Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 20
SUÐURNES
20 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LÖGBANN var í gær sett á aðgerðir
Sjómannafélags Reykjavíkur í Njarð-
víkurhöfn og gat uppskipun hafist að
nýju. Formaður Sjómannafélagsins
segir að til greina komi að grípa til að-
gerða næst þegar skipið komi en hol-
lenska sjóflutningaverkamannasam-
bandið telur aðgerðir íslenskra
starfsfélaga sinna stangast á við
stefnu Alþjóða flutningaverkamanna-
sambandsins.
Atlantsskip ehf. og Sjómannafélag
Reykjavíkur hafa átt í deilum um kjör
áhafnar hollenska leiguskipsins
Radeplein sem Atlantsskip notar til
að flytjar vörur fyrir varnarliðið milli
Íslands og Bandaríkjanna. Félags-
menn úr Sjómannafélagi Reykjavíkur
stöðvuðu uppskipun í fyrradag, þar til
um miðjan dag í gær að sýslumað-
urinn í Keflavík varð við kröfu Atl-
antsskipa um að setja lögbann á að-
gerðir félagsins.
Unnið var fram á kvöld við að losa
skipið og lesta og var búist við því að
það héldi aftur til Bandaríkjanna
seint í gærkvöldi, eftir sólarhrings
töf. Stefán Kjærnested, fram-
kvæmdastjóri Atlantsskipa ehf., segir
að félagið muni nú höfða staðfesting-
armál og einnig krefjast skaðabóta
vegna þess tjóns sem fyrirtækið hafi
orðið fyrir.
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, segir að
stjórnendur félagsins séu ánægðir
með það að Atlantsskip fari í staðfest-
ingarmál því það sé eina leiðin til þess
að fá málið tekið fyrir í dómskerfinu.
Hann kveðst vonast til að málið gangi
hratt fyrir sig en Sjómannafélagið sé
bundið af lögbanninu í þrjár vikur.
Muni það bíða dómsniðurstöðu eða
næstu komu skipsins, hvort sem yrði
á undan og segir að til greina komi að
grípa þá aftur til aðgerða. „Við getum
ekki unað því að Atlantsskip brjóti
milliríkjasamninga.
Við munum ekki linna látum fyrr
en það verða komin íslensk kjör um
borð í þetta skip,“ segir Jónas. Atl-
antsskip sendu frá sér í gær afrit af
bréfi hollenska sjóflutningaverka-
mannasambandsins, Dutch seafarers
federation, til Alþjóða flutninga-
verkamannasambandsins (ITF). Þar
kemur fram að í gildi eru samningar
hollenskra verkalýðsfélaga fyrir yfir-
og undirmenn og þeir séu fyllilega í
samræmi við núverandi reglur ITF.
Hvetur sambandið Alþjóða flutninga-
verkamannasambandið til þess að
grípa til viðeigandi ráðstafana þannig
að hið íslenska aðildarfélag starfi í
samræmi við reglur ITF og stöðvi
verkfallsaðgerðir þegar í stað. Að
öðrum kosti verði sambandið að taka
málið upp fyrir næsta fund vinnu-
reglunefndar ITF.
„Að okkar mati er ljóst að aðild-
arfélög ITF eru bundin af stefnu
sambandsins og það getur ekki við-
gengist að aðildarfélag haldi uppi að-
gerðum sem brjóta í bága við stefnu
ITF án þess að til viðeigandi ráðstaf-
ana verði gripið,“ segir í bréfinu.
Lögbann sett á aðgerðir sjómanna gegn Atlantsskipum
Hóta að halda
aðgerðum áfram
Njarðvíkurhöfn
UNDIRBÚNINGUR að smíði
grunnskóla í Innri-Njarðvík, Thork-
elískóla, hefst á næsta ári, sömuleiðis
undirbúningur að byggingu húss
fyrir Tónlistarskóla Reykjanesbæj-
ar. Það ár verða hafnar framkvæmd-
ir við endurgerð Hafnargötu í Kefla-
vík.
Tillaga að fjárhagsáætlun Reykja-
nesbæjar fyrir árin 2003 til 2005 var
lögð fram í bæjarstjórn í fyrradag og
samþykkt að vísa henni til síðari um-
ræðu. Áætlaðar eru tekjur sveitarfé-
lagsins, útgjöld og ákveðnar helstu
framkvæmdir. Ellert Eiríksson bæj-
arstjóri tekur fram að núverandi
bæjarstjórn sitji aðeins fram í júní á
þessu ári og því þyki ekki eðlilegt að
binda um of hendur næstu bæjar-
stjórnar varðandi einstakar fram-
kvæmdir. Hann segir þó nauðsyn-
legt að halda áfram með þær
framkvæmdir sem komnar hafi verið
inn á fyrri áætlanir og byggist þessi
þriggja ára áætlun því að verulegu
leyti á þeim. Skildar eru eftir 58
milljónir á næsta ári, 141 milljón á
árinu 2004 og 183 milljónir á árinu
2005.
