Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 39
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
67
25
02
/2
00
2
fimmtudag til sunnudags
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Útsölu
lok
20%
af 20 pottaplöntutegundum
aukaafsláttur
un barnanna að vera samfelld og í
góðu samræmi innbyrðis milli skóla-
stiganna. Sem leik- og grunnskóla-
kennari gef ég kost á mér til að
standa vörð um áframhaldandi
uppbyggingu öflugs skólastarfs á
öllum skólastigum.
auka samvinnu á milli skólastig-
anna.
börnin okkar njóti sem fjölbreytt-
astra kosta í námi, jafnt í verk-
námi sem bóknámi
efla uppbyggilegar tómstundir
æskufólks undir handleiðslu
hæfra leiðbeinenda.
standa vörð um aukna menningar-
starfsemi í bænum.
efla tónlistariðkun og tónlistar-
nám á öllum skólastigum.
Ég vil sjá bæinn okkar iða af tón-
list og skapandi skólastarfi. Við höf-
um alla burði til þess. Við státum af
góðum skólum, góðum kennurum,
góðum íþróttafélögum og mjög öfl-
ugu tónlistarhúsi, Salnum, sem iðar
af lífi flesta daga vikunnar.
Ég hvet alla Kópavogsbúa til að
taka þátt í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Kópavogi laugardaginn 9.
febrúar nk. í Félagsheimili Kópa-
vogs. Kópavogsbúi! Gríptu tækifærið
– taktu þátt í að velja þinn fulltrúa á
framboðslista.
Höfundur er frambjóðandi í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi og gefur kost á sér
í 4. sæti listans. www.johanna.is
Kópavogur
Með bæjarskipulagi,
segir Jóhanna
Thorsteinson, er verið
að móta framtíðina.
ÞAÐ hefur orðið mikil vakning
meðal almennings um umhverfis- og
skipulagsmál, hinn almenni borgari
hefur látið framtíð umhverfis varða
og reynt að hafa áhrif.
Lög í landinu gera ráð fyrir rétti
borgaranna til að hafa áhrif á um-
hverfi sitt í skipulags- og bygginga-
lögum 170/2000. Staðardagskrá 21
(Local Agenda 21), sem er samning-
ur sem umhverfisráðuneyti og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga gerðu
með sér árið 1998, gerir m.a ráð fyrir
samráði sveitastjórna við íbúa um
framtíð umhverfis síns.
Kópavogur hélt íbúaþing, sem
byggði á Staðardagskrá 21 þann 3.
febrúar 2001, sem var mjög áhuga-
vert og lýðræðislega stjórnað og allir
gátu sett fram hugmyndir í mörgum
málflokkum. Niðurstöðurnar eiga
síðan að vera grunnur um stefnu-
mótun bæjaryfirvalda. Ég efast ekki
um að þetta hafi kostað dágóðan
skilding að halda þetta þing. En
verður þetta ekki bara hunsað og
eiginhagsmunapot og pólitík ráða
áfram? Íbúar við Vatnsenda sem búa
í Kópavogi hafa heldur betur þurft
að finna fyrir yfirgangi bæjaryfir-
valda og þar virkar ekki Staðardag-
skrá 21, þó svo íbúar hafi hundruðum
saman sent inn tillögur og athuga-
semdir um skipulagsmál. Og ekki má
gleyma áskorun 11.000 þúsund ein-
staklinga um að falla frá skipulags-
tillögum bæjarfélagsins, varðandi
byggð á bökkum Elliðavatns.
Íbúasamtökin „Sveit í borg“ gerðu
vandaða og víðamikla skoðanakönn-
un um skipulagsmál og framtíð
Vatnsenda. Yfir 80% íbúa skiluðu inn
niðurstöðum, stjórn samtakanna
vann síðan greinargóða skýrslu og
sendi inn til bæjarstjórnar Kópa-
vogs. Í framhaldi af þessu innti ég
bæjarfulltrúa um innihald skýrsl-
unnar, svarið var „já hún er afskap-
lega vel unnin“. Ég hef það sterklega
það á tilfinningunni að henni verði
stungið undir stólinn, eins og öðrum
tillögum frá íbúum við Vatnsenda.
Mig langar að kynna fyrir lesend-
um að efst í Elliðaárdalnum mun rísa
athafnasvæði og yfir því gnæfa vöru-
skemmur sem verða 18 þúsund fer-
metrar á grunnfleti og 15 metrar að
hæð á einum besta útsýnisstað í
Kópavogi.
Vegna fjölda áheita ætla ég að
skella mér í slaginn og berjast fyrir
rétti íbúa í Kópavogi og reyna að
bæta bæjarfélagið á öllum sviðum.
Ég óska eftir stuðningi eitt af
efstu sætum í lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi þann 9. febrúar næst-
komandi.
Sýndarlýðræði í
bæjarstjórnarmálum
Björn
Ólafsson
Kópavogur
Ég ætla, segir Björn
Ólafsson, að berjast fyr-
ir rétti íbúa. Og reyna
að bæta bæjarfélagið.
Höfundur er matreiðslumeistari
og tekur þátt í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Kópavogi.
w
w
w
.t
e
xt
il.
is
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía