Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 27
TONY Blair, forsætiráðherra Bret-
lands, sagði fyrir upphaf ferðar sinn-
ar til fjögurra Afríkuríkja í gær að
brýnt væri að bregðast við fátækt í
álfunni til að koma í veg fyrir að
hryðjuverkasamtök nái að hreiðra
þar um sig.
Blair var væntanlegur til Nígeríu í
gærkvöld, en aðrir áfangastaðir hans
í Afríkuförinni verða Ghana, Sierra
Leone og Senegal. Mun ferðalagið
taka heila viku. Pólítiskir andstæð-
ingar forstætisráðherranns höfðu
gagnrýnt förina og líkt
henni við „sýndarutan-
ríkisstefnu“, en Blair vís-
aði því alfarið á bug í við-
tali við dagblaðið The
Times í gær. Þar varaði
hann við því að ef auð-
ugustu ríki heims legðu
ekki sitt af mörkum til að
bæta stöðu Afríkuríkja
væri hætta á að dæmið
um Afganistan endurtæki sig.
Blair kvaðst líta á för sína sem und-
irbúning fyrir fund átta helstu
iðnríkja heims í Kanada í júní,
þar sem stendur til að ræða
sérstaka þróunaráætlun fyrir
Afríkuríki. „Okkur ber skylda
til að grípa til aðgerða og við
getum lagt okkar af mörkum,“
sagði forsætisráðherrann við
The Times. „Ástæða þess hve
ég legg mikla áherslu á þetta
er sú að ég tel að við höfum nú
besta tækifærið á heilum mannsaldri
til að láta gott af okkur leiða.“
Blair segir brýnt að bregð-
ast við fátækt í Afríku
Abuja, London. AFP, AP.
Tony Blair
SÚ saga er gjarnan sögð um Elísa-
betu Englandsdrottningu að hún
hafi klifrað upp í tré í Kenýa og stig-
ið aftur til jarðar sem drottning alls
Bretaveldis.
Þjóðsaga þessi á sér rætur í þeirri
staðreynd að hin unga krónprins-
essa var stödd í fjallgöngu í Kenýa
þegar fréttir bárust af því að faðir
hennar, Georg VI., væri fallinn frá.
Er sagt að Elísabet og fylgdarmenn
hennar hafi neyðst til að klifra upp í
nálæg tré þegar þeim
varð ljóst að innan seil-
ingar var heil hjörð
trylltra fíla.
Sama dag bárust
fregnirnar um andlát
Georgs, sem fyrr segir.
Er Elísabet sögð hafa
grátið þegar henni voru
færðar fréttirnar en síð-
an tók hún á sig rögg og ákvað að
snúa þegar heim á leið til að vera
með sínum nánustu.
Þetta gerðist 6. febrúar 1952 og í
gær voru því nákvæmlega fimmtíu
ár liðin síðan Elísabet krónprinsessa
varð Elísabet II. Englandsdrottning.
Krýning hennar fór þó ekki fram
fyrr en 2. júní 1953.
Elísabet er núna 75 ára gömul
amma sex barna. Hún sinnir störfum
sínum sem fyrr, hittir erlenda sendi-
menn og eigin þegna og ferðast um
heiminn í því skyni að halda uppi
merki Bretaveldis. En margt hefur
breyst á þeim fimmtíu árum sem
hún hefur setið á valdastóli.
Breyttir tímar
Elísabet var ung kona, aðeins 25
ára gömul, þegar hún neyddist til að
takast á við nýtt og krefjandi hlut-
verk. Winston Churchill var for-
sætisráðherra í Bretlandi, Harry S.
Truman, forseti Bandaríkjanna, og
Jósep Stalín var enn við völd í Sov-
étríkjunum. Dagar hins breska stór-
veldis voru taldir og aðrir höfðu tek-
ið forystuna í heimsmálunum, um
það efaðist enginn.
Aðstæður heima fyrir voru erf-
iðar. Matarskömmtun var við lýði,
svo dæmi sé tekið, og á einu af hverj-
um þremur heimilum var ekki að
finna baðaðstöðu. Einungis örfáir
bjuggu svo vel að eiga sjónvarps-
tæki. Þá var öldin önnur.