Til heiðurs Thorcillius
Meðal framkvæmda má nefna að
lagður verður grunnur að dvalar-
heimili og nýjum þjónustuíbúðum á
árinu 2004. Leikskólinn Holt verður
stækkaður um tvær deildir og lóðin
lagfærð á árinu 2003. Það ár verður
hafinn undirbúningur að smíði nýs
grunnskóla, Thorkelískóla í Innri-
Njarðvík, og að byggingu húss fyrir
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Að
sögn Ellerts hefur verið áformað að
Thorkelískóli taki til starfa á árinu
2007. Það ræðst að þó af íbúaþróun.
Vinnuheitið Thorkelískóli er til heið-
urs Jóni Þorkelssyni Thorchillius
(1697–1759) sem var rektor Skál-
holtsskóla og fræðimaður í Kaup-
mannahöfn en hann var fæddur í
Innri-Njarðvík.
Á árinu 2004 á að hefja hönnun á
nýjum leikskóla sem gert er ráð fyrir
að verði tekinn í notkun árið eftir.
Leikskólinn verður í Njarðvík, ann-
aðhvort á Fitjum eða á Neðra-Nikk-
elsvæði ef þar verður leyft að
byggja, að sögn bæjarstjórans.
Ljúka á endurbótum á Íþrótta-
miðstöð Njarðvíkur á næsta ári og
hefja byggingu innisundlaugar við
sundmiðstöðina við Sunnubraut á
árinu 2004. Framkvæmdir hefjast
við endurgerð Hafnargötu á næsta
ári og á því ári og því næsta á að
halda áfram framkvæmdum við úti-
vistarsvæði á Fitjum.
Í fjárhagsáætluninni er miðað við
að á tímabili verði langtímalán bæj-
arsjóðs greidd hraðar niður en lána-
samningar segja til um. Að sögn Ell-
erts er einnig hugsanlegt að pen-
ingarnir verði lagðir inn á bundna
fjárvörslureikninga í evrum, fram að
gjalddaga, ef það verður talið hag-
stæðara. Hann segir að með þessu
eigi að byggja upp gengistryggðan
jöfnunarsjóð gagnvart skuldum bæj-
arsjóðs.
Gert er ráð fyrir því að heildar-
skuldir Reykjanesbæjar lækki á
tímabilinu, verði 3,5 milljarðar í lok
næsta árs og 2,8 milljarðar í lok árs-
ins 2005. Þá er gert ráð fyrir að
skuldir á hvern íbúa lækki enn hrað-
ar og verði komnar niður í 255 þús-
und á íbúa í lok ársins 2005.
70% í rekstur
Gert er ráð fyrir því að rekstrar-
kostnaður lækki á hverju ári og verði
70% af tekjum á árinu 2005. Ellert
segir að það eigi að takast án þess að
gengið sé hart fram í niðurskurði.
Hann gerir sér vonir um að stöðug-
leiki verði í verðlagsmálum. Segir að
ekki sé von á kollsteypum í launa-
málum, eins og varð á síðasta ári.
Fari verðbólgan hins vegar úr bönd-
um muni þessi áætlun ekki standast,
ekki frekar en aðrar.
Þriggja ára fjárhagsáætlun til umræðu í bæjarstjórn
Undirbúningur Thorkelí-
skóla hefst á næsta ári
Reykjanesbær
OLÍUFÉLAGIÐ hf. hefur opnað
ESSO-verslun að Norðurgarði 8,
við höfnina í Sandgerði.
Í versluninni eru á boðstólum
hverskonar olíuvörur og rekstr-
arvörur fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga, til dæmis hreinsiefni,
verkfæri og pappírsvörur.
Einnig verður hægt að fá vörur
frá Vöruhúsi ESSO daglega.
