Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 B 9
ferðalög
PÉTUR Ólafur Matthíasson og Anna Hansson gengu þannig frá hlut-
unum að hann vissi ekkert um brúðarkjólinn og hún ekkert um
brúðkaupsferðina þegar þau undirbjuggu brúðkaupið.
Skipulagning brúðkaupsferðarinnar átti að vera alfarið í hans
höndum. Pétur valdi að fara með brúðina til Færeyja.
Hvernig leist Önnu á að fara til Færeyja?
„Mér tókst alveg að halda því leyndu hvert við værum að fara
þangað til út á flugvöll var komið. Það kom svipur á hana fyrst en
áður en við lentum á Vogum var hún orðin mjög spennt fyrir eyj-
unum.
Ég vissi að hún vildi fara á rólegan stað þar sem við gætum verið
útaf fyrir okkur og rölt á kaffihús en ég vissi jafnframt að hún
kærði sig ekkert um að fara á sólarströnd og Færeyjar pössuðu vel
inn í myndina þegar ég fór að skoða málið.
Hún varð yfir sig hrifin af Þórshöfn og sagði að þetta væri ein-
mitt staður eins og hún hefði viljað fara á.“
Hvernig var að eyða hveitibrauðsdögunum í Þórshöfn?
„Brúðkaupsferðin var rómantísk, við röltum um Þórshöfn enda
fengum við rosalega gott veður.“ Pétur segir að þau hafi verið ein-
staklega ánægð með hótelið sem heitir Hafnia og er miðsvæðis í
Þórshöfn.
Pétur og Anna voru gefin saman á aðventunni og því voru þau í
Þórshöfn rétt fyrir jólin. Þau borðuðu úti á kvöldin og fóru m.a. á
jólahlaðborð á hótelinu sem þau segja að hafi verið mjög flott. Einn
daginn tóku þau bílaleigubíl og óku út fyrir bæinn, um eyjarnar. Frá-
bær ferð í alla staði fullyrðir Pétur og segir að ef fólk vilji fara á ró-
legan stað og rómantískan þá séu Færeyjar staðurinn.
„Að auki er þetta þægilegt flug og stutt að fara beint frá Reykja-
víkurflugvelli.“
Einhverjir staðir í Þórshöfn sem þið mælið með að fólk sjái?
„Þórshöfn er gamall bær og það er gaman að labba um hann því
mörg húsanna eru í fallegum litum og með torfþaki. Norðurlanda-
húsið er þess virði að skoða, hönnunin á því er snilld.
Síðan er gaman að velta tungumálinu fyrir sér, Anna skildi Fær-
eyingana merkilegt nokk betur en ég, en hún er frá Svíþjóð. En ég
brosti meira að færeysku stafsetningunni, en Færeyingar gera það
víst líka þegar þeir lesa íslenskuna.“
Pétur Ólafur
Matthíasson,
starfsmaður hjá
áhættu- og fjár-
stýringu Íslands-
banka, skipu-
lagði brúðkaups-
ferðina sína og
Önnu Hansson
til Færeyja.
Mörg húsanna eru í skrautlegum litum og með torfþaki.
Brúðkaupsferð
til Færeyja
Pétur Ólafur Matthíasson og Anna Hansson
segja að ef fólk vilji fara á rólegan og róman-
tískan stað þá séu Færeyjar rétti staðurinn.
Hotel Hafnia
Áarvegur 4-10, Postbox 107 FO-110 Tórshavn, Færeyjar
S. +298-313233, Fax +298-315250
www.hafnia.fo
Eftirminnileg ferð
Ísland
Ágönguskíðum
í Landmannalaugar
Ferðafélag Íslands efnir til skíða-
gönguferðar í Landmannalaugar
um bænadagana, eða frá 28.–30.
mars. Brottför er frá BSÍ klukkan
átta árdegis og farið verður með
sérútbúnum fjallabílum. Ekið er að
Hrauneyjum þar sem áð verður.
