Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 29
San Vicente Verð frá 7.387.000 ísl. kr.
White Lily Verð frá 12.195.795 ísl. kr.
Glæsilegt 2ja íbúða raðhús
2-3 svefnh. Er annað hvort á jarðhæð með garði eða
á efri hæð með svölum og þakverönd. Á sérstöku tilboði
með húsgögnum. Stutt í alla þjónustu. Sameiginleg
sundlaug. Nokkurra mínútna akstur í bæinn.
Þetta glæsilega parhús
er mjög vandað og staðsett í göngufæri frá stórkostlegri
strönd og nálægt allri þjónustu, verslunum, veitingastöðum,
börum og golfvöllum. Hverfið er með eigin sundlaug. Húsin
samanstanda af tveim eða þrem svefnherb., setustofu, eldhúsi,
wc, flísalögðu baðherb., stórum svölum ú af hjónaherbergi og
þakverönd. Hvert hús er með bílastæði og garði.
ATLAS INTERNATIONAL
Hluti af Atlashópnum hefur verið staðsettur í Torrevieja í 20 ár. Höldum sýningu á fasteignum frá sólarströnd Costa Blanca.
ÞITT HEIMILI Á
COSTA BLANCA
SPÁNI
VIÐ BJÓÐUM YKKUR HJARTANLEGA VELKOMIN Á KYNNINGARFUND UM HELGINA
9. OG 10. FEBRÚAR Á HÓTEL SÖGU, ÁRSÖLUM, 2. HÆÐ KL.12-17.
Ókeypis aðgangur. Sími 896 2047, Laddi. Komið, sjáið og fáið fría bæklinga!
MEÐ HÚ
SGÖGNU
M
Listasafn Reykjavíkur Hafnar-
húsinu Breski landslagsarkitektinn
Jonathan Bell heldur fyrirlestur er
hann nefnir Gresjan og fjallar þar
um verk sín og verk unnin í sam-
vinnu við aðra arkitekta og lista-
menn. Jonathan er kennari við
BCUC (Buckinghamshire Chilterns
University College) í Bretlandi.
Í DAG
RITHÖFUNDARNIR
Kari Aronpuro, Mikael
Torfason, Eva Runefelt og
Ole Korneliussen hitta ís-
lenska bókmenntaunnend-
ur í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20 en þau eru öll
tilnefnd til bókmennta-
verðlauna Norðurlanda-
ráðs. Þau munu spjalla
um störf sín og lesa brot
úr verkum sínum. Kynnir
er Jórunn Sigurðardóttir.
Í tilefni af 40 ára afmæli bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs,
og til að vekja athygli á 50
ára afmæli Norðurlanda-
ráðs, eru þeir rithöfundar
sem tilnefndir hafa verið í
ár nú í hringferð um
Norðurlöndin. Ferðin
hófst 29. janúar í Hels-
ingfors og mun ljúka í
Nuuk 11. febrúar nk.
Þann dag mun dómnefnd
bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs kveða
upp úrskurð sinn á fundi sem hald-
inn verður í Norræna húsinu í
Reykjavík.
Rithöfundar í Norræna húsinu
Mikael
Torfason
AFHENT voru í gær verðlaun í
Ráðhúsi Reykjavíkur í hugmynda-
samkeppni sem efnt var til í tilefni af
Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar sem
hefst 27. febrúar undir yfirskriftinni
Ljós í myrkri og stendur til 3 mars.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir af-
henti verðlaunin og kynnti verð-
launahugmyndirnar. Fyrstu verð-
laun 50 þúsund krónur hlaut Ilmur
María Stefánsdóttir fyrir verkið
Stjörnuhrap en hugmyndin er að
fleyta stórum plexiglerkúlum fyllt-
um ljósleiðaraslöngum á Reykjavík-
urtjörn í ákveðnu mynstri sem
spegla mun stjörnumerki himinsins.
