Morgunblaðið - 07.02.2002, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 33
móti 18%
st
VR stytt-
ku á milli
amkvæmt
44 klst. í
kan hefur
t. í tæpar
æplega 2,5
ns nú má
vinnuviku
fgreiðslu-
ina stytt-
þess um
Vinnuvika
enda og
úa styttist
st um 1,5
illistjórn-
sa
ar starfs-
arfsfólk á
matvöru
na eða 47
t. styttri
nakönnun
árið 2000. Þá kemur fram í könn-
uninni að karla vinna að meðaltali 4
klst. lengur en konur á viku, eða 45
klst. á móti 41 klst.
Þegar vinnuvikan hjá starfsfólki í
fullu starfi er skoðuð eftir fyrir-
komulagi á yfirvinnu sést að þeir
sem eru með yfirvinnu innifalda í
launum og þeir sem fá yfirvinnu
greidda að hluta vinna lengstu
vinnuvikuna að meðaltali, 43,6 klst.
Hjá þeim sem vinna ekki yfirvinnu
er vinnuvikan jafnan 38,8 klst.
Hærri laun með
meiri menntun
Menntun skilar hærri launum
skv. könnuninni. Starfsfólk með há-
skólapróf er með hæstu heildar-
launin eða 291 þúsund kr. á mánuði
að meðaltali. Því næst kemur
starfsfólk með próf úr sérskólum á
háskólastigi en heildarlaun þess
nema 255 þúsund kr. Starfsfólk
með grunnskólapróf og starfsnám
rekur lestina með lægstu heildar-
launin, það fyrrnefnda með 211 þús-
und kr. en það síðarnefnda 203 þús-
und kr. í heildarlaun.
Launaviðtöl skila árangri
Háskólamenntuðum félagsmönn-
um VR fjölgaði um 3,3% á milli ár-
anna 2000 og 2001 skv. könnuninni
og eru þeir nú 28% félagsmanna.
Starfsfólki með starfsmenntun
fækkaði um tæplega 2% og er það
nú um 10%. Rúmlega 40% fé-
lagsmanna eru með framhalds-
skólapróf og 21% með grunnskóla-
próf.
Fjórir af hverjum tíu félagsmönn-
um VR gefa upp í könnuninni að
þeir hafi farið í launaviðtal á und-
anförnu ári en í síðustu kjarasamn-
ingum var samið um rétt starfs-
manns til árlegs viðtals við
yfirmann sinn um störf sín og hugs-
anlega breytingu á starfskjörum.
Mikill meirihluti þeirra sem fóru í
launaviðtal fékk breytingu á kjörum
sínum í kjölfar viðtalsins. 67% fengu
launahækkun og 6,5% fengu launa-
hækkun ásamt fríðindum, skv. nið-
urstöðum könnunarinnar. Til fríð-
inda teljast t.d. aukið frí, sveigjan-
legri vinnutími o.fl.
Skrifstofufólki gekk yfirleitt bet-
ur í launaviðtölum en öðrum starfs-
stéttum en 84% þess fengu launa-
hækkun eða hækkun ásamt auknum
fríðindum eftir viðtalið en hjá öðr-
um starfsstéttum var þetta hlutfall
67–76%. Ekki er marktækur munur
milli kynja, hvorki hvað varðar hlut-
fall þeirra sem farið hafa í viðtal né
á árangri viðtalsins.
Stjórnendur og sérfræðingar
ánægðastir með laun sín
58% þátttakenda í könnuninni
sögðust vera sátt við laun sín, þar af
7% mjög sátt. Stjórnendur og sér-
fræðingar eru ánægðastir með sín
laun en 67% þeirra sögðust sátt eða
mjög sátt.
Sölu- og afgreiðslufólk er
óánægðast með laun sín en 52%
starfsmanna í þeirri starfsstétt eru
ósátt eða mjög ósátt. Þessar niður-
stöður endurspegla þau laun sem
hóparnir hafa en stjórnendur eru
hæst launaða starfsstéttin og af-
greiðslufólk er í hópi þeirra lægst
launuðu. Stærð fyrirtækis virðist
einnig hafa áhrif á ánægju eða
óánægju starfsmanna með laun sín.
