Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 8
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.845 vikan.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Allt nema bensín
og afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
smá-rútur og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting.
Bændagisting.
Fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
sími 456 3745.
fylkirag@snerpa.is
www.fylkir.is
Daily vits
FRÁ
Langsterkasta blandan
á markaðnum
með gæðaöryggi
FRÍHÖFNIN
S
ta
n
sl
a
u
s
o
rk
a
F
yr
ir
k
o
n
u
r
o
g
k
a
rl
a
Slóðin www.visit-
sweden.com er áhugaverð
fyrir Stokkhólmsfara
NÝLEGA opnaði Euro Disney formlega nýjan
skemmtigarð í París. Þema garðsins er kvikmyndir
og gestir geta m.a. fræðst um það hvernig kvik-
mynd verður til. Forsvarsmenn Euro Disney reikna
með að gestum garðsins muni fjölga á næstu
tveimur árum í 16–17 milljónir gesta á ári. Í ár eru tíu
ár síðan Euro Disney var opnað í París.
Nýr skemmtigarður
LANGI fótfráa til að hlaupa maraþon í Vínarborg
þá er tækifærið þann 26. maí næstkomandi. Vín-
arborg er oft kölluð ein af grænu borgum Evrópu
þar sem hún hefur upp á að bjóða ótal fallega al-
menningsgarða og skóglendi þar sem hægt er að
æfa sig að hlaupa.
Morgunblaðið/Ómar
Karlskirche í Vínarborg.
Maraþon í Vínarborg
Nánari upplýsingar um maraþonhlauið fást
á slóðinni www.vienna-marathon.com
SÉRSTÖK páskadagskrá verður í
Dölunum frá 27. mars til 29. mars.
Í Tilgátuhúsinu á Eiríksstöðum
verður opið á skírdag og laugardag
og sérstök áhersla lögð á börnin þar.
Langeldur verður tendraður og
sagnamaður í klæðum að fornum sið
mun segja sögur af íslenskum köpp-
um og ræða um hvernig það var að
vera barn á þessum tíma.
Á skírdagskvöld verður söguferð í
Tungustapa sem oft er kallaður
stærsta álfakirkja landsins.
Þangað verður farið með kyndla
og tendrað á kertum í stapanum og
sagðar álfasögur.
Gestum stendur til boða að skoða
seli í fjörunni og sundlaugin er opin
alla dagana og þar eru heitir pottar
og sauna. Íþróttahúsið er opið
fimmtudag og föstudag og gestum
heimilt að ærslast þar að vild.
Sérstakt páskatilboð er á hótel
Laugum 7.500 fyrir fullorðna. Inni-
falin er gisting í tvær nætur og fullt
fæði. Börn yngri en tólf ára borga
5.500 krónur.
Álfar og
kyndlar
Morgunblaðið/Golli
Lögð verður sérstök áhersla á börn í páskadagskránni í Dölum.
Upplýsingar og pantanir í
síma 434-1264 og 434-1265
Pantanir þurfa að hafa borist
fyrir 27. marz n.k.
Páskadagskrá í Dölum
Í FYRRA voru malbikaðir göngu-
og hjólastígar í Mosfellsbæ og sett
upp fræðsluskilti. Á skiltunum
koma fram upplýsingar um staði
sem staldrað er við eins og til
dæmis við Leirvog þar sem sagt er
frá lífríkinu þar og sýndarmyndir
af dýralífinu eins og fiskunum. Þá
eru á skiltunum einnig upplýsing-
ar um sögulega staði eins og kirkj-
una, Mosfell og Álafosskvosina.
Guðný Dóra Gestsdóttir at-
vinnu- og ferðamálafulltrúi Mos-
fellsbæjar segir að bent sé á ýmsar
skemmtilegar hjóla- og gönguleið-
ir. Hún nefnir sem dæmi að hægt
sé að hjóla eftir fræðslustígnum
frá bæjarmörkum Reykjavíkur og
Mosfellsbæjar meðfram strönd-
inni að Íþróttamiðstöðinni að
Varmá. Leiðin er 3,5 km löng.
Leiðin frá Íþróttamiðstöðinni upp
í Mosfellsdal að Laxnesi er 6 km
löng. Á leiðinni er farið fram hjá
fræðsluskiltum að Ásum og við
mynni Mosfellsdals. Ef hjólað er
að kirkjustaðnum Mosfelli má sjá
fræðsluskilti um merka sögu þess
staðar.
Merkja á gönguleiðir á slóðum
Halldórs Laxness
Hún segir að í fyrra hafi verið
gerð skoðanakönnun um umhverfi
Mosfellsbæjar og þá hafi komið á
daginn að fólki fannst vanta áning
arstaði á þessum göngu- og hjóla
leiðum Á næstunni stendur því til
að setja upp bekki við þessa
merktu stíga þannig að fólk geti
hvílt sig og notið útsýnisins í leið-
inni.
Guðný Dóra segir að í tengslum
við afmæli Halldórs Laxness nú í
apríl standi til að merkja fleiri
gönguleiðir nálægt heimili skálds-
ins að Gljúfrasteini og setja upp
fræðsluskilti.
Göngukort um hverfi bæjarins
Þegar hún er spurð hvort bær-
inn sé nýbúinn að setja á Netið
göngukort um hverfi Mosfellsbæj-
ar segir hún að það hafi verið gert í
tengslum við gerð hverfavefjar.
„Við skiptum bænum upp í
hverfi og setjum inn á Netið upp-
lýsingar um hvert hverfi, göngu-
og götukort, svo og loftmyndir auk
þess sem ýmislegt annað er á
hverfavef eins og íbúi mánaðarins
og svo framvegis.“ Nú þegar vorið
er í nánd og fólk hefur kannski hug
á að ganga um hverfin þá er til-
valið að afla sér fræðslu á Netinu
fyrst, kynna sér sögu þeirra og
skoða göngukortin.
Göngu- og hjólaleiðir um Mosfellsbæ á Netinu
Stendur til að bæta við göngu-
leiðum og hvíldarbekkjum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Mosfelli hefur verið komið upp fræðsluskilti og á næstunni verður
fræðsluskiltum komið upp við nýjar gönguleiðir í Mosfellsdal sem merkja
á í tengslum við aldarafmæli Halldórs Laxness.
Göngu- og hjólaleiðakort-
in eru á vefslóð bæjarskrif-
stofu Mosfellsbæjar
www.mos.is og þar undir úti-
vist og frístundir. Hverfa-
kortin er að finna á sömu
netslóð.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111