Bretar hafa ávallt haldið nafni El-
ísabetar I. Englandsdrottningar
hátt á loft en tími hennar á bresku
krúnunni, sem varði um fjörutíu ár
og allt til 1603, var tími glæstra
sigra konungdæmisins breska. Bret-
land varð stórveldi á hafinu og lista-
líf var með miklum blóma. Vonuðu
margir að Elísabet önnur myndi
ríkja yfir annarri eins landvinn-
ingatíð.
Og sannarlega hafa orðið breyt-
ingar í tíð Elísabetar. Það Bretland
sem hún erfði frá föður sínum er
Steig til jarðar
sem drottning
alls Bretaveldis
50 ár liðin frá því að Elísabet varð drottning
Englands við fráfall föður hennar Georgs VI.
Elísabet Englands-
drottning veifar til al-
mennings við sveita-
býli sitt í gær.
London. The Baltimore Sun, The Washington Post, AFP.
ekki það sama og hún drottnar yfir í
dag. Tími hinna fyrirferðarmiklu
verksmiðja er liðinn og í staðinn
starfa flestir við þjónustu ýmiss kon-
ar, verslun og viðskipti. Áhrifin frá
meginlandi Evrópu eru augljós því
þó að Bretar séu tregir í taumi hafa
þeir verið meðlimir Evrópusam-
bandsins frá 1973, með öllu sem því
fylgir. Fram á sjónarsviðið hafa
einnig komið einstaklingar, sem
óumdeilanlega settu svip á söguna,
s.s. Bítlarnir og Mar-
grét Thatcher, fyrrver-
andi forsætisráðherra.
Allt hefur þetta gerst
í tíð Elísabetar þó að
sjálfsagt sé erfitt að
halda því fram að helst
beri að þakka henni þá
sigra sem unnist hafa.
Raunar gerast þær
raddir æ háværari að konungs-
fjölskyldan breska sé hálfgerð tíma-
skekkja.
Efnt til hátíðahalda í vor
Elísabet hefur sjálf kosið að minn-
ast ekki sérstaklega þeirra tíma-
móta, þegar hún varð drottning.
Hefur henni ekki þótt það við hæfi
þar sem minning föður hennar er
henni kær. Í staðinn er ráðgert að í
vor verði efnt til viðamikilla hátíða-
halda víðs vegar um Bretland.
Vandinn er hins vegar sá að
breskur almenningur virðist lítt
uppveðraður yfir þessum tímamót-
um, gjörólíkt því sem var fyrir ald-
arfjórðungi síðan þegar haldið var
upp á 25 ára veru Elísabetar á
bresku krúnunni. Virðist sem ekki
ríki lengur sá einhugur um kon-
ungsfjölskylduna bresku meðal al-
mennings og var þegar Elísabet
settist á valdastól.
Ef til vill þarf engan að undra
þessi tíðindi. Tímarnir breytast og
mennirnir með og fylgispekt við
fornar hefðir minnkar með hverju
árinu. Virðist mörgum sem drottn-
ingin sé æ meira utanveltu og óþörf,
forngripur frá liðinni tíð.
Hefur auðvitað ekki hjálpað til að
meðlimir konungsfjölskyldunnar
hafa á síðustu árum gert ýmislegt til
að gefa óprúttnum dagblöðum til-
efni til að fjalla um þeirra málefni
þannig að ekki er til sóma.
Hitt benda stuðningsmenn kon-
ungdæmisins á að sjálf hafi drottn-
ingin ávallt haldið virðingu sinni og
að hún sé orðin eldri en tvævetur,
hafi staðið af sér meiri ágjöf en þá
sem nú um stundir leikur um hirð
hennar. Ennfremur sé jafnvíst að
þegar sól tekur að hækka á lofti
muni breskur almenningur fara í
sitt besta púss og fagna drottningu
sinni sem aldrei fyrr. Þegar á reyni
muni drottningin reynast það sam-
einingartákn sem henni er uppálagt
að vera.
’ Virðistmörgum sem
drottningin sé
æ meira ut-
anveltu ‘
Skotið var af fallbyssum við Lundúnaturn
(e. Tower of London) í gær í tilefni þess að
fimmtíu ár eru liðin frá því að Elísabet II.
varð Englandsdrottning.
Reuters