Síðan tekur fólk fram skíðin og
leggur af stað í Landmannalaugar
en áætlað er að gangan taki 5–6
klukkustundir. Bílar fylgja hópnum
og flytja farangur og göngufólk ef
það þreytist. Á föstudaginn langa
verður farið í 5–7 klukkustunda
langa göngu og stefnt er að því að
fara í Suðurnámur og víðar. Á
laugardagsmorgni er gengið á
skíðum út í Hrauneyjar og bílar
flytja farangur. Frá Hrauneyjum er
ekið til Reykjavíkur með fólk og
farangur. Fararstjóri er Finnur
Fróðason, en verð er 15.900 kr.
fyrir félagsmenn og 17.900 kr. fyr-
ir aðra.
Páskar í Mývatnssveit
Á föstudaginn langa verður farið í
píslargöngu umhverfis Mývatn.
Þetta er 36 kílómetra ganga og
gengur hver á sínum hraða enda
markmiðið ekki að verða fyrstur
heldur að klára vegalengdina. Bíll
fylgir með til að geyma aukabúnað
og nesti og svo er hægt að fá sér
far einstaka leggi ef þreytan sækir
að. Auk þess eru skíðagöngur alla
daga og skipulagðar vélsleðaferðir
um nágrenni Mývatns með reynd-
um leiðsögumönnum. Hægt er að
leigja skíðabúnað og vélsleða.
Menningardagskráin Músík í Mý-
vatnssveit verður á sínum stað, en
Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari,
hefur undanfarna 4 páska komið
til Mývatnssveitar með valinn hóp
listamanna. Haldnir verða tón-
leikar í Reykjahlíðarkirkju að
kvöldi föstudagsins langa og svo í
Skjólbrekku daginn eftir. Á þess-
um tvennum tónleikum er sitt
hvor dagskráin enda tilefnin mis-
jöfn, verkefnaskráin á föstudaginn
langa tekur mið af þeim sorg-
ardegi en laugardagstónleikarnir
verða með léttari verkum.
Allar nánari upplýsingar er
að fá í Hótel Reynihlíð síma
464 4170 og svo er hægt að
senda fyrirspurnir og bókanir á
bookings@reynihlid.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í Landmannalaugum.
FÓLK með lítil börn sem hyggst leigja
sumarbústað í Danmörku kann lík-
lega að meta nýjan pöntunarlista
sem búið er að gefa út þar í landi. Þar
er getið á fimmta hundrað sum-
arbústaða þar sem lagt er upp úr því
að þjónusta fjölskyldur með lítil börn.
Boðið er upp á barnarúm, barnabað-
kar, leikföng, leiktæki, þvottavél og
svo framvegis.
Það er fyrirtækið Feriepartner
Danmark sem hefur gefið út listann
og skoðað með tilliti til smábarna öll
þau hús sem í honum eru. Bústað-
irnir, sem eru vítt og breitt um Dan-
mörku, eru allt frá því að vera litlir og
henta þremur til fjórum upp í hús fyr-
ir stórfjölskyldur eða nokkrar fjöl-
skyldur sem ferðast saman.
Barnvænir sumarbústaðir í Danmörku
Listinn yfir sumarbústaði er
115 síður. Hann er hægt að
panta með því að fara inn á
slóðina: www.feriepartner.dk
Ísland frá kr. 3.700,- á dag
Danmörk frá kr. 3.500,- á dag
Þýskaland frá kr. 2.500,- á dag
Bretland frá kr. 2.700,- á dag
Bandaríkin frá kr. 3.400,- á dag
Ítalía frá kr. 3.800,- á dag
Spánn frá kr. 2.200,- á dag
Nánari uppl. í síma
591 4000
Verð miðast við flokk A eða sambærilegan
Lágmarksleiga 7 dagar Gildir til 31/03/02
Verð miðast við flokk A
Lágmarksleiga 7 dagar
Innifalið: Ótakmarkaður akstur,
trygging og vsk.
Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík
Avis býður betur ... um allan heim
Traustur alþjóðlegur þjónustuaðili