
árhreppi, sem er skammt vestan
Þykkvabæjar, varir við mikinn eld í
kartöflu- og pökkunarskemmu sinni
við bæinn. Allt tiltækt slökkvilið var
komið á staðinn um þrjúleytið um
nóttina, en eins og í seinni brunanum
var erfitt að ráða niðurlögum hans
sökum gífurlegs hita. Í húsinu voru
um 400 tonn af kartöflum, mjög svip-
aður vélabúnaður og hjá Guðna á
Borg og alls konar áhöld og tæki.
„Það er sárgrætilegt að horfa á allt
sitt lifibrauð hverfa í logana og
sárara fyrir það að ég hef verið að
vinna við endurnýjun á húsinu síðan í
haust, hér var mest allt nýuppgert,
allt rafmagn nýtt og vinnuaðstaðan
öll eins og best verður á kosið, auk
þess sem ég var nýbúinn að fylla hús-
ið af kartöflum sem höfðu verið í
annarri geymslu,“ sagði Fannar
Ólafsson bóndi í Háfi. Húsið er mikið
skemmt. Eldsupptök eru ókunn í
báðum tilvikum, en ljóst að tjón á
húsum, vélum, búnaði og framleiðslu
hleypur á tugum milljóna króna.
Tveir stórbrunar á fjór-
um dögum í Þykkvabæ
Morgunblaðið/Aðalheiður
Allt var brunnið sem brunnið gat í skemmunni hjá Guðna bónda á Borg í Þykkvabæ.
Hellu. Morgunblaðið.
EKKERT áætlunarflug var til Ak-
ureyrar fyrri partinn í gær vegna yf-
irvinnubanns flugumferðarstjóra og
að sögn Jóns Karls Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Flugfélags Íslands,
var félaginu tilkynnt að hið sama
yrði uppi á teningnum í dag. Þá var
ekki hægt að veita æfinga- og
kennsluflugi þjónustu frá flugturn-
inum í Reykjavík síðdegis í gær.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að staðan í málefnum flugum-
ferðarstjóra væri ,,algerlega óvið-
unandi“ fyrir þá sem þurfa að nýta
sér flugsamgöngur og ,,stórskaðleg“
fyrir flugfélög sem reiða sig á þjón-
ustu flugumferðarstjóra.
,,Framganga flugumferðarstjóra
er farin að ganga fram af öllum og
þar á meðal mér, raunar fyrir löngu.
Þetta er ástand sem er ekki viðun-
andi,“ segir Sturla. Hann vonast til
þess að einhver samningsflötur finn-
ist í viðræðunum við flugumferðar-
stjóra en framganga þeirra bendi
ekki til mikils samningsvilja af
þeirra hálfu. Búið sé að semja við
nær allar starfsstéttir hjá ríkinu og
það hafi tekist nokkuð vel.
Einn flugumferðarstjóri á Akur-
eyri tilkynnti veikindaforföll á vakt
sem hófst kl. sjö í gærmorgun og
vegna yfirvinnubannsins var ekki
hægt að kalla út afleysingamann.
Flug komst á að nýju eftir kl. 15 þeg-
ar ný vakt hófst. Eingöngu var veitt
þjónusta í gær fyrir sjúkra- og neyð-
arflug á Akureyrarflugvelli. Flug-
félagið fór eina ferð til Húsavíkur og
kom farþegum þaðan til Akureyrar
með rútu.
Flugfélag Íslands hefur orðið að
fella niður nokkrar ferðir til Akur-
eyrar frá því að yfirvinnubannið tók
gildi. Jón Karl sagði við Morgun-
blaðið að tap félagsins vegna þessa
væri komið yfir 10 milljónir króna,
þar af hátt í 3 milljónir í beinum
kostnaði og afgangurinn „tapaðir“
farþegar sem alfarið hafa hætt við að
fljúga norður. „Við erum orðnir lang-
þreyttir á þessu ástandi og afskap-
lega óhressir. Í hverju flugi sem
dettur niður erum við að missa tugi
farþega sem hætta alfarið við að
fljúga og fara landleiðina í staðinn,“
sagði Jón Karl.
Viðræðurnar strandaðar
Samningafundir milli flugumferð-
arstjóra og ríkisins hafa engan ár-
angur borið. Fundað var síðast á
mánudag og þriðjudag í húsakynn-
um ríkissáttasemjara og hefur nýr
fundur ekki verið boðaður.
Loftur Jóhannsson, formaður Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra,
sagði við Morgunblaðið að algjör
pattstaða væri í viðræðunum en yf-
irvinnubannið hefur staðið yfir frá
14. janúar. „Við höfum verið að slá
aðeins af okkar kröfum til að ná ein-
hverri málamiðlun, en það dugir ekki
til,“ sagði Loftur og var ekki bjart-
sýnn á að deilan væri að leysast.
Ekkert morgunflug til Akureyrar
Ráðherra
segir stöðuna
algerlega
óviðunandi
Aukin
afföll á
húsbréfum
AFFÖLL á húsbréfum hafa aukist
eftir að Seðlabanki Íslands tilkynnti
sl. föstudag að bankinn myndi ekki
lækka vexti að sinni. Við þessa
ákvörðun fóru afföll á nýjasta flokki
húsbréfa upp í 11,12%, en þau voru
10,45% á föstudaginn. Afföllin hafa
lítið breyst síðan, en þau voru
11,11% í gær. Þegar búið er að
reikna 11,11% afföll af milljón króna
húsbréfi standa 889 þúsund krónur
eftir.
Afföll á húsbréfum í fyrri hluta
janúarmánaðar voru í kringum 9,7%,
en eftir að Hagstofan birti upplýs-
ingar um að vísitala neysluverðs
hefði hækkað um 0,9% í janúar juk-
ust afföllin og fóru upp fyrir 10%. Á
þremur vikum hafa því afföll á hús-
bréfum aukist um tæplega 1,5 pró-
sentustig.