Morgunblaðið - 07.02.2002, Síða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SVEITARSTJÓRI Bessa-
staðahrepps segir til greina
koma að flytja 8.–10. bekk
grunnskólans heim í hrepp-
inn en hingað til hafa börn í
þessum árgöngum sótt skóla
til Garðabæjar. Fyrir liggja
teikningar að stækkun
Álftanesskóla sem er for-
senda þess að þetta verði
mögulegt.
Börn búsett í Bessastaða-
hreppi ganga í 1.–7. bekk í
Álftanesskóla en eftir það
þurfa þau að sækja grunn-
skóla annað. „Við erum svo
með samning við Garðabæ
um að hann taki við okkar
börnum í 8., 9. og 10. bekk
en umræðan um að flytja
þessa bekki hingað heim og
stækka Álftanesskóla meira
er sífellt að verða sterkari,“
segir Gunnar Valur. „Ég
geri ráð fyrir því að það
verði brugðist við þessari
umræðu á allra næstu árum
og þá þurfum við að gera
tvennt. Annars vegar að
stækka Álftanesskóla enn
frekar og eins þurfum við að
stækka íþróttahúsið.“
Bætt við list- og
verkgreinaálmu
Börn búsett í Bessastaða-
hreppi sem sækja umrædd-
ar bekkjardeildir í Garða-
skóla eru að sögn Gunnars á
bilinu 100–110 talsins. Eins
og staðan er í dag nota þessi
börn almenningssamgöngur
til að koma sér til og frá
skóla en sveitarfélagið lætur
þeim strætisvagnamiða í té.
Gunnar segir allar áætl-
anir um stækkun Álftanes-
skóla fyrirliggjandi. Meðal
annars eru til forteikningar
af stækkuninni, unnar af
Glámu-Kím arkitektum, sem
að hans sögn yrðu notaðar
kæmi þetta til framkvæmda.
Að sögn Gunnars gera
teikningarnar ráð fyrir að
bætt verði við þriðju hæð-
inni á list- og verkgreina-
álmu skólans þar sem sjö
almennar bóknámsstofur
kæmu til viðbótar við þær
sem fyrir eru. Þá er fyr-
irhugað að álman verði
lengd í átt að íþróttavöll-
unum þar sem aðrar fjórar
bóknámsstofur yrðu.
Gunnar segir ekki hægt
að segja til um hvenær af
þessu gæti orðið en telur
víst að þessi mál verði
sterklega inni í umræðunni
á næstu tveimur til þremur
árum.
Hann vill ekki gefa upp
kostnaðartölur enn sem
komið er en segir ljóst að
þetta þýði þónokkurn fjár-
festingarkostnað fyrir sveit-
arfélagið.
Bessastaðahreppur
Teikning/Gláma Kím
Suðvesturhlið list- og verkgreinaálmu Álftanesskóla, samkvæmt hugmyndum um útlit hennar eftir byggingu 3. hæðar hússins.
Rætt um flutning eldri
bekkja grunnskólans heim BÆJARRÁÐ Garðabæjarhefur ákveðið að láta vinnareglur um úthlutun lóða í
bæjarfélaginu. Segir bæjar-
stjóri að með þessu sé fullt
tillit tekið til þeirra athuga-
semda sem komu fram í ný-
legum úrskurði félagsmála-
ráðuneytisins um lóðaúthlut-
anir í Ásahverfi.
Eins og fram hefur komið
kvað úrskurðurinn á um að
bæjarstjórn hefði ekki farið
að stjórnsýslulögum við út-
hlutun byggingarlóðanna og
beindi ráðuneytið þeim til-
mælum til bæjarstjórnar að
hún reyndi að tryggja að svo
óvönduð málsmeðferð endur-
tæki sig ekki.
Ásdís Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri í Garðabæ, segir
að með ákvörðun bæjarráðs
sé verið að bregðast við þess-
um tilmælum. „Við ákváðum
að semja skýrar reglur sem
umsækjendur lóða hafa þá til
hliðsjónar þegar þeir sækja
um og bæjarráð hefur síðan
að leiðarljósi þegar lóðum er
úthlutað. Þetta munum við
gera við næstu úthlutun
þannig að við tökum fullt til-
lit til þeirra athugasemda
sem félagsmálaráðuneytið
gerði í úrskurðinum.“
Hún segir ekki búið að
ákveða hvað reglurnar muni
fela í sér. „Við þurfum að
fara í ítarlega vinnu og skil-
greiningar á því hvernig
reglurnar eiga að vera og sú
vinna er að hefjast. Ég geri
ráð fyrir því að við gefum
okkur góðan tíma í að vanda
verkið.“
Ekki er ljóst hvenær
næsta úthlutun fer fram en
að sögn Ásdísar Höllu má
gera ráð fyrir að það verði
þegar síðustu lóðunum í Ása-
hverfi verður úthlutað.
Viðbrögð bæjarráðs vegna úr-
skurðar félagsmálaráðuneytis
Láta semja
skýrar úthlut-
unarreglur
Garðabær
VERÐLAUN í fjölskylduleik,
sem haldin var í tilefni af
kynningu á tillögu að nýju
aðalskipulagi Kópavogs,
voru veitt í gær. Það var
Stefán Þ. Ingólfsson og fjöl-
skylda hans sem hlutu verð-
launin, árskort í Sundlaug
Kópavogs.