Ingibjörg Sólrún kvaðst vonast til að
hægt að yrði að hrinda þessari hug-
mynd í framkvæmd svo hún yrði
hluti af dagskrá Vetrarhátíðarinnar.
Önnur verðlaun, 35 þúsund krón-
ur, hlaut Guðlaugur Valgarðsson
fyrir verkið Via Dolorosa en þar er
hugmyndin að taka kort af Jerúsal-
em og leið Krists upp á Golgatahæð
og leggja hana ofan á kort af miðbæ
Reykjavíkur þar sem Hallgríms-
kirkja yrði endastöðin. Á leiðinni
yrðu settir upp sjö lýsandi krossar.
Þetta verkefni hefur Þjóðkirkjan
tekið upp á arma sína og verður það
hluti af dagskrá Vetrarhátíðarinnar.
Þriðju verðlaun, 25 þúsund krónur,
hlaut Jón Sæmundur Auðarson fyrir
Fossinn en þar verður varpað kvik-
mynd af íslenskum fossi í fullri stærð
ásamt tilheyrandi áhrifshljóðum á
framhlið hússins á Aðalstræti 6.
Þessi hugmynd er þegar komin inn í
dagskrá Vetrarhátíðarinnar.
Lilja Hilmarsdóttir, verkefnis-
stjóri Vetrarhátíðarinnar, lýsti síðan
þeim drögum sem þegar eru tilbúin
að dagskrá hátíðarinnar og kennir
þar fjölmargra grasa og sagði hún að
enn væru að bætast við hugmyndir
svo búast mætti við þéttri og fjöl-
breyttri dagskrá við allra hæfi þegar
þar að kemur.
Meðal þess sem verður á dag-
skránni er glæsileg setningarhátíð
þar sem gengið verður frá Hlemmi
niður Laugaveg með kyndla og síðan
verður kveikt á stálmastri Lands-
virkjunar á Arnarhóli.
Þá verður boðið upp á fyrirlestra
um ljós í ýmsum skilningi, hægt
verður að taka þátt í Draugagöngu í
Elliðaárdal undir leiðsögn Helga
Sigurðssonar sagnfræðings.
Kór Íslensku óperunnar flytur
nokkrar þekktar óperuperlur og ís-
lensk sönglög á tvennum tónleikum
undir stjórn Garðars Cortes.
Þá verður hægt að taka þátt í
gönguferð um gamla kirkjugarðinn
undir leiðsögn Gunnars Bollasonar
og hlýða á Fræðslu- og skemmti-
kvöld í Stjórnstöð Landsvirkjunar á
vegum Þjóðminjasafns Íslands í
tengslum við sýninguna Saga raflýs-
ingar. Kaffileikhúsið býður upp á
Menningarkvöld í Hlaðvarpanum.
Í Skautahöllinni í Laugardal verð-
ur Fjölskylduhátíð og Kvöldvaka í
Ráðhúsinu með þátttöku Kvæða-
mannafélagsins, Þjóðdansafélagsins,
Bjarni Harðarson segir draugasög-
ur, Árni Björnsson fjallar um púka
og forynjur og Vinabandið, hljóm-
sveit eldri borgara, leikur. Í Sund-
höll Reykjavíkur verða haldnir sér-
stæðir „tónleikar í bólakafi.“ fyrir
unglinga á aldrinum 13–16 ára.
Kirkjurnar bjóða fjölbreytta tón-
leika meðan á hátíðinni stendur og í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
verður Vetrarhátíð með ljósadag-
skrá.
Þá verður sérstök hátíðardagskrá
fyrir alla fjölskylduna í Laugardals-
laug að kvöldi síðasta dags hátíðar-
innar.
