Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 41
SIGURRÓS Þorgrímsdóttir hef-
ur verið bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Kópavogi síðasta kjör-
tímabil, forseti
bæjarstjórnar
1999–2000 og í bæj-
arráði 2000–2001.
Hún hefur sýnt og
sannað að hér fer
vel menntuð kona
með mikinn áhuga á
málefnum bæj-
arfélagsins, ekki
síst menntamálum, málefnum fjöl-
skyldunnar, atvinnumálum og
íþrótta- og tómstundamálum.
Sigurrós er formaður skóla-
nefndar Menntaskólans í Kópavogi
og hefur hún staðið þétt við bakið
á MK við að efla skólastarfið en nú
er fyrirhugað að byggja nýja bók-
námsálmu við skólann. Sem for-
maður leikskólanefndar hefur Sig-
urrós beitt sér fyrir fjölgun
leikskólarýma með frábærum ár-
angri og lagt áherslu á innra starf
leikskólanna.
Í framsæknu bæjarfélagi er
mikilvægt að bæjarfulltrúar séu
næmir á umhverfi sitt og þarfir
íbúanna. Það er von mín að við
Kópavogsbúar fáum að njóta
starfa Sigurrósar áfram í næstu
bæjarstjórn – tryggjum henni 3.
sæti listans.
Sigurrós – öfluga
konu til forystu
Margrét Friðriksdóttir skólameistari
skrifar:
Margrét
Friðriksdóttir
ÉG gladdist óneitanlega þegar ég
frétti að Jóhanna Thorsteinson leik-
skólastjóri tæki þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi. Jóhönnu
hef ég þekkt alla
mína ævi og í mínum
augum stendur Jó-
hanna fyrir áreið-
anleika, góðar hug-
myndir og það sem
mestu skiptir, fram-
kvæmdir. Jóhanna
hefur verið leikskólastjóri í fjórum
leikskólum þar sem hún hefur
byggt upp öfluga og góða starfsemi
og haldið mjög á lofti mikilvægi tón-
listariðkunar. Nú nýlega tók hún við
leikskólanum í Álfatúni þar sem hún
mun án efa byggja upp góðan leik-
skóla og skapa börnum þar ánægju-
legan vettvang til vaxtar og þroska.
Jóhanna hefur líka sérstakan áhuga
á tengingu leikskóla og grunnskóla,
en hún hefur nýlega lokið námi
grunnskólakennara þar sem hún
sérhæfði sig í kennslu yngri barna
og tónmenntum. Auk þess lauk hún
Dipl.Ed. námi í stjórnun. Jóhanna
hefur sérstakan áhuga á skipulags-
og umferðarmálum auk fræðslu- og
menningarmála. Tryggjum Jó-
hönnu öruggt sæti í bæjarstjórn
Kópavogs.
Tryggjum
Jóhönnu öruggt
sæti
Edda Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og
lyfjafulltrúi skrifar:
Edda
Sveinsdóttir
Meira á mbl.is/aðsendar greinar
HERDÍS Sigurjónsdóttir býður
sig fram til forustu á lista sjálfstæð-
ismanna fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Her-
dís hefur setið í
bæjarstjórn í Mos-
fellsbæ síðan 1998
og starfað þar af
miklum krafti. Ég
þekki vel til Her-
dísar bæði sem sam-
starfsmanns á vinnu-
stað og í félagsstarfi.
Hún vinnur skipulega að þeim verk-
efnum sem hún tekur að sér og
fylgir þeim eftir. Hún á auðvelt með
að vinna með ólíku fólki. Ég treysti
Herdísi fullkomlega til að vera
áfram í forustusveit sjálfstæð-
ismanna í Mosfellsbæ. Ég hvet fólk
til að taka þátt í prófkjörinu hinn 9.
febrúar næstkomandi og velja Her-
dísi Sigurjónsdóttur í fyrsta sæti á
lista sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórnarkosningunum í vor.
Veljum Herdísi
til forustu
Kristján Sturluson framkvæmdastjóri
skrifar:
Kristján
Sturluson
Í ÞAU átta ár sem Sigurrós Þor-
grímsdóttir hefur átt sæti í bæj-
arstjórn Kópavogs hefur hún tekið
ötulan þátt í örri og
farsælli uppbygg-
ingu bæjarins. Fjölg-
un leikskólaplássa,
stórfelld fækkun
leikskólabarna á bið-
lista, tilurð Smára-
lindar sem eins öfl-
ugasta kjarna
verslunar og við-
skipta höfuðborgarsvæðisins og
landnám upplýsingatækninnar innan
leikskóla og grunnskóla bæjarins eru
aðeins örfá atriði af þeim fjölmörgu
sem Sigurrós hefur unnið að.
Ég vil því eindregið hvetja alla
Kópavogsbúa til að greiða Sigurrós
atkvæði sitt í opnu prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi 9. febrúar
nk. Sigurrós hefur sannað það og
sýnt að hún á verðskuldað erindi í
framvarðarsveit okkar sjálfstæð-
ismanna á vettvangi bæjarmálanna.
Kjósum Sigurrós!
Helga Guðrún Jónasdóttir
stjórnmálafræðingur skrifar:
Helga Guðrún
Jónasdóttir
Meira á mbl.is/aðsendar greinar
MARGT gott fólk gefur kost á
sér í framboð til prófkjörs sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ 9. febr-
úar nk. Þar á meðal
er Gylfi Guðjóns-
son, sem hefur að
baki langa búsetu í
Mosfellsbæ. Hann
er kraftmikill fram-
kvæmdamaður með
mikla reynslu af
bæjarstjórnar-
málum. M.a. var
hann formaður skipulagsnefndar
1994-98 og beitti sér þá verulega
fyrir lagfæringum á Vesturlands-
vegi, sem um árabil hafði kostað
mörg stórslys og óhöpp í umferð-
inni um bæinn. Síðan þessi lagfær-
ing fór fram hefur óhöppum og
slysum stórfækkað á vegarkafl-
anum.
Gylfi sýndi alúð og skilning í
vinnu sinni fyrir bæjarfélagið og
naut vinsælda fyrir störf sín.
Þegar Heilsugæsla Mosfells-
umdæmis og starfsfólk hennar átti
við vanda að stríða um tíma sýndi
Gylfi Guðjónsson stuðning í orði og
verki. Ég vil hvetja Mosfellinga til
að styðja þennan drengilega at-
hafnamann í prófkjörinu og skipa
honum veglegan sess í bæjar-
stjórn.
Kraftmikinn
mann í
bæjarstjórn
Ingvar Ingvarsson læknir skrifar:
Ingvar
Ingvarsson