Þannig eru starfsmenn minni fyr-
irtækja sáttari við launin en starfs-
menn stærri fyrirtækja. 64% starfs-
manna hjá minni fyrirtækjum
sögðust sátt eða mjög sátt á móti
57% hjá þeim stærri. Þetta gengur
hins vegar þvert á þær niðurstöður
sem koma fram í launagreiningu
könnunarinnar því starfsmenn
minni fyrirtækjanna eru yfirleitt
með lægri laun en þeir sem starfa
hjá stærri fyrirtækjum.
Þá kom fram að karlar meta störf
sín að jafnaði til 15% hærri launa en
konur gera skv. svörum þeirra í
könnuninni.
Stærri fyrirtæki borga betur
Skv. könnuninni eru þeir sem
hafa stystan starfsaldur, 5 ár eða
færri, að meðaltali með lægri laun
en þeir sem hafa lengri starfsaldur.
Þá eru að jafnaði greidd hærri laun í
fyrirtækjum með 10 eða fleiri
starfsmenn en þar sem 10 eða færri
starfsmenn starfa og munar þar að
meðaltali 6% á dagvinnulaunum. Yf-
ir 80% svarenda starfa hjá stærri
fyrirtækjum.
Verulegur árangur unnist
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, sagði í gær að hugmyndafræðin
á bak við launakannanirnar væri sú
að upplýsa hver væru raunveruleg
markaðslaun í einstökum starfs-
greinum og félagsmenn gætu þar
með borið laun sín saman við laun
sem greidd eru í hliðstæðum starfs-
greinum.
,,Þessi launakönnun sýnir að
verulegur árangur hefur unnist í
þeim málum sem VR hefur lagt sér-
staka áherslu á á síðustu misserum,
t.d. að lægstu launin hafa hækkað
mest á milli áranna. Launaviðtöl
skila sýnilegum árangri í launaþró-
uninni, vinnuvikan hefur styst og
launamunur kynjanna hefur minnk-
að,“ sagði Magnús um niðurstöð-
urnar.
á seinasta ári samkvæmt niðurstöðum launakönnunar VR
g
st
unblaðið/Golli
!"#$
# 86
2
5$
* 5
5$
# 5$ 3
9
!%#" " " # - 65' 5$ :
2
5' 3 5$ :
;
29 4 < 33
=
> $5$
'
? : <:
" ""
- 6 <:
@ $
" "" &
$"
$ 0 6 '
2
@
4 < ' ("
$ " 29
9
# () ("*
$ '"
@5<: $ ; $3
=
$:
6 4
:4 4
:4 4
7
7
7
&7
17
17
7
,7
+7
7
17
(7
(7
(7
5
7
(7
7
7
.7
7
17
7
.7
7
7
(7
(7
+7
7
17
&7
"!
"!
" "$
"#$
"
" " " !#
" $"
$"
$
!
!
" !
!
!
"$
" " "!
"
" " " " "
$
" $
" #"
" $
#!
#
$
!
"
Í NÝRRI umferðaröryggis-áætlun 2002 til 2012, semkynnt var á blaðamannafundií gær, er að því stefnt að bana-
slysum og öðrum alvarlegum slysum
fækki um a.m.k. 40% fyrir lok ársins
2012. Það þýðir að ekki fleiri en 120
slasist alvarlega eða látist í umferð-
arslysum á ári. Þar kemur einnig
fram að langtímamarkmið til ársins
2025 er að ekki fleiri en einn slasist
alvarlega eða látist í umferðarslysi í
viku hverri árið 2025 eða 52 á ári.
Til þess að þessi markmið náist
eru í áætluninni lagðar fram ýmsar
aðgerðir í umferðaröryggismálum.
Til að mynda er lagt til að stefnt
verði að því að bæta enn frekar
menntun nýliða í akstri og koma á
markvissari endurmenntun fyrir þá
sem þegar hafa öðlast ökuréttindi. Í
áætluninni kemur fram að á síðustu
fimm árum hafi 21 látist að meðaltali
í umferðinni á ári og um 210 slasast
alvarlega. „Auk hins mannlega
harmleiks er þjóðhagslegur kostn-
aður umferðarslysa, sem valda
dauða eða alvarlegum meiðslum, tal-
inn vera á bilinu 8–10.000 milljónir á
ári, en áætlað er að umferðarslys
með og án meiðsla kosti þjóðfélagið
allt að 20 milljarða króna árlega.“
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra kynnti umferðarörygg-
isáætlunina á blaðamannafundi í
gærdag og greindi hún frá því að í
nóvember sl. hefði hún skipað
starfshóp sem falið var að ljúka gerð
áætlunarinnar en áður hafði um-
ferðaröryggisnefnd, sem lauk störf-
um í árslok 2000, skilað drögum að
áætluninni. Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs, var
skipaður formaður starfshópsins.
„Þessi umferðaröryggisáætlun er
stórt og mikið plagg og margar at-
hyglisverðar tillögur koma þar
fram,“ sagði ráðherra og bætti því
við að á næstunni yrði lögð fram á
Alþingi þingsályktunartillaga sem
byggðist á áætluninni.
Ráðherra sagði að þegar væri far-
ið að vinna að ýmsum þeim tillögum
sem fram kæmu í áætluninni, t.d.
með undirbúningi að breytingu á
lögum. „Það er þó mikilvægt að hafa
í huga að stefna sem þessi á ávallt að
vera til endurskoðunar, enda er lagt
upp með það í skýrslunni að á hverju
ári taki Alþingi til umfjöllunar ár-
angur liðins árs og fjalli um aðgerð-
aráætlun næsta árs. Tillögur starfs-
hópsins mynda ákveðinn ramma
utan um það sem framundan er, þótt
einstakar tillögur séu ef til vill um-
deilanlegar og þurfi frekari skoðun-
ar við.“ Meðal þeirra tillagna sem
starfshópurinn leggur til í áætlun-
inni er að hraðamerkingar á þjóð-
vegum verði auknar og að gerð verði
sérstök úttekt á því hvort taki eigi
upp þá stefnu að minnka leyfðan há-
markshraða á hættulegum vegar-
köflum, s.s. við einbreiðar brýr,
blindhæðir og í kröppum beygjum.
Viðurlög verði hert
Starfshópurinn leggur einnig til
að skipuð verði umferðaröryggis-
nefnd á ný og að hún verði skipuð á
svipaðan hátt og gert er hjá mörgum
öðrum þjóðum. „Nauðsynlegt er að í
hana séu valdir menn frá Alþingi,
t.d. þingmenn úr allsherjar- og sam-
göngunefnd, sem vinni að framgangi
umferðaröryggisáætlunar, ásamt
mönnum með sérfræðikunnáttu í
umferðaröryggismálum. Tilgangur
nefndarinnar verði að leggja fram
tillögu að stefnu stjórnvalda í um-
ferðaröryggismálum sem síðan yrði
tekin fyrir á Alþingi og afgreidd
þaðan. Gefin verði út reglugerð um
hlutverk og tilgang nefndarinnar
eins og gert hefur verið fyrir Rann-
sóknarnefnd flugslysa,“ segir í áætl-
uninni.
Starfshópurinn leggur sömuleiðis
til að að sektir sem innheimtast
vegna aksturs gegn rauðu ljósi,
hraðaksturs og ölvunaraksturs
renni í sérstakan sjóð, svonefndan
eftirlits- og þróunarsjóð lögreglunn-
ar. „Sjóðurinn verði notaður til að
kosta eftirlit með fyrrgreindum
brotum, til rannsókna og tækja-
kaupa og þróunar á sviði umferðar-
öryggismála. Þegar ökumenn brjóta
mikið af sér verða tekjur miklar en
með fækkun brota kemur minna í
sjóðinn og þörfin þá eðlilega minni,“
segir í áætluninni.
Þá leggur starfshópurinn til að
viðurlög við alvarlegum umferðar-
lagabrotum verði hert enn frekar
enda telur hann að dómar séu í
mörgum tilvikum ekki í samræmi
við alvarleika brota. „Er þar sér-
staklega litið til ölvunaraksturs og
hraðaksturs, en viðurlög við slíkum
brotum eru hér mun vægari en á
öðrum Norðurlöndum, hvort sem
litið er til sektarfjárhæðar eða tíma-
lengdar ökuleyfissviptingar,“ segir
starfshópurinn í áætluninni. Hann
leggur til að sektir verði hækkaðar
vegna vanrækslu á notkun bílbelta.
Loks er lagt til að metið verði
hvort lækka eigi refsimörk vegna
ölvunaraksturs úr 0,5 í 0,2 prómill,
eins og þegar hafi verið gert m.a. í
Noregi og Svíþjóð.
Umferðaröryggisáætlun lögð fram
Umferðarslys
kosta þjóðfélag-
ið um 20 millj-
arða kr. árlega
Tillaga starfshóps um umferðaröryggisáætl-
un til ársins 2012 var kynnt á blaðamanna-
fundi í gær. Í tillögunni er meðal annars lagt
til að refsimörk vegna ölvunaraksturs verði
lækkuð úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill.
Morgunblaðið/Golli
Sólveig Pétursdóttir og Óli H. Þórðarson kynna áætlunina.
kki
. Voru
meta
lit og
ð og hára-
di í ljós
il hópa
arfsmenn
ur telja
og betri
telja sig
s vegar
smenn er
s vegar
i minna
un en
störf að
nuninni.
ir árið
2000 kom fram að hávaxnari
starfsmenn fá að jafnaði hærri
laun en lágvaxið starfsfólk. Þeg-
ar kynin eru skoðuð sérstaklega í
könnuninni nú kemur þessi mun-
ur aftur fram hjá konum, en ekki
er tölfræðilega marktækur mun-
ur á launum karla eftir hæð.
Munar alls 29 þúsund krónum á
heildarlaunum lágvaxnari kvenna
og þeirra sem hávaxnari eru.
Friðrik H. Jónsson, for-
stöðumaður Félagsvísindastofn-
unar, segir það ekki út í hött að
spyrja um mat starfsmanna á
eigin útliti, um hæð þeirra
o.s.frv. því rannsóknir hafa sýnt
að ólíklegustu atriði hafi áhrif á
samninga starfsmanna og stjórn-
enda um launakjör.
m
, , )
(
B))
& B()
1 B&
B1
%
%
!%$
%
%!
%!
%"
%
%
%$
4
#$%
&
Tæp 40% hafa farið í launaviðtal
og 84% þeirra fengu launahækkun.
Dagvinnulaun hækkuðu mest
hjá starfsfólki í öryggisvörslu, hús-
og símavörslu, ræstingum og hjá
afgreiðslufólki á kassa.
Starfsfólk við afgreiðslu á kassa
og á matvöru vinnur 47 klst á viku.
Karlar eru með hærri laun en
konur á öllum menntunarstigum.
Hæst laun greidd í fyrirtækjum
sem sérhæfa sig í tölvuþjónustu og
fjarskiptum.
Karlar fá að meðaltali 23.250 kr.
á mánuð í bílastyrk en konur
17.580 kr.
Konur segjast vilja að meðaltali
240 þús. í dagvinnulaun en karlar
284 þús.
Konur sem gáfu sér háa einkunn
fyrir útlit eru með 8% hærri laun
en þær sem gáfu sér lága einkunn.
21–45 ára starfsfólk segist mest
sátt með laun sín en minnst sátt er
meðal fólks á aldrinum16–20 ára.
Stjórnendur telja sig betur útlít-
andi en almennir starfsmenn telja
sig vera.
Punktar úr VR-könnun