Að sögn Lilju Hilmarsdóttur taka
nemendur Grunnskóla Reykjavíkur
virkan þátt í hátíðinni með ýmsu
móti og starf bæði skóla og leikskóla
verður sniðið að dagskrá hátíðarinn-
ar meðan á henni stendur. Aðalsam-
starfsaðilar Reykjavíkurborgar um
Vetrarhátíðina Ljós í myrkri eru
Landsvirkjun og Orkuveita Reykja-
víkur.
Verðlaun í hugmyndasamkeppni Vetrarhátíðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðlaunahafarnir þrír, Ilmur María Stefánsdóttir, Guðlaugur Val-
garðsson og Jón Sæmundur Auðarson.
Stjörnuhrap í
Reykjavíkurtjörn
EFLAUST muna margir leikhús-
gestir eftir frábærri sýningu Þjóð-
leikhússins á leikriti Erich-Emmanu-
el Schmitt, Abel Snorko býr einn,
sem sýnt var við miklar vinsældir
veturinn 1998-9. Það var því mikið til-
hlökkunarefni að fá að sjá annað verk
þessa höfundar sem hefur slegið
rækilega í gegn í heimalandi sínu,
Frakklandi, og víðar þrátt fyrir til-
tölulegan ungan aldur (hann er fædd-
ur 1960). Margt er í raun líkt með
þessum tveimur verkum; í þeim báð-
um kemur ókunnur gestur í heim-
sókn að kvöldlagi og heimsóknin á
eftir að koma miklu róti á hugsanir og
tilfinningalíf gestgjafans, sem í þessu
tilviki er enginn annar en faðir sál-
greiningarinnar, Sigmund Freud.
Gesturinn gefur sig út fyrir að vera
Guð í mannsmynd en gæti allt eins
verið geðsjúklingur sem sloppið hef-
ur af hæli eða þá aðeins hugarfóstur
Freuds – gestur sem heimsótti hann í
draumi eitt örlagaríkt kvöld þegar
hann beið frétta af afdrifum dóttur
sinnar, Önnu, sem tekin hafði verið til
yfirheyrslu af Gestapó. Hver hann er
í raun og veru er spurning sem hver
og einn áhorfandi verður að gera upp
við sjálfan sig, verkið lætur þeirri
spurningu ósvarað. En hvert sem
svarið kann að vera er ljóst að verkið
snýst fyrst og fremst um trúna og
hugmynd okkar um Guð. Það er því
ágætlega til fundið hjá höfundi að
láta gestgjafann vera Freud sem
hafnaði trúnni einarðlega í verkum
sínum þótt hann viðurkenndi að
trúarþörfin væri manninum eðlislæg
og að þjáning hans stafaði kannski
ekki síst vegna skorts á trú. Þjáning-
in steðjar að manninum frá líkama
hans, frá umheiminum og frá náung-
anum, skrifaði Freud í verki sínu,
Undir oki siðmenningarinnar, og
þjáningin er kannski ekki síst lifandi
og áþreifanleg vegna þess að engrar
lausnar er að vænta frá almáttugum
og yfirskilvitlegum Guði eða tilbún-
um trúarkerfum.
Höfundurinn hefur sagt frá því að
hugmyndin að verkinu hafi kviknað
út frá hugsuninni um það hvert Guð
gæti leitað í leit að lækningu við
þunglyndi sínu vegna breytni mann-
anna. Auðvitað til meistarans í fag-
inu, Sigmunds Freuds. Ef þetta er
rétt hefur Schmitt ekki unnið mikið
áfram með þá hugmynd því gesturinn
virðist ekki mjög hjálparþurfi, hann
virðist öllu fremur vera kominn til að
sannfæra Freud um tilvist sína. Sem
er í sjálfu sér athyglisvert viðfangs-
efni vegna þess að ef honum tækist
það ætlunarverk – að gera Freud trú-
aðan – væri hann jafnframt að kippa
grundvellinum undan fræðum hans
eins og þau leggja sig. Þessi ógnvæn-
lega staðreynd var ekki mjög áleitin í
þeim samskiptum Freuds og gestsins
sem verkið samanstendur af og hér
er veikleiki verksins fólginn að mínu
mati. Sá Freud sem stæði frammi
fyrir slíkri klemmu, að láta sannfær-
ast um tilvist Guðs og þar með ógilda
allt sitt starf var ekki sá Freud sem
skrifaður er inn í þetta verk. Eða að
minnsta kosti ekki í túlkun Gunnars
Eyjólfssonar því sá maður sem hann
túlkaði á sviðinu var maður sem virt-
ist öðrum þræði þrá það heitt að
sannfærast um tilvist Guðs og virtist
ekki búa yfir þeirri fjarlægð og íroníu
sem vænta hefði mátt af sálgreinand-
anum heimsfræga.
Margt gott má segja um verkið
sem og um leik og samleik þeirra
Gunnars Eyjólfssonar og Ingvars E.
Sigurðssonar í hlutverkum Freuds
og gestsins. Gervi Ingvars/gestsins
var skemmtilega tvírætt, búningur-
inn allt að því demónískur og túlkun
hans vó fagmannlega salt á milli hins
guðlega og hins djöfullega, milli hins
guðlega og hins mannlega. Þó get ég
ekki annað en fundið að því að Ingvar
virtist á stundum fara full vélrænt
með textann sinn, sérstaklega þegar
um langar einræður var að ræða. Hér
hefði Þór Tulinius leikstjóri mátt
vinna betur með leikaranum. Gunnar
flutti sínar einræður af öryggi en,
eins og áður sagði, þá voru þetta ein-
ræður manns sem þráir trúna fremur
en þess manns sem efast af einurð.
Jóna Guðrún Jónsdóttir skilaði hlut-
verki Önnu, dóttur Freuds, af mikl-
um sóma og Kristján Franklín Magn-
ús var afar sannfærandi í hlutverki
Gestapó-lögreglumannsins, bæði
þegar hann var í hlutverki kúgarans
sem og þegar hann fór halloka fyrir
aðdróttunum Freuds um hugsanlegt
gyðingablóð hans.
Verkið er vel upp byggt og textinn
ólgar af málsnilld og samræðulist
sem unun er á að hlýða og þýðing
Kristjáns Þórðar Hrafnssonar var í
flestu tilliti afar vönduð. Það kemur
hins vegar óneitanlega á óvart hversu
litlar tengingar eru í textanum við
fræðitexta Freuds og maður spyr sig
óhjákvæmilega af hverju höfundur
valdi hann sem gestgjafa (burtséð frá
þeirri skýringu sem hann sjálfur gef-
ur og vitnað var til hér að ofan). Af
hverju ekki Nietzsche?
Sem samræða um tilvist Guðs, eðli
hans og hlutverk í vondum heimi, er
verkið hins vegar snilldarlega samið
og gaman var að heyra í þeirri sam-
ræðulist aftur ýmsar hugleiðingar og
rökfærslur sem voru líkt og beint upp
úr æskuverkum Laxness (ekki síst
Vefaranum). En ef litið er á verkið
sem leikrit um Freud eru á því marg-
ar brotalamir sem erfitt er að sætta
sig við.
LEIKLIST
Þíbylja
Höfundur: Erich-Emmanuel Schmitt. Ís-
lensk þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson.
Leikstjóri: Þór Tulinius. Leikarar: Gunnar
Eyjólfsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóna
Guðrún Jónsdóttir og Kristján Franklín
Magnús. Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Búningar: Stefanía Adólfsdóttir. Lýsing:
Lárus Björnsson. Hljóð: Baldur Már Arn-
grímsson. Litla svið Borgarleikhússins 6.
febrúar.
GESTURINN
Að trúa
eða ekki
trúa …
Morgunblaðið/Ásdís
Gunnar Eyjólfsson og Ingvar E.
Sigurðsson í Gestinum.
Soffía Auður Birgisdóttir