Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 52

Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 52
DAGBÓK 52 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. VIÐ hjónin fórum í Hag- kaup í Smáranum sl. laug- ardag og keyptum meðal annars grímubúning handa barnabarni okkar. Við höfð- um séð í bæklingi frá Hag- kaupum að slíkir búningar (Ninja) kostuðu 2.999. Þegar við komum í versl- unina völdum við búning en á honum stóð 2.995. Gott og vel, það skipti ekki megin- máli. Ýmislegt fleira keyptum við og þegar við komum að kassanum þótti mér upp- hæðin sem við vorum kraf- in um heldur hærri en ég hafði reiknað með og fór ég að skoða strimilinn. Kom þá í ljós að búningurinn var „skannaður inn“ á 3.999!! Við vöktum athygli af- greiðslustúlkunnar á kass- anum á þessu strax en hún svaraði: „Þið verðið að fara og fá endurgreitt á þjón- ustuborði.“ Þar máttum við aftur bíða í biðröð eftir leið- réttingu og var það auðséð á afgreiðslustúlkunni þar, „sem þótti þetta mjög leið- inlegt“ að þarna var hún að glíma við einhverja leið- indakerlingu, enda kallaði hún í yfirmann sinn, sem kom síðan og endurtók að sér þætti þetta mjög leið- inlegt og bar við mannleg- um mistökum. Jú, vissulega geta alltaf átt sér stað mannleg mis- tök, en þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég rek mig á að sama verð er ekki á hillum verslana og það sem greitt er við kassa get ég ekki varist þeirri hugsun, hversu lengi geta verslunareigendur varið sig með þessu og yppt öxl- um? Ég er fullviss um það að ef ég væri vís að því að stinga á mig hlut að verð- mæti 1.000 krónur í versl- uninni án þess að greiða, þá væri ég að stela. Hver er munurinn á þessu tvennu? Hvað skyldu margir við- skiptavinir verslunarinnar hafa keypt grímubúninga (eða aðrar vörur) og borgað 1.000 krónur umfram aug- lýst verð, án þess að veita því athygli? Eru það 10, 100? Eitt hundrað viðskiptavinir greiða 1.000 krónum of mikið, það gera 100.000 krónur. Ég segi því í lokin. Neyt- endur, verið á varðbergi og berið saman auglýst verð og það sem þið greiðið við kassann! Sigurlaug Garðarsd. 050449-3439. Matvörur of dýrar MÉR finnst matvörur alltof dýrar hér í mörgum versl- unum, (öllum eiginlega) eins og t.d. mjólk, ávextir, grænmeti og fleira. Þetta er ókaupandi sums staðar því verðlagið er allt- of hátt. Bónus eru kannski hagstæðustu búðirnar fyrir mann að versla í. Talandi um að lækka verð í versl- unum, hvernig væri þá að lækka það almennilega? Hvernig á fólk sem hefur ekki mikinn pening milli handanna eða er með lág laun að hafa efni á að kaupa sér í matinn? Ég vil sjá meiri lækkanir á matvör- um. Hildur Egilsd. Hegðun fólks á opinberum stofnunum MIG langar til að lýsa undrun minni á hegðun fólks inni á opinberum stofnunum eins og sjúkra- húsunum. Ég varð vitni að því föstudaginn 11. janúar, er ég gekk inn á 5. hæð Land- spítalans í Fossvogi, að 4 konur voru þar í hávaða- rifrildi. Ég gat ekki skilið betur en að tvær af þessum kon- um væru að reka hinar kon- urnar út af spítalanum og notuðu til þess alls kyns blótyrði með tilheyrandi háreysti. Ég get ekki séð að gang- ar sjúkrahúsanna séu rétti staðurinn til að standa í deilum. Gangarnir eru ætl- aðir rólfærum sjúklingum m.a. til að horfa á sjónvarp, ekki til að fylgjast með rimmum annars fólks. Hélt ég að gangar sjúkrahúsanna flokkuðust undir „opinbera stofnun“ og þess vegna væri það ekki á valdi hins almenna borgara að stjórna því hverjir eru velkomnir á gangana og hverjir ekki. Svona hegðun er með öllu óviðunandi. Fólk hlýtur að geta hag- að sér skikkanlega inni á opinberum stofnunum þar sem taka þarf tillit til ann- arra. Jóhanna P. Tapað/fundið Herrasnyrtitaska týndist HERRASNYRTITASKA tapaðist fyrir 3–4 vikum á leiðinni úr Borgaskóla yfir í Víkurhverfi í Grafarvogi og áfram sem leið liggur í Árbæ um Ártúnsskiptistöð- ina. Þetta er svört Adidas- taska með gulum stöfum og dökkgrænni rönd. Tösk- unnar er sárt saknað. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 588 5558 eftir kl. 18. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Neytendur veri á varðbergi Víkverji skrifar... VÍKVERJI hlustar oft á þáttinn„Í vikulokin“ sem er á dagskrá Rásar eitt á laugardagsmorgnum. Þátturinn hefur verið í umsjón Þor- finns Ómarssonar en hann fær gesti í þáttinn til að ræða um fréttir lið- innar viku. Í síðasta þætti fjallaði einn viðmælandi Þorfinns nokkuð um fréttir sem birst höfðu í DV um fjárfestingar Landssíma Íslands í IP-fjarskiptum, en eins og fram hef- ur komið töpuðu Síminn og aðrir sem tóku þátt í verkefninu umtals- verðum fjármunum á fjárfesting- unni. Í útvarpsþættinum var talsvert gagnrýnt að aðrir fjölmiðlar hefðu ekki sagt frá þessu tapi. Aðrir þátt- takendur í útvarpsþættinum mót- mæltu þessari gagnrýni ekki heldur þvert á móti tóku undir hana. Víkverji hélt að þeir sem mæta í útvarpsþætti til að ræða um fréttir liðinnar viku ættu að vera sæmilega að sér um hvaða fréttir fjölmiðlar hefðu verið að flytja í vikunni. Full- yrðingar um að aðrir fjölmiðlar hefðu ekki sagt frá tapi Símans af IP-fjarskiptum eru ekki réttar. Í Morgunblaðinu 25. janúar birtist frétt um þetta mál, en í inngangi hennar segir: „Landssími Íslands mun afskrifa fjárfestingu sína í IP- fjarskiptum að fullu á árinu 2001. Af- skriftin nemur 180 milljónum króna en árið 2000 voru 100 milljónir gjald- færðar, alls er því um 280 milljóna króna tap að ræða. Eigendur IP- fjarskipta, sem eru auk Símans Opin kerfi og Talenta-Hátækni, hafa alls tapað um 370 milljónum króna með fjárfestingum sínum í félaginu.“ Deginum áður birtist frétt í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni „300 milljóna tap á tilraun með nýja tækni“. Víkverji man ekki betur en að hann hafi heyrt þessa sömu frétt í ljósvakamiðlum í síðustu viku. x x x Í FASTEIGNABLAÐI Morgun-blaðsins sl. þriðjudag er nokkuð skemmtilegt viðtal við Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöfund, en hann hef- ur í nokkur ár búið ásamt fjölskyldu sinni á Álftanesi. Sveinbjörn lýsir í viðtalinu hvernig fasteignamarkað- urinn hafi komið honum fyrir sjónir þegar hann var að leita sér að íbúð, en hann hafði fram að því búið í Vesturbænum. „Þá kom í ljós að það var alveg gríðarlega dýrt að bæta við sig einu eða tveimur herbergjum á þessum slóðum. Að auki var það hús- næði sem stóð til boða lítt áhugavert, þetta voru einhverjir karakterlausir raðhúsakassar vestur undir KR-velli á uppsprengdu verði og aðrar gaml- ar hæðir eins og sú sem við komum úr. Þetta var því ekkert sérstaklega heillandi,“ segir Sveinbjörn. Vesturbænum hefur oft verið lýst sem sérlega áhugaverðum stað til að búa á, en greinilegt er að um það eru skiptar skoðanir. x x x VÍKVERJA ofbýður algerlegaverð á öskudagsdóti sem verslanir eru að bjóða til sölu þessa dagana. Víkverji fór t.d. í Hagkaup og rakst þar á töfrakúst sem kennd- ur var við Harry Potter. Kústurinn er úr plasti og kostaði 1.999 kr. Vík- verji efast um að þessi kústur hafi kostað verslunina í innkaupum meira en 200 kr. Lítið galdraprik úr plasti kostaði um 700 kr. Hvað ætli Harry Potter segði um þessa verð- lagningu? 