Á myndinni sést Hinrik Sig-
urðsson verslunarstjóri í búðinni
sem er björt og rúmgóð. Hinrik
rekur einnig bensínstöð og Hrað-
búð ESSO í Garði. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
ESSO-verslun
við höfnina
Sandgerði
NÚ standa yfir „gleðivikur“ á leik-
skólanum Klettaborg. Deildirnar á
leikskólanum eru fjórar og hefur
hver deild haft eina gleðiviku. Á
mánudeginum eiga börnin að mæta
í gulum fötum. Þeim er skipt í hópa,
búa til hálsmen til að nota alla vik-
una og þau læra táknið fyrir gult (í
Tákn með tali). Á þriðjudegi mæta
þau í rauðum fötum og læra táknið
fyrir rautt, á miðvikudeginum er
táknið grænt og á fimmtudegi blátt.
Einn daginn fá þau að horfa á Emil
í Kattholti og borða popp, einn dag-
ur er dótadagur og einn daginn
heimsækja þau aðra deild. Á föstu-
deginum koma krakkarnir í nátt-
fötum, rifja upp táknin og halda
náttfataball. Meðfylgjandi mynd er
tekin af börnunum á deildinni
„Kattholti“ í náttfötunum, en þau
urðu fyrst til að halda gleðiviku.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Krakkarnir á Kattholti á náttfataballi.
Gleðivikur í Borgarnesi
Borgarnes
SÉRBÚIN iðjuþjálfunaraðstaða
Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi
og Skólaskrifstofu Akraness var ný-
lega tekin í notkun í húsakynnum
Grundaskóla á Akranesi, en skipu-
legt samstarf fagfólks á þessum vett-
vangi um starfrækslu svokallaðs
barnateymis hefur verið til staðar
frá árinu 1999.
Við opnun aðstöðunnar í Grunda-
skóla rakti Reynir Þorsteinsson, yf-
irlæknir heilsugæslustöðvarinnar,
aðdraganda að stofnun teymisins og
þakkaði öllum þeim aðilum sem
styrktu framtakið með búnaðar-
kaupum fyrir góðan hug til verkefn-
isins sem er greining ofvirknirask-
ana, meðferð og ráðgjöf en einnig
greining og meðferð ýmissa þroska-
og geðraskana. Í teyminu starfa
tveir sálfræðingar Skólaskrifstofu
Akraness og barnalæknir sem kem-
ur í heilsugæslustöðina vikulega auk
þess sem iðjuþjálfi starfar í beinum
tengslum við teymið.
Aðgang að teyminu hafa öll börn
sem búsett eru á Akranesi og eru
yngri en 18 ára. Á fyrsta starfsári
teymisins voru 17 börn til umfjöll-
unar og voru drengir 70% hópsins.
Annað starfsárið var fjallað um mál
22 barna í teyminu og fóru 16 börn
formlega í gegnum ofvirknigrein-
ingu. Vinna greiningarteymisins hef-
ur skilað miklum árangri og er að
verða fyrirmynd starfshátta í þess-
um málaflokki í öðrum sveitarfélög-
um. Sérstök fjárveiting hefur fengist
til starfsemi teymisins til þriggja
ára.
Sérbúin aðstaða
fyrir iðjuþjálfun
barna í notkun
Akranes
ÞRÍR efstu menn á lista Framsókn-
arflokksins við síðustu sveitarstjórn-
arkosningar lýstu því yfir á fundi í
Framsóknarfélagi Árborgar sl.
mánudag að þeir gæfu ekki kost á
sér til setu á lista við bæjarstjórn-
arkosningarnar í vor.
Þetta eru Kristján Einarsson, nú-
verandi forseti bæjarstjórnar, María
Hauksdóttir og Þorvaldur Guð-
mundsson. Kristján hefur átt sæti í
bæjarstjórn Selfoss og síðan Ár-
borgar í tólf ár. Sama er að segja um
Maríu, sem sat í átta ár í hrepps-
nefnd Sandvíkurhrepps og síðan
fjögur ár í bæjarstjórn Árborgar.
Flokkurinn hefur tvo fulltrúa í bæj-
arstjórn en Þorvaldur hefur verið
formaður skipulags- og byggingar-
nefndar Árborgar síðastliðið kjör-
tímabil.
„Þetta er gífurlega viðamikið og
tímafrekt að vera í forystu í sveit-
arstjórn en einnig mjög gjöfult þar
sem maður vinnur með skemmtilegu
fólki. Ég er þakklátur þeim sem
greitt hafa götu mína í gegnum tíð-
ina í þessum félagsstörfum,“ sagði
Kristján Einarsson.
Á fundi framsóknarfélagsins voru
rædd framboðsmál til næstu kosn-
inga og mun félagið viðhafa forkönn-
un meðal félagsmanna um mögulega
frambjóðendur.
Þrír efstu menn
Framsóknar
ætla að hætta
Selfoss