Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ VALGERÐUR Sverrisdóttir (B), iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að lögfræðileg skoðun fari fram í ráðuneytinu á erindi Verslunarráðs Íslands, sem gert hefur athuga- semdir við framkvæmd aðgerða Samkeppnisstofnunar gegn olíufé- lögunum. Hún segir að skoðunin beinist að því hvort ástæða sé til þess að fjalla um málið í ráðuneyt- inu, en þeirri athugun sé ekki lokið. Niðurstaða liggi fyrir í dag eða á næstu dögum. Þetta kom fram í umræðum um erindi Verslunarráðs Íslands við upphaf þingfundar á Alþingi í gær. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi þá Verslunarráðið harkalega fyrir er- indið. Talsverðar umræður spunn- ust um fyrirspurn Lúðvíks og kom þar fram hörð gagnrýni á Verslun- arráðið. Sagði Lúðvík það með ólík- indum að olíufélögin treysti sér ekki til þess að standa á eigin fótum, heldur senda sérstakt hagsmuna- gæslufélag, Verslunarráð, til þess að setja fram kröfur af þessum toga. Sagði þingmaðurinn að ef olíufélög- in gerðu athugasemdir við fram- kvæmd aðgerðanna gætu þau skotið máli sínu til dómstóla og gert þá kröfu að framkvæmdin yrði ógild. Samkeppnisstofnun sögð hafa farið að leikreglum „Um langt skeið hafði verið orð- rómur um verðsamráð í þessum geira. Samkeppnisstofnun fór fram á það við dómstóla að fá heimild til þess að leita hjá olíufélögunum og það var samþykkt. Það var farið ná- kvæmlega eftir þeim leikreglum sem settar hafa verið í samfélaginu. Leitin fór fram undir eftirliti og yf- irstjórn lögreglu, nákvæmlega eins og á að vera,“ sagði Lúðvík enn- fremur. Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs, hafði hins vegar aðra sögu að segja. Hann sagði að mörgum virtist sem pottur væri brotinn í starfsemi opinberrar stofnunar, þ.e. Samkeppnisstofnun- ar. „Aðgerðin gegn olíufélögunum var lögregluaðgerð. Hún var mikil frelsisskerðing og innrás í einkalíf tuga starfsmanna í viðkomandi fé- lagi,“ sagði Vilhjálmur og sagði mik- ilvægt að kanna hvort farið hafi ver- ið eftir úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem heimilaði rann- sóknina og hvort farið hafi verið eft- ir þeim lögum sem um þessi mál gilda. Sterkar vísbendingar starfsmanna „Þeir tugir starfsmanna sem starfa í þessum fyrirtækjum ljúka upp einum munni í gagnrýni á þessa aðgerð og vísbendingar um það að ekki hafi verið farið að þeim lögum sem um þetta gilda eru afar sterkar. Það var lagt hald á gögn sem engu máli skipta, lagt hald á persónuleg gögn starfsmanna, tölvupóst,“ sagði Vilhjálmur. Ummæli Vilhjálms Egilssonar urðu ekki til þess að draga úr gagn- rýni þingmanna stjórnarandstöðu á erindi Verslunarráðs, en Jóhanna Sigurðardóttir (S) kallaði það klögu- mál og þær raddir heyrðust að með því væri ætlunin að beygja ráð- herrann og veikja Samkeppnis- stofnun. Valgerður Sverrisdóttir sagði að ekki hefði staðið til að knýja ráð- herra eða ráðuneytið til aðgerða sem ekki stæðust lög og reglur. „Málið er þannig vaxið að það þarf að fara yfir allar hliðar þess og að því er unnið,“ sagði viðskiptaráð- herra í lok umræðunnar. Rannsókn Samkeppnisstofnunar á meintu verðsamráði olíufélaganna Erindi Verslunarráðs harðlega gagnrýnt RÍKISSTJÓRN Íslands verður falið að efna til samvinnu við landstjórnir Færeyja og Grænlands um heim- ildaöflun og skráningu gagna um veiðimenningu Vestur-Norðurlanda svo að þekking á þessari sameigin- legu arfleifð gleymist ekki, nái til- laga Einars Odds Kristjánssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, og fleiri þingmanna, sem lögð hefur verið fram á Alþingi, fram að ganga. Í greinargerð með tillögunni segir að veiði hafi ætíð skipað stóran sess á Vestur-Norðurlöndum og hefðir og lifnaðarhættir veiðimennsku ein- kenni löndin öll. Veiðimennska land- anna sé merki um þau nánu tengsl manns og náttúru sem þar ríki og í löndunum hafi þróast veiðimenning sem skeri sig á ýmsan hátt úr á al- þjóðlegum vettvangi. Veiðimenning landanna hefur tekið stökkbreytingum „Þessi menning snýr ekki ein- göngu að þeim háttum, aðferðum og tækni sem einkennt hafa vestnor- ræna veiðimenn að störfum um aldir, heldur nær hún til mun víðtækari menningarlegri þátta eins og t.d. fjölbreytilegrar notkunar skinna og matargerðarlistar. Vegna örrar tækniþróunar hefur hefðbundin veiðimenning landanna tekið stökk- breytingum. Á Grænlandi hafa riffl- ar komið í stað spjóta, mótorbátar í stað kajaka og vélsleðar í stað hundasleða. Hættir gamla tímans eru víðast hvar að líða undir lok á Vestur-Norðurlöndum og hætta er á að hin hefðbundna menningararf- leifð veiðimennsku gleymist með öllu ef ekkert er að gert. Það er mikil- vægt að komandi kynslóðir kunni skil á þessari sérstæðu menningar- arfleifð og því þurfa að vera til skráð- ar heimildir um veiðimenningu land- anna, bækur, ljósmyndir, heimilda- kvikmyndir o.fl.,“ segir þar ennfrem- ur. Í þessu samhengi er bent á að Vestnorræna ráðið hafi átt frum- kvæði að opnun vestnorrænnar sýn- ingar um veiðimenningu í Þórshöfn sumarið 2002. Sýningin verði sett upp víða um lönd til að bera veiði- menningu landanna vitni. Þau gögn sem liggi að baki sýningunni gætu nýst vel í samstarfi um heimildaöflun og skráningu gagna um vestnorræna veiðimenningu. Tillaga um heimildaöflun og skráningu gagna um veiðimenningu Vestur-Norðurlanda Hvatt til samvinnu Íslands, Færeyja og Grænlands JÓHANNA Sigurðardóttir (S) hefur beint ítarlegri fyrirspurn til viðskipta- ráðherra um meint óeðlileg innherja- viðskipti tíu stjórnenda Kaupþings í tengslum við kaup fyrirtækisins á sænska verðbréfafyrirtækinu Arag- on. Í fyrirspurninni er ráðherra m.a. inntur eftir því hvort hann sé sam- mála Verðbréfaþingi Íslands um að ekki sé nauðsynlegt að aðhafast neitt varðandi kaup tíu stjórnenda Kaup- þings hf. á hlutabréfum í Kaupþingi fyrir um 480 millj. kr. í tengslum við kaupin á Aragon. Hvaða rök liggi að baki því að Verðbréfaþing taldi ekki nauðsynlegt að gera athugasemdir við kaupin eða aðhafast neitt í málinu, hvaða heimild þingið hefur til þess að láta fara fram sjálfstæða rannsókn þegar um meint óeðlileg fruminn- herjaviðskipti er að ræða og hvaða úr- ræði hafi það þegar um slík tilvik er að ræða? Ennfremur er spurt hvort sé eðlilegt að orð þeirra sem grunaðir eru um óeðlileg innherjaviðskipti séu forsenda þess að mál sé látið niður falla hjá Verðbréfaþingi. Þingmaðurinn spyr einnig hversu mikið umræddir starfsmenn hafi hagnast á kaupum sínum miðað við þróun hlutabréfaverðs að undan- förnu. Aukinheldur veltir hún því upp hvort ráðherra telji ekki að herða þurfi á ákvæðum laga um innherja- viðskipti. Kaup Kaupþings á Aragon Spurt um meint óeðlileg inn- herjaviðskipti KOSTNAÐUR við kynningu á mál- stað Íslendinga í hvalveiðimálum nam 58,1 milljón króna á árunum 1999-2001. Gert er ráð fyrir að veita 25 milljónir króna á fjárlögum ársins 2002. Búast má við því að óskað verði eftir svip- aðri upphæð í frumvarpi til fjár- laga fyrir árið 2003, að því er fram kom í máli Árna Mathiesen sjávarútvegsráð- herra á Alþingi í gær. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir upplýsingum í fyrirspurnartíma um hvað stjórnvöld hefðu gert í kynn- ingarstarfsemi á málstað Íslend- inga í hvalveiðimálum. Sjávarút- vegsráðherra sagði að fjölmiðlum, fyrirtækjum og stjórnvöldum víða um heim hafi verið kynnt sjón- armið Íslendinga við ýmiss konar tækifæri. Um væri að ræða mikilvægt starf þar sem lögð væri áhersla á stefnu Íslendinga um sjálfbæra nýt- ingu úr auðlind- um hafsins. Ráðherra benti einnig á mikil- vægi kynning- arinnar í ljósi ranghugmynda erlendis um að allir hvalastofn- ar væru í útrýmingarhættu. Hvalveiðar hefjist nú þegar Nokkrar umræður spunnust um fyrirspurnina og svör ráðherrans. Guðjón Guðmundsson (D) og Guð- jón A. Kristjánsson (F) sögðu tíma undirbúnings og kynningar liðinn, nú væri komið að því að hefja hval- veiðar og undir það tók Gunnar Birgisson (D). Ísólfur Gylfi Pálma- son (B) sagði hins vegar að skyn- samlegt hafi verið hjá sjávarút- vegsráðherra að fara með „hraða snigilsins“ í þessu máli, enda kynni það að hafa geysileg áhrif á við- skiptahagsmuni þjóðarinnar, sér- staklega þegar haft væri í huga að lítil eftirspurn væri eftir hvalafurð- um. Sigríður Ingvarsdóttir (D) benti hins vegar á að Færeyingar, Norð- menn og Japanir veiddu nú þegar hval og hefði það ekki haft áhrif í viðskiptalegu tilliti. Þórunn Sveinbjarnardóttir (S) sagði ekki nóg að meta kostnaðinn við kynningu á málstað Íslands, heldur mætti velta einnig fyrir sér árangrinum að þeirri vinnu. Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra sagði þann árangur koma í ljós þegar veiðar hæfust og við- brögð annarra þjóða yrðu ljós. Tæplega sex- tíu milljónir á tveimur árum Morgunblaðið/Golli Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra svarar erindi Verslunarráðs Íslands í dag eða næstu daga. Hér er hún við umræður á Alþingi, en til hliðar fægir heilbrigðisráðherrann Jón Kristjánsson gleraugun sín. Kynning á málstað Íslendinga í hvalamálum um allan heim ÞINGFUNDUR hefst á morgun í Alþingi kl. 10.30. Á dagskrá eru ýmis mál, s.s. frumvarp sam- gönguráðherra um hafnalög og umræða utan dagskrár um mál- efni trúnaðarlæknis Flugmála- stjórnar. Málshefjandi er Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingunni, en til andsvara Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.