Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 45
Elsku Obba mín. Nú ert þú farin
héðan af jörðu á fund Ásbjarnar son-
ar þíns og annarra ástvina. Mikill er
söknuðurinn eftir þig, en veikindin
herjuðu fljótt og óblíð á þig. Þegar ég
heyrði í þér í símanum í vetur varst
þú líka vongóð, varst að ná þér með
að læra aftur norskuna sem hvarf
eftir fyrsta áfallið. Það fer ekki alltaf
eftir vonum lífið hér á jörð. Önnur
áföll komu og svo var allt búið. Fimm
ára gömul misstir þú mömmu þína og
mamma og pabbi tóku þig í fóstur.
Þú varst sex ára daginn eftir að þú
komst til þeirra. Nokkrum mánuðum
seinna kom ég í heiminn. Við ólumst
upp saman í sex ár eða þar til pabbi
þinn giftist aftur.
Ég man enn mjög óljóst daginn
sem þú fórst frá okkur. Ég skildi ekki
alveg hvað var að gerast, en fljótt
kom tómleikinn, engin stóra systir
hjá mér lengur. Þú hefur samt alltaf
verið í huga mínum sem stóra systir,
fyrirmyndin mín, svo falleg, góð, kát
og dugleg í öllu sem þú tókst þér fyr-
ir hendur.
Ung giftist þú Sveini Ágústssyni,
góðum bóndasyni úr Gnúpverja-
hreppi. Þið hófuð búskap í Ásum, föð-
urleifð hans. Ásbjörn sonur ykkar
fæddist og þið voruð svo hamingju-
söm. Svart ský dró fyrir sólu þegar
hann sjö vikna dó vöggudauða. Mikið
áttuð þið þá bágt.
Árin liðu, en þá birti á ný er þið
fenguð Kristínu kjördóttur ykkar
sem alltaf hefur verið sem sólargeisli.
Þið Sveinn fluttust að Móum, sem er
nýbýli frá Ásum. Þar reistuð þið stórt
fjós sem var með mestu mjólkur-
framleiðslu í sveitinni. Þar réðst þú
að mestu ríkjum með dugnaði og
snyrtimennsku. Þið Sveinn reyndust
mér vel þegar ég kom til ykkar að
Ásum með Helgu dóttur mína litla.
Þið dekruðuð við hana á allan hátt,
enda var hún þá eina barnið á heim-
ilinu. Ég kynntist Steina þegar ég
var hjá ykkur í Ásum og gerðist
bóndakona í Þrándarlundi sem varð
mér mikil gæfa. Þú varst alltaf fyr-
irmyndin mín, en aldrei komst ég
með tærnar þar sem þú hafðir hæl-
ana. Margar ferðirnar fór ég að Mó-
um til að heimsækja þig eftir að ég
var flutt í Þrándarlund. Þá var gamli
Trabantinn notaður. Ég var svo
myrkfælin þegar ég var að fara heim
að kvöldi eftir að dimmt var orðið.
Lítil umferð var þá af bílum um sveit-
ina. Á tveim stöðum á leiðinni heim
ÞORBJÖRG H.
ÁSBJARNARDÓTTIR
ASK
✝ Þorbjörg HelgaÁsbjarnardóttir
(Obba) fæddist í
Reykjavík 25. maí
1932. Hún lést á
Fylkissjúkrahúsinu á
Stord í Noregi 15.
janúar síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Hatle-
strandkirkju í Nor-
egi 22. janúar.
Í upptalningu á
systkinum Þorbjarg-
ar í formála minn-
ingargreina um hana
í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 23. janúar féll nið-
ur nafn eins systkinanna, Péturs,
f. 12.6. 1940, d. 17.6. 1941, en hann
var fimmti í röðinni í systkina-
hópnum. Hlutaðeigendur eru
beðnir afsökunar á þessum mis-
tökum.
var talað um að væri
draugagangur. Til að
halda hræðslunni niðri
söng ég alla leiðina og
vonaði að kertin dyttu
nú ekki úr bílnum, sem
oft kom fyrir, en allt var
leggjandi á sig til að
geta hitt þig.
