Morgunblaðið - 07.02.2002, Page 46
KIRKJUSTARF
46 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ hús hjá Nýrri dögun, sam-
tökum um sorg og sorgarviðbrögð,
verður í kvöld 7. febrúar. Á opna
húsinu mun sr. Bragi Skúlason
sjúkrahúsprestur kynna nýútkomna
bók sína, Sorg – í ljósi lífs og dauða.
Umræður verða í hópum og stutt
slökunarstund í lokin.
Opna húsið er haldið í Safnaðar-
heimili Háteigskirkju, 2. hæð, kl.
20–22 og er öllum opið. Aðgangur
er ókeypis.
Þorrahátíð
í Grensáskirkju
ÞORRAHÁTÍÐ eldri borgara verð-
ur í Grensáskirkju miðvikudaginn
13. febrúar.
Dagskráin hefst með helgistund í
kirkjunni kl. 12:10. Þaðan er gengið
yfir í safnaðarheimilið þar sem bíð-
ur hlaðið borð af hefðbundnum, ís-
lenskum þorramat. Í tilefni dagsins
verður rifjaður upp fróðleikur um
öskudag og dagana á undan. Sam-
verustundinni lýkur upp úr kl. 14.
Skráningu á þorrahátíðina er í
síma 553 2950 og lýkur á bolludag.
Verð 1.500 kr. á mann.
Kyrrðarstundir
í Hallgrímskirkju
Á HVERJUM fimmtudegi er kyrrð-
arstund í hádeginu frá 12–12.30. Í
dag munu Guðrún Sigríður Birg-
isdóttir flautuleikari og Hörður Ás-
kelsson organisti leika saman á
hljóðfæri sín nokkur ljúf lög. Þá
verður hugvekja í umsjá sr. Jóns D.
Hróbjartssonar. Eftir stundina í
kirkjunni er léttur hádegisverður á
vægu verði í safnaðarsalnum.
Foreldramorgnar
í Háteigskirkju
Í DAG, fimmtudag, snýst fræðslan á
foreldramorgni í Háteigskirkju um
mataræði barna. Anna Björg Eyj-
ólfsdóttir hjúkrunarfræðingur á
Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis sér
um fræðsluna.
Í Háteigskirkju er lögð mikil
áhersla á að hlúa vel að foreldra-
morgnunum. Með foreldramorgn-
unum vill kirkjan leggja sitt af
mörkum til þess að styrkja og efla
mikilvægi foreldrahlutverksins.
Hér gefst foreldrum tækifæri til
þess að kynnast öðrum foreldrum
úr hverfinu.
Lítil helgistund í kirkjunni fyrir
framan altarið, sungið saman og
farið með bæn.
Foreldramorgnar eru í Setrinu, á
neðri hæð safnaðarheimilis Háteigs-
kirkju, alla fimmtudaga frá 10 til
12. Góð aðstaða er fyrir barnavagna
fyrir utan Setrið. Allir velkomnir.
Samkomuherferð hjá
Hjálpræðishernum
SAMKOMUHERFERÐ verður 9.–
17. febrúar á Hjálpræðishernum,
Kirkjustræti 2 í Reykjavík. Yfir-
skrift þessara daga er guð á okkar
tímum. Hinn góði kunni sænski pré-
dikari Roger Larson mun tala á
samkomunum.
Opið hús hjá
Nýrri dögun Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópakl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp-
ur undir stjórn organista. Fræðslukvöld
kl. 20 í safnaðarheimilinu. Fjallað um
bók Esekíels spámanns og upphaf gyð-
ingdóms.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim-
ilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu
verði. Ýmsar uppákomur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar
1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björns-
dóttir. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20.
Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg-
unn kl. 10–12. Opið hús, söngstund með
Jóni organista. Endurminningarfundur
kvenna og karla (blandaður hópur) er í
Guðbrandsstofu í anddyri kirkjunnar kl.
14–15.30. Alltaf er pláss fyrir nýja með-
limi.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.
Orgeltónlist í kirkjunni kl. 12–12.10. Að
stundinni lokinni er málsverður í safnað-
arheimili. Alfanámskeið kl. 19–22. Kenn-
arar Ragnar Snær Karlsson, Nína Dóra
Pétursdóttir og sr. Bjarni Karlsson. (Sjá
síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglingaklúbbur
fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk.
Nedó kl. 20 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón
Sveinn og Þorvaldur. Félagstarf aldraðra
laugardaginn 9. febrúar kl. 14:00.
