Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
FERÐASKRIFSTOFAN Fylkir –
bílaleiga ehf. sem sérhæfir sig í Dan-
merkurferðum hefur í samvinnu við
gistiþjónustuaðila í Danmörku gefið
út tvo bæklinga, annar þeirra er um
gistingu hjá Íslendingum í Danmörku
en hinn er um hótelgistingu í Kaup-
mannahöfn.
Fylkir Ágústsson sem rekur ferða-
skrifstofuna Fylki segir að upphaf-
lega hafi hann byrjað reksturinn með
bílaleigunni fyrir níu árum. Smám
saman hafi reksturinn undið upp á sig
og nú sé hann farinn að útvega fólki
gistingu, húsbíla, símakort og aðra
þjónustu sem það vill fá í Danmörku.
„Ég sérhæfi mig í þjónustu fyrir
Danmerkurfara þótt ég sé að vísu far-
inn að útvega fólki sumarhús í Nor-
egi, Svíþjóð, Þýskalandi og víðar.“
Fylkir segir að Íslendingar spyrji
mikið um gistingu hjá löndum sínum í
Danmörku og því hefur hann nú í
samstarfi við sex íslenska aðila sem
bjóða gistingu t.d. í Kaupmannahöfn
og Billund gefið út bækling um gist-
ingu hjá Íslendingum í Danmörku.
„Það eru fleiri en þessir sex ís-
lensku aðilar sem bjóða gistingu í
Danmörku en ég hef verið í samstarfi
við þessa. Margir sem leigja sumar-
hús eða bíl og jafnvel húsbíla hjá mér
hafa nefnilega viljað gista hjá Íslend-
ingum áður eða á eftir.“
Þá segir Fylkir það hafa færst í
aukana að fólk sem er í viðskiptaer-
indum vilji fá upplýsingar um hótel og
því hafi hinn bæklingurinn verið
útbúinn. „Þetta eru þriggja og fjög-
urra stjörnu hótel sem við höfum val-
ið í bæklinginn, m.a. átta hótel frá
ARP-Hansen-hótelkeðjunni.“
Hann segir að þó að hann sé farinn
að útvega fólki heimagistingu, íbúða-
gistingu, hótelherbergi og bændagist-
ingu séu sumarhúsin alltaf vinsæl en
þau er hann búinn að vera með í sex
ár.
„Ég er með um 7.000 hús á vegum
Dancenter og fólk fer bara beint inn á
Netið og tekur þar frá hús sem því líst
vel á. Við erum líka með í boði sum-
arhúsahverfi frá Lalandia.“ Hann
segir að úrvalið sé fjölbreytt en bend-
ir fólki eindregið á að taka ekki ódýr-
ustu húsin heldur hafa þau vandaðri,
það margborgi sig.
Þegar hann er spurður hvort marg-
ir kjósi að leigja húsbíl í Danmörku
segir hann það færast í aukana með
hverju árinu sem líður.
„Húsbílarnir hafa þann kost að það
er hægt að ferðast um með gististað-
inn með sér og fjögurra til fimm
manna fjölskylda borgar frá 70.000–
90.000 fyrir vikuleigu.
Þegar Fylkir er spurður um
dönsku GSM-símakortin sem hann
fór
að selja fyrir nokkru segist hann
hafa gert samkomulag við TeleDan-
mark um að kynna kortin og nú kaup-
ir hann sjálfur um þúsund
kort á ári sem hann selur en
hann segist þó gefa megnið
af þeim. „Þegar fólk leigir
sumarhús eða húsbíl í hálf-
an mánuð fylgir símakort
með. Það getur verið þægi-
legt fyrir fólk að fá danskt
símanúmer á meðan það er
í Danmörku. Þá eru engir
að hringja í fólk nema þeir
sem vita danska númerið.
Oft er það þannig að fólk er
að hringja í símann til Dan-
merkur frá Íslandi og ef
svarað er í símann borgar sá sem er í
Danmörku reikninginn.
Fylkir hefur verið í samstarfi við
danskar og þýskar bílaleigur í níu ár
og segir að undanfarið hafi hann tekið
eftir aukinni
eftirspurn eftir bílum sem aka
megi á til Austur-Evrópu. „Það vill
svo til að húsbílafyrirtækið sem ég
skipti við er einnig með bílaleigu og á
þeim bílum má aka til Tékklands, Pól-
lands og Ungverjalands svo dæmi séu
tekin.
Aukin eftirspurn eftir bílaleigubílum sem aka má á til Austur-Evrópu
Morgunblaðið/Ómar
Einnig er búið að gefa út bækling um hótel-
gistingu í Kaupmannahöfn.
Morgunblaðið/Golli
Ferðaskrifstofan hefur látið útbúa
bækling í samstarfi við sex Íslendinga
sem bjóða gistingu í Danmörku.
Gisting hjá Íslendingum í Danmörku
Ferðaskrifstofan Fylkir – Bíla-
leiga ehf.
Fjarðarstræti 15
400 Ísafjörður
sími 4563745
netfang: fylkirag@fylkir.is
Veffang: www.fylkir.is
UM páskana gera Ísfirðingar ráð
fyrir að um 3.000 manns taki þátt í
skíðavikunni á Ísafirði. Frá árinu
1979 hefur hún verið haldin árlega,
þá eftir nokkurt hlé en fyrsta skíða-
vikan var haldin þar 1935. Margir
leggja leið sína vestur um páskana til
að taka þátt í hátíðarhöldunum, ekki
síst brottfluttir Vestfirðingar.
Gunnar Þórðarson framkvæmda-
stjóri skíðavikunnar segir að í ár-
verði, eins og einu sinni tíðkaðist,
sérstakt skíðaútvarp.
„Við ætlum að halda uppi stemmn-
ingu með útvarpssendingum sem
snúast eingöngu um dagskrána og
skíði og það verða valdir menn sem
taka að sér útvarpsstjórnina.“
Á upphlut í 120 skrefa hlaupi
Gunnar segir að í fyrra hafi verið
byrjað á að bjóða gestum í 120 skrefa
hlaup og rennsli með sneiðingum.
„Þetta er aldagömul tvíkeppni
sem var endurvakin í fyrra og þátt-
takendur voru skikkaðir til að mæta
í gamaldags fötum eins og upphlut-
eða hnébuxum. Við búumst við mik-
illi þátttöku og það passar ágætlega-
að mæta í þessum múnderingum því
það er furðufatadagur sama dag,
föstudaginn langa, í Tungudal.“
Þegar hann er spurður hvað verði
fleira um að vera í brekkunum nefnir
hann garpamót en það er samhliða
svig í útsláttarkeppni.
„Það er alveg sérstakur blær yfir
þessu móti og a.m.k. 60-70 manns
sem taka þátt í því. Löngu áður en
mótið hefst eru menn að reyna að
múta dómurunum en viðkomandi
einstaklingar hafa dæmt mótið frá
upphafi.
Menn liggja andvaka fyrir mótið
og skirrast ekki við að nota misjöfn
meðul til að ná árangri.
Eitt kvöldið er svæðið lýst upp,
tónlist spiluð frameftir og hægt að
vera á brettum eða skíðum uns flug-
eldasýning hefst.
Páskaeggjamót og
sælgætisregn
Ýmislegt er gert fyrir krakka á
páskavikunni, t.d. er sérstakt
páskaeggjamót haldið fyrir þau
og allir fá páskaegg í verðlaun.
Þá rignir sælgæti yfir skíða-
svæðið einn daginn og þá er
mikið fjör hjá börnunum.
Gunnar segir að í tvígang komi
hljómsveitir á skíðasvæðið og gestir
taki danspor.
Það er ýmislegt um að vera í bæn-
um sem iðar af menningu og fjöri en
stemmningin, sem er aðals-
merki Skíðavikunnar segir
Gunnar að sé
engu lík
Veit-
ingahúsin í bænum taka þátt í hátíð-
arhöldunum, Hótel Ísafjörður býður
upp á ostahlaðborð tvö kvöld með
Bjarna Ara, Týrólakvöldið með
hljómsveitinni Bland í poka verður á
Eyrinni og djasskvöldin eru haldin í
Krúsinni.
Nágrannabæirnir eru með á
skíðavikunni, t.d. er boðið upp á kar-
aoke-keppni á Bolungarvík og síðan
er fólk dregið á skíðum til Önund-
arfjarðar og þar endar fólk á Vagn-
inum eftir að hafa skellt sér í sund og
gufu á Flateyri.