Leikurinn fór fram meðan
á kynningu á tillögunni stóð
og var hann fólginn í því að
svara fimm spurningum um
Kópavog rétt. Öll svörin var
að finna í aðalskipulags-
tillögunni en með þessu vildi
skipulagsnefnd Kópavogs
hvetja íbúa bæjarins til að
kynna sér tillöguna.
Á myndinni má sjá Ár-
mann Kr. Ólafsson, formann
skipulagsnefndar, afhenda
fjölskyldunni verðlaunin. Morgunblaðið/Sverrir
Verðlaun
í skipu-
lagsleik
afhent
Kópavogur
HLUTFALL þeirra sölu-
staða sem selja börnum und-
ir 18 ára aldri tóbak hefur
lækkað úr 58% í 14% á rúmu
ári. Þetta eru niðurstöður
Umhverfis- og heilbrigðis-
stofu Reykjavíkur en í lok
janúar var gerð könnun á
tóbakssölu til barna í borg-
inni.
Eftirlitið fór fram á 160
sölustöðum tóbaks þar sem
börn hafa aðgang en í des-
ember sl. var sölustöðum
tóbaks sent bréf þar sem
boðað var að eftirlit færi
fram í janúar í ár. Fram-
kvæmd eftirlitsins var með
þeim hætti að unglingar fóru
milli sölustaða og óskuðu
eftir því að fá keypt tóbak á
meðan heilbrigðisfulltrúi
beið fyrir utan verslunina.
Færi sala fram fór heilbrigð-
isfulltrúi inn á staðinn, gerði
viðkomandi sölumanni grein
fyrir málinu, skilaði tóbakinu
og skrifaði eftirlitsnótu. Þeir
unglingar sem tóku þátt eru
í 9. bekk grunnskóla og var
aflað samþykkis foreldra
þeirra áður en eftirlitið fór
fram.
Niðurstaða könnunarinnar
var sú að unglingarnir gátu
keypt tóbak á 22 sölustöðum
af 160 eða í 14% tilvika.
Hlutfallslega var útkoman
best í austurbæ í póstnúmeri
108 en enginn sölustaður,
sem kannaður var á því
svæði, seldi börnum tóbak.
Verst var útkoman í Breið-
holtshverfi þar sem 41%
sölustaðanna seldi börnun-
um tóbak.
Séu niðurstöðurnar born-
ar saman við fyrri kannanir
heilbrigðisyfirvalda á tób-
akssölu kemur í ljós að sala
á tóbaki til barna hefur
dregist töluvert saman í
borginni. Í fyrstu könnun-
inni sem gerð var í nóvem-
ber árið 2000 var niðurstað-
an sú að 58% sölustaða seldu
börnum tóbak. Í janúar og
febrúar árið eftir var talan
komin niður í 49%. Í apríl
2001 reyndust 42% sölustaða
selja börnum tóbak en það
var síðasta könnun sem gerð
var fyrir könnunina nú.
Hrannar B. Arnarson, for-
maður umhverfis- og heil-
brigðisnefndar Reykjavíkur,
segist himinlifandi með þess-
ar niðurstöður. „Það hafa
orðið algjör umskipti á einu
ári í þessu umhverfi og
greinilegt að ábyrgðarmenn
og starfsfólk útsölustaðanna
hafa tekið ábyrgð sína alvar-
lega og staðið sig afskaplega
vel í því að snúa þessari þró-
un við.“
Hann segir að þessar já-
kvæðu niðurstöður komi sér
á óvart. „Ég verð að segja
alveg eins og er að þó að
þær aðgerðir sem við fórum
í í fyrra hafi fengið mikla
umræðu átti ég ekki von á
því að þetta gengi svona
hratt fyrir sig. Útsölustað-
irnir hafa komið mér sann-
arlega á óvart með hvað þeir
hafa gripið fljótt í taumana
og sýnt að þeir eru fyllilega
þess trausts verðir að hafa
þessa vöru í sölu.“
Hann bendir á að í raun
sé árangurinn enn meiri en
tölurnar gefa til kynna þar
sem könnun, sem ÍTR stóð
fyrir árið 1999, hafi leitt í
ljós að 68% sölustaða hafi
selt börnum tóbak. Sú tala
hafi blasað við nefndinni
þegar ákveðið var að fara í
þessar aðgerðir.
# $% ! &' (' )"
* ! +"
! ,"
-$! .' / ! "
0 $! 1"
2
#!3 4"
2
(
(
1+
26
&
&+
,
1+
(
&,
#
6
26
Tóbakssala til
barna minnkar
Reykjavík
HREPPSNEFND
Bessastaðahrepps hefur
ákveðið að veita afslátt á
skólagjöldum Tónlistar-
skóla Bessastaðahrepps
vegna fimm vikna verk-
falls tónlistarkennara í
vetur. Var tillagan sam-
þykkt einróma í nefnd-
inni í síðustu viku.
Afslátturinn nemur
15% af gjöldum yfir-
standandi skólaárs og í
samþykktinni segir að
greiðsla skuli innt af
hendi til foreldra eigi
síðar en 15. febrúar
næstkomandi.
Eins og Morgunblaðið
hefur greint frá hafa
flest sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu einnig
ákveðið að veita afslátt á
skólagjöldum vegna
verkfallsins og/eða vinna
upp námstapið með auk-
inni kennslu.
Afsláttur
vegna
verkfalls
Bessastaðahreppur