Óvissuferð. Eftir ferðina verður borinn
fram léttur málsverðu. Þeir sem ætla að
neyta matarins þurfa að tilkynnna þátt-
töku sína í síma 511 1560. Allir velkomn-
ir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Árbæjarkirkja. Barnakóraæfing kl. 17–
18.
Breiðholtskirkja. Biblíulestrar kl. 20–22.
Námskeið á vegum Reykjavíkurprófasts-
dæmis og leikmannaskóla þjóðkirkjunn-
ar. Á námskeiðinu verður leitast við að
draga fram nokkra áhersluþætti í sið-
fræðiboðskap Jesú sem þessar hug-
myndir höfða bæði réttilega til og annað
sem er rangtúlkað. Farið verður í valda
texta úr Nt og m.a. tekin fyrir stef úr fjall-
ræðunni og dæmisögum Jesú. Fyrirlesari
er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðs-
prestur í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra. Á eftir fyrirlestrinum er boðið upp
á umræður yfir kaffibolla. Mömmumorg-
unn föstudag kl. 10–12.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Fyrirbænaefnum má koma til
kirkjuvarða. Léttur hádegisverður eftir
stundina. Alfanámskeið kl. 19. Kvöld-
verður, fræðsla, umræðuhópur. Fundar-
efni: Hvernig og hvers vegna að lesa
Biblíuna? Kennari sr. Magnús B. Björns-
son.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund og bibl-
íulestur í Gerðubergi kl. 10.30–12 í um-
sjón Lilju djákna. Starf fyrir 9–10 ára
stúlkur kl. 17.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir og ýmiss konar fyrirlestrar.
Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Æsku-
lýðsfélag í Grafarvogskirkju fyrir 8.–9.
bekk kl. 20–22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Alfanámskeið kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borgur-
um í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma
til sóknarprests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. KFUM-fundur fyrir stráka á
aldrinum 9–12 ára kl. 16.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og
bæn. Bænarefnum má koma til presta
kirkjunnar og djákna. Hressing í safnað-
arheimilinu eftir stundina. Biblíulestrarn-
ir sem verið hafa kl. 20 falla niður en
bent er á Alfanámskeiðið á miðvikudög-
um. Prestarnir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17–18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn (TTT) í dag kl 17. Foreldrastund
kl. 13–15. Kjörið tækifæri fyrir heima-
vinnandi foreldra með ung börn að koma
saman og eiga skemmtilega samveru í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja: Kl. 10 mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Anna Lilja verður
með frásögn. Kristján sér um kaffið. Kl.
14.20 æfingar hjá Litlum lærisveinum,
1. hópi. Kl. 17.10 æfing hjá Litlum læri-
sveinum, 2. hópi. Kl. 18.10 æfing hjá
Litlum lærisveinum, 3. hópi.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúning-
ur í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10, 8. MK í
Heiðarskóla, kl. 15.15–15.55, 8. SV í
Heiðarskóla.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasamvera
fimmtudag kl. 19. Fyrirbænaefnum er
hægt að koma áleiðis að morgni fimmtu-
dagsins milli kl. 10–12 í síma 421 5013.
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). Sunnu-
dagaskóli sunnudag kl. 11.
Kletturinn. Kl. 19 Alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Bænaefnum má koma til
prestanna. Eftir stundina er hægt að
kaupa léttan hádegisverð sem Kvenfélag
kirkjunnar annast í safnaðarheimili.
Samhygð kl. 20.
Safnaðarstarf
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Bakarí — afgreiðsla
Okkur vantar duglegan og hressan starfskraft
til afgreiðslustarfa nú þegar.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 9.00 og 13.00.
Bakarinn á hjólinu,
Álfheimum 6,
sími 553 6280.
Jarðfræðingur óskast
Auglýst er eftir jarðfræðingi til starfa á jarð-
fræðisviði Náttúrufræðistofnunar Íslands
í Reykjavík.
Jarðfræðingurinn skal vinna m.a. við kortlagn-
ingu á berggrunni landsins og við eldfjallafræði
með áherslu á sögu eldgosa og áhættugrein-
ingu.
Umsækjandi skal hafa doktorspróf eða jafngildi
þess í jarðfræði og geta hafið störf sem fyrst.
Um laun fer skv. kjarasamningi við Félag
íslenskra náttúrufræðinga. Vinna við jarðfræði-
rannsóknir er oft fjarri byggð og þarf viðkom-
andi að vera fær um að sinna störfum við
misjafnar aðstæður.
Umsóknum sem innihalda upplýsingar um
menntun, rannsóknir og fyrri störf skilist til
Náttúrufræðistofnunar Íslands, Hlemmi 3,
125 Reykjavík, fyrir 20. febrúar 2002.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Helgi Torfason, sviðsstjóri á jarðfræðisviði,
Hlemmi 3, Reykjavík, sími 5900 500;
netfang: heto@ni.is .
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri:
Búðarbraut 12b í Búðardal, þingl. eig. Stórtak ehf., gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Vátrygginga-
félag Íslands hf., þriðjudaginn 12. febrúar 2002 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
6. febrúar 2002.
Anna Birna Þráinsdóttir.
ÝMISLEGT
Alþjóðlegt olíufélag
óskar eftir söluaðila
til þess að þjóna íslenska flotanum með sölu
á smurolíu og til þess að annast þjónustu við
íslenska fiskveiði- og verslunarflotann.
Einnig að annast birgðageymslu og dreifingu
á olíuvörum til eigin viðskiptavina auk við-
skiptavina olíufélagsins, sem hafa viðkomu
í íslenskri höfn.
Ætlast er til að umsækjandi hafi staðgóða þekk-
ingu á þörfum hins íslenska skipamarkaðar
hvað olíuvörur varðar.
Umsækjendur eru beðnir að senda skriflega
umsókn á dönsku eða ensku til Danska sendi-
ráðsins, pósthólf 1540, 121 Reykjavík, eða
rekamb@um.dk fyrir 20. febrúar.
Fulltrúar olíufélagsins verða til viðræðna hér-
lendis síðustu viku febrúarmánaðar.
Frímerki
Fyrirtækið Thomas Höiland Auktioner A/S
í Kaupmannahöfn er eitt stærsta fyrirtæki
á Norðurlöndum með uppboð á frímerkj-
um og mynt og heldur það tvö stór upp-
boð á hverju ári auk minni uppboða.
Dagana 8. og 9. febrúar nk. mun sérfróður
maður um frímerki frá fyrirtækinu verða á
Íslandi í leit að efni á næsta uppboð sem
verður í lok apríl. Leitað er eftir frímerkj-
um, gömlum umslögum og póstkortum,
heilum söfnum og lagerum.
Hann verður til viðtals á Hótel Esju laug-
ardaginn 9. febrúar kl. 11.00—13.00 og
eftir nánara samkomulagi á öðrum tím-
um. Þetta er kjörið tækifæri til að fá sér-
fræðilegt mat á frímerkjaefni þínu og til
að koma slíku efni á uppboð.
Nánari upplýsingar veitir Össur Kristins-
son í síma 555 4991 eða 698 4991 eftir
kl. 17.00 á daginn.
Thomas Höiland Auktioner A/S,
Frydendalsvej 27, DK-1809,
Frederiksberg C.
Tel: 45 33862424 - Fax: 45 33862425.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Landsst. 6002020719 VII
I.O.O.F. 11 1822077½ G.H.
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi 28.
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Þekktu landið þitt.
Efni: Björn Þorvaldsson, tann-
læknir.
Upphafsorð: Hallbjörn Þórarins-
son.
Hugleiðing: Bjarni Gíslason,
kennari.
Allir karlar velkomnir.
www.kfum.is .
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Eyrarbraut 29, Stokkseyri, fastanr. 219-9901, þingl. eig. Höfðaberg
ehf., gerðarbeiðendur Hekla hf., Landsbanki Íslands hf., aðalbanki
og Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 14. febrúar 2002 kl. 10.15.
Eyravegur 16, Selfossi, efri hæð m.m., þingl. eig. Katrín Súsanna
Björnsdóttir og Jón Ólafur Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Íbúðalána-
sjóður og Tölvu- og rafeindaþj. Suðurl. ehf., fimmtudaginn 14. febrúar
2002 kl. 9.45.
Hraunbakki 1, iðnaðarhúsnæði, Þorlákshöfn, fastanr. 223-6579, þingl.
eig. Leiti ehf., gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf., aðalbanki
og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 14. febrúar 2002
kl. 11.00.
Hraunbakki 1, iðnaðarhúsnæði, Þorlákshöfn, fastanr. 223 7139, þingl.
eig. Leiti ehf., gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., aðalbanki,
fimmtudaginn 14. febrúar 2002 kl. 11.15.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
6. febrúar 2002.
UPPBOÐ
ATVINNA
mbl.is