Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÝLEGA var opnað nýtt vefsetur
hjá Reykjavíkurborg sem er tileink-
að umhverfismálum borgarinnar –
svonefndur Um-
hverfisvefur
Reykjavíkur.
Slóðin á vefinn er
www.umhverfis-
vefurinn.is. Vef-
urinn er hugsað-
ur sem
samantekt upp-
lýsinga um um-
hverfismál í
Reykjavík undir
14 málaflokkum. Þeir eru: útivist,
sorpmál, loftgæði, líf í borg, hljóð-
vist, samgöngur, Staðardagskrá 21,
umhverfisfræðsla, umhverfiseftirlit,
orka og auðlindir, þátttaka borgar-
búa, vistvænar ábendingar og hver
gerir hvað í umhverfismálum. Á
vefnum eru upplýsingar og gögn fyr-
ir borgarbúa um ofangreinda mála-
flokka á aðgengilegu formi. Mikið
magn almennra upplýsinga og
hlekkja er á Umhverfisvef Reykja-
víkur og verða efni og efnistök upp-
færð þegar þurfa þykir þannig að
upplýsingarnar verði sem réttastar
á hverjum tíma.
Fréttir og
skoðanaskipti
Á forsíðu Umhverfisvefjar Reyk-
javíkur má einnig finna liðinn nýtt/
fréttir þar sem leitast verður við að
koma á framfæri því sem nýjast er í
umhverfismálum borgarinnar á
hverjum tíma. Þá er rétt að vekja
sérstaka athygli á umhverfisspjall-
inu sem einnig má finna á Umhverf-
isvef Reykjavíkur. Þar gefst kostur
á því að koma með athugasemdir og
ábendingar og ekki síður, spjalla um
umhverfismál borgarinnar. Þetta er
nýjung í umhverfisumræðu hér á
landi og eru borgarbúar, sem og aðr-
ir, hvattir til þess að notfæra sér
þennan möguleika og rabba saman á
vefnum um umhverfismálin. Þarna
er kominn grundvöllur fyrir frjóa
umræðu og skoðanaskipti í þessum
mikilvæga málaflokki borgarinnar.
Upplýsingagjöf
og samráð
Með tilkomu Umhverfisvefjar
Reykjavíkur opnast greið leið að
upplýsingum um allt sem viðkemur
umhverfismálum í borginni. Ljóst er
að með umhverfisvefnum er borgin
að efla þjónustu sína við borgarbúa
með meiri og markvissari upplýs-
ingagjöf á sviði umhverfismála. Það
er í góðu samræmi við stefnumótun
og framkvæmdaáætlun Staðardag-
skrár 21 fyrir Reykjavík. Ég hvet
áhugasama til þess að notfæra sér
þessa nýju þjónustu og ekki síður til
að leggja orð í belg í umhverfis-
spjallinu. Þannig getur umhverfis-
vefurinn.is aukið þátttökulýðræði og
samráð og rödd borgarbúa fær auk-
ið vægi í stefnumótun borgarinnar í
umhverfismálum.
HRANNAR BJÖRN
ARNARSSON,
borgarfulltrúi Reykjavíkurlista.
Umhverfisvefur
Reykjavíkur
Frá Hrannari Birni Arnarssyni:
Hrannar Björn
Arnarsson
Í MORGUNBLAÐINU hinn 29. jan-
úar sl. skrifar Kristbjörg Hjaltadótt-
ir pistil vegna myndarinnar Hringa-
dróttinssögu og gerir að umtalsefni
að í auglýsingum um myndina hafi
aldursmarks ekki verið getið. Kvik-
myndin var skoðuð hinn 13. desem-
ber sl. og hlaut 12 ára aldursmark.
Þegar sýningar á myndinni hófust á
2. degi jóla var sem aldursmarkið
hafi fallið út úr öllum auglýsingum
dagblaðanna. Á fyrsta virka degi eft-
ir hátíðirnar hafði undirritaður sam-
band við íslenska dreifingaraðilann
og benti honum á þessi mistök. Þau
voru síðan leiðrétt. Þessi mistök
voru afar bagaleg þar sem myndin
tók inn mikinn fjölda áhorfenda yfir
jól og áramót. Það er hins vegar al-
veg skýrt í lögum að kvikmyndahús-
um er skylt að geta aldursmarks í
auglýsingum sínum sbr. 7. gr. laga
um skoðun kvikmynda frá 1995 ...
„sýnendur kvikmynda skulu láta nið-
urstöður Kvikmyndaskoðunar fylgja
öllum auglýsingum og kynningu á
kvikmyndum...“.
Í tilvikum sem þessum, þegar ald-
ursmarkið fellur niður í auglýsingu,
ætti starfsfólk kvikmyndahússins að
geta upplýst bíógesti um hið rétta en
því miður virðist sem starfsfólk kvik-
myndahúsa sé ekki nógu vel upplýst
sbr. bréf Kristbjargar þegar hún
spurði miðasölustúlku hvort myndin
væri ekki bönnuð var svarið að „fólk
færi með börn allt niður í 4 ára aldur
á myndina“. Í fyrrnefndum lögum
um Kvikmyndaskoðun frá 1995 segir
í 8. gr. „...ber forstöðumaður kvik-
myndahússins ábyrgð á því að bann-
inu sé framfylgt. Bannið gildir einnig
þó að barn sé í fylgd þess sem heim-
ild hefur til að sjá viðkomandi kvik-
mynd.“ Lögin eru skýr en því miður
virðist sem forstöðumenn kvik-
myndahúsa virði þau ekki nógu vel.
Það er ekki á valdsviði Kvikmynda-
skoðunar að hafa eftirlit með að lög-
unum sé framfylgt. Skv. 9. gr. ofan-
greindra laga skulu
barnaverndarnefndir og löggæslu-
menn hafa reglubundið eftirlit með
að úrskurðum Kvikmyndaskoðunar
sé framfylgt.
SIGURÐUR SNÆBERG
JÓNSSON,
forstöðumaður
Kvikmyndaskoðunar.
Svar frá Kvik-
myndaskoðun
Frá Sigurði Snæberg Jónssyni: