Morgunblaðið - 24.03.2002, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 B 7
ÍSLENSK MATREIÐSLUBÓK
Á HEIMSMÆLIKVARÐA
Primavera er bók á heimsmælikvarða um mat, vín
og eldamennsku. Veitingastaðurinn La Primavera
opnar dyr sínar fyrir gestum og gangandi og býður
upp á hina fullkomnu máltíð að ítölskum hætti.
• Frábært úrval uppskrifta
• Afar gagnlegur kafli um ítölsk vín
• Réttu handtökin kennd
• Sögur af lífinu á La Primavera
Allt sem þarf fyrir góða máltíð
og svo miklu, miklu meira.
A
B
X
/
S
ÍA
VÍN vikunnar að þessu sinni eru blanda af
hvítu, rauðu og freyðandi víni. Öll eiga það
sameiginlegt að hafa hafið reynslusölu á síð-
ustu vikum.
Fyrsta vínið er spænskt freyðivín, Cava
frá Pénedes-héraðinu suður af Barcelona.
Segura Viudas Brut Reserva Cava (990 kr.)
er þurrt og þroskað í nefi. Þetta er ekki
flókið vín en hefur þroska í ilm, er bragð-
gott og vel útfært af Cava að vera. Góð
freyðivínskaup, fyrir þá sem leggja ekki í al-
vöru kampavín.
Vínið J.P. Branco Vinho Regional Terras
do Sado (890 kr.) er hvítvín frá Portúgal.
Ilmur sætur og djúpur, appelsínumarmelaði
í nefinu en lítill ávöxtur í munni, þurrt,
beiskt og svolítið kemíst. Kemur á óvart
hversu þurrt það er í munni eftir sætan og
ágengan ilminn. Þetta er vín sem kallar tví-
mælalaust á mat, gæti verið svolítið stíft eitt
og sér. Mætti reyna með saltfiski.
Í ilmi hins kaliforníska Meridan Zinfandel
1999 (1.170 kr.) má greina blóm, sætan
rauðan ávöxt, ekki síst plómur. Það er
mjúkt í munni, sætt og feitt, ekki ósvipað
rjómasúkkulaði. Kryddað og milt vín sem
ætti að henta með kjúklingaréttum eða léttu
pasta.
Við sem unnum Bordeaux-vínum erum
stöðugt að leita að góðum kaupum, ekki síst
á þessum síðustu og verstu tímum þegar
verð bestu vína héraðsins virðist ekki vera
ákveðið með jarðarbúa í huga. Chateau
Cadillac-Branda 1997 Bordeaux Superieur
(1.290 kr.) er ágætis eintak. Rauð ber, plóm-
ur og nokkur sýra. Greinilegt að Merlot er
hér í ríkjandi hlutverki. Vel uppbyggt vín,
ferskt og þægilegt.
Steingrímur Sigurgeirsson
Vín vikunnar
Veggklukka
aðeins 2.000 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111