Þegar þið Sveinn slit-
uð sambandi ykkar og
þú fórst til Reykjavíkur
með Kristínu, fannst
mér jörðin hverfa und-
an fótum mér. Þá voru
ferðir til Reykjavíkur
meira mál en í dag og
eins var með símann. Alltaf var ein-
hver óboðinn á línunni að hlusta svo
ekki var hægt að tala um það sem
aðrir máttu ekki heyra.
Okkur Önnu Dóru, dóttur minni,
fannst við báðar missa systur úr
sveitinni þegar þið Kristín fluttuð
suður. Þær Kristín hafa alltaf verið
svo samrýndar og oft gisti Kristín
hjá okkur og hefur hún alltaf verið
okkur mjög kær. Seinna kynntist þú
Jóhannesi Ask, myndarlegum norsk-
um bóndasyni, og fluttist með honum
til Noregs með Kristínu. Það var
annað áfall fyrir mig því nú varð enn
lengra á milli okkar. Bót var þó í máli
því þú varðst aftur hamingjusöm.
Þegar Kristín giftist Paul sínum og
eignaðist drengina sína tvo, urðu þeir
sólargeislarnir ykkar Jóhannesar.
Það var svo gaman að heyra þig tala
um þá, þú varst svo hreykin amma.
Það var bara verst hve langt var á
milli fjölskyldnanna.
Mikill fögnuður var að fá ykkur í
heimsókn til Íslands. Ég vonaði að ég
fengi að sjá þig hér í maí næstkom-
andi er þú yrðir 70 ára, en ekkert
verður úr því. Árin sögðu ekki mikið
um aldur þinn því þú hélst þér alltaf
svo fallegri og tígulegri.
Á nýjum stað ferð þú kannski að
hekla gardínur fyrir nýtt mjólkur-
hús, pússa þar glugga og gera um-
hverfið sem fallegast eins og þú varst
alltaf vön. Þú elskaðir dýrin og vildir
að sem best færi um þau öll.
Elsku Obba mín. Ég sakna þín svo
mikið. Guð styrki Jóhannes, Krist-
ínu, Paul og drengina. Blessuð sé
minning þín. Sjáumst aftur.
Þorbjörg G. Aradóttir.
!
E
-; -+
8* JG
80 !=&
%
&
5!+
$
2
% ,(()
1" $
$
%
&!
8B)8 " K8/ $
;
/ $
8 $
$
" " :,:,,-+ -+
#!7 #85/
/L
80 !=& $
&/"
// &/ ,// A/&M5
&/ >< A/ +/'
& &/ ////
) )* ) ) )* $
;
8
8 $
$
/
9, :%
-
=8 '3
* N
80 !=& $
*
/
" >
6"
*"
/)!*!*
%< 7/ (
5
/!* 7/ /8008
" &
) )* $
;
/ $
$
$ 7 8
$
$
%( "
! =8 =8
! !
=8% =8 /' =
#8 7 $
/ =8 /7 =8
= 58 $
$
!
A, ,-
8 $
8 $
"
"
1 $
(
% &!
! $
A/) 5 $
./ "
"
+%
9 -+
' 3)/&/=&
*
9
$
(, $
9
$
2
% ,(()
% 7
' '!*/ 0/
&/
' '!*/ 0/$
;
$
8 8 $
+
/
" " ," :-+
*/ !/FG
80 !=& $
% 7$ 5
+/*'% 7 /5$ !
5 A/ % 7 =/
)!*% 7 K8/K8/
) )* ) ) )* $
:"+
%$
A8 ) 2
=&
$
() +
$
0
$
2
% ,-))
/& 80=/
8$ !
+/& 80 ! +/' $
/!* ! +/'
) )* $
./ "
"
+,6
E"+, -+
/#85/
&/51N80 !=&
$
1
2
% ,(()
// /&
& 8'
) )* ) ) )* $
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur