Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 49
Y
D
D
A
/
S
ÍA
Verð birt með fyrirvara um prentvillur. Tilboðin gilda á meðan birgðir endast.
„Ertu ekki að
grínast?“
Á AKUREYRI - Í MJÓDD - Á AKRANESI
460-3200 510-3400 431-5022
1299kr./settið
Sængur verasett 199kr./parið
Barna–, dömu– og herrasokkar
Herra– og drengjanærbuxur
2 fyrir 1 299kr./stk.
Dömu– og stú lknanærbuxur
199kr./stk.
Ömmupizzur 12” 450g
250
kr./stk.
ÚRVAL SÉRVARA
50%
6 bollur
Þú kaupi r
í pakka
og færð
ÓTRÚLEGA GOTT VERÐ!
afslátt af
1/4 l af rjóma
KVIKMYNDASKÓLI Íslands býð-
ur ný í fyrsta skipti uppá fram-
leiðslunámskeið. Hér gefst kvik-
myndagerðarfólki tækifæri til að
vinna í skapandi umhverfi, með að-
gang að tökuvélum, ljósabúnaði og
klippiaðstöðu. Hægt er að sækja
um inngöngu í námið allt árið.
Framleiðslunámskeiðið er verk-
legt nám þar sem unnið er undir
handleiðslu ráðgjafa við framleiðslu
og/eða þróun kvikmynda af hvaða
tagi sem er. Nemendur fá aðgang
að tækjum til kvikmyndagerðar, að-
stöðu til klippingar og öðrum þeim
þáttum sem þarf til eftirvinnslu
kvikmynda. Boðið er uppá einka-
fundi með reyndum kvikmynda-
gerðarmönnum þar sem verkefni
nemenda og möguleikar eru rædd-
ir. Einnig er nemendum boðið uppá
aðstoð við sölu á hugmyndum sín-
um. Námskeiðið er í heildina fjórir
mánuðir og vinnuplan verkefnisins
unnið í samstarfi umsækjanda og
ráðgjafa skólans. Hvert námskeið
er því sérsniðið að þörfum hvers
nemanda/verkefnis. Að hámarki
geta 3 verið um eitt verkefni sem
fær inngöngu í námið,“ segir í
fréttatilkynningu.
Frekari upplýsingar um námið
gefur Lárus Ýmir Óskarsson
kennslustjóri Kvikmyndakóla Ís-
lands.Einnig er hægt að fá frekari
upplýsingar á vefsíðu skólans:
www.kvikmyndaskoli.is.
Nám í framleiðslu
kvikmynda
BRYNDÍS Valsdóttir, MA í heim-
speki, heldur fyrirlestur á vegum
Siðfræðistofnunar Háskólans um
spurninguna hvort réttlætanlegt
sé að einrækta menn, í dag,
fimmtudaginn 7. febrúar, kl. 20 á
Litla sviði Borgarleikhússins.
Fyrirlesturinn byggir hún á
meistaraprófsritgerð sinni um efn-
ið sem hún lauk frá Háskóla Ís-
lands sl. vor, en í henni fjallaði
hún um tvenns konar hugsanlegan
tilgang með einræktun, annars
vegar læknisfræðilegan tilgang og
hins vegar þann tilgangi að eign-
ast börn. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Að fyrirlestrinum loknum mun
Vilhjálmur Árnason prófessor
bregðast við erindinu, segir í
fréttatilkynningu.
Fyrirlestur um
einræktun
SPARISJÓÐURINN og Top Shop
standa að hönnunarkeppni á bol-
um. Lokafrestur til að senda hug-
myndir er 17. febrúar. Dómnefnd
kemur saman 18. febrúar og velur
10 tillögur að bolum sem komast í
úrslit.
Þeir sem komast í úrslit fá að
útfæra og framleiða sinn eigin bol
undir leiðsögn fatahönnuðar. Allur
kostnaður við gerð bolanna er
keppendum að kostnaðarlausu.
Úrslitakvöldið verður 8. mars í
Top Shop, Lækjargötu. Vinningar
eru fyrir fyrstu 3 sætin.
Vinningsbolurinn verður til sölu
í verslunum Top Shop og allur
ágóði af sölu bolsins mun renna til
Götusmiðjunnar. Nánari upplýs-
ingar er að finna á www.nams-
menn.is.
Tillögur sendist á tölvutæku
formi til markadssvid@spar.is eða
með pósti (Samband íslenskra
sparisjóða, Rauðarárstígur 27, 105
Reykjavík; „merkt Hönnunar-
keppni“, segir í fréttatilkynningu.
Hönnunar-
keppni Spari-
sjóðsins og
Top Shop