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 sanka saman, 4 rithöf- undur, 7 sóttkveikju, 8 ber, 9 elska, 11 einkenni, 13 sprota, 14 fljót, 15 fá- nýti, 17 mjög, 20 sjór, 22 hræfugla, 23 truntu, 24 trjágróður, 25 mikilleiki. LÓÐRÉTT: 1 púði, 2 segl, 3 fiska, 4 raunveruleg, 5 sjófugl- inn, 6 slóra, 10 geta um, 12 ber, 13 karlfugls, 15 lund, 16 trylltan, 18 val- ur, 19 blómið, 20 skott, 21 lengra í burtu. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 skinhelgi, 8 tæpur, 9 neita, 10 rói, 11 renni, 13 ræddi, 15 skass, 18 satan, 21 kál, 22 andrá, 23 ágóði, 24 ragmennið. Lóðrétt: 2 kæpan, 3 nærri, 4 ernir, 5 grind, 6 stór, 7 gati, 12 nes, 14 æða, 15 skap, 16 aldna, 17 skálm, 18 sláin, 19 tjóni, 20 náið. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Dettifoss kemur og fer í dag. Nyfjell kemur í dag, Helgafell og Freri fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Wilson Korsnes fór í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 13 vinnustofa, mynd- mennt og bað. Opið hús frá kl. 19.30, félagsvist kl. 20. Kaffi á könnunni. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofan, bókband og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 14 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstudög- um kl. 11. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu á sunnudögum kl. 11. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–13 handa- vinnustofan opin, kl. 9.30 danskennsla, kl. 14.30 söngstund. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Spilakvöld á Álftanesi 14. febr. kl. 19.30 á vegum Lions- klúbbs Bessa- staðahrepps, akstur samkvæmt venju. Í dag kl. 9 vinnuhópur gler, kl. 9.45 boccia, kl. 12.15 spænska, kl. 13 postu- línsmálun, kl. 14 málun og keramik. Félag eldri borgara, Kópavogi, boðar til al- menns fundar í Gjá- bakka laugard. 9. feb. kl. 14. Fundarefni: Kjara- og framboðsmál. Óskað hefur verið eftir að fulltrúar stjórn- málaflokkanna mæti og ræði málin og svari fyr- irspurnum. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, pútt í Bæjarútgerð kl. 10–11.30. Glerskurður kl. 13 og farið verður í heimsókn í Menningar- miðstöðina Gerðuberg. Rúta frá Hraunseli kl. 13.30. Á morgun mynd- list kl. 13, bridge kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids kl. 13. Brids fyrir byrjendur kl. 19.30, stjórn Ólafur Lárusson. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ söng- og gamanleikinn „Í lífsins ólgusjó“, og „Fugl í búri“. Sýningar: Miðviku- og föstudaga kl. 14 og sunnudaga kl. 16. Miðapantanir í s.: 588-2111, 568-8092 og 551-2203. Heilsa og hamingja á efri árum. Laugard. 9. febrúar kl. 13.30: 1. Minnkandi heyrn hjá öldruðum. 2. Íslenskar lækn- ingajurtir. Fræðslu- nefnd FEB hvetur fólk til að mæta og kynna sér málefnin. Á eftir hverju erindi gefst tækifæri til spurninga og umræðna. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Kl. 9 smíðar og útskurður, leir- munagerð og gler- skurðarnámskeið, ath. enn eru pláss laus á glerskurðarnámskeiðið, kl. 9.45 verslunarferð í Austurver, kl. 13.30 boccia. Á morgun, föstudag, bingó kl. 14. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 10 leik- fimi, kl. 15.15 dans. Op- ið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni í Fella- og Hólakirkju, frá hádegi spilasalur og vinnustofur opnar, m.a. þrívíddarmyndir leið- sögn Óla Stína. Kl. 14 koma eldri borgarar úr Hafnarfirði í heimsókn. Veitingar í veitingabúð. Á morgun verður opnuð sýning Braga Þórs Guð- jónssonar kl. 16, m.a. syngur Gerðubergskór- inn undir stjórn Kára Friðrikssonar. Félagar úr Tónhorninu leika og syngja létt lög. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9 handavinna, kl. 9.05 og kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.30 klippimyndir, kl. 15 rammavefnaður, kl. 13 gler og postulín, kl. 16.20 og kl. 17.15 kínversk leikfimi, kl. 17 myndlist, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 9.15 postulínsmálun, kl. 13 brids, kl. 13–16 handavinnustofan opin, kl. 17 línudans. Hið ár- leg þorrablót Gull- smára verður laugard. 9. feb. kl. 18. örfá sæti laus uppl. í s. 564-5260 og á staðnum. Hraunbær 105. Kl. 9 opin vinnustofa, búta- saumur, kortagerð og perlusaumur, kl. 9.45 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 14 fé- lagsvist. Kl. 13 er opin handavinnustofa, en enginn leiðbeinandi vegna veikinda. Norðurbrún 1. Kl. 9 tré- skurður og opin vinnu- stofa, kl. 10–11 ganga, kl. 10–15 leirmun- anámskeið. Þorrablót verður haldið föstud. 8. feb. kl. 19. Ásta Bjarna- dóttir leikur létt lög, upplestur, fjöldasöngur, veislustjóri Gunnar Þor- láksson, hljómsveit Ragnars Levi, leikur fyrir dansi. Aðgangs- miði gildir sem happ- drættismiði. Skráning í s. 568-6960. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 aðstoð við böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13–14 leik- fimi, kl. 13–16 kóræfing, kl. 17–20 leirmótun. Helgistund kl. 10.30 í umsjón sr. Hjálmars Jónssonar dóm- kirkjuprests. Lokað verður frá kl. 13 vegna undirbúnings þorra- blóts. Vitatorg. Kl. 9 smíði, kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 boccia, kl. 13 hand- mennt og frjálst spil, kl. 14. leikfimi. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. Biblíulestur. Fundurinn hefst kl. 17. Allar konur velkomnar. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids að Gullsmára 13 mánu- og fimmtud. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa salnum. Kvenfélag Hallgríms- kirkju. Fundur í dag kl. 20. Sýnd verður mynd- bandsspóla um Reykja- vík, rætt um 60 ára af- mælið. Kvenfélag Bústaða- sóknar, aðalfundurinn verður í Safnaðarheim- ilinu 11. feb. kl. 20. Venjuleg aðalfund- arstörf. Upplestur. Kvenfélag Grens- ássóknar, aðalfund- urinn verður í safn- aðarheimilinu 11. febrúar og hefst með borðhaldi kl. 19. Venju- leg aðalfundarstörf. Til- kynnið þátttöku fyrir föstud. 8. feb. í s. 553- 7057 Brynhildur, s. 568- 7596 Kristín eða 553- 6911 Kristrún. Kvennadeildin í Reykjavík. Aðalfundur deildarinnar verður í kvöld kl. 20 í Höllubúð. Þorramatur. Gestur fundarins verður Sigrún Þorsteinsdóttir frá Slysavarnafélaginu. Kvenfélag Breiðholts aðalfundurinn verður haldinn þriðjud. 12. feb. kl. 20. í safnaðarheimili Breiðholtskirkju, venju- leg aðalfundarstörf. Þorramatur fimmtud. Í dag er fimmtudagur 7. febrúar, 38. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans, en dapurt geð, hver fær borið það? (Orðskv. 18, 14.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.