Síðastliðinn föstudag vígðu Ísfirð-
ingar nýjan skíðaskála í Tungudal.
„Eftir snjóflóðið á Seljalandsdal
1994, þegar skíðasvæði Ísfirðinga
þurrkaðist út á einni nóttu, var ráðist
í með harðfylgni nokkurra einstak-
linga, í góðri samvinnu við bæjaryf-
irvöld, að byggja nýjan skíðaskála í
Tungudal en þar er nýja skíðasvæð-
ið.
Skálinn tekur 120 manns í sæti,
þar verður veitingasala, sjoppa og í
framtíðinni skrifstofa og svefn-
pokagisting. Gamli skálinn var
færður upp á Seljalandsdal
og er mikil búbót fyrir
göngufólk, en þar er
göngusvæði Ísfirð-
inga.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Í Tungudal.
Um páskana verður starfrækt
skíðaútvarp á Ísafirði og
haldið áfram með aldagamla
tvíkeppni á skíðum sem var
endurvakin í fyrra.
Nánari upplýsingar um skíða-
vikuna er hægt að fá á slóðinni
www.isafjordur.is/ski
Sími 895-7121
Netfang: skidavika@snerpa.is
Gististaðir á Ísafirði og í næsta
nágrenni.
Gamla gistihúsið
Mángötu 5 400 Ísafirði
Sími: 456 4146
Fax: 456 5146
GSM: 897 4146
www.gistihus.is
Hótel Ísafjörður
Silfurtorgi
Ísafirði
Sími: 456 4111
Fax:
www.hotelisafjordur.is
Brynjukot
Ránargötu
Flateyri
Símar: 456 7762 og 456 7751
Gistiheimili Auðar Ásbergs
Mánagötu 6
Ísafjörður
Símar: 456-4263 og 456-
5525 GSM:868-7699
Gistiheimilið Vera
Hlíðargötu 22
Þingeyri
Sími: 456-8232
Gistiheimili Áslaugar
Hæstakaupstað
Austurvegi 7
Ísafirði
Sími: 456 3868
Fax: 456 4075.
www.randburg.com/is/aslaug
Húsverk sf - gistiskáli
Brimnesvegi 4b
Flateyri
Sími: 456 7621 GSM:899 0721
Kirkjuból
Korpudal
Önundarfirði
Sími: 456 7808 GSM: 852
2030
VEG-gisting
Aðalgötu 14
Suðureyri
Sími: 456-6666
www.sudureyri.is/gistiheimili
Gistiheimilið Þingeyri
Aðalstræti 26
Þingeyri
Farsími: 893 1058
Skíðavikan á Ísafirði haldin um páskana
Furðufígúrur á
föstudaginn
langa í Tungudal
Á föstudag-
inn langa
klæðast
gestir furðu-
fötum og
mæta þannig
í brekkurnar.
Lj
ós
m
yn
d/
E
ir
ík
ur
G
ís
la
so
n
ÞEGAR ferðast er með flugvél er
ekki laust við að smá og stundum
veruleg ónotatilfinning sæki að
þeim, sem eiga við „væga“ flug-
hræðslu að stríða. Tilefnið þarf
ekki að vera mikið. Lítilsháttar
breyting á vélarhljóði nægir stund-
um til þess að framkalla örari
hjartslátt að ekki sé minnst á þeg-
ar flugstjórinn án frekari skýringa
biður eða jafnvel skipar farþegun-
um að spenna beltin vegna óróleika
í lofti. Þá er ekki laust við að hug-
urinn leiti út um víðan völl og
ímyndunaraflið taki flug.
Um daginn brá svo við að á leið-
inni til Parísar hljómaði róleg rödd
flugstjórans, Guðrúnar Olsen, sem
bað farþega um að spenna beltin
því nú þyrfti að hækka flugið
vegna óróleika framundan. Heyrst
hefði frá flugstjórum annarra flug-
véla á sömu slóðum, sem kvörtuðu
yfir því sama. Hún tók fram að
þetta tæki fljótt af og að ekkert
væri að óttast. Og viti menn, öll
spenna hvarf og hjartslátturinn
hélt sínu striki. Það þurfti ekki
meira til.
Flugstjórinn tók fram að ekkert væri
að óttast við óróann í lofti og þá hvarf
spennan.
Óróleiki í lofti