Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Helga ÞuríðurÞorgeirsdóttir fæddist í Keflavík 9. júlí 1950. Hún lést 31. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorgeir Gísla- son húsasmiður, f. á Þóroddsstöðum í Miðneshreppi 15.8. 1908, d. 15.12. 1993, og Kristín Björns- dóttir húsmóðir og afgreiðslukona, f. á Svínaskála við Eski- fjörð 22.8. 1915, d. 22.8. 1975. Systkini hennar sammæðra voru Ásbjörn, f. 4.4. 1934, d. 1.1. 1994, Páll Ágúst, f. 10.5. 1935, d. 1.1. 1954, Gunnar Þór, f. 23.8. 1936, d. 3.6. 1973, Sigríður Kristín, f. 27.11. 1937, Halla Sigríður, f. 26.12. 1939, Hjálmar Steinar, f. 11.4. 1941, Arndís Kristín, f. 22.11. 1945, og Pálína Ólöf, f. 14.5. 1954. Helga bjó í föðurhúsum í Keflavík til tveggja ára aldurs en síðan ólst hún upp hjá móður sinni og fóst- urföður, Hauki Magnússyni, f. 25.7. 1912, d. 10.6. 1996, lengstum á Seljaveginum í Reykjavík. Helga giftist 7.10. 1978 Birni H. Jóhannes- syni forstjóra, f. 13.4. 1951. Hann er sonur Kristínar Björnsdóttur hús- móður, f. 6.8. 1927, og Jóhannesar Pét- urssonar kennara, f. 3.8. 1922, d. 5.9. 2000. Börn Helgu og Björns eru Bjarki, f. 22.3. 1979, Kristín, f. 23.2. 1982, og Anna, f. 26.4. 1983. Helga lauk kennaraprófi frá KÍ 1971 og stúdentsprófi frá sama skóla 1972. Hún sótti sér viðbót- armenntun á fjölda námskeiða heima og erlendis. Að námi loknu hóf Helga störf sem einkaritari á lögfræðiskrifstofu auk starfs í menntamálaráðuneytinu. Árið 1975 hóf hún kennslu við Hóla- brekkuskóla og starfaði þar æ síð- an. Útför Helgu fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Á þessari stundu er erfitt að sætta sig við ótímabæra kveðju- stund. Yfir mig hellist tómleiki og söknuður er ég kveð kæra systur mína, Helgu Þuríði Þorgeirsdóttur. Helga var mér meira en systir, hún var einnig mín besta vinkona. Ætíð var gott til hennar að leita enda hlý og ráðagóð. Helga sýndi fjölskyldu sinni mikla umhyggju, var börnum sínum afbragðsgóð móðir og eig- inmanni sínum, Birni Jóhannes- syni, góð eiginkona. Í starfi sínu sem kennari sýndi hún og sannaði góða hæfileika og mannkosti og eru þau eflaust mörg börnin sem eiga henni mikið að þakka. Helga var ætíð staðföst og traust. Elsta minning mín um elskulega systur er frá deginum er hún fædd- ist heima á Tjarnargötu 14 í Kefla- vík. Hún var myndarleg 20 marka rauðhærð hnáta, sem mér þótti frá þeirri stundu svo undur vænt um. Allir fengu strax dálæti á fallegu systur minni. Við ólumst upp sam- an og æska mín er samtvinnuð minningum um Helgu og samfylgd okkar. Margt var brallað hjá okkur systrum bæði þegar við áttum heima í litla húsinu í Kópavoginum og síðar þegar við bjuggum í Vog- unum og við Seljaveginn. Sem barn var Helga einstaklega ljúf og svo nákvæm og vandvirk að um var tal- að. Rithönd hennar var skýrt dæmi um það og vinnubrögð almennt. Sem unglingur og ung kona ferðað- ist Helga víða. Með stuðningi föður síns dvaldist hún við nám erlendis öll sumur, í Danmörku, Englandi og Frakk- landi. Þar lærði hún tungumál og kynntist menningu annarra landa. Enda var Helga alla tíð dugleg við að auka við og viðhalda færni sinni og menntun. Sem ung kona kynntist Helga eftirlifandi eiginmanni sínum, Birni Jóhannessyni, sem ætíð reyndist henni góður eiginmaður. Helga og Björn voru eitt í huga okkar. Þau voru ætíð samstiga og glæsileg hjón. Þau eignuðust þrjú mann- vænleg börn, sem nú sjá á eftir ást- kærri móður sinni. Börnin, Bjarki, Kristín og Anna, eru öll elskuleg og efnileg enda fallega og vel hlúð að þeim alla tíð. Helga reyndist börn- um sínum ætíð hin besta móðir og hefur búið þeim gott veganesti til allrar framtíðar. Það vitum við sem þekktum Helgu. Hún var ákaflega elsk að börnum sínum og sýndi þeim stuðning og virðingu svo að til fyrirmyndar er. Helga var alltaf ljúf og yndisleg, vel menntuð og vitur kona. Hún var einnig glettin og skemmtileg með gott skopskyn. Í veikindum sínum sýndi Helga ein- dæma styrk og æðruleysi og stóðu eiginmaður hennar og börn þétt við hlið hennar öll sem eitt. Væntum- þykja og umhyggja þeirra allra fyr- ir Helgu í veikindum hennar var aðdáunarverð og æðruleysi hennar sjálfrar, lét ekkert okkar ósnortið. Helga kom ætíð fram við fjöl- skyldu sína alla og samferðafólk af virðingu, kærleika og ekki síður hreinskilni og heiðarleika. Þannig var Helga systir mín. Álit Helgu og ráðleggingar almennt voru okkur öllum sem að henni stóðum ætíð mikils virði. Í lífi og starfi var Helga vönduð og góð kona. Heiðruð sé minning hennar. Með þessum orðum kveð ég hjartkæra systur mína og votta Birni, Bjarka, Kristínu og Önnu og öðrum aðstandendum mína innileg- ustu samúð. Helgu þakka ég fyrir samfylgd- ina og væntumþykju hennar í minn garð, eiginmanns míns og dætra. Megir þú, kæra systir, hvíla í friði. Þín systir, Arndís. Í dag kveðjum við Helgu Þ. Þor- geirsdóttur sem lést 31. janúar síð- astliðinn, langt fyrir aldur fram. Helga kenndi við Hólabrekkuskóla í fjölda ára og gat sér þar gott orð. Samviskusemi, þolinmæði og ná- kvæmni voru aðalsmerki hennar og þessir eiginleikar komu sér sér- staklega vel í kennslunni. Helga var heil og sönn í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og sinnti af alúð þeim verkefnum sem hún tók að sér. Hún gerði nokkurra ára hlé á kennslu til að sinna eigin börnum og þegar hún sneri síðan til kennslu valdi hún að koma aftur í Hóla- brekkuskóla og erum við þakklát fyrir það. En skjótt skipast veður í lofti. Í október síðastliðnum greind- ist Helga með illvígan sjúkdóm og þrátt fyrir bjartsýni og trú á bata urðu örlögin ekki flúin. Dagurinn líður – Hægan himni frá höfgi fellur angurvær á dalablómin smá. Og hvítir svanir svífa hægt til fjalla með söng, er deyr í fjarska. Dagurinn líður – Hann deyr með brosi á vör, því ganga hans í dauðann er dýrleg brúðarför. Svo eru sorgir vorsins síðla er sól til viðar hnígur. Og nóttin krýpur bláklædd í bæn að fótskör hans, og bjarma slær á strendur hins myrka draumalands. En þaðan stíga sumarkvöldsins söngvar er sól til viðar hnígur. (Tómas Guðmundsson.) Við kveðjum Helgu með söknuði en um leið þakklát fyrir að hafa notið samvista við hana undangeng- in ár og við vottum eiginmanni hennar og börnum dýpstu samúð. Megi minningin um góða eiginkonu og móður verða huggun á sorgar- stundu. Starfsfólk Hólabrekkuskóla. Vináttan er ein af dýrmætustu gjöfum, sem forsjónin gefur okkur. Gildi hennar verður seint til fulls metið og oft og tíðum gætum við þess ekki sem skyldi að rækta hana, gefa henni tíma, halda henni við og njóta meðan kostur er. Að eiga góða og trausta vini, eiga með þeim innihaldsríka og gefandi sam- fundi, er ein dýrmætasta gjöf lífs- ins og verður seint metin sem skyldi. Eitthvað á þessa leið reikaði hug- urinn við mjög svo ótímabært frá- fall okkar elskulegu vinkonu, Helgu Þ. Þorgeirsdóttur. Við erum í gegn- um tíðina búin að eiga samleið á svo marga og skemmtilega vegu með þeim Helgu og Birni og síðar einnig börnum þeirra, eftir að þau komu til sögunnar. Atvikin höguðu því svo, að gangur lífsins hjá þeim og okkur var á svo margan hátt í svip- uðum takti, áhugamálin lík, börnin okkar á svipuðum aldri og tilefnin til samfunda því ærið mörg. Við minnumst ótal skemmtilegra stunda við spilamennsku, ferðalög, afmæli og ýmsa aðra tímamótaat- burði hjá fjölskyldum okkar en gagnkvæmur áhugi og ástundun var einhvern veginn sjálfsagður hlutur hjá báðum á slíkum stund- um. Ekki þurfti alltaf tilefni til að hittast, stundum var bara „kíkt inn“ bara svona af engu tilefni og ávallt var eins og við hefðum hist síðast í gær, þótt í reynd væri e.t.v. talsvert um liðið. Það var bara ein- hvern veginn sjálfsagt að þetta væri svona. Hún Helga vinkona okkar var á margan hátt alveg einstök. Hrein og bein í samskiptum, elskuleg en jafnframt ákveðin, jákvæð, glað- sinna og hlátur hennar smitandi. Röddin hlý og notaleg. Hún hafði einstaklega góða nálægð. Helga var nákvæm og sannur fagurkeri í bestu meiningu þess orðs og tókst ávallt að skapa sér og sínum fallegt og notalegt umhverfi. Á kveðjustund leitar hugurinn yfir farinn veg eftir langa samleið, sem aldrei bar skugga á en ávallt veitti hlýju og gleði og er það hér þakkað af heilum hug. Við höfum á undanförnum mánuðum fylgst með baráttu Helgu og fjölskyldu hennar við vágestinn sem að sótti. Þar hef- ur vakið aðdáun okkar sá mikli styrkur og samheldni, sem ein- kennt hefur fjölskylduna og hversu sterk heild hún er, enda var vin- kona okkar stolt af sínu fólki við þessar erfiðu aðstæður. Kæru vinir, Björn, Bjarki, Krist- ín og Anna. Megi minningin um einstaka eiginkonu og móður fylgja ykkur inn í framtíðina og létta ykk- ur byrðar morgundagsins. Guð blessi minningu okkar kæru vinkonu. Anna og Guðmundur. Elsku Helga. Það var mikil sorg í bekknum þegar skólastjórinn sagði okkur að þú værir farin á spítala og værir mikið veik. Við sendum þér myndir og kveðjur á spítalann og vonuðum alltaf að þú gætir komið aftur að kenna okkur. Svo fréttum við að þú hefðir dáið 31. janúar og þá fórum við að gráta. Þú varst svo blíð og góð við okkur, fórst með okkur í gönguferðir, út í snjókast og leiki á skólalóðinni og svo feng- um við alltaf að leika okkur á gang- inum á föstudögum. Manstu þegar Viktoría meiddi sig og þú tókst hana á hestbak og hljópst með hana um allt þangað til hún hætti að gráta, svona varstu alltaf góð. Okk- ur þykir svo vænt um þig og sökn- um þín svo mikið því þú varst besti kennari í heimi. En svona er lífið. Við vonum að þér líði vel hjá guði og að hann geymi þig í brjósti sér. Bekkur 32 í Hólabrekkuskóla. HELGA Þ. ÞORGEIRSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Helgu Þ. Þorgeirsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                  ,  :,    (/=*// 5F 8'/=&      %    *    $   ()    $       9  $     2 %   ,:))  =8    8/  & % 7 )!*(78/ +/*' =8 #/ 8/ ,8'   A/#!/5 8/    8'  8/    ) )* ) ) ) $      "       " ;:   -+ $       &$ 7   2 %   ,')) "#  /   (5 "   "#  /  80 "#   8/ 8$ ;             8   8 $     $      /       %"     :- ; ,  A    )31GG$  805  =8 % - &8/  =8  - &8/  80 H - &8/   =8  (785+/'  A " ) =8      )!* =8  >88//*5   )!*   & / B =8   ($ ./  %8               +, $ "(  '+/'=&   )31IJ 80 !=&  $       .%/     2 %   ,(()  A$% 7 65   /'  80 8/ !  /'  & ><  *  /'  % "#     /'  &  '?/ ')*  $  /     $   +-; % 9 -+   5 %'      (,       $       <       %   ,(=)) & !  ,'  =8  !   &  !  &  !  8  !  7   !      7   $
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.